16.07.2008
Halldór Árni Sveinsson sem dvelur nú í júlí hjá Nes-listamiðstöð á Skagaströnd stendur fyrir almennu námskeiðið í málun. Það verður haldið hjá Nes-list að Fjörubraut og mun standa yfir í þrjá daga, frá þriðjudeginum 22. til 24. júlí frá kl. 19.30 - 22.30. Þátttakendur fá leiðsögn í olímálun, vatnslitamálun og/eða meðferð pastel- eða olíukrítar.
Námskeiðið er bæði ætlað byrjendum sem og þeim sem lengra eru komnir.
Æskilegt er að þátttakendur taki með sér það sem þeir eiga af litum og lérefti en slíkt verður einnig hægt að kaupa á staðnum gegn vægu gjaldi.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Halldór Árni Sveinsson myndlistamaður og kennari. Hann er menntaður auglýsingateiknari frá Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og hefur víða kennt málun og listgreinar m.a. í
Námsflokkum Hafnarfjarðar sl. 20 ár.
Halldór hefur haldið nokkar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum.
Verk hans eru í eigu fjölda fyrirtækja, stofnana og einstaklinga.
Námskeiðið - sem er ókeypis - er hugsað sem lítill þakklætisvottur fyrir frábærar móttökur heimamanna hér á Skagaströnd.
Þar sem takmarka verður þátttöku á námskeiðinu við 8 manns er nauðsynlegt að tilkynna þátttöku til Halldórs í síma 8565857, sem mun einnig veita allar frekari upplýsingar.
10.07.2008
Stórviðburður verður á fimmtudagskvöldið í Kántrýbæ. KK og Maggi Eiríks munu þá troða upp á tónleikaferð sinni um landið. Þeim verður áreiðanlega vel fagnað á Skagaströnd og varla við öðru að búast en húsfyllir verði.
Þeir félagar hafa átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár. Plötur þeirra hafa selst vel og þeir notið vinsælda á tónleikum.
Þeir eru vísir til að taka marga vinsæla slagara og trúlega verður hraustlega tekið undir Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og til að gleðja gesti sína er Kángtrýbær með sérstakt tónleikatilboð á stórum bjór, 500 kall.
09.07.2008
Verðlaunin fyrir ljósmyndasamkeppnina sem efnt var til vegna opnunar gönguleið á Spákonufellshöfða voru afhent í litlu kaffiboði í gær í Café Bjarmanesi. Ólafur Bernódusson hlaut fyrstu verðlaun og í öðru sæti var Marian Bijlenga, hollenskur listmaður sem dvelur á Skagaströnd á vegum Nes-listamiðstöðvar. Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri afhenti þeim verðlaunin. Í máli hans kom meðal annars fram að tæplega fimmtíu myndir hafi borist í keppnina. Flestar komu frá Skagstrendingum en líka frá erlendum listamönnum.
Dómnefndinni hafði verið nokkur vandi á höndum en mynd Ólafs af lúpínu í kvöldsól þótti fanga vel kvöldstemmingu við sólsetur. Rauðir geislar sólarinnar mörkuðu fallega útlínur plöntunnar. Mynd Marian af geldingahnappi þótti nokkuð sérstök. Hún er tekin í fjöru og umhverfið allt er mjög harðneskjulegt og erfitt fyrir plöntur.
Fyrstu verðlaun var lítil stafræn myndavél af Pentax gerð og önnur verðlaunin var bókin Fuglavísir eftir Jóhann Óla Hilmarsson. Að vísu er bókin á íslensku en Marian kvaðst án efa geta notið myndanna og ef til vill yrði bókin til þess að hún lærði eitthvað í íslensku.
07.07.2008
„Þetta var frábær ferð, sextíu og fjórir gengu á fjallið. Fólk á öllum aldri, nærri sjötíu ára aldursmunur var á elsta og yngsta þátttakandanum,“ segir Ólafur Bernódusson, fararstjóri í ferðinni.
Um klukkutíma fyrir göngu sást Spákonufell ekki fyrir þoku.
Skyndilega og eins og hendi væri veifað leystist þokan upp og sól skein í heiði. Enginn sá eftir að hafa tekið þátt. Hiti var mikill í fjallinu, glampandi sól og logn allan tímann.
"Við gengum nú rólega á fjallið, tókum okkur tvo og hálfan tíma í ferðina upp,“ sagði Ólafur. „Enginn var að flýta sér og teknar góðar hvíldir, sagðar sögur sem tengdust Þórdísi spákonu og jafnvel reynt að ná sambandi við álfa. Við höfðu þá góðu reglu að láta sannleikann ekki spilla góðri sögu“ bætti Ólafur við og glotti.
Í ferðinni var göngufólk víða að af Norðurlandi vestra og einhverjir töluðu erlend tungumál.
Að göngu lokinni var boðið upp á veitingar í golfskálanum, kaffi, kakó, vöfflur og kleinur. Allir þátttakendur fengu svo afhenta spádómsvölu sem minjagrip um gönguna frá Spákonuarfi.
Næsta Þórdísarganga á Spákonufell verður laugardaginn 16. ágúst, þ.e.
á Kántrýdögum. Sagt er að allar spár bendi til að veðrið þann dag verði ekki síðra en í fyrstu Þórdísargöngunni.
07.07.2008
Það var hvort tveggja yndislegt og skemmtilegt að mæta leikskólanum á karnival-göngu sinni um bæinn síðasta fimmtudag. Hópurinn var klæddur í ýmis konar furðubúninga, börn ekki síður en fullorðnir og sumir voru meira að segja málaðir. Ekki spillti nú veðrið fyrir, sól skein í heiði og vindurinn var nokkurn veginn kyrrstæður.
Hópurinn lék við hvern sinn fingur, söng og trallaði. Þetta var aldeilis tilbreyting í bæjarlífinu. Jafnvel rykugir skrifstofuþrælar örkuðu út í glugga og sagt er að gamalt bros hafi kviknað í ólíklegustu andlitum. Aðrir gengu út og samfögnuðu liðinu úr leikskólanum. Að flestra áliti mættu fleiri taka leikskólann sér til fyrirmyndar og spauga á þennan eða álíka hátt.
04.07.2008
Nýjir gestir eru komnir til Skagastrandar á vegum Nes-listamiðstöðvar.
Listamennirnir koma hinga víða að og verða allan júlímánuð hér og sinna listiðkun sinni.
· Marian Bijlenga er textíllistakona og kemur ásamt maka sínum frá Hollandi.
· Wendy Crockett er ljósmyndari frá Kaliforníu.
· Jade Boyd er vídeólistamaður og kemur alla leið frá Ástralíu.
· Ger Glancy er írskur skúlptúrlistamaður
· Jon Mertz er frá Sviss og er skúlptúrlistamaður og kona hans er Katya og er rússnesk.
· Halldór Á. Sveinsson er málari og myndlistakennari.
· Guðrún Benónýsdóttir er er myndlistakona
Fólkið býr á Mánabraut 1 og 11 og Túnbraut 5 og hefur vinnuaðstöðu í gamla fiskvinnsluhúsinu við Fjörubraut.
04.07.2008
Fimmtudaginn 10. júlí nk. verða KK og Maggi Eiríks með tónleika í Kántýbæ. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.21:00. Tónleikarnir verða kynntir nánar síðar.
Allir velkomnir
03.07.2008
Dregið hefur verið úr réttum svörum í ratleiknum sem efnt var til er gönguleiðirnar á Spákonufellshöfða voru formlega opnaðar. Tvær ungar dömur skrifuðu sig á sama svarblaðið. Þær heita Ásdís Birta Árnadóttir og Aldís Embla Björnsdóttir, báðar eru þær 11 ára.
Þær fá í verðlaun bókina „Íslenskur fuglavísir“ eftir Jóhann Óla Hilmarsson, fuglafræðing. Höfundurinn tók allar myndirnar sem eru á
fugla- og gróðurskiltunum á Höfðanum og samdi auk þess textann. Bókin hefur verið mjög vinsæl en er nú hins vegar orðin afar fágæt.
Vonandi verður bókin til þess að hinir ungu vinningshafar fái áhuga á fuglum landsins og hún verði þeim til gleði og ánægju um ókomna tíð.
Þátttaka í ratleiknum var mjög góð og bárust fimmtíu og sjö svarblöð.
Sveitarfélagið Skagaströnd þakkar öllum fyrir þátttökuna.
03.07.2008
Mynd af lúpínu í kvöldsól á Spákonufellshöfða hefur verið valin besta myndin í ljósmyndasamkeppni sem efnt var til í tilefni formlegrar opnunar á gönguleiðum um Höfðann. Ljósmyndarinn er Ólafur Bernódusson.
Önnur verðlaunin er mynd af geldingahnappi í fjörugrjóti sem vex út úr sprungu á steini í fjörunni milli Reiðingsflatar og Sauðskers í Geldinganesi. Ljósmyndarinn er Marian Bijelenga, myndlistamaður frá Hollandi, sem dvelur hér á vegum Nes-listamiðstöðvar.
Dómnefndin telur mynd Ólafs vera einstaklega vel heppnaða.
Ljósmyndarinn nýtti sér stund og stað, miðnætursólina sem var að því komin að setjast og staðurinn var við lúpínu. Kvöldsólargeislarnir gylla neðri hluta lúpínunnar en á efri hluta hennar verða til margvíslegir mildir litatónar á blómi plöntunnar, allt frá dökkbláum út í ljósbláa og fölrauða. Frá myndinni geislar kvöldstemming og hughrif sem verða til um miðnæturbil í Spákonufellshöfða.
Í fyrstu verðlaun var myndavél af gerðinni Pentax Optio E35.
Mynd Marian er vel tekin. Hún leggur megináherslu á sjálfan geldingahnappinn og harðúðugt umhverfið. Ótrúlegt að nokkur plnata geti þrifist á þessum slóðum þar sem brimið svarrar og virðist engu eira. Lífið kviknar þó á ólíklegustu stöðum eins og myndin sannar.
Önnur verðlaun var bókin „Íslenskur fuglavísir“ eftir Jóhann Óla Hilmarsson, fuglafræðing. Höfundurinn tók allar myndirnar sem eru á fugla- og gróðurskiltunum á Höfðanum og samdi auk þess textann.
Bókin hefur verið mjög vinsæl en er hins vegar afar fágæt.
Fjölmargar myndir bárust í samkeppninna og eru öllum þeim sem þátt tóku færðar bestu þakkir fyrir framlag sitt. Dómnefndin átti í raun afar erfitt með eð gera upp á milli fjölda góðra mynda.
01.07.2008
Spákonuarfur, menningarfélag á Skagaströnd, stendur fyrir gönguferð á Spákonufell á laugardaginn 5. júlí. Lagt verður af stað klukkan 11 frá Golfvellinum og er gangan er til minningar um Þórdísi spákonu sem bjó á 10. öld á bænum Felli og nefnist Þórdísarganga.
Fararstjóri í ferðinni er Ólafur Bernódusson, en hann þekki Spákonufell afar vel og ekki síður sögur af Þórdísi. Ólafur hefur um árabil stundað rannsóknir á fjallinu og er sagt að hann geti nú staðfært ýmsa atburði sem gerðust í lífi Þórdísar, bæði sannar og lognar. Hann hefur til dæmis fundið bjargið sem kerlingin henti ofan af Borginni og drap rolluskjátuna sem gert hafði henni gramt í geði í langan tíma. Sagan segir ennfremur frá því að Þórdís hafi gengið daglega upp í Spákonufell og greitt þar lokka sína. Mun Ólafur hafi fundið hárgreiðslustaðinn og gott ef ekki líka einhverja lokka kerlingar. Síðast en ekki síst er hugsanlegt að Ólafur hafi fundið þann stað er Þórdís fól kistuna sem full er af gersemum.
Gönguleiðin á fjallið var nýlega stikuð. Gengið er fyrst í stað upp aflíðandi brekkur fyrst í stað en síðan verða þær aðeins brattari.
Hverig er leiðin snarbrött. Uppi er stórkostlegt útsýni, sér yfir í Skagafjörð allt í Fljótin. Gangan tekur 3-4 tíma og ekki spillir fyrir að spáð er fínu veðri á laugardaginn.
Nauðsynlegt er að vera í góðum skóm helst með stífum sóla. Börn og unglingar geta þó verið í strigaskóm. Munum að oftast er nokkru kaldara uppi á fjalli en niðri á láglendi. Mikilvægt er að hafa með sér nesti.
Að lokinni göngu verður boðið upp á veitingar í golfskálanum. Allir sem ganga á fjallið fá viðurkenningu.
Þátttökugjald er 1000 kr. Ókeypis er fyrir yngri en 16 ára.
Nauðsynlegt er að fólk skrái sig í gönguna og er skráningarsíminn 861 5089.