29.05.2014
Þegar hugmynd um að bjóða mig fram undir merkjum Skagastrandarlistans kom upp í kollinn á mér hugsaði ég málið í nokkra daga og ákvað í framhaldinu að henda mér út í djúpu laugina. Ég sé alls ekki eftir því.
Frá því að ég var lítil hef ég litið á Skagaströnd sem mitt „heim“. Hér hef ég starfað síðan 2008 og búið síðan í byrjun árs 2012. Eftir flutninginn hugsaði ég, af hverju var ég ekki löngu flutt hingað? Hér slær hjartað, hérna er mitt „heim“ og á Skagaströnd vil ég búa þar til ég er orðin gömul og grá. Til þess að það sé mögulegt þarf að tryggja atvinnuöryggi. Óöryggi í atvinnumálum er ekki aðlaðandi fyrir neinn og allra síst ungt fólk með börn. Við þurftum að leita leiða til styrkingar atvinnulífs hvort sem um er að ræða nýsköpun eða stuðning við núverandi atvinnurekendur.
Mennta- og uppeldismál eru mér ofarlega í huga. Gæði þeirra eru alger forsenda fyrir því að samfélag eins og okkar dafni og sé aðlaðandi fyrir barnafjölskyldur. Við þurfum að tryggja að skóli og leikskóli veiti bestu menntun sem völ er á. Jafnframt þarf aðbúnaður skólastarfs að vera til fyrirmyndar. Halda þarf áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á sl. árum en jafnframt er mikilvægt að stöðugt sé unnið að endurbótum á starfinu og umhverfi þess.
Ég bauð mig fram til að geta lagt mitt lóð á vogarskálar samfélagsins. Ég vil gera enn betur og halda áfram að gera bæinn okkar betri. Ég er sannfærð um að gott má alltaf bæta.
H-listinn Skagastrandarlistinn leitar nú eftir umboði til að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum. Veitið okkur umboð til uppbyggingar og traust til að hlúa betur að samfélginu okkar á komandi kjörtímabili. Stöndum saman í að gera samfélagið okkar enn betra.
Sjáumst sem flest hress og kát á kjörstað
X-H Árný Sesselja Gísladóttir
29.05.2014
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
föstudaginn 30. maí 2014 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
Leiðrétting sveitarstjórnar á kjörskrá, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 5/1998.
Sveitarstjóri
28.05.2014
Á síðustu dögum hafa komið út tvö rit tengd Austur-Húnavatnssýslu:
FRÁ FJÖRU TIL FJALLS - Kynningarbæklingur um A-Hún. sem kemur út á vegum Ferðamálafélags A-Hún. Bæklingurinn er tæpar 50 síður í A5 broti og inniheldur upplýsingar til ferðamanna um sýsluna, auk auglýsinga frá aðilum í ferðaþjónustu.
HÚNAVAKA 2014 – Ársrit USAH sem nú kemur út í 54. sinn. Ritið er tæpar 300 bls. að stærð og inniheldur margvíslegan fróðleik, s.s. viðtöl, frásagnir, kveðskap, fréttir o.fl.
ÚTGÁFUKYNNING - Á morgun, uppstigningardag, verður haldinn sameiginlegur kynningarfundur á kynningarbæklingnum og Húnavökuritinu. Fundurinn verður í Eyvindarstofu á Blönduósi, kl. 17:30 og stendur í ca. hálftíma. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.
Við viljum hvetja þig til að mæta og fjalla í framhaldinu um þessi rit sem bæði stuðla að því að styrkja A-Hún.
Með bestu kveðjum.
Ferðamálafélag A-Hún.
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
28.05.2014
Kjörfundur vegna sveitastjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Skagaströnd verður í Höfðaskóla á Skagaströnd 31.maí 2014.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00
Talning atkvæða hefst um kl. 22:45, á kjörstað.
Kjörstjórn.
28.05.2014
Það er líflegt í litla bænum mínum núna, sjómannadagur og kosningar framundan og bærinn hreinlega iðar af tilhlökkun og spenningi.
Það eru ekki margar vikur síðan ég sat og kvartaði yfir því að fólk skartaði orði eins og íbúalýðræði, án þess að hafa nokkurn raunverulegan áhuga á taka þátt og varla áhuga á að kynna sér málin. Þetta get ég ekki sagt í dag.
Á vinnustöðum, kaffistofum og á netheimum takast menn á um ýmis málefni og oft skapast fjörugar og skemmtilegar umræður. En þó ekki alltaf. Stundum verð ég hrygg við lestur netmiðla, stundum tapa ég gleðinni eitt andartak og stundum verð ég hreinlega þung á sálinni og svartsýn.
Sem betur fer bý ég að því að hafa kynnst 12 spora starfi og eitt stærsta verkefnið sem ég tókst á við þar, var að taka ábyrgð á eigin líðan og upplifun. Mér líkar vel við flesta en þó ekki alla og flestir eru mér góðir en þó ekki allir. Hvort ég læt það skipta mig máli er mitt val. Ég ber ein ábyrgð á viðbrögðum mínum. Enginn annar en ég ber ábyrgð á því hvernig ég kem fram við annað fólk.
Annað verkefni í sporastarfinu var hreinlega að breyta því hvernig ég horfi á heiminn. Í stað þess að einblína á þætti sem ekki eru í lagi þá finnst mér gott að fara með æðruleysisbænina og hafa hana bak við eyrað í öllum athöfnum daglegs lífs. Einbeita mér síðan að því sem er gott í kringum mig og þakka fyrir það. Ég er ekki fullnuma í fræðunum, langt því frá, en vonandi þó á réttri leið.
Fyrir hvað er ég þakklát í dag? Það er ansi margt:
Ég er þakklát fyrir að hafa fæðst hér og alist upp að miklu leyti.
Ég er þakklát fyrir son minn og allt sem hann hefur kennt mér og gefið af sér.
Ég er þakklát fyrir það gæfuspor að flytja hingað fyrir tveimur árum.
Ég er þakklát fyrir allt það góða fólk sem hér býr og bauð okkur mæðginin velkomin aftur heim.
Ég er þakklát fyrir öll brosin og glaðværðina sem mætir mér hvert sem ég fer, þó það sé bara út að ruslatunnu.
Ég er þakklát fyrir vinnustaðinn minn. Fólkið sem þar starfar við hlið mér og fólkið sem ég þjónusta.
Ég er þakklát fyrir ódýru íbúðina sem ég leigi af Sveitarfélaginu.
Ég er þakklát fyrir hitaveituna sem gerir það að verkum að ég get staðið undir sjóðheitri bununni eins lengi og ég þarf. Það er gott eftir góðan sundsprett í köldum sjónum.
Ég er þakklát fyrir vöruúrvalið í búðinni og þjónustuna sem ég fæ þar daglega.
Ég er þakklát fyrir náttúrufegurðina, fuglasönginn og fagra fjallasýn, sama í hvaða átt er litið.
Þessa dagana er ég jafnframt þakklát fyrir góða hópinn sem skipar H-listann, Skagastrandarlistann.
Þakklát fyrir þá gleði og bjartsýni sem einkennir þennan samstillta hóp.
Þakklát fyrir að þarna er fólk sem hlustar og er tilbúið að gera enn betur.
Þakklát fyrir að þarna er fólk sem ég treysti og fyrir traustið sem mér er sýnt.
Ef velgengni þín vegur salt
og vonin er að flaksa.
Þú skalt elska og þakka allt
það sem á að vaxa.
Höf. Hallgrímur Óskarsson
Ég hlakka til að sjá ykkur vonandi öll á laugardaginn! Á kjörstað, í skrúðgöngu, sjómannamessu, skemmtisiglingu, á Hafnarhúsplaninu, í sjómannadagskaffi, við talningu atkvæða eða á dansleik í Fellsborg.
Kjósum eftir hjartanu og höfum í huga að hvernig sem þessar kosningar fara, þá ætlum við að búa hér áfram saman í sátt og samlyndi.
Kærar kveðjur til ykkar allra
X-H Sigurlaug Lára Ingimundardóttir
27.05.2014
Nýlega keypti Sveitarfélagið Skagaströnd þjónustu af fyrirtæki, Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf. Það sem sveitarfélagið keypti í raun var skýrsla (sem finna má á vef sveitarfélagsins) þar sem reynt var að leggja mat á fjölda ferðamanna á Skagaströnd á undanförnum árum. Niðurstöður skýrslunnar gefa til kynna að umtalsverður fjöldi ferðamanna heimsæki okkur á hverju ári og jafnframt að aukning á milli áranna 2004 – 2013 séu 57%.
Ekki ætla ég að reyna að leggja mat á áræðanleika þessara niðurstaðna en ætla hins vegar að leyfa mér að telja upp atriði sem gætu fyllilega verið meðal ástæðna þess að gestir vilja heimsækja Skagaströnd.
Við eigum snyrtilegan, lítinn og lifandi bæ sem er svo sannarlega áhugaverður. Hér hefur fólk getað keypt mat í Kántýbæ og hjá Olís. Við eigum flottasta kaffihús á landinu, getum státað af Árnesi og hinu dulúðlega Spákonuhofi. Hér fær fólk persónulega og öðruvísi þjónustu í sundlauginni og getur kíkt inn í Djásn og Dúllerí og keypt handverk. Hér er opin matvöruverslun sjö daga vikunnar. Hér getur fólk búist við að rekast á erlenda listamenn að störfum hvar og hvenær sem er. Fólk getur dáðst að „stóru“ andlitsmyndunum sem málaðar voru hér síðasta sumar. Göngufólk hefur aðgengi að tveimur vönduðum bæklingum sem lýsa gönguleiðum á Spákonufell og Spákonufellshöfða. Hér er einnig að finna eitt best varðveitta leyndarmál golfaranna, Háagerðisvöll. Síðast en ekki síst erum við sjálf upp til hópa stórskemmtilegt fólk sem mjög áhugavert er að kynnast.
Hvað er það hins vegar sem vantar inn í þessa upptalningu? Væntanlega þurfið þið ekki að hugsa lengi til þess að finna svarið við spurningu minni. Að sjálfsögðu er það gistirými fyrir gestina. Þeir sem ekki vilja nota okkar frábæra taldsvæði eða gista í heimahúsum hafa mjög takmarkaða möguleika til að halla hér höfði.
Síðastliðið ár hefur sveitarstjórn Skagastrandar verið að kynna sér hvernig uppbygging ferðaþjónustu hefur átt sér stað á öðrum landssvæðum. Segja má að vinnan hafi fyrir alvöru hafist eftir að niðurstöður íbúaþings sem haldið var í mars 2013 lágu fyrir enda skilaboðin nokkuð skýr:
„Framtíðarsýnin sem lesa má úr niðurstöðum íbúaþingsins einkennist öðru fremur af áberandi væntingum til þess að mikil uppbygging verði í ferðaþjónustu auk þess sem meira verði úr nýtingu sjávarauðlindarinnar á staðnum. Hins vegar kom í ljós að ferðaþjónusta er varla nefnd í umræðum um það sem gerir Skagaströnd aðlaðandi í dag, þannig að álykta má sem svo að sú atvinnugrein sé á byrjunarreit og mikið átak þurfi til að uppfylla væntingar íbúanna á því sviði.“
Er ekki komið að því að við Skagstrendingar viðurkennum ferðaþjónustu sem alvöru atvinnugrein? Ætlum við ekki að taka þátt í þeim uppgangi sem á sér stað í ferðaþjónustu? Hefði byggst upp hér útgerð ef aldrei hefði verið byggð höfn? Hefðu bátar komið hér til löndunar ef ekki hefði verið stofnaður fiskmarkaður?
Fordæmi eru fyrir að vel takist til þegar rétt er á spilum haldið. Í því sambandi má nefna Patreksfjörð. Þar byggðu heimamenn upp hótel í samstarfi við Fosshótel. Það sem gerðist í framhaldinu var að einstaklingar fóru að bjóða upp á margvíslega afþreyingu s.s. siglingar, veiði- , jeppa- ,sleða- og fjórhjólaferðir. Nýstofnaður Atvinnuþróunarsjóður Skagastrandar ætti að geta stutt við sambærilega þróun á meðal íbúa hér líka.
Á síðasta fundi fráfarandi sveitarstjórnar var samþykkt að stofna félag sem myndi beita sér fyrir byggingu hótels á Skagaströnd. Félaginu er í fyrstu ætlað huga að hönnun slíkar byggingar, leita áhugasamra samstarfsaðila og kanna fjármögnunarmöguleika verkefnisins.
Skagastrandarlistinn óskar eftir umboði frá ykkur kjósendum til þess að vinna áfram að þessu framfaramáli.
Halldór Gunnar Ólafsson
27.05.2014
Dagskrá sjómannadagsins á Skagaströnd laugardaginn
31. maí 2014
10:30 Skrúðganga frá höfninni að Hólaneskirkju
Fjölmennum á skrúðgönguna til að viðhalda
þessari skemmtilegu hefð.
11:00 Sjómannamessa í Hólaneskirkju
Kór sjómanna syngur við athöfnina.
Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerki drukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra.
13:15 Skemmtisigling
Foreldrar hvattir til þess að fjölmenna með börn sín.
14:00 Skemmtun á Hafnarhúsplani
Skemmtun hefst á fallbyssuskoti. Kappróður og leikir á plani. Ljósmyndasýning á austurvegg Hafnarhússins.
Vigdís Viggósdóttir með 12 mynda seríu sen nefnist Samruni
Mótorhjólasýning. Glæsilegir mótorfákar í eigu heimamanna.
Sjoppa á staðnum, gos,pylsur, ís og sælgæti.
15:30 Kaffisala í Fellsborg
Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi.
Hestamannafélagið Snarfari býður börnum upp á að fara á hestbak.
23:00 Stórdansleikur í Fellsborg
Hljómsveitin Skandall sér um að allir skemmti sér í trylltum dansi.
Allir að mæta og skemmta sér nú duglega.
Góða Skemmtun
23.05.2014
Fermingarmessa í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 24. maí, kl. 13:30. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari ásamt Kristínu Árnadóttur, djákna. Kór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista og kórstjóra. Meðhjálpari Guðbjörg Ólafsdóttir.
Fermd verða:
Georg Þór Kristjánsson,
Harpa Hlín Ólafsdóttir
Jóhannes Hólmar Sigurpálsson
Jóna Margrét Sigurðardóttir
Lilja Dögg Hjaltadóttir
Sigurður Aron Björnsson
Valgerður Guðný Ingvarsdóttir
Victoría Sif Hólmgeirsdóttir
Viktor Már Einarsson
--
Bestu kveðjur
Bryndís Valbjarnardóttir, prestur
22.05.2014
Árbakkasteinn
Árbakkasteinn er í raun tvö sker sem standa fram af Hrafnánni.
Næst okkur á myndinni er grjótgarður, sem byggður var á
fimmta átratugnum, sem upphaf á hafnargerð, sem hugsuð var
með varnargarði út í Árbakkastein og síðan þaðan til norðurs að
Brúnkollu, sem er blindsker sunnan við enda Útgarðs.
Ef þessar hugmyndir hefðu orðið að veruleika væri
Skagastrandarhöfn að öllum líkindum lífhöfn í hvaða
veðrum sem væri.
Þá lá líka fyrir skipulag að Skagaströnd sem 5000 manna
byggð sem byggja skyldi á stóriðju - síldarverksmiðjunni - og
margfeldiáhrifum hennar.
Því miður gleymdist að ræða við síldina til að tryggja hennar þátt
í málinu þannig að draumarnir um svo fjölmenna
og blómlega byggð runnu út í sandinn.
22.05.2014
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir sumarstörf námsmanna í samstarfi við Vinnumálastofnun. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli.
Frekari upplýsingar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Sveitarstjóri