28.03.2018
Íþróttahús og sundlaug
Skagastrandar
Opnunartími um Páskana
Sundlaug:
Fimmtudaginn 29. mars, Skírdag
17-20
Föstudaginn langa 30. mars
17-20
Laugardaginn 31.mars
13-17
PÁSKADAG
LOKAÐ
Mánudaginn 2. apríl, annar í páskum
17-20
Íþróttahús:
Fimmtudaginn 29. mars, Skírdagur
13-17
Föstudaginn langa 30. mars
13-17
Laugardaginn 31.mars
LOKAÐ
PÁSKADAGUR
LOKAÐ
Mánudaginn 2. apríl, annar í páskum
13-17
27.03.2018
Hofskirkja
Hofskirkja að lokinni endurbyggingu í desember 1989.
Kirkjan er líklega elsta timburbygging í Húnavatnssýslum
sem enn stendur.
Hún var byggð 1870 en gerðar voru á henni lagfæringar um 1950
og síðan var hún endurbyggð 1989, eins og áður segir.
Kirkjan var síðan friðuð 1. janúar 1990. Hofsprestakall var lagt niður
og fært undir Höskuldsstaði árið 1907 en tilheyrir Skagastrandarprestakalli
í dag eins og Höskuldsstaðakirkja. Í kirkjunni er ævagamall trénegldur
predikunarstóll með myndum af guðspjallamönnunum.
Altaristaflan, sem sýnir upprisuna, er líka gömul og er hún talin vera verk
einhvers íslensks listamanns.
Jón Árnason þjóðsagnasafnari fæddist á Hofi, sonur Árna Illugasonar
prests þar.
Senda upplýsingar um myndina
23.03.2018
Vitinn
Þessi viti stóð áratugum saman á enda
hafskipabryggjunnar (Útgarði) í Skagastrandarhöfn og
vísaði sjómönnum rétta leið til hafnar.
Á myndinni, sem Ingibergur Guðmundsson tók í apríl 1987, er hann
þakinn ís eftir mikla ágöf. Vitinn var gasknúinn og því var inni í honum
hólf fyrir gaskút.
Vitinn var rifinn þegar hann var farinn að láta verulega á sjá eftir
endalausan ágang sjávar ekki síst vegna þess að bryggjan sem hann
stóð á seig og hallaðist þannig að meira mæddi á honum en áður.
Í dag er rör með ljósi á sama stað og vitinn stóð en hinum megin við
innsiglinguna í höfnina, við skerið Brúnkollu, er ljósbauja með
blikkandi ljósi.
Senda upplýsingar um myndina
20.03.2018
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2018 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2017-2018 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 20. apríl 2018.
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.
Sveitarstjóri
19.03.2018
Umhverfissjóður Íslenskra Fjallaleiðsögumanna veitir styrki á tveggja ára fresti.
Sjóðnum er ætlað að úthluta styrkjum til verkefna sem stuðla að verndun náttúru Íslands. Fyrirtæki, einstaklingar, eignarhaldsfélög, félagasamtök, sveitarfélög og opinberar stofnanir geta fengið framlög frá sjóðnum. Umsóknaraðilar geta einnig verið samstarf nokkurra aðila.
Umsóknafrestur rennur út 10. april 2018.
Sjá nánar um reglur sjóðsins á heimasíðu félagsins;
https://fjallaleidsogumenn.is/um-okkur/umhverfisstefna/umhverfissjodur/
16.03.2018
Heimsókn í Blönduvirkjun
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í
Blönduvirkjun 29. apríl 1997.
Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má.
Nemendurnir eru frá vinstri:
Aris Eva Vilhelmsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir,
Maríanna Ástmarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
Senda upplýsingar um myndina
16.03.2018
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur tekið ákvörðun um að smábátahöfn á Skagaströnd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000. Ákvörðunin liggur frammi hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd og á vefsíðu sveitarfélagsins www.skagastrond.is og www.skipulagsstofnun.is. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 14. apríl 2018.
Fyrir hönd sveitarstjórnar
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri
13.03.2018
Opnaður hefur verið upplýsingavefur um sameiningarmál sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Á honum má finna fréttir og tilkynningar, fundargerðir, minnisblöð og aðrar upplýsingar sem tengjast mögulegri sameiningu sveitarfélaganna fjögurra sem eru; Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd. Vefslóðin er: sameining.huni.is.
Upplýsingavefurinn er samstarfsverkefni Húnahornsins, sameiningarnefndar A-Hún. og Ráðrík ráðgjafa. Hann er í umsjón og á ábyrgð Húnahornsins – fréttavefs Húnvetninga í 17 ár. Upplýsingar sem á vefinn koma eru frá sameiningarnefndinni og Ráðrík ráðgjöfum. Aðra almenna textavinnslu sér Húnahornið um.
Opnir fundir á sex stöðum eftir páska
Svanfríður Jónasdóttir hjá Ráðrík ráðgjöf segir upplýsingavefinn mjög mikilvægan til þess að allir geti fylgst með og kynnt sér þá vinnu sem er í gangi í tengslum við framtíðarskipan sveitarstjórnarmála í A-Hún. Hún segir mikilvægt að sem flestir hafi tök á að kynna sér sameiningarmálefnin, geti rætt málin og komið sínum sjónarmiðum á framfæri.
Í undirbúningi er að halda opna fundi á sex stöðum í sýslunni strax eftir páska. „Þeir verða opnir öllum íbúum, þ.e.a.s. þú þarft ekki að mæta á fundinn sem er næstur þínu heimili, heldur getur sótt hvaða fund sem er til að taka þátt í umræðu um framtíðarskipan sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu,“ segir Svanfríður.
13.03.2018
Nemendur Farskóla Norðurlands vestra sem sækja námskeiðið Beint frá býli komu í heimsókn í Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd í síðustu viku.
Ástæða heimsóknarinnar var að hluti af námskeiðinu fer fram í Vörusmiðjunni. Í þessari heimsókn var framkvæmd sýnikennsla þar sem leiðbeinandinn Páll Friðriksson fór í gegnum nokkra þætti matvælavinnslu t.d. fars- og pylsugerð. Útbúin voru sýnishorn af ýmsum spennandi vörum sem áhugavert verður að sjá hvort unnið verður með áfram.
Þátttakendum námskeiðsins stendur síðan til boða að nýta heilan dag út af fyrir sig í Vörusmiðjunni án endurgjalds þar sem slíkt er innifalið í námskeiðinu. Fólk getur þannig nýtt kunnáttu sína til þróunarstarfs í eigin þágu sem við vonum að endingu mun skila sér í fjölbreyttara vöruúrvali fyrir okkur neytendur.