21.05.2010
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum 10. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að aðalskipulagi Skagastrandar fyrir tímabilið 2010-2022, samkv. 1. málsgrein 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu vera til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is. Þar er einnig skýrsla vegna fornleifaskráningar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Þeim skal skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 7. júlí 2010 og skulu vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Fyrir hönd sveitarstjórnar
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri
21.05.2010
Opið hús verður hjá Nesi listamiðstöð á annan í hvítasunnu, mánudaginn 24.maí frá klukkan 14 til 16 að Fjörubraut 8, Skagaströnd.
Skaagstrendingar sem og aðrir eru hvattir til að líta inn og fræðist um það sem listamennirnir eru búnir að vera að fást við síðastliðin mánuð og mánuði.
Listamenn mánaðarins eru:
Mari Mathlin, myndlist, finnsk
Oona Gardner, skúlptúr, bandarísk
Katie Urban, blönduð tækni, bandarísk
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur
Anne Marie Michaud, teikningar og skúlptúr, kanadísk
Evelyn Rupschus, myndlist og ljósmyndun, þýsk
Steinunn Ketilsdóttir, dansari og danshöfundur
Melody Woodnutt, skúlptúr, innsetningar og gerningar, áströlsk
17.05.2010
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
þriðjudaginn 18. maí 2010 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8:00.
Dagskrá:
1. Ársreikningar sveitarsjóðs og stofnana 2009
a) Endurskoðunarbréf
b) Afgreiðsla ársreiknings
2. Bréf:
a) Samtaka dragnótaveiðimanna,
b) Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 6. maí 2010
3. Fundargerðir:
a) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 12.05.2010
b) Fræðslunefndar, 17.05.2010
c) Stjórnar SSNV, 21.04.2010
d) Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 7.05.2010
4. Önnur mál
Sveitarstjóri
17.05.2010
Í mörg horn er að líta þegar vorar á Skagaströnd. Unnið hefur verið að jarðvegskiptum vegna gámaplans sem mun gjörbreyta allri aðstöðu til móttöku á sorpi í bænum. Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsmenn Sorphreinsunar Vilhelms við störf sín.
Þessa dagana er verið að skipta um þak á gamla frystihúsið á Hólanesi enda er það gamla orðið ónýtt. Trésmiðja Helga Gunnars tók að sér verkið og á mynd sem fylgir sést hversu viðamikið verkefnið er.
Vorhugur er í mönnum á Skagaströnd og nóg að gera. Sumir sinntu viðhaldi gatna en aðrir sáu um snyrtingu á leiðum í kirkjugarðinum. Og sumarið kemur sunnan yfir sæinn, sólin vermir loftið og bærinn lifnar við.
14.05.2010
Innritun fyrir næsta skólaár fer fram sem hér segir:
Skagaströnd miðvikudaginn 26.maí kl: 15-18
Blönduósi fimmtudaginn 27.maí kl: 15-18
Húnavellir við skólaslit 28.maí
Skólastjóri
12.05.2010
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf á Skagaströnd leitar eftir háskólanema til starfa sumarið 2010.
Starfið felst í greiningu á svifþörungum úr sjó frá nokkrum stöðum úr Húnaflóa og tengist verkefni um kræklingarækt. Einnig mun viðkomandi taka þátt í frekari sýnatöku og úrvinnslu gagna.
Verkefnið getur verið upphafið af frekara samstarfi og jafnvel tengst lokaverkefni nemanda.
Áhugasamir hafi samband við Bjarna, verkefnisstjóra BioPol ehf., Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, sími 452 2977, gsm síminn er 861 0058 og netfangið er bjarni@biopol.is.
11.05.2010
„Sértu ekki sannfærður eða þú hafir einhverjar efasemdir um heimsókn þína á Skagaströnd, sendu okkur póst og við svörum þér um hæl.“
Þannig segir í niðurlagi fréttar sem birt er á ensku á heimasíðu Ness listamiðstöðvar á Skagaströnd. Fréttinni er beint til listamanna sem eiga pantað pláss í listamiðstöðinni eða hyggjast gera það.
Markmiðið er að sannfæra listamenn að óhætt sé að ferðast til Íslands, eldgosið sé svo afskaplega langt frá bænum.
Ástæðan fyrir fréttinni eru áhyggjur einstakra útlendra listamann og en ekki síður missagnir í erlendum fjölmiðlum sem þekkja ekki til aðstæðna hér á landi. Við liggur að í sumum þeirra sé allt landið undir áhrifasvæði Eyjafjallajökuls og landsmenn eigi svo óskaplega bágt.
Með fréttinni er birt landakort og inn á það er Skagaströnd merkt sem og Reykjavík og Keflavíkurflugvöllum. Á kortið er afmarkað það svæði sem öskufallið hefur hingað til verið mest.
Slóðin á heimasíðu Ness listamiðstöðvar er www.neslist.is.
10.05.2010
Kjörstjórnin í Sveitarfélaginu Skagaströnd hefur tilkynnt að einungis hafi komið fram einn framboðslisti við sveitarstjórnarkosningarnar 29.maí n.k. - Það var H listi - Skagastrandarlistinn og er hann því sjálfkjörinn.
Skagastrandarlistinn er þannig skipaður
1. Adolf H. Berndsen framkvæmdastjóri
2. Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri
3. Péturína Jakobsdóttir skrifstofustjóri
4. Jón Ólafur Sigurjónsson tónlistarmaður
5. Jensína Lýðsdóttir skrifstofustjóri
6. Baldur Magnússon sjómaður
7. Valdimar J. Björnsson vélstjóri
8. Svenný H. Hallbjörnsdóttir veitingamaður
9. Björn Hallbjörnsson rafvirki
10. Birna Sveinsdóttir snyrtifræðingur
Skagastrandarlistinn hefur boðið fram til sveitarstjórnar frá árinu 1994 en 5 fulltrúar skipa sveitarstjórn.
10.05.2010
Mikil flugumferð var yfir Skaga um helgina. Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli var hluta flugumferðarinnar frá Evrópu til Ameríku vísað norður fyrir Ísland. Ekki fór hjá því að Skagstrendingar kæmu auga á þessa auknu umferð.
Flugvélarnar virtust fljúga hátt yfir Skagafirði og snarbeygja þá til vesturs. Þetta er nokkuð óvenjuleg leið og ekki víst að flugmenn hafi almennt þekkt hana. Sagt er að þannig hafi þeim verið vísað til vegar:
„Sko, fljúgðu bara yfir Ísland, miðaðu á Skagafjörð og þegar þú er fyrir ofan vitann á Hrauni á Skaga skaltu samstundis beygja til vesturs. Ekki fara lengra þá lendirðu í vandræðum yfir Grænlandi. Þú veist, þar er allt hvítt, en grænt á Íslandi ...“
Og allt gekk þetta skínandi vel. Undantekningin er þó að einstaka golfari á golfvellinum á Skagaströnd þóttist ekki geta spilað háu boltunum eins og vant var vegna „þessara andsk... flugvéla“.
Nú er flugið sem betur fer komið í samt lag. Golfararnir á Skagaströnd hafa á ný tekið gleði sína og slá að vild, alls óhræddir um að trufla háloftaflugið.
Meðfylgjandi mynd var tekin frá golfvellinum er er af Boeing þotu British Airlines sem er nýkomin úr Hraunáskaga beygjunni. Gaman að sjá hversu vel liggur á flugmönnunum ... og farþegarnir liggja flestir brosmildir í gluggunum.
07.05.2010
Fyrir skemmstu var haldið námskeið í Húnavallaskóla um kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál. Námskeiðið var haldið af Fræðsluskrifstofu A--Hún og ætað fyrir kennara í Austur-Húnavatnssýslu.
Fyrirlesarinn Hulda Karen Daníelsdóttir, kennsluráðgjafi í nýbúafræðslu, hefur margra ára reynslu á þessu sviði og fangaði athygli kennaranna þennan dag.