14.03.2017
Félagsmiðstöðin Undirheimar sendi fulltrúa 3 fulltrúa á Stíl sem er hönnunarkeppni Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi). Þær Dagný Dís Bessadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir lentu í 3. sæti í keppninni og fengu að auki verðlaun fyrir bestu förðunina.
Einnig má geta þess að Laufey Lind Ingibergsdóttir, Snæfríður DÖgg Guðmundsdóttir og Ólafur Halldórsson tóku þátt í Norðurorgi sem er undankeppni fyrir stóru söngvakeppni Samfés og voru ein af fimm atriðum sem komust áfram. Aðalkeppnin fer fram þann 25.mars.
13.03.2017
Móttaka og símavarsla
Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir almennum starfsmanni á heilsugæsluna á Skagaströnd.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, tímabókun, afgreiðsla og uppgjör
- Símsvörun
- Skjalafrágangur
- Afgreiðsla lyfja frá Lyfju
- Ræsting á húsnæði heilsugæslunnar
- Önnur tilfallandi störf
Hæfnikröfur
- Æskilegt að hafa reynslu af afgreiðslustörfum og dagsöluuppgjörum
- Reynsla og góð undirstaða í almennri tölvuvinnslu er æskileg
- Almenn enskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott viðmót, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannþjónustu hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Starfshlutfall er 70 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2017
Nánari upplýsingar veitir
Ásdís H Arinbjörnsdóttir - asdis.arinbjarnardottir@hsn.is - 455 4100
HSN Blönduós Heilsugæsla Skagaströnd
Flúðabakka 2
540 Blönduós
12.03.2017
Starfsfólk í sumarafleysingu
Við leitum eftir sumarafleysingafólki í liðsheild okkar hjá Greiðslustofu
Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.
Í boði eru fjölbreytt verkefni með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.
Hvetjum alla sem hafa áhuga að sækja um – öllum umsóknum verður svarað
Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Jensínu Lýðsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra - Greiðslustofu, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is fyrir 30. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar hjá Jensínu í síma 515 4800.
10.03.2017
Síldarþrærnar
Myndin var tekin 1962 og sýnir síldarþrærnar við verksmiðjuna.
Þrærnar voru í tveimur átta þróa röðum með vegg á milli.
Í botninum, á milli þeirra, var færiband sem flutti síldina úr þrónum
inn í verksmiðjuna sjálfa sem er fyrir endanum á myndinni.
Til vinstri á myndinni er svo færibandið sem flutti síldina frá
löndunarkrananum og í þrærnar. Til vinstri og hægri við þrærnar voru
skúrar eða lítil hús sem notaðir voru sem geymslur undir t.d. salt,
rotvarnarefni og annað sem verksmiðjan notaði.
Syðsti skúrinn hægra megin var þó notaður fyrir síldarradíóið en þar var
alltaf maður á vakt yfir síldveiðitímann og voru skipin í sambandi
við hann með aflatölur, löndunartíma og annað þess háttar.
Þrærnar hafa nú verið brotnar niður til að skapa gámapláss á höfninni
en ef einhvern langar að púsla þeim saman aftur þá er grjótmulningurinn
úr þeim í haug í grifjunni fyrir ofan Spákonufellsrétt :-).
Senda upplýsingar um myndina
09.03.2017
Laufey Lind Ingibergsdóttir, nemandi í 10. bekk Höfðaskóla, sigraði í sínum flokki í smásagnasamkeppni Félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ). Í vetur tók Höfðaskóli tók í fyrsta sinn þátt í samkeppninni sem hefur undanfarin sjö ár verið haldin í tengslum við Evrópska tungumáladaginn.
Fyrirkomulag keppninnar er þannig að nemendur í 3.-10. bekk í grunnskólum, sem og nemendur framhaldsskóla geta tekið þátt í keppninni. Verðlaunasæti eru alls ellefu, 1.-3. sæti í þremur flokkum; 7.-8. bekkur, 9.-10. bekkur og framhaldsskóli og svo 1.-2. sæti í flokknum 3.-6. bekkur. Nemendur eiga að skrifa sögurnar sínar út frá fyrirfram gefnu þema. Þemað að þessu sinni var Roots (rætur).
Verðlaunaafhending fór fram á Bessastöðum síðastliðinn föstudag þar sem forsetafrú Íslands, Eliza Reid, setti athöfnina og veitti verðlaun ásamt stjórn FEKÍ.
Laufey Lind lýsti þátttöku sinni í keppninni og verðlaunaafhendingunni þannig:
„Snemma í nóvember kynnti enskukennarinn okkar, Helga Gunnarsdóttir, fyrir okkur smásagnasamkeppni Félags enskukennara á Íslandi, FEKÍ. Hún sagði okkur að við ættum, sem verkefni í skólanum, að skrifa smásögu á ensku og skila inn fyrir 4. desember og að svo myndi hún og Vera skólastjóri velja eina sögu úr hvorum flokki (7. & 8. bekkur og 9. & 10. bekkur). Yfirheiti keppninnar það árið var “Roots”, eða á íslensku, rætur.
Ég fékk strax hugmyndina að sögunni minni sem ég kalla The tree og byrjaði að skrifa hana í tíma, kláraði hana svo þegar ég kom heim sama dag, sendi til systur minnar, Maríu, til að fara yfir og skilaði svo sögunni daginn eftir til Helgu; ennþá með tæpan mánuð eftir.
Þá byrjaði biðin.
Helga greindi ekki frá úrslitum innan skólans fyrr en í byrjun desember og þá var aftur beðið.
Um miðjan janúar fékk Helga tölvupóst þar sem hún fékk að vita að ég hefði unnið og að við myndum seinna fá að vita hvar og hvenær verðlaunaathöfnin yrði. Við fengum svo formlegt boðskort í febrúar þar sem okkur var boðið á Bessastaði.
Þegar ég, mamma, pabbi og Helga komum á Bessastaði föstudaginn 3. mars þá voru margir komnir enda ég ekki eina manneskjan til að vinna til verðlauna í þessari keppni, því það eru fyrsta annað og þriðja sæti í efstu þremur hópunum, 7. & 8., 9. & 10. og framhaldsskólaaldur, og svo fyrsta og annað úr 3.- 6. bekk. Einnig voru flestir verðlaunahafar með foreldrum sínum og enskukennara.
Eliza Reid, forsetafrúin, tók á móti okkur og við söfnuðumst saman í salinn þar sem fálkaorðurnar eru veittar. Eliza hélt stutta ræðu. Svo kom fulltrúi stjórnar FEKÍ og óskaði verðlaunahöfum til hamingju. Við fengum öll viðurkenningu, enska bók og hefti með öllum verðlaunasögunum. Eftir það var myndataka.
Við Eliza spjölluðum svolítið en svo bauð hún öllum að skoða húsið og fá kleinur, kaffi og djús. Eftir skoðunarferð voru teknar nokkrar myndir því það er ekki á hverjum degi sem ég er boðin á Bessastaði.
Seinna frétti ég að forsetinn, Guðni Th. hefði verið á eineltisráðstefnu og þess vegna ekki verið þarna en þetta var engu að síður mjög skemmtileg reynsla.“
Við óskum Laufeyju Lind til hamingju með árangurinn.
03.03.2017
Heimilisfólk að Höfðahólum.
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd.
Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er
tjaldsvæðið á Skagaströnd.
Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en
Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn.
Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar, hálfbróðir systkininna
og elstur þeirra.
Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
01.03.2017
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi miðvikudaginn 15. mars næstkomandi.
Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
27.02.2017
Tillaga að deiliskipulagi á Melstaðatúni á Skagaströnd
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar samþykkti fimmtudaginn 26. janúar 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Melstaðatúns skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið nær yfir Melstaðatún, eins og það er skilgreint í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagastrandar 2010-2022.
Melstaðatún er sunnan við Laufás, um 350m norðan þéttbýlisins á Skagaströnd. Svæðið er um 1,3 ha. að stærð og afmarkast af Spákonufellshöfða að sunnan og vestan, lóð Laufáss og Réttarholtshæð að norðan en gamla Skagavegi að austan.
Deiliskipulagstillagan felur í sér svæði fyrir gistingu, tjaldsvæði og gestahúsum ásamt aðstöðuhúsi á Melstaðatúni með það fyrir augum að þar verði skjólgott og aðlaðandi útivistarsvæði/áningarstaður fyrir ferðamenn og tengist m.a. gönguleið um Spákonufellshöfða.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3 á Skagaströnd og á vefsíðu sveitarfélagsins www.skagastrond.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á tölvupóstfang skagastrond@skagastrond.is fyrir 31. mars 2017
Skagaströnd 7. febrúar 2017
Sveitarstjóri
27.02.2017
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 28. febrúar 2017 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
1. Hólanes ehf /Hrafnanes ehf. hlutfjáraukning.
2. Náttúrustofa Norðurlands vestra.
3. Samningur um afritun verndaðra verka
4. Ársreikningur Snorrabergs ehf
5. Vegvísir samstarfsnefndar Samb. ísl. sv.félaga og KÍ.
6. Bréf
a. Uppbyggingarsjóðs Nl.vestra, dags. 1. febrúar 2017
b. SSNV, dags. 22. febrúar 2017
c. Thorp - Þorgeirs Pálssonar, dags. í feb. 2017
d. Björgunarsveitarinnar Strandar, dags. í jan. 2017
e. Ísorku – Sigurðar Ástgeirssonar, dags. í feb. 2017
f. N4 – Maríu Bjarkar Ingvadóttur, dags. 7. febrúar 2017
g. UMFÍ – Jóns A. Bergsveinssonar, dags. 7. febrúar 2017
7. Fundargerðir:
a. Stjórnar SSNV, 6.02.2017
b. Aðalfundar Róta bs., 25.01.2017
c. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 23.01.2017
d. Stjórnar Sambands ísl sveitarfélaga, 27.01.2017
8. Önnur mál
Sveitarstjóri
24.02.2017
Útför Guðmundar Sigvaldasonar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag föstudaginn 24. febrúar og hefst athöfnin kl. 13:30.
Guðmundur Sigvaldason fæddist 14. apríl 1954 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu, Birkihlíð 6, Hörgársveit þann 8. febrúar 2017. Hann ólst upp í Garði í Kelduhverfi, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1973, BA-prófi í landafræði og prófi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda við Háskóla Íslands 1978.
Eftirlifandi eiginkona hans er Torfhildur Stefánsdóttir grunnskólakennari, frá Tungunesi í Fnjóskadal og eru börn þeirra þrjú; Sigvaldi, Álfheiður og Óðinn.
Meginhluta starfsævinnar starfaði Guðmundur í opinberri þjónustu. Hann kenndi við Stórutjarnaskóla, vann hjá Fjórðungssambandi Norðlendinga og var framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Þá var hann verkefnastjóri hjá Sorpeyðingu Eyjafjarðar og Akureyrarbæ og sveitarstjóri á Stokkseyri, á Skagaströnd og í Hörgárbyggð (síðar Hörgársveit). Síðustu tvö árin sinnti hann bókhaldi fyrir ýmis félög.
Guðmundur var sveitarstjóri á Skagaströnd á árunum 1986 – 1990. Hans er minnst fyrir hlýlegt og alþýðlegt viðmót og vönduð vinnubrögð við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Síðustu ár þurfti Guðmundur að takast á við erfið veikindi vegna krabbameins í fæti sem varð til þess að taka þurfti fótinn af við mjöðm. Þá kom vel í ljós æðruleysi hans og þrautseigja þar sem hann lét þessa erfiðleika ekki stöðva sig. Krabbamein er hins vegar illvígur sjúkdómur sem lagði góðan dreng að velli eftir snarpa baráttu.