18.01.2019
Sorg á Skagaströnd 1961
Um þessar mundir (2019) eru rúm 58 ár síðan óhugur og sorg ríkti
meðal fólks á Skagaströnd.
Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson,
sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri
á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8 22. nóvember 1961.
Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961:
"Óttast að tveir bræður hafi farizt.
Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag.
Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd
og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust
áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við
Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi
í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð.
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur
og sjálfur stundaði sjómennsku. Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi.
Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst.
Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma
sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist
frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi
og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór
og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun
en hafði einskis orðið var. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn,
en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi.
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn
í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður".
Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
11.01.2019
Erla Jónsdóttir opnaði bókhalds- og rekstrarráðgjafafyrirtæki sitt, Lausnamið, formlega 10. janúar 2019. Í tilefni af því bauð hún gestum og gangandi í heimsókn í Gamla kaupfélagið til að skoða fyrirtækið og þiggja léttar veitingar. Rúmlega 70 manns þáðu boðið og fögnuðu með þeim Erlu og Sigríði Gestsdóttur þessum spennandi tímamótum. Það er alltaf mikið gleðiefni þegar ný fyrirtæki verða til á Skagaströnd. Það sýnir að fólk hefur trú á bænum okkar og er til í að grípa þau tækifæri sem bjóðast til að fjölga stoðunum undir atvinnulífið á staðnum. Um leið og við óskum Erlu allra heilla með Lausnamið vonum við að fyrirtækið eigi eftir að vaxa og dafna í framtíðinni.
11.01.2019
Reyklaus framtíð
Tóbaksvarnaráð Íslands hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga
á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum.
8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur.
Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús
á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu.
Krakkarnir eru, frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir,
Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Albert Ingi Haraldsson,
Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Friðvin Ingi Ernstsson, Eyþór Kári Egilsson,
Björn Viðar Jóhannsson, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.
09.01.2019
Vegna framkvæmda í biðsofu og móttöku heilsugæslunnar þarf að loka A inngangi um tíma, frá og með 10/1 2019. Inngangur í Lyfju verðu þó óbreyttur.
Þeir sem koma á heilsugæsluna á dagvinnutíma ganga inn um innganginn sem snýr að Svínvetningabraut, SV á byggingunni við hliðina á sjúkrabílainnkeyrslunni. Þeir sem leita til heilsugæslunnar utan dagvinnutíma koma inn í samráði við vaktlækni.
Þeim sem koma í sjúkraþjálfun er bent á að nota B inngang og taka lyftuna þar niður í kjallara.
Heimsóknargestir og aðrir sem erindi eiga í húsið noti B inngang.
Beðist er afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda en vonum að þau verði sem minnst.
08.01.2019
Byrjum aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 10. jan.
Starfið er frá kl. 14:00- 17:00
Allir öryrkjar og 60 ára og eldri eru velkomnir, gaman væri nú ef fleiri vildu koma og taka þátt í starfinu með okkur.
Það sem við gerum okkur til skemmtunar er prjónaskapur, saumum bæði út og á ssaumavélar, málum á keramik, gler/krukkur, mosaik,spilum og síðast en ekki síst þá spjöllum við og höfum gaman.
Við höfum farið í smá ferðalag á vorin og jafnvel yfir veturinn.
Það er líka hægt að kíkja í kaffisopa og spjall.
Vonumst til að fleiri komi og njóti samverunnar með okkur.
Kveðja Obba og Ásthildur
04.01.2019
Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2019
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar 18. desember 2018
Fasteignagjöld
Fasteignaskattur:
Álagning á íbúðarhúsnæði (A-flokkur) verði 0,48% af álagningarstofni.
Álagning á opinberar stofnanir (B-flokkur) verði 1,32% af álagningastofni.
Álagning á verslunar- og atvinnuhúsnæði verði (C-flokkur) 1,65% af álagningarstofni.
Lóðarleiga: Lóðarleiga verði 1,65% af fasteignamatsverði lóða.
Vatnsskattur:
Vatnsskattur verði 0,3% af fasteignamati að lágmark 7.260 kr. og á íbúðarhúsnæði að hámarki 36.300 kr.
Holræsagjald: Holræsagjald verði 0,24% af fasteignamati lóða og mannvirkja
Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald:
Sorphirðugjald verði 44.151 kr./íbúð fyrir reglubundna sorphirðu og eyðingu. .
Sorpeyðingargjald verði 13.913 kr./sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg sorphirða.
Sorpeyðingargjald á hesthús og fjárhús verði 4.937 kr./hús í notkun.
Sorpeyðingargjöld á fyrirtæki verða samkvæmt gjaldskrá.
Leiga ræktunarlóða: Fyrir hvern ha ræktunarlóða er greitt fast leigugjald. Auk þess greiða lóðarhafar fasteignagjöld af lóðunum skv. fasteignamati.
Lóðaleiga verði 7.260 kr./ha.
Eftirfarandi reglur gilda umlækkun fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega:
Fasteignagjöld verða eingöngu lækkuð af íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega, sem þeir búa í sjálfir. Til viðmiðunar eru allar tekjur viðkomandi, þar með taldar fjármagnstekjur.
Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 40.000,- hjá:
• Einstaklingum með tekjur allt að 3.587.000 kr/ári
• Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að 5.862.000 kr/ári
Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 20.000,- hjá:
• Einstaklingum með tekjur allt að 4.483.000 kr/ári
• Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að 7.327.000 kr/ári
Sveitarstjóri
04.01.2019
Snjómokstur
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells.
Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar
umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku.
Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar
snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp
með handafli svo hægt væri að opna lyftuna.
Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum.
Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka
mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var.
Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo,
annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður.
Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og
Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
02.01.2019
Við hátíðamessu í Hólaneskirkju á Skagaströnd á aðfangadagskvöld var vígt og tekið í notkun nýtt orgel í kirkjunni. Það var sóknarpresturinn, Bryndís Valbjarnardóttir, sem vígði orgelið og Sigríður Gestsdóttir, fyrir hönd sóknarnefndar, afhenti Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur, organista og kórstjóra, lyklana að nýja orgelinu.
Orgelið er úr ljósri eik af gerðinni AHLBORN ORGANUM III og er þýskt en að mestu leiti framleitt á Ítalíu samkvæmt staðli, BDO, sem eru samtök þýskra orgelsmiða og hefur það hlotið sérstaka viðurkenningu fagaðila.
Orgelið er 57 sjálfstæðar raddir sem deilast á þrjú nótnaborð og fótspil en að auki eru 128 aukaraddir sem hægt er að sækja og skipta út í stað aðalraddanna. Þessi möguleiki eykur fjölbreytni orgelsins mikið. Raddirnar eru teknar upp í stafrænu formi úr góðum pípuorgelum og síðan endurspilaðar aftur í stafrænu formi þegar leikið er á orgelið og þannig næst fallegur pípuorgelhljómur úr orgelinu.
Orgelið kostaði rúmlega 3 milljónir króna og er að fullu greitt með fjórum minningargjöfum sem bárust kirkjunni í desember mánuði. Við athöfnina þakkaði Sóknarnefnd Hólaneskirkju gefendum innilega fyrir höfðinglegar gjafir og þann mikla hlýhug og velvilja sem þau sýna kirkjunni og því starfi sem þar fer fram.