03.01.2005
Áramótin voru haldin með hefðbundnu sniði á
Skagaströnd. Björgunarsveitin Strönd og
Ungmennafélagið Fram stóðu fyrir flugeldasölu í Gamla
Kaupfélagshúsinu. Þar fóru allir viðskiptavinir sem
versluðu fyrir 12 þúsund krónur eða meira í pott, síðan
var dregið úr pottinum og var Árni Sigurðsson skipstjóri
sá heppni og fékk í verðlaun tertur og flugelda að
verðmæti 20 þúsund.
Hátiðahöldin um kvöldið hófust með blysför að
brennunni og var svo kveikt í henni, við brennuna er
öllum gefin stjörnuljós, sem vekur sérstaka ánægju hjá
unga fólkinu og síðan hófst glæsileg flugeldasýning að
hætti Björgunarsveitarinnar Strandar.
Veðurútlit fyrir kvöldið lofaði ekki góðu, en
Björgunarsveitin Strönd og Umgmennafélgaið Fram
voru bænheyrðir og fór brennan og flugeldasýningin
fram í góðu veðri og skyggni.
Björgunarsveitin Strönd og Ungmennafélagið Fram vilja
þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við
undirbúning brennu og flugeldasýningar, gestum og
styrktaraðilum.
03.12.2004
Fimmtudagskvöldið 2. des. sl. var aðventustemming í
Viðvíkurkaffi. Boðið var upp á upplestur og lifandi
tónlist. Guðný, Steindór og Árdís lásu upp úr
áhugaverðustu bókunum og Hrafnhildur söng nokkur
jólalög við undirleik Elíasar. Allt þetta fólk skilaði sínu
með miklum ágætum. Steindór gat auðvitað ekki stillt
sig um að fleyta nokkrum skemmtisögum frá eigin
brjósti með upplestrinum og var í sínum besta ham.
Hrafnhildur skilaði jólalögunum á einstaklega
skemmtilegan hátt. Húsfyllir var á kaffihúsinu og
stemningin notaleg. Í kjallara kaffihússins var opið
jólahús þar sem handverksfólks á Skagaströnd hafði
muni sína til sölu. Þar gat m.a. að líta listmuni úr gleri
og járni, silfursmíð, trémuni, kort úr þangi, ýmis plögg
úr flóka og fjörusteina með jólaandlitum svo eitthvað sé
nefnt. Í Viðvíkurkaffi stendur einnig yfir málverkasýning
Jóns Ívarssonar sem sýnir olíumyndir á striga.
Kaffihúsið og markaðurinn verða opin laugardaginn 4.
des. kl 18-22 og sunnudaginn 5. des. kl 14-19. Einnig
verður opið þriðudaginn 7. des. og fimmtudaginn 9.
des. kl 20-22. Á þriðjudagskvöldinu verður upplestur.
Heimsókn í Viðvíkurkaffi og jólahús góð tilbreyting í
amstri jólaundirbúnings og sjón sögur ríkari.
02.12.2004
Nú fer að hefjast innritun á vorönn hjá þeim skólum
sem eru með fjarnám. Því ættu þeir sem hafa verið að
hugsa um að fara í fjarnám að taka sig til og kynna sér
hvað þeim stendur til boða.
Í Námsstofunni er góð aðstaða til að stunda fjarnám,
nokkrar tölvur og lestofa. Nú er verið að tengja
fjarfundabúnað sem þýðir að eftir áramót er hægt að
sitja kennslustundir í Námsstofunni.
Fyrri hluta desember standa yfir þau próf sem
fjarnámsnemendur fá leyfi til að taka í Námsstofunni.
Þetta eru 32 próf sem 16 fjarnámsnemendur taka við 4
skóla. Síðan eru nokkrir fjarnámsnemendur sem taka
sín próf í sínum skóla. En alls eru 23 með samning um
að nýta aðstöðuna í Námsstofunni.
Hér eru nokkrir skólar sem bjóða upp á fjarnám:
Kennaraháskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra
Fjölbrautarskólinn við Ármúla
Háskóli Íslands
Háskólinn á Hólum
Háskólinn í Reykjavík
Tækniháskóli Íslands
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
Menntafélag byggingariðnaðarins
Rafiðnaðarskólinn
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins
Hótel- og matvælaskólinn
Borgarholtsskólinn
Iðnskólinn í Reykjavík
Þessi listi er ekki tæmandi og skólarnir bjóða ekki upp
á alla sína námsskrá í fjarnámi. Auk skólanna bjóða
ýmsir aðilar alls konar áhugaverð námskeið í fjarnámi.
Þeir sem vilja aðstoð eða nýta aðstöðuna í
Námsstofunni á Skagaströnd er bent á að hafa
samband við undirritaðan.
Desember 2004
Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd
Hjálmur Sigurðsson
S: 8440985
02.12.2004
Landsbanki Íslands Skagaströnd bauð bæjarbúum í
aðventukaffi 1. desember þegar kveikt var á jólatré
bankans.
Allan daginn var boðið var uppá kakó og kaffi,
jólasmákökur og súkkulaðimola.
Frá kl. 14.00 lék svo Elías Björn Árnason jólalög á
hljómborð á meðan kakóið og smákökurnar runnu
ljúflega niður við þýða óma tónlistarinnar.
Bæjarbúar kunnu vel að meta góðgerðirnar og var
bekkurinn oft þétt setinn.
Mættust þar meðal annars yngstu bæjarbúarnir úr
leikskólanum Barnabóli og þeir elstu frá Dvalarheimilinu
Sæborg.
Almenn ánægja var með daginn, jafnt hjá gestum og
starfsfólki og ekki ólíklegt að þarna hafi verið búin til
hefð sem ekki verður rofin.
30.11.2004
Kveikt verður á jólatrénu á Hnappstaðatúni
miðvikudaginn 1. desember kl 17.30.
Samkomulag hefur tekist við jólasveinafélagið um að
jólasveinar mæti samkvæmt venju þótt opinber
starfstími þeirra
hefjist ekki fyrr en eftir nokkra daga.
Börn eru hvött til að koma með foreldra sína og rifja upp
jólalögin.
Sveitarstjóri.
25.11.2004
Í tilefni aðventunnar verður Kaffi Viðvík með jólabakkelsi
og tilheyrandi jólaskap.
Í kjallaranum verður handverksfólk með jólahús og á efri
hæðinni verður sölusýning á málverkum Jóns
Ívarssonar.
Opnunartími: sunnudaginn 28. nóv. kl. 14-22
þriðjudaginn 30. nóv. kl. 20-22
fimmtudaginn 2. des. kl. 20-22
Aðrir opnunartímar verða auglýstir síðar.
17.11.2004
Með vísan til laga nr. 73/1952 um aðsetursskipti, ber
íbúum að tilkynna um flutning til íbúaskrár innan viku
frá flutningi, bæði flutning innanbæjar og milli
sveitarfélaga.
Tilkynna ber flutninga á skrifstofu Höfðahrepps,
Túnbraut 1 - 3, þar er opið frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-
16:00 alla virka daga. Tilkynningarnar eru síðan sendar
til Hagstofu Íslands.
10.11.2004
Um þessi jól koma út margar bækur að vanda. Ein
þessara bóka er “Minningar og lífssýn” eftir Björgvin
Brynjólfsson. Björgvin er löngu landskunnur fyrir störf
sín að stjórnmálum og verkalýðsmálum. Húnvetningar
þekkja hann einnig m.a sem frumkvöðul að stofnun
Sparisjóðs Skagastrandar. Saga Björgvins
Brynjólfssonar er miklu meira en saga hans sjálfs. Hún
er jafnframt saga síðustu aldar í hnotskurn. Björgvin
segir frá ýmsum kímnilegum atvikum, svo sem því, að
sá kunni framsóknarmaður, Björn á Löngumýri, taldi
það engu fyrirstöðu að ganga í Alþýðuflokkinn-ef það
mætti verða til að hann kæmist á þing. Auk
æviminninganna, stjórnmálasögunnar og sögu
verkalýðsbaráttunnar, er hér að finna flestar
blaðagreinar Björgvins, ferðaþætti og fleira, þannig að
segja má að þessi bók sé í raun heildaarritsafn hans.
Höfundur gefur út og dreifir bókinni sjálfur.
Út er komin ný heimildarskáldsaga eftir Björn Th.
Björnsson sem ber nafnið “Glóið þið gullturnar”. Í
kynningu með bókinni segir” Einn þeirra dönsku
kaupmanna sem störfuðu hér fyrr á öldum var Fritz
Hendrik Berndsen sem kom til Skagastrandar upp úr
miðri 19.öld. Lífshlaup hans var hins vegar um margt
óvenjulegt og skrautlegt, en afkomendur hans eru
margir og hafa ýmsir þeirra sett mikinn svip á
samfélagið á Skagaströnd.
Björn Th. Björnsson hefur nú ritað heimildaskáldsögu
um Fritz Hendrik sem byggir m.a. á endurminningum
hans sjálfs”. Útgefandi er Mál og menning.
04.11.2004
Lárus Ægir Guðmundsson íþróttakennari og
kirkjuþingsmaður á Skagaströnd er 58 ára í dag. Lárus
hélt helstu máttarstólpum á Skagaströnd kaffisamsæti í
tilefni dagsins. Lárus valdi hreinlegustu og best búnu
kaffistofu bæjarins, sem er í fyrirtækinu SERO ehf að
Vallarbraut 2, fyrir samsætið. Á meðfylgjandi mynd má
sjá Lárus fyrir miðri mynd, t.h. eru svo Sigurður
Skagfjörð, Jóhann Björn og Magnús Ólafsson. Til vinstri
við Lárus eru þeir Vilhelm Björn og Adolf H. Berndsen.
Lárusi eru hér með óskað til hamingju með daginn.
02.11.2004
Lærið að meðhöndla “digital”, (stafrænu), myndirnar
ykkar
á stuttu og hnitmiðuðu námskeiði.
Farið er yfir grunnatriði í lagfæringum og breytingum á
myndum, skönnun, vistun og frágang mynda til að
setja þær á veraldarvefinn, senda í tölvupósti eða
prenta þær eftir mismunandi leiðum. Unnið er með
verkfæri og skipanir til að afmarka og vinna með hluta
myndar, sýnd meðferð lita og notkun „layera". Notast
verður við Photoshop forritið. Námskeiðið tekur 6 klst.
og verður haldið 16. og 18. nóvember .kl. 19.30 –
22.30
í tölvuveri Höfðaskóla Skagaströnd.
Námskeiðið kostar kr. 6.000.- A.T.H. nauðsynlegt er
að hafa grunnþekkingu á tölvum og tölvunotkun til að
taka þátt í þessu námskeiði. Skráning og allar nánari
upplýsingar í síma 895-2227, eða senda tölvupóst á
johann@blonduskoli.is merkt “myndvinnsla”
(Allir þáttakendur á námskeiðinu fá disk með nýjasta
myndvinnslu-forritinu
“ Adobe Photoshop Elements “ ).