Líkami og sál, jólagleði

Nú líður að lokum fjórða námskeiðsins í kvennaátakinu Líkama og sál. Auk hefðbundinna tíma í þolfimi og tækjasal var boðið upp á magadansnámskeið og skemmtikvöld í Kántrýbæ. Í lok námskeiðsins var efnt til jólagleði í Félagsheimilinu Fellsborg laugardaginn 22. desember s.l. Konurnar sáu sjálfar um skemmtiatriði, skreytingar og hluta af eldamennskunni. Þetta kvöld var ákveðið að leggja íþróttaskóna og lóðin á hilluna sem voru þó ekki langt undan því íþróttadótið var uppistaðan í borðskreytingum kvöldsins. Skemmtinefndin stóð fyrir sínu og konurnar brugðu sér m.a. í hlutverk jólasveinsins og hinnar óviðjafnanlegu Leoncie (Icyspicy), við frábærar undirtektir. Einkaþjálfari hópsins Angela Berthold greindi frá stærðabreytingum á hópnum á námskeiðstímanum og kom m.a. fram að konurnar höfðu samtals grennst um 56 cm um mjaðmir. Jólakveðja frá konunum í Líkama og sál

Prófin nálgast.................

Nú nálgast prófin og í mörgum skólum er fjarnemum boðið upp á þann möguleika að taka prófin í heimabyggð. Þeir sem vilja geta sótt um það til síns skóla, að taka prófin á Námsstofu, sem annast þá framkvæmd prófanna. Á það skal þó bent að það er alltaf ákvörðun viðkomandi skóla, hvar próf eru haldin.

Lögregluheimsókn á Barnabóli

Það var löggumaður og löggukona sem komu, sagði einn. Já, þau komu á löggubílnum, sagði annar. Og löggukonan sagði börnunum söguna af honum bangsa sem tók af sér beltið meðan bíllinn var á ferð og flaug á sætið og meiddi sig þegar kisan hljóp yfir veginn. Já, af því hann þurfti að bremsa svo fast svo hann keyrði ekki á hana. Ég nota alltaf hjálm þegar ég hjóla, en hann pabbi minn gerir það ekki,heyrðist út í horni. Já og ég hjóla alltaf á gangstéttinni. Ég get hjólað með engin hjálpardekk. Löggan gaf okkur svona endurskinsmerki, já en það var frá bankanum. Ég á svona merki heima á úlpunni minni. Maður getur notað tvö. Það má fara út á peysunni til að skoða löggubílinn. Ein stelpan var á inniskónum, en það er svo hlýtt, bergmálar einn. Ég fékk að ýta á takkann, það kom hávaði. Einhver var hræddur við hávaðann, ein hélt fyrir eyrun. Maður hringir bara í 112 þegar slysið kemur. Og umræðurnar héldu áfram ...

Nýr hraðfiskibátur sjósettur

Fimmtudaginn 30. nóvember sl. var Alda HU 12 sjósett í Hafnarfirði. Alda er 15 tonna plastbátur smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfiriði. Alda HU 12 kom til heimahafnar á Skagaströnd sunnudaginn 9. nóvember. Í bátnum er vél af gerðinni Catepillar 3196 sem er 660 hestöfl. Hann er einnig útbúinn með bógskrúfu sem er 8 hö. Mjög fullkominn búnaður er í bátnum og má segja að nýjustu siglinga- og fiskileitartæki séu til staðar. Auk þessa eru stafrænar myndavélar sitt hvoru megin við vélinu og þannig er hægt að vakta hana á tölvuskjá. Um borð í bátnum er 120 lítra vatnstankur og bæði heitt og kalt vatn. Í lest Öldunnar komast 11 stk. 660 lítra fiskikör og eitt 380 lítra. Aldan er útbúin til línuveiða og er með línuspil frá Beiti. Í stefni er góð aðstaða fyrir áhöfn og salerni er í vélarreisn. Aldan HU 12 er í eigu þeirra Víkurbræðra Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir gera einnig út hraðfiskibátinn Bjart í Vík.

Ólafur Magnússon HU 54 dregin til hafnar.

Það óhapp vildi til þegar skipverjar á Ólafi Magnússyni HU 54 voru á veiðum í morgun að þeir misstu netatrossu, sem þeir voru nýbúnir að draga, fyrir borð. Á sama tíma bakkaði skipið og netin flæktust í skrúfunni. Skipverjar á Grímsey ST 2 frá Drangsnesi komu til hjálpar og drógu Ólaf að bryggju á Skagaströnd og komu þeir til hafnar um hádegisbilið. Blíðskaparveður er á miðunum og lítil hætta á ferðum.

Togarinn Örvar HU 2

Togarinn Örvar HU 2 kom til hafnar miðvikudaginn 6. nóvember sl. Afli togarans var rúm 200 tonn af unnum afurðum aðallega grálúðu sem veiddist einkum fyrir vestan land.

Það skein kæti úr hverju andliti

Það skein kæti úr hverju andliti þegar börnin á Leikskólanum Barnabóli fóru út á leikvöllinn í morgun. Loksins, loksins... var hægt að taka fram rassaþotur og snjóþotur og fara að renna sér. Einhver hafði nú reynt að renna sér á hólnum í snjóleysinu fyrr í haust, en ekki gekk það nú vel. En núna var hann loksins kominn „þessi hvíti og kaldi“ sem svo margir höfðu beðið eftir, og þá var bara að drífa sig í snjókarlagerðina. Hann var heldur ekki lengi að rísa, með hatt og staf og skóna sér við hlið, stendur hann nú svo fínn í garðinum okkar á Barnabóli. En Adam var ekki lengi í paradís, síðdegis tók sólin að skína og snjókarlinn tók að bráðna. „ En það kemur kannski meiri snjór á morgun“ sagði einhver með vonarhreim í röddinni.

Vetur gerir vart við sig

"Eins og hvítt lín kom fyrsti snjórinn.... " um helgina. Það er fallegt um að litast þegar hvít mjöllin leggst yfir og geislar sólar glitra í frostinu. Þótt verktakar og starfsmenn Höfðahrepps hafi unnið að því að hreinsa snjó af götum og gönguleiðum er rétt er að huga að góðum vetrarútbúnaði bæði fyrir fólk og farartæki.

Arnar HU-1 til hafnar á Skagaströnd eftir endurbætur í Póllandi

Arnar HU-1 kom til heimahafnar í dag eftir 40 daga slipp í Póllandi þar sem umtalsverðar endurbætur voru gerðar á skipinu. Endurbæturnar miða fyrst og fremst að því að auka sjóhæfni skipsins svo að það standist ýtrustu kröfur Siglingarmálastofnunar um stöðuleika. Verkið fólst í því að skutur skipsins var sleginn út og andveltitankur settur fyrir framan brú þess. Við breytingarnar jókst tankarými fyrir olíu um fimmtung þannig að ekki er lengur þörf á því að sigla í land til olíutöku þegar líður tekur á veiðiferð eins og áður þurfti. Í slippnum í Póllandi var skipið jafnframt sandblásið og heilmálað. Arnar hreppti leiðinda veður í um sólarhring á leiðinni heim og er það samdóma álit skipstjórnarmanna að vel hafi tekist til með breytingarnar, sjóhæfni skipsins hafi aukist verulega og að það muni örugglega verða betri vinnustaður en áður með minni veltingi. Verktakinn í Póllandi skilaði verkinu á skemmri tíma en ráð var fyrir gert og var tilboð pólska fyrirtækisins aðeins um 32% af upphæð lægsta tilboðs hér heima. Kristinn Halldórsson hjá Skipasýn H/F í Reykjavík sá um hönnun og teikningar á endurbótunum Arnars. J.K.

Prumpuhóll í Fellsborg

Möguleikhúsið sýndi leikritið Prumpuhól fyrir ungu kynslóðina á Skagaströnd í morgun. Fékk leikritið góðar viðtökur og lifðu börnin sig inn í sýninguna. Var bæði grátið og hlegið en allt endaði vel að lokum. Leikritið fjallar um 9 ára gamla borgarstelpu sem villtist út í náttúruna og hitti 90 ára gamlan tröllastrák. Pabbi hans var orðin að steini sem prumpaði alltof mikið, bæði hátt og lengi af því að hann borðaði of mikið. Með tröllastráknum og borgarstelpunni tókst einstök vinátta sem endaði farsællega.