24.02.2011
Fjölskylduhátíð verður dagana 25. - 27. febrúar 2011 á skíðasvæðinu í Tindastól. Þar verður sett upp ævintýrabraut og fleira. Þá verður Vetrarleikabrenna á föstudagskvöldinu og kvöldvaka á laugardeginum í reiðhöll Skagfirðinga.
Föstudagskvöld 25. febrúar
kl. 18:00 Safnast saman við íþróttahúsið og gengið í skrúðgöngu að kirkjunni. Setning Vetrarleikanna, Vetrarleikabrenna, söngur og samvera.
Laugardagur 26. febrúar
Skíðasvæðið í Tindastól – Ævintýrabraut Vetrarleikanna
kl. 11:00 Fyrirkomulag kynnt og skráning
kl. 11.30 Ævintýrabrautin opnar
kl. 13.30 Hádegishlé kl. 14:00 Ævintýraleikarnir halda áfram
kl. 15:30 Ævintýraferð út í óvissuna.
kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00 Námskeið í Carvingskíðun með Jóhanni Bæring Gunnarssyni skíðakennara. Námskeiðsgjald 6000 kr.
kl. 16:30 Sund og afslöppun á Sauðárkróki
kl. 18:00 Pizzahlaðborð fyrir Skagstrendinga á Mælifelli. Kostar 800 kr. á grunnskólabarn/1400 kr. á fullorðinn.
kl. 19:30 Kvöldvaka í reiðhöllinni Svaðastöðum. Á kvöldvökunni verða dregnir út fjöldi glæsilegra vinninga og því þarf að halda vel utan um númerin sem úthlutað er við skráningu á leikana.
Sunnudagur 27. febrúar
kl. 11:30 Skíðaleikar
Samhliðasvig - Brettaþraut.
Grín og glens
Foreldrar og börn keppa hvort við annnað
Þátttökugjald 1500 kr á mann fyrir 4 ára og eldri (lyftugjöld ekki innifalin). Landsbankinn á Skagaströnd ætlar að borga þátttökugjaldið fyrir börn á Skagaströnd 4ra – 16 ára.
Umf. Fram verður með rútuferðir á leikana bæði laugardag og sunnudag og eru ferðirnar þátttakendum að kostnaðarlausu.
Lagt verður af stað kl.10.00 báða dagana (frá Fellsborg) og farið heim að lokinni dagskrá (eftir kvöldvökuna á laugardagskvöldið).
Börn fædd 1999 og síðar þurfa að vera í umsjón einhvers fullorðins í ferðinni.
En við viljum benda á að leikarnir eru hugsaðir sem fjölskylduhátíð og ekki þarf að vera á skíðum til þess að geta tekið þátt í dagskránni.
Tökum þátt í frábærri skemmtun og eigum góða helgi saman.
Frekari upplýsingar má einnig finna á heimasíðu Tindastóls, www.tindastoll.is og hjá Elvu, Dísu eða Róberti.
24.02.2011
Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.
Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa tvær úthlutanir á árinu 2011, með umsóknarfresti til og með 15. mars og 15. september.
Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
Efling atvinnustarfsemi, þekkingar og fræðslu á sviði menningar og lista.
Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
Nýsköpun og þróun menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu.
Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningarstarfi
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra. Skilyrði er að viðkomandi sýni fram á mótframlag.
Umsækjendum er bent á að kynna sér nánar Úthlutunarreglur 2011 á www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.
Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Í umsókninni skal m.a. vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.
Umsóknir vegna fyrri úthlutunar ársins 2011 skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, eigi síðar en 15. mars 2011. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.
Sigurður Sigurðarson, markaðsráðgjafi, getur aðstoðað Skagstrendinga við gerð umsókna. Síminn er 455 2700 og netfangið radgjafi@skagastrond.i.
23.02.2011
Hið eðla ektapar Jóhanna Sigurjónsdóttir og Eiríkur Lýðsson eru hæstráðendur til sjós á lands í spurningakeppninni skemmtilegu Drekktu betur.
Annað þeirra spyr og hitt dæmir.
Spurningarnar hafa þau sjálf samið, enda sjálfstætt og dullllegt fólk, og má búast við miklu fjöri og látum enda hafa þau lofað öllu fögru.
Þau ætla að spyrja um allt mögulegt sem þau hafa einhverja þekkingu á. Halda sig frekar á heimaslóðum, ekki spyrja um Icesave, Elvis eða stjórlagaþing og helst af öllu að plata dálítið þátttakendur.
Skagstrendingar og aðrir sem kunna eitthvað fyrir sér eru hvattir til að mæta og taka þátt í frábærri skemmtun.
23.02.2011
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
fimmtudaginn 24. febrúar 2011 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Greinargerð um umhverfismál
2. Gjaldskrár
3. Áætlun um frágang urðunarstaðar
a) Bréf UST, dags. 7. febrúar 2011.
b) Drög að lokunaráætlun
4. Bréf:
a) Tónlistarfólks, dags. 11. febrúar 2011.
b) Nes listamiðstöðvar, dags. 18. febrúar 2011.
c) Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 9. febrúar 2011.
d) Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, dags. 9. febrúar 2011.
e) UMFÍ, dags. 28. janúar 2011.
f) SSNV, dags. 2. febrúar 2011.
g) Umhverfisráðuneytisins, dags. 31. janúar 2011.
5. Fundargerðir:
a) Skipulags- og byggingarnefndar. 23.02.2011
b) Menningarráðs Norðurlands vestra, 28.01.2011
c) Stjórnar Norðurár bs. 9.12.2010
d) Stjórnar Norðurár bs. 30.12.2010
e) Stjórnar Norðurár bs. 6.01.2011
f) Starfshóps um sameiningu sv.félaga, 14.01.2011
g) Stjórnar SSKS, 15.02.2011
h) Stjórnar SSNV, 4.02.2011
i) Stjórnar SSNV, 8.02.2011
j) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28.01.2011
6. Önnur mál
Sveitarstjóri
23.02.2011
Námskeið um uppbyggingu verkefna og fyrirtækja í skapandi greinum á Norðurlandi vestra verður haldið 31. mars, 1. og 2. apríl á Sauðárkróki. Þátttakendur gefst kostur sækja námskeiðið á grundvelli verkefnis sem þeir vilja vinna að og er gert ráð fyrir virkri þátttöku þeirra á námskeiðinu.
Leiðbeinandi er Ása Richardsdóttir, B.A. í alþjóðasamskiptum og með diplóma í menningarstjórnun.
Fjallað verður um hugmyndavinnu og skipulagningu verkefna, fjármögnun, markaðssetningu, alþjóðlega tengslamyndun og samstarf. Námsefni er fléttað saman við verkefni þátttakenda og þau þróuð í samstarfi námskeiðshópsins og leiðbeinanda.
Eins og áður sagði verður námskeiði haldið á Sauðárkróki, fimmtudaginn 31. mars kl. 14 -18, föstudaginn 1. apríl, kl. 10 - 6, laugardaginn 2. apríl, kl. 10-14. Námskeiðið er 20 kennslustundir.
Verðið 15:000 kr. Upplýsingar í síma 455-6010 og á heimasíðu Farskólans: www.farskolinn.is.
Skráningar skal senda á netfangið Rannveig@farskolinn.is Umsóknarfrestur er til 3. mars.
Til athugunar: Við skráningu þurfa þátttakendur að senda neðangreindar upplýsingar:
Nafn, netfang, síma, stofnun/fyrirtæki/félag og svara eftirfarandi spurningum.
1. Hvert er verkefnið þitt og á hvaða sviði skapandi greina er það? ( hámark 50 orð)
2. Verði verkefnið að veruleika, hver verður lokaútkoma þess? (hámark 70 orð)
Leiðbeinandinn, Ása Richardsdóttir, hefur unnið í menningu, listum og fjölmiðlum í 25 ár, framleitt, leitt og skapað fjölmörg verkefni og viðburði. Hún hefur kennt menningarstjórnun frá 2001, bæði í háskólum hér heima og erlendis Hún hefur veitt stofnunum, félögum og hópum ráðgjöf, sérstaklega á svið alþjóðlegs samstarfs. Hún var framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins 2002 - 2010 og þar áður stofnandi Kaffileikhússins sem og starfsmaður RÚV - sjónvarps í 6 ár, með háskólanámi. Hún er með BA gráðu í alþjóðasamskiptum frá háskólanum í Kent í Kantaraborg, diplóma í menningarstjórnun frá Fondation Marcel Hicter í Brussel og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er nú forseti Leiklistarsambandsins og vinnur sjálfstætt að verkefnum og rannsóknum.
22.02.2011
Morgunblaðið segir frá því í dag að 5.360 kíló af kvenfólki hafi vigtað sig í einu hóp á hafnarvoginni á Skagaströnd vegna átaks sem nú stendur yfir hjá konum í bænum. Meðaltalið er því tæp 77 kg sem út af fyrir sig er nú ekki svo ýkja mikið.
Í frétt Óla Benna segir eftirfarandi:
„70 konur eru skráðar á námskeiðið „Á réttri leið – bætt heilsa, betri líðan“ en það mun standa yfir í tíu vikur undir leiðsögn fjögurra kvenna á Skagaströnd.
Nálægt 40% kvenna á aldrinum 18 ára og eldri, búsettra á Skaga- strönd, eru með í fjölbreyttu átaki til að bæta heilsu sína og líðan. Konurnar fjórar sem leiða hópinn eru iðjuþjálfi, Pilates- og jógakennari, hjúkrunarfræðingur og þroskaþjálfi. Konurnar mæta í alls konar leikfimi þrjá daga í viku og fá auk þess ýmsa fræðslu um hollt og gott mataræði og margt annað sem stuðlar að bættri heilsu og meiri lífsfyllingu. Þannig hafa konurnar hist á „smökkunarkvöldi“ þar sem þær skiptust á uppskriftum að hollusturéttum og smökkuðu hver hjá annarri.
Meðal markmiða kvennanna með átakinu er að grenna sig og styrkja og því mættu þær á hafnarvogina til að vita hvað hópurinn væri þungur samanlagt í upphafi átaksins. Ætlunin er að vigta hópinn aftur undir lok námskeiðsins til að sjá hvaða árangri konurnar hafa náð í sameiningu. Hópurinn hefur náð samningi við Samkaupsverslunina á staðnum um að veita þátttakendum 10% afslátt af grænmeti og ávöxtum næstu tíu vikur og ætti það að ýta enn frekar undir að góð- ur árangur náist í baráttunni við aukakílóin.“
21.02.2011
Helga Björg Jónasardóttir, www.vaxandi.is, mun halda námskeið í kertagerð n.k. laugardag 26. febrúar í Kvennaskólanum á Blönduósi á vegum Textílsetursins.
Kertagerð er auðveld og skemmtileg. Lítinn búnað þarf til, annað en það sem finnst í hverju eldhúsi. Eftir eitt byrjendanámskeiði er hver og einn fær um að halda áfram heima og búa til sín eigin kerti.
Kennarinn kemur með öll áhöld og efni sem þarf fyrir námskeiðið.
Námskeiðið er í eldhúsi Kvennaskólans í kjallara og stendur frá kl. 14-18. (tími ekki alveg staðfestur en námskeiðið er 4 klst. eða 6 kennslustundir.)
Námskeiðið kostar 8.500 kr. Efni er innifalið.
Aðeins 12 nemendur komast að.
Nemendur taki með sér svuntu, inniskó, nesti og lítinn kassa eða poka fyrir afurðirnar. Nánari upplýsingar og skráning: www.textilsetur.is og í gsm. 894-9030.
21.02.2011
Í gær opnaði Aimée Xenou listamaður hjá Nesi listamiðstöð athyglisverða sýningu í kjallaranum í Bjarmanesi.
Sýningin er gagnvirk, þ.e. áhorfendum stendur til boða að taka þátt í henni, og hafa því bæði börn og fullorðnir gaman að því að skoða hana.
Einnig er getraun í gangi sem allir geta tekið þátt í og eru verðlaun í boði fyrir þann sem tekst best að leysa þrautina.
Opið er alla vikuna frá klukkan 14 til 19.
17.02.2011
Tunglið tyllti sér eitt andartaka á Litla-spena í Spákonufelli og karlinn leit niður á mannlífið við Höfðann með nokkurri velþóknun. Þeir sem lögðu leið sína um nálægt hinu fagra fjalli gátu heyrt hann tuldra með sér að þarna væri nú flest allt í góðu standi. Hann ætti svosum að vita það enda víðförull með afbrigðum, fer víða um heiminn á hverri nóttu.
Svo hélt hann áfram ferð sinn, en þeir sem eftir stóðu veltu fyrir sér hvort tunglferðir séu ekki með öllu óþarfar því tíðum staldrar tunglið við ofan á Spákonufelli og grípur í spenann.
Ráð er að tvísmella á myndina og birtist hún þá svo stór að hugsanlega má greina augnlit karlsins í tunglinu.
16.02.2011
Landaður afli á Skagaströnd fyrstu fimm mánuði kvótaársins 2010-11 er tæplega 34% meiri en á sama tímabili síðasta kvótaárs. Þetta eru 6.510 tonn og hefur líklega aldrei áður borist jafn mikill afli á land í bænum.
Aflinn það sem af er kvótaárinu er meiri en barst allt kvótaárið 2007-8 og aðeins um 21% minna en næsta kvótaár á eftir, 2008-9.
Landaður afli í janúar á Skagaströnd var 336 tonn sem aðeins minna en í janúar á síðasta ári, en þá barst 353 tonn á land.
Aflahæstu bátar í janúar voru þessir:
Sighvatur GK-57, 2 landanir, samtals 116 tonn.
Fjölnir Su-57, 1 löndun, samtals 60,5 tonn
Sóley Sigurjóns GK-200, 1 löndun, samtals 55,8 tonn
Berglín GK-300, 1 löndun, samtals 51 tonn
Alda HU-112, 7 landanir, samtals 28 tonn
Sæfari SK-112, 7 landanir, 12 tonn
Flugalda ST-54, 2 landanir, 11 tonn
Kvótaárið miðast við upphaf september og lýkur í lok ágúst árið eftir. Meðfylgjandi er súlurit sem sýnir afla hvers kvótaárs. Bláu súlurnar sýna mánaðarlegan afla þess sem nú stendur yfir.