09.06.2010
Sjómannadagurinn var að venju haldinn hátíðlegur síðasta laugardag. Komu þá flestir bæjarbúar saman og skemmtu sér í blíðskaparveðri. Góða veðrið er raunar fastur liður á dagskrá hátíðarhaldara sem er Björgunarsveitin Strönd.
Farið var í hefðbundnar þjóðlegar íþróttir, meðal annars í sjóboðssund. Í því voru keppendur fullklæddir, komu samt kuldalegir upp úr sjónum enda ekkert samræmi í hita í lofti og legi. Svo skemmtu kraftalegir menn hinum með því að togast á um reipi. Efnt var til nýstárlegs hindrunarhlaups eftir brettum sem flutu í sjónum. Vakti mesta kátínu þegar keppendur duttu í sjóinn eftir að hafa reynt sig við hindranirnar.
Tveir sjómenn voru heiðraðir og þeir eru Lýður Hallbertsson og Sveinn Garðarsson.
Steindór R. Haraldsson var kynnir og fórst honum starfið vel úr hendi eins og við var að búast. Hann hafði til dæmis þá skoðun að baráttan um bandspottann nefndist reiptog en alls ekki reipitop og raunar bannfærði síðarnefndu orðmyndina úr skagstrendsku máli.
Og svo hittust vinir og kunningjar, skeggræddu um lífsins gang, kreppuna fyrir sunnan, gleðina á Skagaströnd og ekki síst framtíð lands og lýðs í skugga náttúruhamfara, jafnvel þeirra sem mennirnir hafa skapað.
07.06.2010
Arnar HU-1 landaði metafla í Reykjavík eftir 34 daga karfaveiðar á Reykjaneshryggnum. Aflinn var um 1300 tonn af úthafskarfa og verðmætið reyndist vera um 334 milljónir króna . Aldrei fyrr hefur Arnar komið með jafnverðmætan afla að landi og er þetta örugglega mesta eða eitt mesta aflaverðmæti íslensks frystitogara fyrr og síðar.
Frá áramótum er aflaverðmætið Arnars komið yfir 1050 milljónir króna. Tveir túrar standa þar uppúr, á Reykjaneshrygginn og í Barentshafið. Samalagt er verðmætið úr þessum ferðum rúmlega hálfur milljarður króna.
Til samanburðar má geta þess að Arnar fiskaði fyrir um 1550 milljónir á árinu 2009
Áhöfnin á Arnari er 27 manns og skipstjórar eru Guðjón Guðjónsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
07.06.2010
Karl Aspelund flytur opinn fyrirlestur á vegum Fræðaseturs HÍ á Norðurlandi
vestra í Café Bjarmanesi sunnudaginn 13. júní kl. 14.
Þar les Karl úr nýfundinni ferðabók Bandaríkjamannsins S.S. Howland frá 1873
og sýnir myndir. Séstaklega verður greint frá kynnum Howlands af fólkinu á
Hnausum, Stóruborg og í Bólstaðarhlíð og gefin uppskrift af skyri sem hann
fékk í Víðidalstungu.
Karl mun sýna fjölmargar myndir, lesa upp úr ferðalýsingunum.
Karl er nemi til doktorsgráðu í mannfræði við Boston University í
Bandaríkjunum og hefur síðastliðin þrjú ár unnið að rannsókn um eðli og
stöðu þjóðlegs klæðnaðar íslenskra kvenna í dag. Hann hefur kennt fatahönnun
og skyldar greinar við University of Rhode Island síðan 1996 en tók nýlega
við fullri kennslustöðu í hönnun og búningasögu.
Áður kenndi hann við Fataiðndeild Iðnskólans í Reykjavík og stjórnaði Iðnhönnunardeildinni þar jafnhliða því að hanna leikmyndir og búninga fyrir leikhús og kvikmyndir á Íslandi í rúman áratug. Karl er höfundur tveggja bóka: *The Design Process*, sem er notuð til kennslu í á fimmta tug háskóla í Bandaríkjunum og *Fashioning Society*, sögulegt yfirlit um stöðu hátískuhönnunar í nútímaþjóðfélagi vesturlanda.
Karl dvelur um þessar mundir sem gestafræðimaður hjá Textílsetrinu á Blönduósi.
07.06.2010
Sveitarfélagið Skagaströnd mun í sumar standa fyrir ljósmyndasýningu á Hnappstaðatúni í miðbæ Skagastrandar. Sýningin er í samstarfi við Menningarráð Norðurlands vestra.
Tilgangurinn með er að lífga upp á miðbæ Skagastrandar og jafnframt að vekja athygli ferðamanna á einstökum stöðum sem og náttúruminjum í sveitarfélaginu.
Til að afla mynda í sýninguna er því efnt til ljósmyndasamkeppni undir kjörorðinu: „Skagaströnd í nýju ljósi“
Leitað er eftir um tuttugu ljósmyndum til að nota í sýninguna sem verða stækkaðar upp í 200 x 120 cm og prentaðar á segldúk. Myndir skulu teknar innan Sveitarfélagsins Skagastrandar, utan eða innan bæjar. Sjónarhornið er byggðin, mannlífið eða náttúran. Leitað er eftir fallegum myndum eða sérkennilegum og áhugaverðum myndefnum eða sjónarhornum.
Ekki er þó um hefðbundna ljósmyndasamkeppi að ræða enda engin verðlaun veitt önnur en þau að fá mynd sína birta í stóru formati og að ljósmyndarinn fær að eiga myndina að sýningu lokinni.
Í dómnefndinni eiga þessir sæti: Jón Sigurðsson, umboðsmaður TM og ljósmyndari, Skarphéðinn H. Einarsson, skólastjóri, og Snorri Gunnarsson, ljósmyndari. Henni til aðstoðar er Sigurður Sigurðarson, starfsmaður Sveitarfélagsins Skagastrandar.
Reglur samkeppninnar eru þessar:
Einungis myndir eftir áhugaljósmyndara verða birtar á ljósmyndasýningunni „Skagaströnd í nýju ljósi“ sem haldin verður á Hnappstaðatúni sumarið 2010. Þátttaka er öllum heimili, Íslendingum sem og öðrum.
Myndefnið skal vera frá Skagaströnd, utan eða innan þéttbýlisins, og vera af byggð, mannlífi eða náttúru. Því ber að vera áhugavert eða sérkennilegt af einhverju tagi.
Myndirnar mega vera í lit eða svarthvítar, en skilyrði að þær séu í góðri upplausn og á jpg formi. Leyfilegt er að skanna inn framkallaðar myndir eða filmur og senda í keppnina.
Engin verðlaun verða veitt fyrir þær myndir sem valdar eru, en viðkomandi ljósmyndari fær stækkaða mynd sína til eignar að sýningu lokinni.
Skilafrestur á myndum er til og með 1. júlí 2010.
Hver þátttakandi má senda inn allt að 10 myndir sem hann hefur tekið sjálfur. Aldur myndanna skiptir engu máli.
Myndum skal skila í tölvupósti á radgjafi@skagastrond.is eða á diski eða minnislykli ásamt grunnupplýsingum um ljósmyndarann á skrifstofu sveitarfélagsins.
Ljósmyndir eru valdar eftir tillögum dómnefndar og leitast við að hafa sem breiðast úrval myndefnis og ljósmyndara.
Myndir á sýningunni verða með myndatexta sem unninn er í samráði við eiganda og nafn hans verður einnig prentað á myndina.
07.06.2010
Þriðja starfsár Ness listamiðstöðvar á Skagaströnd er nú hafið. Það var hinn 1. júní 2008 að fyrstu listamennirnir komu til bæjarins og þeim hefur fjölgað mikið síðan en rétt um 200 manns hafa frá notið dvalarinnar.
Hver listamaður dvelur að minnsta kosti einn mánuð, sinnir sinni list á þann hátt sem hann vill. Margir ferðast um, vinsælast er að fara vítt um Húnavatnssýslur og Skagafjörð og jafnvel víðar. Æ algengara er að listamenn dvelji lengur en í einn mánuð, dæmi er um listamann sem kom í febrúar í vetur og fór í lok maí.
Fyrir samfélagið á Skagaströnd eru listamennirnir afar mikilvægir og með rökum má halda því fram að þeir fjölgi íbúum staðarins um 20% miðað við hvert ár. Hægt er að ganga lengra og fullyrða að slíkir ferðamenn séu að minnsta kosti ígildi um 10.000 ferðamanna á ári, miðað við að hver útlendur ferðamaður gistir að meðaltali í 1,8 nætur á Norðurlandi.
Enn eru nýjir listamenn boðnir velkomnir til mánaðardvalar á Skagaströnd. Þeir eru:
Angela Chong, Singapore
Christie Blizard, Bandaríkjunum
Eszter Burghardt, Kanada
Frances Valesco, Bandaríkjunum
Jared Betts, Kanada
Kasia Rose Tons, Ástralíu
Marla Sweeney, Bandaríkjunum
Melody Woodnutt, Ástralíu
Valerie Ng, Singapore
Ótrúlega margir listamenn hafa komið frá fjarlægum löndum. Í þessum mánuði vill til dæmis svo sérkennilega til að tveir eru frá Singapore og tveir frá Ástralíu.
Þess má geta að Nes listamiðstöð er opin til skoðunar daglega frá kl. 15 til 17.
03.06.2010
Nú hefur kaffihúsið í Bjarmanesi verið opnað á ný eftir vetrarhvíld. Vertinn, Steinunn Ósk Óskarsdóttir, er mætt á staðinn og býður alla hjartanlega velkomna í heimsókn
Matseðillinn er nýr, segir Steinunn. Geggjuð fjölbreytni og nýungar, en humarsúpan er þó á sínum stað og plokkarinn. Víst er að mörgum léttir við þær fréttir.
Við verðum með endalausar uppákomur í allt sumar. Fjöldi tónlistarmanna mun koma og leika. Við verðum með listsýningar. Sú fyrsta er ljósmyndasýning Snorra Gunnarssonar, ljósmyndara. Hann hefur verið starfandi í Kanada undanfarin ár og vakið mikla athygli fyrir frábærar myndir, sjá http://www.snorricv.com/.
Einnig eru listmyndir til sölu eftir handsverksfólk og svo má lengi telja.
03.06.2010
Skagstrendingum stendur nú til boða að nýta sér matjurtagarðar sunnan við íþróttavöllinn.
Svæðinu verður skipt niður í 20-25 fm reiti sem fólk getur fengið til ræktunar.
Garðarnir verða tilbúnir 7. – 11. júní.
Þeir sem hafa áhuga fyrir að fá garð til matjurtaræktar er bent á að sækja um á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 2700
Sveitarstjóri
02.06.2010
Lokað verður fyrir vatnið fimmtudaginn
3. Júní 2010 frá kl. 10:00 og fram undir hádegi.
Sveitarstjóri.
02.06.2010
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur að vanda laugardaginn 5. júní og verður með nokkuð hefðbundnu sniði.
Skrúðganga leggur af stað frá höfninni kl. 10:30 og er gengið til kirkju og þar hefst sjómannamessa kl. 11:00. Kór sjómanna sér um allan söng við athöfnina og herma fréttir að þetta verði allt saman með léttu yfirbragði í tilefni dagsins.
Skemmtisigling verður auðvitað á sínum stað og hefst hún kl 13:15. Allir eru hvattir til að mæta og fá sér hressandi siglingu með einum af þeim fjölmörgu bátum sem í boði verða.
Að skemmtisiglingu lokinni hefst dagskrá hátíðarhaldana með fallbyssuskoti líkt og gert var á síðasta sjómannadegi. Að því búnu er kappróður og því næst leikir á plani.
Verður margt í boði og má þar nefna kappleiki, þrautir og dans ásamt því að heiðraðir verða tveir sjómenn.
Sjoppan á planinu verður að sjálfsögðu á sínum stað fyrir þá sem ekki geta beðið eftir að kaffisalan opni kl. 15:30 í félagsheimilinu Fellsborg. Kaffið kostar 1000 kr. fyrir fullorðin en 800 fyrir börn og eldriborgara.
Ungur listamaður að nafni Þórður Indriði Björnsson verður með sýningu á myndum unnum í Photoshop á meðan á kaffisölu stendur.
Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað stórdansleikur um kvöldið í Fellsborg með Matta og Draugabönunum. Þar verður án efa dúndrandi stuð fram eftir nóttu.
Aðgangseyrir er 2500 kr. og aldurstakmark 16 ár.
Björgunarsveitin Strönd óskar sjómönnum til hamingju með daginn og vonar að allir skemmti sér sem best á þessum hátíðisdegi.