Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagastrandar 2010-2022

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti 26. ágúst s.l. tillögu að aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagastrandar 2010-2022. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla voru til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 25. maí til 22. júní 2010 með fresti til að skila inn athugasemdum til 7. júlí 2010. Ennfremur var tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is. Tvær athugasemdir bárust vegna tillögu að tilfærslu Skagastrandarvegar. Athugasemdirnar gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu tillögunnar. Greinargerð með athugasemdum og umsögnum um þær eru inn á heimasíðu sveitarfélagsins (sjá hér). Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um tillöguna og niðurstöður sveitarstjórnar geta snúið sér til sveitarstjóra Skagastrandar. Sveitarstjóri

Vigtarskúrinn léttari

„Betri helmingurinn varð eftir,“ sagði Rúnar Kristjánsson, tvíræður á svip, þar sem hann stóð ásamt fleirum og horfði á þann helming gamla vigtarskúrsins við Skagastrandarhöfn sem eftir stendur. Inni í honum sinnir Þórey Jónsdóttir, hafnarvörður áfram störfum sínum, en vörubíll undir stjórn eignmans hennar, Sigurbjörns Björgvinssonar, flutti hinn á burt. Upphafsorðin hefðu allt eins getað verið botninn í góðri vísu eftir Skagastrandarskáldið. Gamli vigtunarskúrinn má muna sína daga fegurri og hans tími er liðinn. Nú er ætlunin að flytja nýtt hús á sama stað. Á vegum Trésmíðaverkstæðis Helga Gunnarssonar er verið að byggja nýtt vigtunarhús, stærra rúmbetra og í alla staði þægilegra. Gert er ráð fyrir að það verði komið í notkun í byrjun nóvember. Þangað til segist Þórey hafnarvörður verða að þola dvölina í fimmtíu prósentunum. Segist láta sig dreyma um leðursófasett, flatskjá, heitan pott og annað sem léttir vinnuna ...

Steindór R. Haraldsson fer holu í höggi

Tveir félagar í Golfklúbbi Skagastrandar fór hring á golfvellinum í góða veðrinu um klukkan 17 gær. Þetta voru þeir Steindór R. Haraldsson og Lárus Ægir Guðmundsson.  Á sjöundu braut, sem er par 3, lentu þeir í vandræðum því kúlan hans Steindórs fannst ekki hvernig sem þeir félagar leituðu. Þannig háttar til að flötin sést ekki frá teignum og slá menn því nokkuð blint en notast við mið í fjarska. Lá nú við að þeir gæfust upp á leitinni. Datt þá Lárusi í hug að benda Steindóri á að kíkja ofan í holun því hann var nær henni. Nei, fussaði og sveiaði Steindór, hélt að það gæti nú alls ekki verið. En viti menn. Þarna lá kúlan ofan í þeirri holu sem næstum allir golfarar taka fram yfir aðrar. Þetta er verulega ánægjulegur atburður enda er Steindór fyrsti félaginn í klúbbnum sem hefur farið holu í höggi – a.m.k. hér á Skagaströnd.   Ástæða er til að óska Einherjanum Steindóri innilega til hamingju með afrekið og ekki síður Lárusi Ægi fyrir að hafa verið einherjanum til hvatningar til dáða allan hringinn og gert honum afrekið kleyft. Þess má geta að báðir, Steindór og Lárus Ægir, eru í sóknarnefnd ...

Kynningarfundir í Bjarmanesi á miðvikudag

Kynningarfundur um námskeiðið Sóknarbraut verður haldið í Bjarmanesi á morgun, miðvikudag, kl. 14:30. Þar verður sagt frá námskeiðinu en stefnt er að því að það hefjist 6. október. Námskeiðið hentar öllum þeim sem áhuga hafa á að stofna fyrirtæki eða reka nú þgar fyrirtæki. Engin krafa er gerð um neina menntun. Aðalatriðið er að hafa einhverja hugmynd um rekstur, viðbót við rekstur eða áhuga á því að styrkja þann rekstur sem fyrir er. Sóknarbraut fjallar um rekstur fyrirtækja þar sem áhersla er lögð á markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar.   Á kynningarfundinum í Bjarmanesi verður upp á kaffi og meðlæti og Kjartan Ragnarsson leikstjóri og forstöðumaður  Landnámssetursins  í Borgarnesi mun segja frá reynslu sinni og gefa góð ráð.   

Opið hús hjá Nesi listamiðstöð

Fimmtudaginn 23.september verður opið hús hjá Nesi listamiðstöð frá klukkan 18 til 20. Listamenn septembermánaðar bjóða Skagstrendingum og öðrum þeim sem áhuga hafa í heimsókn í vinnustofur sínar þar sem þeir munu sýna það sem þau hafa verið að vinna að undan farnar vikur.  Átta listamenn hafa dvalið hjá okkur í september og þeir eru: Andrea Weber – innsetningar og teiknari – Frakkland/Þýskaland Anja Fußbach – blönduð tækni – Þýskaland Brandon Vickerd – myndhöggvari – Kanada Caroline Piccioni – myndhöggvari – England Clint Wilson – videólistamaður – Kanada Erica Mott – dansari – Bandaríkin Louise Mary Thomas – listmálari – England Marion Bösen – silkiprentari – Þýskaland Á sama tíma munu þær Marion og Anja hafa skiptimarkaðinn sinn opin. Öllum er velkomið að koma með eitthvað sem handgert og skipta við þær og fá í staðinn listaverk að eigin vali.  Það er t.d. hægt að koma með handverk eða bjóða þeim í bíltúr og sýna þeim eitthvað skemmtilegt. Einnig má segja þeim sögur eða jafnvel færa þeim eitthvað nýbakað eða eldað.  Notum hugmyndaflugið og skiptum.

Búist er við vatnsleysi/truflun á morgun.

Búist er við vatnsleysi/truflun um allan bæ á morgun 21. september 2010 milli 08:00-12:00. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Ljósmyndasafn Skagastrandar leitar einn til þeirra sem hugsanlega telja sig þekkja til. Hér er myndin af mannfagnaðinum sem birt var fyrir viku. Líklega er hún tekin í kveðjuhófi við starfslok Páls Jónssonar skólastjóra 1968 ,hafði hann þá  gegnt skólastjórastarfi í tæp 30 ár. Innst eru Sigríður Guðnadóttir og Páll Jónsson næst honum er Þorfinnur Bjarnasson, Margrét Konráðsdóttir, Kristinn Pálsson, Björgvin Jónsson, Hallbjörn Hjartarson og síðast er Ingólfur Ármannsson. Þá er hér önnur mynd sem Guðmundur Guðnason tók líklega öðru hvoru megin við 1960. Átta menn eru við vegagerð eða vinnu í flagi. Fjórir þeirra standa fyrir framan  jarðýtutönn, hinir sitja uppi á henni. Nú spyr, Hjalti Viðar Reynisson, hjá Ljósmyndasafninu, hvort einhverjir viti nöfn þessara manna, hvenær myndin var tekin og ekki síst við hvað þeir eru að vinna. Síminn hjá Hjalta er 455 2707 og netfangið myndasafn@skagastrond.is

Vísindakaffi í Kántrýbæ á fimmtudaginn

Fræðasetur HÍ á Norðurlandi vestra og Rannís bjóða í Vísindakaffi í Kántrýbæ á Skagaströnd fimmtudaginn 23. september kl. 20-21:30 undir fyrirsögninni Mikilvægi munnlegrar sögu, Kynning á verkefni Fræðasetursins á Skagaströnd. Markmiðið með Vísindakaffi er að færa vísindin nær almenningi og kynna það rannsóknastarf sem stundað er í landinu á aðgengilegan hátt. VÍSINDAVAKA – stefnumót við vísindamenn verður Í Listasafni Reykjavíkur föstudaginn 24. september Dagskrá fundarins verður sem hér segir:  Rósa Þorsteinsdóttir: Gamall fróðleikur á nýju formi. Sagt frá þjóðfræðisafni Árnastofnunar og hvernig efni úr því er gert aðgengilegt, m.a. í gagnagrunninum Ísmús. Upptökurnar sem Rósa spilar úr segulbandasafninu eru frá Norðurlandi vestra. Rósa er þjóðfræðingur við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.  Soffía Guðný Guðmundsdóttir: Samstarfsverkefni um stafrænt hljóðskjalasafn að frumkvæði Fræðasetursins. Sagt frá víðtæku samstarfi um varðveislu munnlegra heimilda og opinn aðgang að þeim á netinu. Samstarfsaðilar Fræðasetursins eru Ísmús/Músik og saga ehf., Tónlistarsafn Íslands, Miðstöð munnlegrar sögu, Árnastofnun og Landsbókasafn. Soffía er verkefnisstjóri samstarfsins. Birna Björnsdóttir: Munnleg saga - áhugaverð leið til að læra sögu. Birna er kennari við Lindaskóla og hefur beitt aðferð munnlegrar sögu við kennslu þar. Hún segir frá aðferðinni og sýnir dæmi um nemendaverkefni.  Lára Magnúsardóttir: Viðfangsefni og framtíðarsýn á Fræðasetri HÍ á Skagaströnd.  Markmiðið með Vísindakaffi er að færa vísindin nær almenningi og kynna það rannsóknastarf sem stundað er í landinu á aðgengilegan hátt. VÍSINDAVAKA – stefnumót við vísindamenn verður Í Listasafni Reykjavíkur föstudaginn 24. september

Kynningarfundur um námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja

Boðið verður upp á hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja þar sem þátttakendur vinna með eigin hugmyndir eða fyrirtæki. Kynningarfundur verður haldinn um námskeiðið í Bjarmanesi miðvikudaginn 22 september kl. 14:30. Það er Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við SSNV og Sveitarfélagið Skagaströnd og Blönduósbæ sem stendur fyrir námskeiðinu.       Boðið verður upp á hressingu á meðan frekari kynning á námskeiðinu fer fram og eins mun Kjartan Ragnarsson leikstjóri og forstöðumaður  Landnámssetursins  í Borgarnesi segja frá reynslu sinni og gefa góð ráð.  Grundvöllur námskeiðsins Námskeiðið Sóknarbraut er námskeið um rekstur fyrirtækja þar sem áhersla er lögð á markaðssetningu, stjórnun og fjármál.  Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar.   Kennslan fer fram á fræðilegum og faglegum grunni og á námstímanum vinna þátttakendur að ákveðnu verkefni sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd.  Fyrirhugað er að hafa tvo hópa, náist nægilegur fjöldi þátttakenda, og kennt verður á miðvikudögum:  Blönduós – frá 09:00-13:00 Hvammstangi- frá 14:00-18:00 Fyrirkomulag  Hugmyndin að baki námskeiðinu byggir á að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis.  Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, þjálfun, viðtölum og verkefnum sem tengjast þeirri hugmynd sem hver einstaklingur vinnur að hverju sinni.  Meðal verkefna sem unnin verða eru markaðsáætlun, kynning á viðskiptahugmynd, fjárhagsáætlun og verkáætlun.  Námskeiðið er alls 40 kennslustundir sem skiptast í 10 hluta auk þriggja opinna vinnusmiðja sem þátttakendur geta mætt í og unnið að sínu verkefni undir handleiðslu leiðbeinanda.  Hver hluti er fjórar klst. Stefnt er að því að námskeiðið hefjist 6. október. Fyrir hverja? Námskeiðið Sóknarbraut er fyrir núverandi og verðandi stjórnendur minni fyrirtækja.  Námskeiðið hentar vel einstaklingum sem starfa sem stjórnendur í minni fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa hug á að hrinda í framkvæmd viðskiptahugmynd eða stofna eigið fyrirtæki.   Sóknarbraut er opið jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun, þátttakendur þurfa einungis að hafa viðskiptahugmynd til að vinna með á námskeiðstímanum.  Umsóknareyðublöð má finna á vefsíðu Impru (www.impra.is ). Skráningarfrestur er til 29. september. Kynningarfundir og skráning Þrír kynningarfundir um Sóknarbraut verða haldnir miðvikudaginn 22. september á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga eftir því sem hér segir: Potturinn og pannan á Blönduósi kl. 12:00 Bjarmanes á Skagaströnd kl. 14:30 Hlaðan Kaffihús á Hvammstanga kl. 17:00 Boðið verður upp á hressingu á meðan frekari kynning á námskeiðinu fer fram og eins mun Kjartan Ragnarsson leikstjóri og forstöðumaður  Landnámssetursins  í Borgarnesi segja frá reynslu sinni og gefa góð ráð.  Nánari upplýsingar má nálgast hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur  á netfanginu selma@nmi.is eða í síma 522 9434. Skráning fer fram á heimasíðu Impru, www.impra.is. 

Vatnslaus í tveimur götum á morgun

Vatnslaust verður í efrihluta Bogabrautar og Skeifu á morgun, föstudaginn 17. september, frá klukkan 8 til 9:30. Ástæðan eru tengingar á vatnslögnum.