Mynd vikunnar

Skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd á ferð í Vindhælisstapa í vetrarveðri. Ártal ekki vitað en líklega var myndin tekin um 1960. Frá vinstri: Jóhanna Valdemarsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Margrét Valdemarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Ellertsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Jóhanna Sigríður Pálsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir. Sigurfari var stofnaður 26. mars 1959 en aðal hvatamaður þess, og fyrsti félagsforingi, var Ingólfur Ármannsson kennari við Höfðaskóla. Ingólfur kom frá Akureyri en þar var öflugt skátastarf sem hann hafði tekið þátt í. Sigurfari starfaði í u.þ.b. áratug lengst af undir stjórn Þórðar Jónssonar félagsforingja. Eftir að Þórður flutti frá Skagaströnd 1966 eða 1967 fjaraði undan félaginu og lagði það upp laupana smátt og smátt.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Fjárhagsáætlun 2015 Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Náttúrustofa Norðurl. vestra Tónlistarskóli A-Hún Fundur stjórnar 12.06.2014 Fundur stjórnar 7.10.2014 Fundur stjórnar 27.10.2014 Fjárhagsáætlun 2015 Vinabæjasamstarf Skagastrandarhöfn - dýpkun Bréf: Stjórnar USAH, dags. 4. nóv. 2014 Skíðadeildar Tindastóls, dags. 9. nóv. 2014 Skíðadeildar Tindastóls, dags. 6. nóv. 2014 Farskólans, dags. 24. okt. 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 29. okt. 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 29. okt. 2014 Kirkjukórs Hólaneskirkju, dags. 28. okt. 2014 Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 24. okt. 2014 Fundargerðir: Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 18.11.2014 Starfshóps um eyðingu lúpínu, 20.10.2014 Hafnar og skipulagsnefndar, 16.09.2014 Tómstunda og menningarmálanefndar, 30.10.2014 Stjórnar Bs. um menningu og atvinnum. í A-Hún, 5.11.2014 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 7. okt. 2014 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 30. okt. 2014 Aðalfundur Menningarrráðst Nl. vestra 16.10.2014 Menningarráð Nl.vestra, 14.10.2014 Stjórnar SSNV, 15.10.2014 Stjórnar SSNV, 29.10.2014 Aðalfundur Róta bs., 30.09.2014 Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 31.10.2014 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 8.10.2014 Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 8.10.2014 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 3.11.2014 Stjórnar Samb. ísl. sv.félaga, 31.10.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 19. nóvember 2014 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Fjárhagsáætlun 2015 Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna Náttúrustofa Norðurl. vestra Tónlistarskóli A-HúnFundur stjórnar 12.06.2014 Fundur stjórnar 7.10.2014 Fundur stjórnar 27.10.2014 Fjárhagsáætlun 2015 Vinabæjasamstarf Skagastrandarhöfn - dýpkun Bréf: Stjórnar USAH, dags. 4. nóv. 2014 Skíðadeildar Tindastóls, dags. 9. nóv. 2014 Skíðadeildar Tindastóls, dags. 6. nóv. 2014 Farskólans, dags. 24. okt. 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 29. okt. 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 29. okt. 2014 Kirkjukórs Hólaneskirkju, dags. 28. okt. 2014 Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 24. okt. 2014 Fundargerðir: Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 18.11.2014 Starfshóps um eyðingu lúpínu, 20.10.2014 Hafnar og skipulagsnefndar, 16.09.2014 Tómstunda og menningarmálanefndar, 30.10.2014 Stjórnar Bs. um menningu og atvinnum. í A-Hún, 5.11.2014 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 7. okt. 2014 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 30. okt. 2014 Aðalfundur Menningarrráðst Nl. vestra 16.10.2014 Menningarráð Nl.vestra, 14.10.2014 Stjórnar SSNV, 15.10.2014 Stjórnar SSNV, 29.10.2014 Aðalfundur Róta bs., 30.09.2014 Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 31.10.2014 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 8.10.2014 Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 8.10.2014 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 3.11.2014 Stjórnar Samb. ísl. sv.félaga, 31.10.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Elínborg heiðruð . Á þessari mynd frá skólaslitum Höfðaskóla vorið 1995 heldur Elínborg Margrét Jónsdóttir (d. 7.1.2007) á gjöf frá Skagstrendingum, sem Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Höfðaskóla, til vinstri, færði henni í tilefni þess að Elínborg hafði starfað við skólann óslitið í 50 ár. Í baksýn eru stúlkur úr lúðrasveit sem spilaði á skólaslitunum. Elínborg var kennari við Höfðaskóla í áratugi og síðar bókavörður á bókasafni skólans í nokkur ár. Hún var alla tíð vakin og sofin yfir velferð skólans og þeirra sem þar numu og störfuðu. Til heiðurs Elínborgu hefur orðið til sú hefð í Höfðaskóla að dagur íslenskrar tungu, sem er á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, nefnist Elínborgardagurinn í Höfðaskóla. Í ár verður Elínborgardagurinn haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 19. nóvember í Fellsborg þar sem nemendur koma fram og flyta margvíslegt íslenskt efni.

Hátíðafundur

Tómstunda- og menningarmálanefnd boðar til almenns fundar um bæjarhátíðir á Skagaströnd. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvember 2014, kl 20.30 í Fellsborg. Á fundinum verður kannað og rætt hvaða hugmyndir íbúar hafa um bæjarhátíð á Skagaströnd og rætt um hvort, hvenær og hvernig slíkar hátíðir verði haldnar. Nefndin mun síðan vinna úr þeim hugmyndum sem fram koma. Allir eru velkomnir á fundinn og sérstaklega óskað eftir að hugmyndríkt og skemmtilegt fólk mæti. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta en hafa góðar hugmyndir eru hvattir til að skila inn erindi til nefndarinnar. Hægt er að skila því inn á skrifstofu Sveitarfélagsins eða á netfangið: sigurlaugingimundardottir@gmail.com Tómstunda- og menningarmálanefnd

Skagaströnd / Borgarbyggð í Útsvari í kvöld

Í kvöld föstudagskvöldið 7. nóvember kl 20.10 verður spurningaþátturinn Útsvar á dagskrá RÚV í beinni útsendingu. Keppendur eru frá sveitarfélögunum Skagaströnd og Borgarbyggð. Fyrir hönd Skagastrandar mæta: Trostan Agnarsson, kennari við Höfðaskóla Árni Friðriksson, jarðfræðingur og starfsmaður BioPol Eva Ósk Hafdísardóttir, stuðningsfulltrúi við Höfðaskóla Við óskum þeim góðs gengis í viðureign við harðsnúið lið Borgfirðinga.

Mynd vikunnar

Es Laura 1910 Millilanda- og Strandferðaskipið Laura - Lára - á strandstað á Bótinni, í mars 1910. Allir björguðust en skipið brotnaði á strandstað því ekki tókst að draga það á flot aftur. Í baksýn sér í norðanverðan Höfðann. Svo vildi til að Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi - Guðrún ljósa - var farþegi með skipinu í þessari síðustu ferð Lauru. Hér fyrir neðan fer frásögn Guðrúnar af strandinu en frásögnin er tekin af vefsíðu sem afkomendur Guðrúnar hafa sett út á netið, (ljosmodir.wordpress.com/amma-hefur-ordid/). Myndina tók Evald Hemmert. LÁRUSTRANDIÐ "Haustið 1909 fór ég til Akureyrar til að læra að sauma. Ég hélt til hjá Valgerði Ólafsdóttur frænku minni. Hún bjó hjá syni sínum Halldóri. Hún kom mér fyrir hjá konu sem kenndi saumaskap. Og var ég þar í 6 mánuði. Mér langar mjög mikið til að læra dönsku því frænka mín var alltaf að lesa dönsku. Kom hún mér þá fyrir hjá Jórunni Sigurðardóttur sem hafði kvennaskóla og tók hún mig í dönskutíma og hafði ég gott af því. Svo fór ég heim í mars með gömlu Láru. Gekk það allt vel þar til við komum inn í Húnaflóa. Þar var hríðarveður. Stýrimaður kom inn til okkar stúlknanna um morguninn og sagði okkur að við skyldum liggja í rúminu þar til við kæmum til Skagastrandar um hádegisbil. Kojurnar okkar voru inn af matsalnum en í honum sátu 13 Fransmenn sem höfðu brotið skip sitt fyrir austan land og voru nú á leið suður. Svo þegar skipið fór að taka niður þá fór að heyrast í körlunum og bar mest á orðinu „malestia“ sem mér var sagt að væri svart blótsyrði og er það eina orðið sem ég kann í frönsku. Við þurftum að drífa okkur í fötin því skipið hallaði gífurlega. Og fórum upp á þiljur þá var skipið strandað og hvítfrissandi bárur allt í kring. Við sáum til lands framundan og okkur var sagt að við hefðum strandað fyrir utan höfðann á Skagaströnd. Svo voru settir út tveir bátar og vorum við stúlkurnar settar ofan í annan bátinn ásamt öðrum. Og kom fyrsti stýrimaður og settist undir stýrið svo var lagt af heimleiðis. Ferðin tók klukkutíma og var það köld ferð. Við komumst upp í víkina fyrir sunnan Hólanes og brutumst þar upp í gegnum mikla skafla. Svo var mér fylgt út á bæ til móðursystur minnar Maríu að nafni og bjó hún í Viðvík. Hún var móðir Gísla sem var faðir Snorra og Snorri er faðir Gísla sem þú þekkir. Fékk ég þar ágætis viðtökur og var þar um nóttina."

Mæling brennisteinsdíoxíðs á Skagaströnd

Í dag, þriðjudag kl 15.oo mældis brennisteinsdíoxíð 820 μg/m3 Samkvæmt upplýsingum á vef Umhverfisstofnunar er gildi brennisteinsdíoxíðs á bilinu 600-2000 μg/m3 slæmt fyrir viðkvæma og fólki ráðlagt að forðast áreynslu utandyra. Áhrif á heilsufar er þó ólíklegt. Áhrif SO2

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 652/2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður) Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri) Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 948/2014 í Stjórnartíðindum Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík) Sveitarfélagið Skagaströnd Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2014. Fiskistofa 31. október 2014

Mynd vikunnar

Málningargengi Í nokkur ár var Arnar Hu 1 málaður á Skagaströnd þ.e.a.s. árleg "skvering" önnur en botmálning var framkvæmd á Skagaströnd. Oft var fenginn einhver verkstjóri og síðan ráðinn hópur unglinga til verksins. Á myndinni er einn slíkur unglingahópur sem málaði skipið í ágúst 1983. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Þorvaldsson, Guðmundur Óskarsson, Arnar Erlingsson, Björn Hallbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, óþekktur, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.