Drekktu betur í Kántrýbæ

Nú byrjar þessi skemmtilega spurningakeppni í Kántrýbæ föstudagskvöldið 26. september næstkomandi, og verður framvegis hálfsmánaðarlega ef áhugi er fyrir hendi. Tilgangurinn er  fyrst og fremst að skemmta sér, spurningarnar eiga ekki að vera erfiðar, heldur fjölbreyttar og draga fram almenna þekkingu, síður sérhæfða. Keppnin hefur verið haldin vikulega í mörg ár á skemmtistaðnum Grand Rokk í Reykjavík, á Langa Manga á Ísafirði, Café Riis á Hólmavík, Sjallanum á Akureyri og víðar. Tveggja manna lið Leikurinn fer þannig fram að keppt er í liðum og eru tveir í hverju liði. Að loknum spurningum er farið yfir svör og má óska eftir að spyrill lesi einstaka spurningar aftur. Liðin fara ekki yfir eigin svarblöð heldur er svarblöðunum safnað saman og þeim svo dreift aftur af handahófi. Spyrillinn er dómari Í leiknum er aldrei sami spyrillinn tvisvar í röð. Spyrillinn semur spurningarnar og er dómari og raunar alvaldur. Hafi tvö eða fleiri lið jafnmörg rétt svör eftir 30 spurningar skal gripið til bráðabana. Þá er fyrst spurt 5 spurninga og reynt að knýja fram sigurvegara með flestum svörum réttum. Ef ekki fæst sigurlið úr þessum 5 spurningum skal spyrja 3 spurninga að auki. Ef ekki fást niðurstöður eftir það, skal spyrill spyrja spurninga, einnar og einnar í einu þar til úrslit fást. Bjórspurning Í hverri keppni er „bjórspurning“. Þau lið sem ná að svara þeirri spurningu rétt eiga þá inni tvo litla bjóra á barnum. Til að eiga möguleika á bjórkassanum sem er í verðlaun þarf sigurliðið að vera með 15 svör eða fleiri rétt. Keppnisgjöld eru engin, en mælst til að keppendur kaupi á bjór á barnum, kaffi eða gosdrykki - þess vegna heitir keppnin „Drekktu betur“. Spyrill í fyrsta skiptið verður Sigurður Sigurðarson, markaðsráðgjafi Sveitarfélagsins Skagastrandar. Ekki hefur verið ákveðið hver verður næsti spyrill en auðvitað eru allar tillögur vel þegnar.  

Fróðleikur frá Spákonuarfi.

Listin að lesa úr innmat. Nú þegar sumri er tekið að halla og septembermánuður heilsar með fallandi laufum og næturfrosti, er rétt að huga að haustverkum á öllum betri heimilum. Á það ekki einungis við um sultugerð og kartöflutínslu því haustinu fylgir líka sláturtíð með viðeigandi verkum og því rétt að láta hendur standa fram úr ermum. En þegar staðið er yfir sláturpottunum eða keppir saumaðir á síðkvöldum leitar hugurinn að komandi vetri og þeirri tíð sem í vændum er. Verða jólin hvít eða rauð? Þarf að grafa upp síðbrækurnar í október? Verður hægt að spila golf fram að aðventu? Íslendingar hafa löngum notast við þjóðlegar aðferðir til þess að segja fyrir um veður komandi vetrar og er rétt að rifja þær upp nú í upphafi sláturtíðar og eyða um leið þeirri óvissu sem óljós vetrartíð hefur í för með sér. Ekki þarf að leita langt yfir skammt í þessum efnum því reynslan sýnir að finna má svör við flestum okkar veðurspurningum í innmat hinna ýmsu dýra. Þannig er tilvalið að skoða garnir fyrstu sauðkindarinnar sem slátrað er á haustin og gæta vel að innihaldinu, enda getur það gefið óbryggðula vísbendingu um veðurfarið. Þar sem garnirnar eru fullar af gor er góðrar tíðar að vænta en tómu kaflarnir vita á harðindi og snjó. Svo er hægur vandi að reikna út dagsetningar eftir því hvort gorinn liggur framarlega eða aftarlega í görnunum. Óvíst er að allir komist auðveldlega yfir kindagarnir en þá má benda á nautgripamilta sem þjónað getur sama tilgangi. Nokkrar aðferðir eru þekktar við að spá í milta en sú sem er hvað einföldust byggist á því að skera eða höggva miltað í þrjá hluta, helst blindandi. Veðurspáin er svo lesin frá hægri til vinstri, því stærri sem bitarnir eru, því verri tíð. Jafnir bitar vita hinsvegar á góðan vetur. Ráðlegt er að hafa sjúkrakassann við höndina þegar slíkur spágjörningur er framinn, þar sem óvanir gætu hoggið eitthvað annað en ætlunin var – sér í lagi með bundið fyrir augun. Þó langtímaspár séu ágætar getur einnig verið gott að hafa við höndina tæki sem spáir fyrir um nánustu veðurframtíð. Það á sérstaklega við ef fólk hefur misst trúna á veðurfræðinga sjónvarpsins og vill taka málin í eigin hendur. Í slíkum tilfellum má notast við kýrblöðru sem blásin er upp og kallast þá veðurspámaður. Þegar blaðran er lin er von á stilltu veðri en stormi ef veðurspámaðurinn er harður. Með þessu móti ætti veðrið aldrei að koma á óvart, svo ekki sé minnst á hversu vel uppblásin kýrblaðra fer í stofu. Af þessu má ráða að það er hægur vandi hverjum þeim sem áhuga hefur að gerast veðurfræðingur, svo framarlega sem hann hefur aðgang að nægum innmat og iðrum. Spákonuarfur, Skagaströnd

Veðurspá fram í desember!

Skagstrendingar geta eins og aðrir á Norðurlandi vestra búist við að veðrið verði bara aldeilis gott fram í desember. Þetta fullyrðir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á bloggi sínu, http://esv.blog.is. Hann segir að hlýrra verði hér en meðaltal og lítið um rigningu. Einar segir þetta: a. Frekar hýtt á landinu. 1-2°C yfir meðalagi, einkum norðvestantil og norðanlands. 50-70% líkur að það verði í hlýjasta lagi (80% eða í efsta fimmtungi) b. Fremur úrkomusamt verður um vestanvert landið miðað við meðaltal, en úrkoma í meðaltali eða þaðan af minna austan- og suðaustanlands. Meira um tilkomulítil, en rakaþrungin lægðardrög. c. Hærri þrýstingur yfir hafsvæðunum suðaustur af landinu og Skandinavíu. Lægðagangur hér við land minni og ómerkilegri heilt yfir en annars hér á haustin. d. Ríkjandi vindar verða frekar S og SV á kostnað A- og NA-átta. Reikningar IRI við Colombia háskólann í New Yorkgefa svipaðar niðurstöðu, þ.e. að á Íslandi séu verulegar líkur á meðalhita þessa mánuði í efsta þriðjungi. Breska Veðurstofan gerir ráð fyrir nokkuð stöðugu veðri á Bretlandseyjum með minni úrkomu en í venjulegu árferði, í samræmi við háþrýsting að jafnaði þar og norður á okkar slóðir. Horfur um veður í sumar gengu ótrúlega vel eftir. Við sjáum hins vegar til með haustið.

Göngur og réttir á Skagaströnd

Göngur og réttir verða á Skagaströnd á laugardaginn. Samstímis verður smalað í Skagabyggð og réttað í Fossárrétt og Kjalarlandsrétt. Fé og hross af heiðinni, Spákonufellsborg og heimahögum verður rekið að Spákonufellsrétt og verður þar bæði fjárrétt og hrossarétt. Eigendum ber að vera til staðar við réttina og hirða búfé sitt svo að réttarstörfum verði nú lokið fyrir myrkur. Af reynslu fyrri ára má gera ráð fyrir því að réttir hefjist einhvern tímann á bilinu 13 til 15 á laugardaginn.

Sjósund á Skagaströnd

  Þeir eru margir sem sækja sjóinn frá Skagaströnd. Hún Katy Hertell, myndlistarmaður frá Finnlandi, fer hins vegar í sjóinn á Skagaströnd.  Og hvað í ósköpunum fær fólk til að baða sig í köldum sjó? Það vita varla aðrir en þeir sem hafa reynt það og þeir eru fjölmargir, jafnvel nokkrir á Skagaströnd.  Sjóböð ku vera svo óskaplega holl og góð. Fyrir utan þá vellíðan sem færist í kroppinn eftir stutt bað í köldum sjó er leitun að betra meðali gegn kvefi og raunar flestum öðrum kvillum. Sjá nánar bloggsíðu Sjósundmanna Íslands, http://sjosund.blogspot.com/.   Margir hafa séð meðfylgjandi mynd af Magnúsi B. Jónssyni sveitarstjóra kvótalausan á fiskiríi fyrir utan Skagaströnd (skyldi Sjávarútvegsráðuneytið vita af þessu ...?).   Annars væri ekki vitlaus hugmynd að stofna til sjóbaðfélags.  Áhugasamir geta hafa samband við Sigurð á skrifstofu sveitarstjórnar.  

Leirlistanámskeið í Bjarmanesi

Þriggja daga leirlistanámskeið verður haldið í kjallaranum á Café Bjarmanesi og hefst það miðvikudaginn 10. september. Það er Steinunn Ósk Óskarsdóttir, sem stendur fyrir námskeiðinu en hún hafði í sumar umsjón með veitingastaðnum í Bjarmanesi. Námskeiðið hefst klukkan 20 og stendur í tvær klukkustundir hvert kvöld. Steinunn Ósk veitir allar upplýsingar í síma 6929283.

Ævintýrið Skrapatungurétt 2008

Dagana 13. og 14. september verður mikið fjör í Austur Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Gestir eiga þess kost að slást í för með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri. Þátttakendur leigja hesta hjá heimamönnum eða mæta með sína eigin hesta. Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardeginum 13. september. Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10. og síðan riðið sem leið liggur um Strjúgsskarð og norður Laxárdal. Athugið að aðstaða til að geyma hross nóttina fyrir smölunardag er við sandnámu við Strjúgsstaði (norðari afleggjari). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni. Við Kirkjuskarðsrétt á Laxárdal er hópurinn um kl 14. Þar hvíla hestar og menn og fá sér að eta og drekka eftir þörfum. Veitingar verða seldar á staðnum. Ráðgert er að leggja af stað kl. 16 frá Kirkjuskarði. Þaðan er riðið norður í Skrapatungrétt sem er ein myndarlegasta stóðrétt landsins. Gestir og heimamenn heillast ávallt af tignarlegu stóðinu. Ferðamannafjallkóngur líkt og í fyrra verður Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduóss. Hann er heimavanur á þessum slóðum og mun sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni. Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstursfjarlægð frá Blönduósi en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 40 mín. Á laugardagskvöldinu verður auk hefðbundins matseðils sérstök stóðréttarmáltið í boði á Pottinum og Pönnunni Blönduósi.Opið verður á veitingahúsinu við Árbakkann þar sem í boði verður hefðbundinn matseðill. Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í Skrapatungurétt um kl. 11. Bændur ganga í sundur hross sín og reka þau svo í lok dags til síns heima. Oft finna karlar og konur sinn draumagæðing í smalamennskunni eða í réttunum. Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna og ferðafólks þar sem er spilað, sungið og skemmt sér að sið Íslendinga. Að þessu sinni slæst með í för kvikmyndatökulið. Unnið er að gerð heimildamyndar um viðburðinn. Allir gestir eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar um þjónustu má fá í síma: 891 7863 eða í netfangi haukur@ssnv.is.

Listamenn í september

Í nýbyrjuðum september koma fjöldi listamanna til Skagastrandar og dvelja hjá Nes-listamiðstöð. Þeir heita: Ivetta Gerasimchuk, rithöfundur, Rússland, Jessica Langley, myndlistarmaður/málari, Bandaríkin Ben Kinsley, myndlistarmaður/skúlptúristi, Bandaríkin Kate Dambach, myndlistarmaður/málari, Bandaríkin Katy Hertell, myndlistarmaður/málari, Finnland Albane Hupin, myndlistarmaður/blönduð tækni, Frakkland Julien Toulze, myndlistarmaður/blönduð tækni, Frakkland Aglae Bassens, myndlistarmaður/málari, Belgíu Bryndís Bragadóttir, leikkona, Ísland

Miriam Acoustic Group heldur tónleika

Það verður nóg að gera í menningarlífi Húnvetninga og Skagfirðinga í næstu viku því þá mun pólsk/íslenska jazzhljómsveitin Miriam Acoustic Group halda tónleika á flestum þéttbýlisstöðunum. Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði fyrir nokkru styrkjum til menningarverkefna á svæðinu og fékk Kaffihúsið Við árbakkann styrk til að flytja inn þessa hljómsveit. Mun hún spila í grunnskólum og einnig á nokkrum vel völdum stöðum. Á mánudag (1. sept.) verða tónleikar í Félagsheimilinu á Blönduósi kl. 20:30, á þriðjudag eru tónleikar í Kántrýbæ kl. 20:00, á miðvikudag kl. 20:00 njóta gestir kaffi Síróps á Hvammstanga tónleika og lokatónleikarnir verða á Mælifelli á Sauðárkróki kl. 20:00. Gaman er að geta þess að það er frítt á alla tónleikana því auk styrksins frá Mennigarráði hafa nokkur fyrirtæki styrkt verkefnið. Þau eru: Stígandi ehf, SAH afurðir, Samkaup, Vélsmiðja Alla, Léttitækni ehf., Vífilfell, Kjalfell, Sparisjóður Húnaþings og Stranda, KVH Hvammstanga, Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar, Fjölritunarstofan Grettir, Bílaleiga Akureyrar: Höldur, Við árbakkann og Verkfræðistofan Stoð Nú er bara að drífa sig út og njóta góðra tónleika í boði þessara ágætu aðila. Skólatónleikarnir verða sem hér segir: Í Grunnskólanum á Blönduósi mánud. 1. sept. kl. 11, í Húnavallaskóla þriðjud. 2. sept. kl. 10:30 og í Höfðaskóla kl. 14 þann sama dag. Miðvikudaginn 3. sept. verður hljómsveitin í Grunnskóla Húnaþings vestra, Laugarbakka kl. 10:30 og föstudaginn 5. september kl. 10:30 í Árskóla á Sauðárkróki.

Fræknir Frammarar

Nú þegar sumarið er senn á enda er gaman að rifja upp hvað krakkar í Umf. Fram á Skagaströnd hafa haft fyrir stafni í sumar. Starf félagsins byrjað á fótboltanámskeiði undir stjórn Ágústs Inga sem endaði með þátttöku á Smábæjarleikum á Blönduósi.  Eftir fótboltanámskeiðið hófst starf á íþróttavellinum sem   var eins og undanfarin ár í góðu samstarfi við Sveitarfélagið Skagaströnd.  Að þessu sinni voru þátttakendur um 45. Hér var um að ræða sambland af kofasmíði, skólagörðum og almennri hreyfingu m.a. frjálsum íþróttum, undir stjórn Hilmars Sigurjónssonar.  Við hjá Ungmennafélaginu Fram erum eins og alltaf ákaflega stolt af okkar börnum en að þessu sinni erum við sérstaklega ánægð með hvað margir tóku þátt í íþróttamótum í sumar og hversu góður árangur náðist. Umf. Fram lenti í þriðja sæti á héraðsmóti USAH sem haldið var á Blönduósi. Þar unnu til verðlauna Róbert Björn Ingvarsson, Stefán Velemir, Elvar Geir Ágústsson , Guðrún Anna Halldórssdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðjón Örn Kristjánsson og Laufey Inga Stefánsdóttir.  Á Barnamóti USAH sem haldið var í Húnaveri átti Umf Fram 15 keppendur sem allir stóðu sig með mikilli prýði. Níu þátttakendur frá Umf. Fram tóku þátt á unglingalandsmóti UMFÍ sem nú var haldið í Þorlákshöfn.  Hafa aldrei jafn margir keppendur frá Umf. Fram tekið þátt á þessu stórskemmtilega móti sem er í raun ein stór hátíð fyrir alla fjölskylduna. Að sjálfsögðu var allt okkar fólk til fyrirmyndar og stóð sig allt frábærlega. Krakkarnir kepptu í frjálsum íþróttum og fótbolta. Á landsmótinu vann Stefán Velemir til verðlauna en hann hlaut silfurverðlaun í kúluvarpi. Frændi hans Róbert Björn Ingvarsson varð fjórði í 800m hlaupi. Þristurinn, frjálsíþróttamót þar sem keppa USAH,USVH og UMSS var að þessu sinni haldið að Reykjum í Hrútafirði. Mótið var æsispennandi og baráttan í fyrirrúmi en svo fór að lokum að USAH sigraði m.a. með góðum árangri krakkana frá Skagaströnd.  Frammararnir sem tóku þar þátt voru Róbert Björn Ingvarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Elvar Geir Ágústsson, Guðrún Anna Halldórssdóttir og Stefán Velemir. Lönduðu þau samtals 7 gullverðlaunum, 4 silfurverðlaunum og einu bronsi. Rúsínan í pylsuendanum var að þeir frændur Stefán Velemir og Róbert Björn Ingvarsson tóku þátt á Meistaramóti Íslands sem haldið var að Laugum í Þingeyjarsýslu nú um miðjan ágúst. Gerðu þeir sér lítið fyrir og hlutu báðir silfurverðlaun í sínum greinum. Róbert í 800m hlaupi en Stefán í kúluvarpi. Eftir þessa upptalningu á afrekum sumarsins er ljóst að við getum öll verið virkilega stolta af unga fólkinu okkar og því mikilvægt að foreldrar haldi áfram að hvetja börnin til þátttöku í íþróttum. Fh. Ungmennafélagsins Fram Halldór Ólafsson, formaður