14.10.2014
Aðalfundur Sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf var haldinn um miðjan september síðastliðinn. Á fundinum voru almenn aðalfundarstörf viðhöfð og félaginu meðal annars kosin ný stjórn. Að þessu sinni voru gerðar breytingar á stjórn þar sem Dr. Rögnvaldur Ólafsson tók sæti Magnúsar B. Jónssonar. Í núverandi aðalstjórn eru því eftirtaldir: Adolf H. Berndsen form, prófessor Hjörleifur Einarsson, Sigríður Gestdóttir, Steindór R. Haraldsson og Dr. Rögnvaldur Ólafsson.
Um leið og Magnúsi eru þökkuð störf í þágu félagsins er Dr. Rögnvaldur boðinn velkominn til starfa.
Dr. Rögnvaldur var lengst af starfandi við H.Í. og gengdi þar m.a. stöðu forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Dr. Rögnvaldur er einnig þekktur fyrir að vera einn upphafsmanna Marel.
Meðfylgjandi er skýrsla stjórnar BioPol ehf vegna ársins 2013.
Að undanförnu hafa verið framkvæmdar töluverðar breytingar á heimasíðu BioPol ehf. http://biopol.is/ Settar hafa verið upp tengingar á síðunni þar sem finna má flestar skýrslur og vísindagreinar sem félagið hefur komið að á undanförnum árum. Einnig hefur verið sett upp síða þar sem hægt er að fylgjast með magni landaðs afla úr Húnaflóa. Fyrst og fremst eru settar fram upplýsingar um afla sem landað er á Skagaströnd en jafnframt yfirlit yfir magn á öðrum löndunarhöfnum við flóann. Gert er ráð fyrir að tölurnar verði uppfærðar mánaðarlega til þess að byrja með. http://biopol.is/efni/afli_úr_húnaflóa
10.10.2014
Á þessari mynd eru krakkar sem sóttu
kirjuskólann/sunnudagaskólann á árunum kringum
1965 ásamt leiðbeinendum sínum.
Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla sennilega
einhverntíma á árunum 1965-1968.Takið eftir að allir eru með
biblíumyndina sína í höndunum en slíkum myndum var úthlutað
í kirkjuskólanum á hverjum sunnudegi.
Fullorðna fólkið til vinstri er: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012)
með gráa húfu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og
Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Páll Jónsson (d. 19.7.1979)
stendur aftast með barn í fanginu og til hægri er Guðrún Teitsdóttir
(d. 17.6.1978) einnig með barn í fanginu.
Við hlið Margrétar, aftast, stendur Guðrún Lárusdóttir og framan
við hana er Aðalheiður Másdóttir og hægra megin við hana er
Elsa Lára Blöndal með rauða húfu.
Framan við Aðalheiði er Ingibergur Guðmundsson og bróðir hans
Karl Guðmundsson er rauðhærður á miðri mynd. Hjá Karli, aftar
og vinstra megin í brúnni peysu, er Sigurður Þorbjörnsson en
Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) er aftan við Karl til hægri
í hvítir og brúnni peysu.
Aftan og vinstra megin við Guðrúnu Teitsdóttur í svartri úlpu
með bleikt um hálsinn er Ólína Bjarnadóttir og beint framan við
hana er svo Kjartan Bjarnason. Guðmundur Viðar Guðmundsson
er framarlega með rautt hár og heldur utan um minni börn
í fremstu röð.
Framan við séra Pétur með brúna húfu er Heiðar Elvan Friðriksson
og til hægri við hann er Guðbjörg Kristinsdóttir en aftan við hana
Árni Geir Ingvarsson. Framan við Heiðar og Guðbjörgu eru
Guðbjörg Viggósdóttir í ljósri kápu og Líney Jósefsdóttir í svartri
vattúlpu.
Í fremstu röð til hægri í rauðri kápu með svarta húfu er
Unnur Gunnarsdóttir og aftan við hana er Málfríður Jóhannsdóttir
en hægra megin við Unni er Lára Bylgja Guðmundsdóttir.
Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú getur bætt við nöfnum
vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
10.10.2014
Kvenfélagið Eining mun standa fyrir þriggjakvölda félagsvist á næstunni.
Spilað verður í félagsheimilinu Fellsborg.
Spilað verður mánudaginn 13. október, mánudaginn 20. október og
mánudaginn 27. október
Byrjað verður að spila kl. 20:15. Miðaverð er 1000 kr.
fyrir kvöldið en 2400 kr ef greitt er fyrir öll 3 kvöldin í einu. Vinningar eru í boði fyrir hvert kvöld fyrir sig, hæsti karl og hæsta kona og svo skammarverðlaunin.
Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar í miðaverði.
Sjáumst spilandi kát J
09.10.2014
Gerir kunnugt :
Dagana 24.&25. okt mun Borgar - stjórinn framreiða glæsilegan 7 rétta villibráðarmatseðil gerðan úr sérvaldri íslenskri villibráð.
Reykt & grafin gæs
Silungs-ravioli
Lundapaté
Kryddaður ananas í skotglasi
Hreindýrasteik. Bláber - portvín & villtir sveppir
Íslenskir ostar
Skyr- epli – kex & krem
Verð á mann 7995 kr
Verð á mann matur+vínpakki 10.995 kr
(Vínpakki inniheldur 2 glös hvítvín & 2 glös rauðvín)
Villibráðarhlaðborðið verður á sínum stað föstudaginn 31. okt. og 1. nóv.
Þar sem borðið mun svigna undan villtum krásum Borgar-stjórans góðkunna
Verð á mann 9750 kr
Borðapantanir vel þegnar í sima 553-5550/858-2460 eða toti@borginmin.com
Jólamatseðillinn og jólahlaðborðin eiga einnig sinn stað á BORGINNI
Og verða sem hér segir
Matseðill 28.29. nóv.
Hlaðborð 05. 06. des.
Matseðill 12. 13. des.
Kv Þórarinn Br Ingvarsson
08.10.2014
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra heldur málþingið Fólk í heimildum – heimildir um fólk laugardaginn 11. október næstkomandi. Sex fræðimenn munu ræða vítt og breitt um leit sagnfræðinga og annarra sem vinna með liðna tíð að „fólki“ fortíðarinnar og þeim aðferðafræðilegu, kennilegu og siðferðilegu álitamálum sem upp geta komið í því starfi. Þingið verður haldið í bókasafni Halldórs Bjarnasonar í húsakynnum Rannsóknaseturs HÍ á Einbúastíg 2 á Skagaströnd og hefst klukkan 13.
Nánari upplýsingar um málþingið má finna hér.
04.10.2014
Síldarævintýri
Síld var söltuð á Skagaströnd a.m.k. frá árinu
1935 þegar búið var að koma upp trébryggju í nýgerðri höfn.
Síðan var saltað á hverju sumri í áratugi eða þar til síldin hvarf
upp úr 1960. Þegar söltun var í gangi var aldeilis handagangur í
öskjunni því fjöldi manns starfaði á planinu. Í þá tíð var öll síld
söltuð í trétunnur en þær voru smíðaðar á Siglufirði.
Á þessari mynd, sem sennilega hefur verið tekin einhverntíma á
árunum rétt fyrir 1960, sést Volvo bíll Benjamíns Sigurðssonar
(d. 30.9.2004) frá Skálholti með fullfermi af síldartunnum.
Tunnurnar voru svo tíndar af bílnum á höndum því engir voru
lyftarar á þessum árum.
03.10.2014
Sveinn Eggertsson var á ferðinni í sumar og tók skemmtilegar myndir með flygildi sem hann lét sveima yfir Skagaströnd. Sandar Ómarsdóttir klippti myndskeiðin til og setti á youtube:
https://www.youtube.com/watch?v=QTJJ71h9Sv4&feature=youtu.be
02.10.2014
Þann 29 september s.l. hófst alþjóðleg Hreyfivika um allann heim. Ungmennafélag Íslands UMFÍ stóð að skipulagningu Hreyfivikunnar á Íslandi.
Zumba með Lindu Björk stóð fyrir viðburði á Skagaströnd og Sauðárkróki en það voru Zumbavinatímar á báðum stöðum og allir velkomnir með í Zumbafjörið.
Á meðfylgjandi mynd eru hressar Zumbaskvísur á Skagaströnd eftir fjörugan Zumbatíma.