25.11.2008
Þrír sóttu um embætti sóknarprest á Skagastönd. Frestur til að skila inn umsóknum rann út 14. nóvember.
Umækjendur eru Arndís Ósk Hauksdóttir, Salvar Geir Guðgeirsson og Ursula Árnadóttir.
Valnefnd sóknarnefndar ásamt prófasti Húnavatnsprófastsdæmis hefur undanfarið rætt við þá sem sóttu um. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um nýjan prest verði tekin nú í vikunni og biskup veiti embættið veitt frá 1. desember og gildir ráðningin til fimm ára.
25.11.2008
Þann 29. nóvember verður árlegur jólaföndurdagur foreldrafélagsins haldinn, þetta hefur hingað til verið frábær dagur þar sem öll fjölskyldan kemur saman og föndrar og hefur gaman af.
Við viljum minna á að jólaföndrið er opið öllum sem vilja koma, svo endilega bjóðið afa og ömmu eða bara hverjum sem er með.
Eins og áður er þetta sama dag og piparkökubaksturinn í leikskólanum.
Fjörið stendur frá kl. 13:00 – 16:00
Foreldrafélagið verður með ýmiskonar jólaföndurvörur til sölu og einnig verður selt kaffi og kökudiskur.
Mjög gott er að hafa í huga að koma með skæri, límstifti, föndurliti, pennsla og nál ef fólk á.
Vonumst til þess að sjá sem flesta í jólaskapi
Stjórn foreldrafélagsins
24.11.2008
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
þriðjudaginn 25. nóvember 2008 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008
2. Gjaldskrár sveitarfélagsins
3. Frumhönnun sundlaugar
4. Viðbygging verknámshúss FNV
5. Fjárhagsáætlun Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál
6. Bréf:
a) Dóms- og kirkjumálaráðherra, dags. 9. september 2008.
b) Óbyggðanefndar, dags. 28. október 2008.
c) Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. september 2008.
d) Siglingastofnunar, dags. 9. október 2008.
e) Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, dag. 7. október 2008.
f) Heimilisiðnaðarsafnsins, dags. 19. október 2008.
g) Menningarráðs Norðurlands vestra, dags. 17. október 2008.
h) Knattspyrnusambands Íslands, dags. 24. október 2008.
7. Fundargerðir
a) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 5.11.2008.
b) Menningarráðs Norðurlands vestra, 14.10.2008.
c) Menningarráðs Norðurlands vestra, 28.10.2008.
d) Samtaka minni sveitarfélaga, 12.11.2008.
e) Heilbrigðisnefndar Nl.vestra, 7.10.2008.
f) Stjórnar SSNV, 30.09.2008.
g) Stjórnar SSNV, 15.10.2008.
h) Stjórnar SSNV, 4.11.2008.
i) Stjórnar Sambands ísl. sv.fél, 10.10.2008.
j) Stjórnar Sambands ísl. sv.fél, 31.10.2008.
8. Önnur mál
24.11.2008
Hin landsþekkta fréttakona Lára Ómarsdóttir verður með fyrirlestur í Bjarmanesi 26. nóvember klukkan 20 til 22.
Yfirskrift fræðslufundarins er Hagsýni og hamingja – Hvernig lifa má af litlu án þess að glata gleðinni. Hún er fimm barna móðir sem talar af reynslu og mun kynna góð ráð í kreppunni og á að öllum líkindum erindi við alla á þessum erfiðum tímum.
Lára heldur fleiri fundi og fundarstaðir eru sem hér segir:
Bíókaffi Siglufirði, þriðjudaginn 25. nóv. kl. 16:30 – 18:30.
Höfðaborg Hofsósi, þriðjudaginn 25. nóv.kl. 20:00 – 22:00
Ólafshúsi Sauðárkróki, miðvikudaginn 26. nóv. kl. 16: 30 – 18:30
Pottinum og pönnunni Blönduósi, fimmtdaginn 27. nóv. kl. 16:30 – 18:30
Kaffi Síróp Hvammstanga, fimmtudaginn 27. nóv. Kl. 20:00 – 22:00
Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Það er Vinnumálastofnun á Norðurlands vestra og Farskólinn, miðstöð símenntunar sem stendur að fundunum.
20.11.2008
Óhætt er að segja að laugardagurinn verði viðburðaríkur í Nes- listamiðstöðinn á Skagaströnd. Þá verður opið hús hjá listamönnunum sem þar vinna um þessar mundir. Boðið verður upp á ljóðalestur, frásagnir, myndlistarsýningu og fyrirlestur.
Húsið verður opnað kl. 15 á laugardaginn.
Listamennirnir Timo Rytkönen frá Finnlandi, Kate Dambach frá Bandaríkjunum og Ben Taffinder frá Bretlandi munu segja frá verkum sínum og Carola Luther rithöfundur frá Suður Afríku les nokkur ljóð.
Hrafnhildur Sigurðardóttir mun opna myndlistasýningu sína í Frystinum, sýningarsalnum, en Hrafnhildur er verkefnisstjóri listamiðstöðvarinnar.
Rithöfundurinn Sverrir Sveinn Sigurðarson verður með fyrirlestur kl. 17 í Kántríbæ. í honum mun hann fjalla um Þorfinn Karlsefni, Guðríði og skrælingja. Sverrir notar fjölda mynda við flutning sinn, sýnir ferðir norrænna mann til Grænlands og til Vesturheims. Hann hefur safnað gríðarlegum upplýsingum um „skrælingja“ sem bjuggu á þeim slóðum sem talið er að Íslendingar hafi heimsótt. Óhætt er að segja að Sverrir búi yfir einna mestri þekkingu á ferðum Íslendinga á þessum slóðum. Hluta fyrirlestursins hefur hann flutt í Höfðaskóla og einnig heimsótti hann eldri borgara í Sæborg.
Að sjálfsögðu eru allir boðnir velkomnir í Nes-listamiðstöðina en sérstaklega eru Húnvetningar og Skagfirðingar hvattir til að leggja nú land undir fót og sjá hvað er að gerast á Skagaströnd.
20.11.2008
Spurningakeppnin Drekktu betur verður haldin á föstudagskvöldið 21. nóvember kl. 21:30. Spyrill kvöldsins verður Signý Richter og lofar hún fjölbreyttum og skemmtilegum spurningum við allra hæfi.
Sú nýbreytni var tekin upp síðast að ekki var gert uppiskátt hver bjórspurningin var fyrr farið var yfir svörin.
Reglur keppninnar eru m.a. þessar:
Tveir í hverju liði
30 spurningar, skrifleg svör, skrifa skýrt og greinilega, merkja blöðin
Einn spyrill, sem er dómari og alvaldur, ákvörðun hans er endanleg
Bjórkassi í verðlaun fyrir þá sem hafa flest svör rétt
„Bjórspurningin“; fyrir rétt svar fæst bjórglas á barnum. Ekki látið vita hvaða spurning það er fyrr en við yfirferð á svörum. Spyrill á að kvitta upp á svörin svo bjórinn fáist afgreiddur
Hlé eftir 15 spurningar
Hlé eftir 30 spurningar
Ókeypis inn en „drekktu betur“, kaffi, kók, bjór, vín og margt fleira í boði
Þegar spurt er um nöfn útlendinga þá er fjölskyldunafnið, eftirnafnið, nóg
Þegar spurt er um innlend mannsnöfn þá verður skírnarnafn og föðurnafn að koma fram.
Ekki eru gerðar kröfur um réttritun, heldur nægir að svarið hljómi eins og rétt ritað svar
Spyrill getur brugðið út af reglum ef um sérstakar aðstæður er að ræða
Þátttakendur mega í hófi reyna að koma spyrli í vanda og gera grín að honum
Þátttakendur verða að hlýða spyrli og mega ekki trufla aðra
Ekki má sækja upplýsingar til annarra, hvorki í síma né á annan hátt.
17.11.2008
Verðlagning vöru og þjónustu er oft ýmsum vandkvæðum háð og ósjaldan lenda menn í vandræðum með hana. Þann 24. nóvember verður Útflutningsráð með námskeið í áætlanagerð og verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og SSNV-atvinnuþróun.
Námskeiðið verður haldið að Mælifelli á Sauðárkróki, mánudaginn 24. nóvember kl. 13-17. Á námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning.
Þátttakendur fá einnig áætlunarlíkan í Excel til afnota.
Námskeiðið er ætlað fyrirtækjum í útflutningi á vöru og þjónustu þ.á m. ferðaþjónustufyrirtækjum og öllum er velkomið að sækja það. Ekki er krafist greiðslu.
Nánari upplýsingar veitir Katrín María Andrésdóttir hjá SSNV- Atvinnuþróun, sími 455 6119, kata@ssnv.is. Þar er einnig tekið við skráningu á námskeiðið.
Einnig veitir Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði nánari upplýsingar, sími 511 4000, inga@utflutningsra
12.11.2008
Samkvæmt tillögu menntamálaráðherra hefur Dagur íslenskrar tungu verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember, frá árinu 1996.
Höfðaskóli hefur ætíð síðan gert mikið úr deginumog haldið upp á hann með einhverjum hætti. Í fyrra var ákveðið í Höfðaskóla skyldi dagurinn einnig vera helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólannn með því að halda menningar- og hátíðardagskrá fyrir bæjarbúa í félagsheimilinu Fellsborg.
Nemendur skólans munu syngja, leika, flytja ljóð, sögur ofl. Í ár eru 50 ár liðin frá því eldri hluti skólabyggingar Höfðaskóla var tekinn í notkun og mun dagskrá kvöldsins því að einhverju leyti tengjast sögu skólans.
Aðgangur er ókeypis en skólafélagið Rán verður með kaffi á borðum og veitingasölu í hléi og kostar 350 kr fyrir kaffi/svala og kökudisk.
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla vonast eftir að sjá sem flesta bæjarbúa í hátíðarskapi í Fellsborg.
10.11.2008
Spurningarnar í drekktu betur á föstudagskvöldið voru þrælerfiðar og kvörtuðu og kveinuðu þátttakendur eins og þeir lifandi gátu. Sökudólgurinn var Finnur Kristinsson sem samdi spurningarnar en kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir var hinn alvaldi spyrill og stóð sig með prýði.
Hér skal tekið dæmi um erfiðar spurningar. Hvaða fjöll erunákvæmlega í vesturátt frá Spákonufellshöfða? Það reyndust nú vera Balafjöll á Ströndum.
Spurt var hvað efsti hluti Árbakkafjalls héti. Svarið var Illviðrahnúkur.
Svo vandaðist nú málið ærlega er Guðbjörg varpaði þeirri spurningu fram, hversu langt væri að sigla frá tiltekinni borg í Suður-Kóreu um Súez-skurð og Miðjarðarhaf til Skagastrandar. Af miskunsemi sinni leyfði Guðbjörg að svara mætta annað hvort í kílómetrum eða mílum. Vegalengdin var að því er sérlegum fréttaritara minnir um 12.000 kílómetrar.
Við lá að þátttakendur fengju hjartaáfall við næstu spurningu. Hvaða nöfn má draga af þessum orðum: "Ógnarfjöldi, aleinn maður", "Ungur sveinn og dýr í skógi", Fer um geyminn, hægur, hraður" og "Hefur sárbeitt nef og klær"? Ekki var laust við að stöku viskustykki brynnu yfir við þessa spurningu. Svarið var þó einfalt, að minnsta kosti þegar það lá ljóst fyrir; Hermann, Björn, Kári og Örn!
SVo er ekki úr vegi að nefna bjórspurninguna, en hún var um William nokkurn Addis sem fann árið 1770 upp apparat sem allir nútímamenn nota daglega. Hvað skyldi það nú hafa verið? Svörin voru mörg, skeið, gaffall og jafnvel salerni. Rétt var svar var þó tannbursti. Þrjú lið höfðu þó þetta svar á takteinum.
Svo fóru nú leikar að Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Ólafsson rétt mörðu sigur og fengu 14 stig og bjórkassann. Á eftir komu tvö lið sem fengu 13 stig hvort og voru ekki sátt við sinn hlut.
Til samanburðar má þess geta að yfirleitt hafa sigurliðin í Drekktu betur fengið frá 22 til 23 stig. Má af þessu sjá hversu strangar spurningarnar voru í þetta sinn. Hins vegar skemmtu menn sér afar vel enda leyfi til að draga dár að spyrli og lasta spurningar hans og var það leyfi nokkuð vel nýtt.
Næsti spyrill og höfundur spurninga verður Signý Richter.
06.11.2008
Nú, þegar almenningur og fyrirtæki eru hvött til að horfa fram á veginn og láta ekki deigan síga þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu, er ekki úr vegi að minna á að nú hefur öðru sinni verið auglýst eftir umsóknum um stuðning frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.
Markmið samningsins eru að efla atvinnulíf og þekkingu innan
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslna.
Styrkhæf verkefni skulu annars vegar lúta að rannsóknum og menntun, eða ferðaþjónustu og menningu hins vegar. Samstarf tveggja eða fleiri aðila er skilyrði fyrir styrkveitingu.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember nk. Nánari upplýsingar er að finna á vef SSNV og hjá starfsmanni sjóðsins, hjordis.gisladottir@ssnv.is