Myndlistarsýning á Skagaströnd

Myndlistarsýning nemenda í Leikskólanum Barnabóli var formlega opnuð í Landsbanka Íslands á Skagaströnd s.l. föstudag. “Landsbankinn hefur staðið fyrir myndlistasýningum aðallega í Reykjavík og á Akureyri. Nú er komið að yngstu kynslóðinni. Landsbankinn setti af stað í byrjun janúar samvinnuverkefni með nokkrum leikskólum á þeim stöðum sem bankinn er með útibú á Norðurlandi, en það er á Akureyri, Sauðárkróki, Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn og hér á Skagaströnd“ sagði Gunnlaugur Sigmarsson útbússtjóri við opnun sýningarinnar á föstudaginn, um leið og hann bauð gesti hjartanlega velkoman. Gunnlaugur sagði þema sýningarinnar vera GLEÐI og að Landsbankinn þakkaði öllum þeim sem komu að þessu ánægjulega verkefni kærlega fyrir skemmtilegt samstarf um leið og bankinn hvetti alla til að koma og skoða sýninguna og sjá þessar skemmtilegu myndir. Helga Bergsdóttir leikskólastjóri sagði að starfsfólk Barnabóls hafi tekið vel í þessa hugmynd landsbankamanna, að opna sýningu í bankanum, því eins og allir vita eru fjölmargir listmenn á Barnabóli sem framleiða listaverk í löngum bunum. Það fór smá tími hjá okkur í vangaveltur, um hvernig best væri að framkvæma þetta með börnunum og eins hvernig listaverk við vildum setja á sýninguna. Skoðaðir voru ýmsir möguleikar og gerðar tilraunir með efni og form. Það varð úr að hver hópstjóri valdi ákveðið form eða aðferð sem börnin voru látin vinna með, misflókið allt eftir aldri barnanna. Það voru stoltir listamenn sem mættu með foreldrum sínum til formlegar opnunar sýningarinnar á föstudaginn.

Sleðaferð í Hólabergið

Börnin á Barnabóli fóru með snjóþoturnar sínar upp í brekkurnar í Hólaberginu á föstudaginn var. Eftir margra ára snjóleysi í brekkunum (að minnsta kosti í barnsminninu) var loksins kominn nógur snjór til að renna sér í. Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér var ákefðin mikil og börnin skemmtu sér konunglega. Helga Bergsdóttir leikskólastjóri

Þorrablót á Barnabóli

Hið hefðbundna þorrablót Barnabóls var haldið fimmtudaginn 5. febrúar s.l. Undirbúningur blótsins hófst daginn áður með hattagerð en allir útbúa sinn eigin þorrabótshatt (kórónu). Þegar öðrum undirbúningi var lokið söfnuðust allir saman og sungu „Nú er frost á Fróni“ og fleiri lög. Loks var sest að snæðingi en á borðum var; harðfiskur, hangikjöt, lifrapylsa og blóðmör, ný og súr sviðasulta, súrir pungar, hákarl og rúgbrauð. Flestir voru hrifnastir af harðfiskinum og hangikjötinu en margir smökkuðu allar tegundir. Ein stúlkan hámaði í sig lifrapysluna á meðan önnur borðaði mest af hangikjötinu. Sá yngsti borðaði bara allt sem var sett á diskinn hans. Sumir vildu hafa mikið smjör á rúgbrauðinu sínu en aðrir borðuðu bara „mikið“ og drukku djús með. Helga Bergsdóttir leikskólastjóri

Skíðasvæðið undirbúið

Hafin er undirbúningur að opnun skíðasvæðisins í Spákonufelli og standa vonir til þess að hægt verði að opna lyftuna á næstu dögum komi ekki neitt óvænt upp á. Nægur snjór er á svæðinu eins og þessar myndir bera með sér. Verið var að losa vírinn þegar myndirnar voru teknar en eftir er að færa til snjó, yfirfara lyftuna og hreinsa snjó í kringum Skíðaskálann.

Þorrablót á Skagaströnd

Þorrablót Kvenfélagsins Einingar á Skagaströnd verður haldið laugardaginn 14. febrúar nk. og fer forsala miða fram 8. febrúar milli kl. 12.00 og 13.00 í Félagsheimilinu Fellsborg. Miðaverð er 4.100 kr. en eldriborgarar og unglingar fæddir 1988 greiða 2.500 kr. Skemmtiatriði verða í höndum valinkunnra úrvalsaðila og hljómsveitin Von frá Sauðárkróki spilar fram eftir nóttu.

Tilraunaveiðar á krabba.

Grænlenski togarinn Arctic Wolf frá Ilulssat hefur verið við tilraunaveiðar á krabba undan farnar vikur á nokkrum stöðum við landið. Hafa þeir m.a. reynt fyrir sér við Breiðafjörðinn. Skipið er í höfn á Skagaströnd þessa dagana en búið er að leggja krabbagildur í Húnaflóa og beðið er eftir heppilegu veðri til að vitja um aflann. Skipið var leigt til veiða fyrir E. Ólafsson, íslenska útgerð en áhöfnin mun vera að hluta til erlend. Arctic Wolf hefur verið við krabbaveiðar við Grænland á liðnum árum og náð góðum árangri með þær veiðar.

Síðbúnar snjómyndir frá 19. janúar.

Loksins kom ærlegur snjór, já en... alltof mikið í einu, sagði einhver. Hvernig er þetta með þennan meðalveg sem allir eru að tala um. Hafa veðurguðirnar aldrei heyrt um hann. Hann er með mátulega miklum snjó, góðum brekkum, 3-4 stiga frosti og sólskini. Við auglýsum hér með eftir honum en meðfylgjandi eru nokkrar myndir af börnunun á Barnabóli að leik í „ofursnjósköflum“ á Skagaströnd. Leikskólastjóri.

Þakkarbréf til björgunarsveitar

Hreppsnefnd Höfðahrepps þakkar Björgunarsveitinni Strönd fyrir ómetanlega aðstoð við íbúa og atvinnulíf þegar óveður gekk yfir Skagaströnd dagana 12. – 16. janúar 2004. Hreppsnefndin metur mikils hið fórnfúsa starf björgunarsveitarmanna og annarra sjálfboðaliða sem unnið hafa við björgun verðmæta og aðstoð við íbúa. Sá samhugur sem birtist í störfum þessa fólks er til fyrirmyndar og styrkir samfélagið á erfiðum tímum. Skagaströnd, 22. janúar 2004. Hreppsnefnd Höfðahrepps

Úr óveðri til betri tíðar

Gangur lífsins er nú sem óðast að taka á sig eðlilegt horf eftir óveðurskaflann sem gekk yfir í síðustu viku. Snjómokstri af götum er að mestu lokið og orðið vel fært um allan bæinn. Hlákan sem kom í kjölfar óveðursins hefur hjálpað mikið til við að breyta öllu útliti byggðarinnar. Bátarnir sem sukku í höfninni eru allir komnir á þurrt og hafa ýmist verið teknir til viðgerðar eða settir í biðstöðu þar til ákveðið verður um framtíð þeirra. Hreinsun á niðurbrotnu þaki Vélsmiðju Karls Berndsen stendur yfir og hönnun viðgerða er hafin. Ekki er fyrirséð hvernig verður leyst úr því máli.

Breyttur viðverutími umsjónarmanns Námsstofu.

Frá og með janúar 2004 verður viðvera umsjónarmanns Námsstofu sem hér segir: - Á þriðjudögum kl. 19:30 - 21:30 - Á miðvikudögum kl. 17:00 - 19:00 - Á fimmtudögum kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00