Bygging sumarhúss

Fyrsta sumarhúsið er að rísa í nýju sumarhúsahverfi við Skagaströnd. Húsið stendur við Hólaberg en gatan sem húsin standa við var nefnd eftir bergjunum sem þau standa við ofan við Vetrarbrautina. Skipulögð hefur verið byggð fyrir 10 hús í þessum áfanga og er Snorraberg ehf að byggja fyrsta húsið. Gert er ráð fyrir því að húsið sé leigt út til almennra nota og ætlunin að það verði tilbúið fyrir sumarið. Húsið er flutt inn í einingum frá Lettlandi og er Trésmiðja Helga Gunnarssonar verktaki við að reisa húsið og innrétta.

Gríslingamót

Nokkrir vaskir krakkar ætla á sunnudaginn að taka þátt í Gríslingamóti ÍA í badminton á Akranesi. Lagt verður af stað í bítið og komið heim að kvöldi. Mótið er ætlað 11 ára og yngri og fara foreldrar með undir fararstjórn Hjálms, tómstunda- og íþróttafulltrúa sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 844 0985.

Vetrarþjónusta hjá Höfðahreppi

Vetur konunugur hefur ráðum ríkjum á síðustu vikum og minnt á sig í ýmsum myndum. Snjór hefur lagst yfir allt sem bætir þó birtuleysið í dimmasta skammdeginu. Vel hefur gengið að halda götum og gönguleiðum opnum og tækifærin á milli þegar dúrar notuð til að hreinsa snjó út úr götum og breikka þær þar sem það á við. Þannig hafa orðið til snjófjöll víða og eru þau sumstaðar notuð til þess að stýra snjóum og að draga úr skafrenningi þar sem það er hægt. Með þeim hætti næst jákvæðri árangur út úr snjómokstrinum og hann hjálpar til við að draga úr enn meiri snjósöfnun. Lögð hefur verið áhersla á að auka hálkuvarnir og eru götur og gangstéttar sandaðar þegar svellar til að draga úr slysahættu.

Áramótin

Áramótin voru haldin með hefðbundnu sniði á Skagaströnd. Björgunarsveitin Strönd og Ungmennafélagið Fram stóðu fyrir flugeldasölu í Gamla Kaupfélagshúsinu. Þar fóru allir viðskiptavinir sem versluðu fyrir 12 þúsund krónur eða meira í pott, síðan var dregið úr pottinum og var Árni Sigurðsson skipstjóri sá heppni og fékk í verðlaun tertur og flugelda að verðmæti 20 þúsund. Hátiðahöldin um kvöldið hófust með blysför að brennunni og var svo kveikt í henni, við brennuna er öllum gefin stjörnuljós, sem vekur sérstaka ánægju hjá unga fólkinu og síðan hófst glæsileg flugeldasýning að hætti Björgunarsveitarinnar Strandar. Veðurútlit fyrir kvöldið lofaði ekki góðu, en Björgunarsveitin Strönd og Umgmennafélgaið Fram voru bænheyrðir og fór brennan og flugeldasýningin fram í góðu veðri og skyggni. Björgunarsveitin Strönd og Ungmennafélagið Fram vilja þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við undirbúning brennu og flugeldasýningar, gestum og styrktaraðilum.