05.11.2018
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 14/11 2018. Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
02.11.2018
Kvennaskólinn á Ytri-Ey.
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) var rekinn í
þessu húsi.Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á
þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur
í nýbyggt hús á Blönduósi.
Á myndinni eru skólastúlkur ásamt kennurum og gestum einhverntíma á
þessu tímabili.
Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu
þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss.
Við þjóðveginn sunnan við Ytri-Ey er minnismerki um þennan merka skóla.
Fyrsta skólastýra skólans var sú merka kona Elín Briem sem var þá
nýútskrifuð úr húsmæðrakennaraskóla í Kaupmannahöfn. Hún kenndi og
stýrði skólanum frá stofnun til 1895 er hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún
stofnaði hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Elín kom svo aftur norður og tók
við stjórn kvennaskólans er hann flutti 1901 til Blönduóss í tvö ár og svo
enn á ný 1910 til 1915.
Elín fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorði árið 1921 og var þá önnur
af tveim fyrstu konunum sem þann heiður hafa hlotið.
Senda upplýsingar um myndina
26.10.2018
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir starf forstöðumanns íþróttahúss/sundlaugar laust til umsóknar.
Starfið er fólgið í umsjón með rekstri og starfsmannahaldi íþróttahúss og sundlaugar.
Leitað er eftir reglusömum starfsmanni sem er lipur í samskiptum, fær um sjálfstæð vinnubrögð og hefur hæfni til að starfa með börnum og unglingum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2018.
Nánari upplýsingar veitir Gígja í síma: 864 4908.
Sveitarstjóri
26.10.2018
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum 2. nóvember 2017 að rjúpnaveiði verði bönnuð innan skógræktargirðingarinnar í Spákonufelli frá og með hausti 2018.
Skorað er á rjúpnaskyttur að virða umrætt veiðibann.
Sveitarstjóri
26.10.2018
Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir að ráða bókara /launafulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf.
Starfssvið:
Færsla bókhalds
Afstemmingar
Launavinnsla
Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu
Hæfniskröfur:
Reynsla af vinnu við bókhald og launavinnslu
Góð tölvukunnátta / þekking á Navision bókhaldskerfi
Geta til að vinna sjálfstætt
Hæfni í mannlegum samskiptum
Nákvæm og hröð vinnubrögð
Leitað er eftir reglusömum starfsmanni sem er lipur í samskiptum, fær um sjálfstæð vinnubrögð með góða þekkingu á bókhaldi og launavinnslu. Það væri kostur en ekki skilyrði að viðkomandi hafi lokið námi sem viðurkenndur bókari.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is einnig er hægt að sækja um með því að senda tölvupóst á skagastrond@skagastrond.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2018.
Nánari upplýsingar veita Magnús eða Kristín í síma 455 2700.
Sveitarstjóri
26.10.2018
Hrefna Björnsdóttir verður jarðsungin frá Hólaneskirkju laugardaginn
27. október klukkan 14:00
Hrefna var hæglát og dul sómakona sem hafði yndi af blómum en þeim
sinnti hún af natni og yfirvegun. Henni fannst gott að njóta sólarinnar og
margir muna hana sitjandi á svölunum að sóla sig á góðum dögum.
Hrefna var nægjusöm hvunndagshetja sem helgaði heimilinu krafta sína af
væntumþykju og hagsýni meðan hún gat.
Nú þegar Hrefna hverfur inn í ljósið er hugur okkar hjá aðstandendum
hennar sem kveðja traustan bakhjarl úr lífi sínu.
25.10.2018
NES OPIÐ HÚS !
Allir velkomnir
Swing by the Nes studio tomorrow, for some large scale colourful art works, as well as poetry and video ideas from new and returning Nes artists!
THURSDAY 25th // 16.00 - 18.00
We would love to see you!
22.10.2018
Almennur kynningarfundur
á loftinu í Gamla Kaupfélaginu
miðvikudaginn 24. október nk. kl 17.00
Boðið er til kynningarfundar með Guðjóni Bjarnasyni arkitekt og listamanni sem mun fjalla um nýtingu húsanna Fjörubrautar 6-8 og ýmsar aðrar hugmyndir sem hann hefur um skipulag og nýtingu húsa og byggðar á Skagaströnd.
Guðjón dvaldi í sumar á Skagaströnd á vegum Nes listamiðstöðvar og Salthússins og tók þá til skoðunar hvernig mætti nýta umrædd rými. Fundurinn er öllum opinn.
Sveitarstjóri
22.10.2018
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 25. október 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00.
Dagskrá:
Forsendur fjárhagsáætlunar 2019
Lögreglusamþykkt í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra
Ársreikningur Snorrabergs ehf 2017
Greinargerð um gamla húsið á Litla Felli
Málefni fatlaðra
Slit Róta bs
Rekstraryfirlit jan – ágúst 2018 ásamt skýringum
Starfsmannahald
Bréf
Persónuverndar, dags. 10. október 2018
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, dags. 2. október 2018
Slysavarnafélagsins Landsbjargar, dags. 10. október 2018
Fundargerðir
Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 29.08.2018
Ársreikningur Tónlistarskólans 2017
Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál, 31.08.2018
Stjórnar Norðurár bs, 4.07.2018
Aðalfundar Norðurár bs. 10.09.2018
Ársreikningur Norðurár bs 2017
Stjórnar SSNV, 2.10.2018
Stjórnar HNV, 9.10.2018
Skólanefndar FNV, 9.10.2018
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 10.10.2018
Önnur mál
Sveitarstjóri