Glæsileg fjölnota hjólabraut tekin í notkun á Skagaströnd

Í gærkvöldi þann 25. júní var opnuð fjölnota hjólabraut hér á Skagaströnd en brautin er staðsett á skólalóð Höfðaskóla. Brautarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og voru krakkarnir í bænum strax mættir til þess að taka hana út. Voru sumir svo spenntir að þeir tóku sig til og aðstoðuðu við uppsetningu svo þetta gengi nú hratt og örugglega fyrir sig og hlutu þakkir fyrir það frá uppsetningarhópnum.

Jón Jóhannsson GÓS sigraði á Opna Fiskmarkaðsmótinu á Skagaströnd

Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli á Skagaströnd laugardaginn 22. júní. Alls voru þátttakendur 26 talsins sem spiluðu 18 holur í afbragðsveðri.

HVERNIG VÆRI AÐ PRÓFA GOLF?

Komdu á völlinn.

Mynd vikunnar

Óli Albertsson fyrrverandi bóndi á Keldulandi slær í kirkjugarðinum í lok júní 2006

Gróðursetning á fimmtudagskvöld

Skógræktarfélag Skagastrandar stendur fyrir gróðursetningu

Umhverfisátak Sveitarfélagsins Skagastrandar 2019

Sveitarfélagið mun leggjast í umhverfisátak sem hefst formlega þann 24. júní nk.

Mynd vikunnar

Snemma beygist krókurinn. Jón Örn Stefánsson og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson ánægðir með þorskana sína. Þeir áttu báðir eftir að hampa mörgum slíkum síðar á ævinni. Aftan við þá er Gylfi Sigurðsson. Myndin er tekin um borð í Hafrúnu Hu 12.

Dimmalimm kemur í Spákonuhof á Skagaströnd

Kómedíuleikhúsið kemur á Skagaströnd með hið vinsæla barnaleikrit Dimmalimm.

Golf fyrir byrjendur

Golfklúbbur Skagastrandar verður með golfkennslu fyrir byrjendur miðvikudaginn 12. júní frá 17:00-19:00