29.01.2019
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 30. janúar 2019 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8:00.
Dagskrá:
Gjaldskrá sveitarfélagsins 2019
Samningur um endurskoðun
Aðalskipulag
Framkvæmdir 2019
Byggðasamlag um menningar- og atvinnumál
Fundargerð stjórnar 17.12.2018
Fjárhagsáætlun 2019
Ályktun um úrgangsmál
Frístundakort fyrir grunnskólanema
Efling fyrirtækja og frumkvöðla
Bréf
Umboðsmanns barna, dags. 17. janúar 2019
Umhverfisstofnunar, dags. 14. desember 2018
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags. 23. janúar 2019
Fundargerðir
Tómstunda- og menningamálanefndar 22.01.2018
Stjórnar SSNV, 08.01.19.
Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 14. 12. 2018.
Önnur mál
Trúnaðarmál
Sveitarstjóri
29.01.2019
Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Frístundakortin ná til starfsemi íþróttafélaga auk hverskonar skipulagðs félags- og tómstundastarfs sem stendur í sex vikur eða lengur og greitt er fyrir með þátttökugjaldi. Þar að auki gildir kortið fyrir aðra tómstundaiðkun, s.s. tónlistar- og listnám.
Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.
25.01.2019
Af óviðráðanlegum orsökum verðu rannsóknarstofan og myndgreining lokuð mánudaginn 4. febrúar og þriðjudaginn 5. febrúar. Opið verður miðvikudaginn 6. febrúar eins og venjulega og aukalega fimmtudaginn 7. febrúar.
Nánari upplýsingar í síma 4554100
Heilbrigðisstofnun Norðurlands/Blönduósi
25.01.2019
1st. OPIÐ HÚS 2019! sunnudagur 27 janúar kl 14.00 - 16.00
Before it gets dark, come by the Nes studios to start the year off with some creative inspiration!
Many works by our international artists are reflections of you, your environment and place here, in Skagaströnd and Iceland :)
25.01.2019
Í janúar 2019 eru 80 ár frá skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjú sveitarfélög sem gerð var um áramótin 1938-1939 og var upphaf Höfðahrepps sem í dag heitir Sveitarfélagið Skagaströnd.
Þéttbýlið á Skagaströnd er auðvitað töluvert eldra og má í því sambandi benda á að íbúar á Skagaströnd voru um 60 um aldamótin 1900 og þá voru 15 hús á staðnum. Verslunarstaðurinn Skagaströnd er enn eldri því elstu heimildir benda til þess að verslun hafi verið hafin hér fyrir setningu einokunarverslunar 1602 því Skagaströnd varð einmitt einn af þeim illa þokkuðu einokunarverslunarstöðum danskra kaupmanna í þau 185 ár sem hún stóð fram til 1787.
Vindhælishreppur hinn forni náði allt frá Skagatá og fram að Kirkjuskarði á Laxárdal. Það tók því að bera á því strax árið 1872, þegar farið var að skipa hreppsnefndir að það þótt langt að sækja fundi fyrir þá sem bjuggu næst endum hreppsins. Hugmyndir um að skipta gamla Vindhælishreppi ná þó enn lengra aftur og hægt að rekja heimildir um þær hugmyndir aftur til ársins 1806. Þá var aðallega talað um að skipta hreppnum í tvo hluta og nefna þá eftir kirkjusóknum Höskuldstaðahrepp og Hofshrepp.
Þorpið á Skagaströnd fór svo að vaxa, einkum á þriðja og fjórða áratug 20. aldar. Þá voru komnar vélar í bátana, búið að steypa fyrstu bryggjuna og raunverulegar hafnarframkvæmdir að hefjast þegar gerður var garður úr landi og út í Spákonufellsey, en vinna við það hófst 1935.
Þegar þarna var komið sögu voru góðbændur í sveitarfélaginu sem voru helstu útsvarsgreiðendur orðnir mjög áhyggjufullir vegna vaxandi íbúafjölda í þorpinu sem þeir sáu ekki fram á að gætu framfleytt sér. Þá var einnig skollin á heimskreppa og ágreiningur milli sveitar og þorps fóru vaxandi.
Í hreppsnefndarkosningum 1937 náðu þorpsbúar svo meirihluta í hreppsnefndinni og þá virðist flestum verða ljóst að nauðsynlegt væri að skipta hreppnum upp og eingöngu talað um þrjá hreppa.
Meðal þeirra mála sem tekist var á um milli hreppshlutanna var ómagaframfærsla og hve mikið land ætti að fylgja þorpinu. Eftir allnokkur fundahöld í öllum nýju hreppshlutunum og störf skiptanefndar fékkst niðurstaða í landsstærðina sem enn gildir og að ómagaframfærslan skyldi vera sameiginlega í sjö ár eftir skiptingu. Auðvitað voru mörg fleiri úrlausnarmál en þeim var öllum fundinn nýr farvegur. Nýju sveitafélögin áttu að heita Vindhælishreppur, Höfðahreppur og Skagahreppur.
Skipting hreppsins í þrjá hreppa var rædd á fundi hreppsnefndar á þorláksmessu 1938 og þá var ákveðið að aðskilnaður hreppanna tæki gildi 1. janúar 1939 kosning nýrra hreppsnefnda skyldi fara fram 15. janúar 1939.
Í þeirri ágætu bók Byggðin undir Borginni segir svo í niðurlagi umfjöllunar um hreppaskiptinguna:
„Ekki munu allir íbúar hreppsins hafa fagnað þessari niðurstöðu; um það vitnar til dæmis vísa Vilhjálms Benediktssonar frá Brandaskarði:
Ekki prísa ég ykkar mennt
sem að því verki stóðu
að sundur flísa og saga í þrennt
sveitina mína góðu.
Um áramót 1938-1939 gengu kauptúnsbúar til hvílu í Vindhælishreppi vitandi að þeir myndu vakna upp í nýju sveitarfélagi að morgni án þess að hreyfast úr stað. Er ekki að efa að með ýmsum hafa tilfinningar verið blendnar; hvernig myndi þessu fámenna og fátæka sveitarfélagi farnast? Framhjá því varð ekki litið að margir innbúar hins nýja Höfðahrepps lágu við sveit. En ýmis teikn voru á lofti um betri tíð. Skammt undan voru fengsæl fiskimið og silfur hafsins, síldin, óð á hverju sumri inn allan Húnaflóa.“
Nafni sveitarfélagsins var svo breytt úr „Höfðahreppur“ í „Sveitarfélagið Skagaströnd“ eftir atkvæðagreiðslu um nafnabreytinguna samhliða sveitarstjórnarkosningum 2006.
Skagaströnd í janúar 2019
Magnús B. Jónsson
25.01.2019
Þórdísarganga
5. júlí 2008 var farin Þórdísarganga á Spákonfellsborg á vegum
Spákonuhofsins á Skagaströnd.
Leiðsögumaður var Ólafur Bernódusson en milli 60 og 70 manns
á aldrinum 6 til 74 ára kom með í gönguna í blíðu veðri.
Að fjallgöngunni lokinni beið göngufólksins kaffiveisla í golfskálanum
á vegum kvennanna í Spákonuhofinu.
Á myndinni eru þeir Stefán Jósefsson til vinstri og Magnús B. Jónsson
til hægri að njóta veðurblíðunnar uppi á Borgarhausnum.
25.01.2019
Í janúar 2019 eru 80 ár frá skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjú sveitarfélög sem gerð var um áramótin 1938-1939 og var upphaf Höfðahrepps sem í dag heitir Sveitarfélagið Skagaströnd.
24.01.2019
Álagning fasteignagjalda 2019 er lokið. Álagningarreglur fasteignagjalda 2019 eru aðgengilegar á heimasíðunni undir „gjaldskrár“.
Greiðslur fasteignagjalda:
Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram.
Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí).
Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald
Vakin er athygli á að sorphirðugjald er lagt á íbúðir með fastri búsetu en einungis sorpeyðingargjald á sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg búseta. Það táknar að sorphirða fer ekki fram þar sem einungis er greitt sorpeyðingargjald. Sama gildir um þær eignir sem ekkert sorphirðu- eða sorpeyðingargjald er lagt á eins og t.d. ferðaþjónustueignir (C-flokkur). Þeir aðilar leysa sjálfir sorphirðu/sorpeyðingu fyrir sína starfsemi með samningum við þjónustuaðila eða öðrum hætti.
Álagningaseðlar:
Álagningarseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is undir reitnum „mínar síður“ Innskráning er með kennitölu viðkomandi og íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska.
Skagaströnd 24. janúar 2019
Sveitarstjóri
18.01.2019
Eygló snyrtistofa hefur aftur hafið starfsemi á Skagaströnd eftir nokkur hlé. Þar er boðið upp á alhliða snyrtingu sem hefur ekki verið í boði hér að undanförnu. Það er Eygló Amelía Valdimarsdóttir sem á og rekur snyrtistofuna en stofan er í húsnæði Vivu hársnyrtistofunnar. Ekki þarf að efast um að margir fagni þessari auknu þjónustu enda eru einkunnarorð snyrtistofunnar, Geislandi fegurð & vellíðan, lýsandi fyrir það sem fólk sækir á stofuna hjá Eygló. Opnunartími þessa nýja fyrirtækis er eftir samkomulagi en hægt er að hafa samband og panta tíma á facebooksíðunni: www.facebook.com/Eyglósnyrtistofa/ eða í síma 8684482.
18.01.2019
Sorg á Skagaströnd 1961
Um þessar mundir (2019) eru rúm 58 ár síðan óhugur og sorg ríkti
meðal fólks á Skagaströnd.
Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson,
sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri
á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8 22. nóvember 1961.
Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961:
"Óttast að tveir bræður hafi farizt.
Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag.
Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd
og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust
áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við
Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi
í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð.
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur
og sjálfur stundaði sjómennsku. Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi.
Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst.
Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma
sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist
frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi
og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór
og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun
en hafði einskis orðið var. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn,
en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi.
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn
í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður".
Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.