15.04.2011
Þróunarsjóður framhaldsfræðslu auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhalds- fræðslu nr. 27/2010.
Forgangssvið við úthlutun árið 2011 eru:
Námsefnisgerð í framhaldsfræðslu
Nýsköpunarverkefni í framhaldsfræðslu
Undirbúningur/grunnvinna fyrir rannsóknir
Viðmiðin sem Þróunarsjóðurinn gengur út frá við val á verkefnum eru að þau:
Nái til þeirra sem falla undir ramma laganna um framhaldsfræðslu
Mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar. Kostur er að verkefni sé samstarfsverkefni. Verkefni sem styrkt eru mega ná yfir tvö ár frá úthlutun.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað má nálgast á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is sem jafnframt er umsjónaraðili verkefna sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2011
Umsækjendum er bent á að kynna sér lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og úthlutunarreglur sjóðsins sem má nálgast á www.frae.is.
15.04.2011
Síðasta þriðjudag var hin árlega íþróttakeppni milli grunnskólanna í Húnavatnsþingi haldin hér á Skagaströnd. Að þessu sinni var keppt fótbolta, skotbolta, boðhlaupi, reiptogi og klifri í klifurveggnum. Keppnin var mjög spennandi en að lokum fór svo að Höfðaskóli bar sigur úr býtum.
Að lokinni íþróttakeppni var nemendum boðið upp á pizzur í Kántrýbæ og síðan var dansað fram eftir kvöldi í Fellsborg undir stjórn Dj. Söndru.
Þessi dagur var hinn skemmtilegasti og gaman að fylgjast með þessum 190 nemendum skemmta sér saman í keppni og leik.
14.04.2011
Virki þekkingarsetur býður til málþings á Gauksmýri, 28. Apríl 2011 kl. 13-17. Dagskrá þingsins verður sem hér segir:
13:00 - 13:10 Setning Sigurbjörg Jóhannesdóttir, formaður Byggðarráðs Húnaþings vestra
13:10 - 13:40 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólinn á Hólum: Ferðaþjónusta sem bragð er að - straumar og stefnur í matarferðaþjónustu
13:40 - 14:10 Dominique Plédel. Jónsson, Slow Food: góður, hreinn og sanngjarn matur
14:10 - 14:40 Matís Guðmundur J. Guðmundsson, Beint frá Býli: Staða og framtíð í sölu Beint frá býli
14:40 - 15:10 Þóra Valsdóttir, Matís: Vöruþróun og smáframleiðsla matvæla
Kaffihlé í 20 mínútur
15:30 - 15:45 Svanhildur Pálsdóttir, Hótel Varmahlíð: Skagfirska Matarkistan og ég.
15:45 - 16:00 Stella J. A. Leví og Sæunn V. Sigvaldadóttir, Sæluostur úr sveitinni 16:00 - 16:15 Gudrun Kloes og Kristín Jóhannesdóttir, Fjöruhlaðborð og Sviðamessa
16:15 - 16:30 Svava Lilja Magnúsdóttir, Brauð og Kökugerðin: Smábakarí á landsbyggðinni
16:30 - 16:45 Guðmundur Helgason, Matarvirki og Kjöthornið:
Matvælavinnsla - þekking í héraði
16:45- 17:00 Pálína Fanney Skúladóttir, Spes Sveitamarkaður
Grillhlaðborð
Eftir málþingið ætlar Sveitasetrið Gauksmýri að taka forskot á sæluna og bjóða upp á grillhlaðborð eins og það hefur verið með undanfarin sumur við miklar vinsældir.
Óskað er eftir því að fólk panti á hlaðborðið í síðasta lagi 19. apríl í síma 451 2927, eða hjá Virki þekkingarsetri í síma 455 2525. Hlaðborðið hefst kl. 18:00.
Verð á mann kr. 4000,-
13.04.2011
Vinnumálastofnun á Skagaströnd leitar eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Umsækjendur þurfa að hafa góða leikni í mannlegum samskiptum, lipurð í tölvunotkun og áhuga á að skila góðu starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum SFR. Framhalds- eða háskólamenntun er kostur sem og reynsla af skrifstofustörfum.
Helstu verkefni Greiðslustofu Vinnumálastofnunar eru afgreiðsla umsókna um atvinnuleysisbætur og upplýsingagjöf.
Hlutverk Greiðslustofu er að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið. Á skrifstofunni á Skagaströnd starfa um 25 manna liðsheild.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og eða kynna sér starfsemi Vinnumálastofnunar á www.vinnumalastofnun.is
Líney Árnadóttir forstöðumaður veitir upplýsingar í síma 860 2053 og tekur við umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið liney.arnadottir@vmst.is.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl.
12.04.2011
Vegna bilunar í raflínu að vatnsveitu á Hrafndal má búast við að vatnslaust verði þegar kemur fram á daginn. Viðgerð er hafin en skorað er á fólk að spara vatn þar viðgerð er lokið.
Sveitarstjóri
11.04.2011
Ferðamálastofa boðar til málþings fimmtudaginn 14. apríl næstkomandi á Grandhóteli í Reykjavík um uppbyggingu og skipulag ferðamannastaða. Meðal fyrirlesara verður Audun Pettersen frá Innovasjon Norge og einnig hópur innlendra fyrirlesara með þekkingu á málaflokknum.
Málþingið hefst kl. 08:30 og því lýkur kl. 11:30. Síðasta klukkutímann mun Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá Netspori stjórna umræðuhópum (Heimskaffi).
Dagskrá málþingsins má sjá á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is og skráning fer í gegnum netfangið: skraning@ferdamalastofa.is fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 13. apríl næstkomandi.
08.04.2011
Niðurstöður liggja fyrir í undankeppni stærðfræðikeppni FNV og 9. bekkjar, en þessi keppni er samvinnuverkefni FNV og grunnskólanna á Norðurlandi vestra og í Fjallabyggð.
Keppnin er styrkt af sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sem leggja til verðlaun sem afhent verða eftir úrslitakeppnina þann 29. apríl.
Alls komast 15 keppendur í úrslitakeppnina af þeim 131 sem tóku þátt.
Megin tilgangur keppninnar er að auka áhuga grunnskólanema á stærðfræði og er hún fremur hugsuð sem leikur en keppni.
Aðstandendur keppninnar þakka öllum 9. bekkingum fyrir þátttökuna og óska þeim sem komust í úrslit til hamingju, en listann yfir þá er að finna hér á eftir.
Birna Ólíva Agnarsdóttir, Húnaþing vestra
Eva Margrét, Árskóli
Guðrún Anna Halldórsdóttir, Höfðaskóli
Haukur Marian Suska, Húnavallaskóli
Hákon Ari Grímsson, Húnavallaskóli
Heba Líf Jónsdóttir, Höfðaskóli
Ingi Sveinn, Árskóli
Ívar Árni Róbertsson, Höfðaskóli
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Höfðaskóli
Sigurbjörg Birta Berndsen, Höfðaskóli
Sigurveig Anna, Árskóli
Snæbjörg Lilja, Árskóli
Sævar Freyr Freysteinsson , Varmahlíð
Sævar Óli Valdimarsson, Varmahlíð
Vigdís Sveinsdóttir, Árskóli
Fjöldi keppenda eftir skólum:
Árskóli: 27
Blönduskóli: 8
Grunnskóli Húnaþings vestra: 17
Grunnskólinn austan vatna: 10
Grunnskólinn í Fjallabyggð: 40
Húnavallaskóli: 8
Höfðaskóli: 7
Varmahlíðarskóli: 4
Alls: 131
Fréttin er fengin frá Fjölbrautarskóla Norðurlands, www.fnv.is.
07.04.2011
Núna ætla góðir grannar að koma yfir fjallið og skemmta með fjölbreyttri og líflegri söngskrá. Auðvitað er hér átt við Karlakórinn Heimir í Skagafirði sem Skagstrendingar hafa beðið eftir í allan vetur.
Kórinn ætlar nú að að halda tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd fimmtudaginn 14. apríl kl. 20:30.
Kórinn hefur hlotið mikið lof fyrir dagskrá vetrarins og mega áheyrendur því eiga von á prýðilegri skemmtun.
Miðar verða seldir við innganginn.
Karlakórinn Heimir var stofnaður í lok desember árið 1927. Stofnendur hans komu flestir úr litlum kór og var hann nefndur Bændakó og starfaði í 11 ár.
Fyrstu árin störfuðu kórfélagar við mjög frumstæðar aðstæður. Það var æft heima á sveitabæjum þar sem orgel voru til staðar enda var nú ekki mikið um samkomuhús á þessum tímum. En félagsskapurinn stækkaði og áhuginn var mikill.
Til æfinga fóru menn aðallega gangandi eða ríðandi en stundum fóru þeir einnig á skíðum. Voru þessar ferðir oft hættulegar og var það augljóst að margir lögðu mikið á sig til að geta verið með í söngnum.
Fyrsti söngstjóri kórsins var Gísli Magnússon frá Eyhildarholti, á eftir honum var tónskáldið Pétur Sigurðsson og síðan Jón Björnsson, einnig tónskáld, frá Hafssteinsstöðum. Hann stjórnaði Heimi í nærri því 40 ár.
Margir aðrir söngstjórar hafa stjórnað kórnum í gegnum tíðina og þeirra er og margvígslegs fróðleik er getið í samantekt Konráðs Gíslasonar: „Söngur í 60 ár“.
Stefán R. Gíslason hefur stjórnað kórnum nær óslitið frá árinu 1985 en hefur nú tekið árshlé frá störfum. 2010-2011 er Helga Rós Indriðadóttir nú stjórnandi kórsins. Undirleikari er dr. Thomas R Higgerson á píanó.
07.04.2011
Aðalfundur Krabbameinsfélags Austur - Húnavatnssýslu verður haldinn
miðvikudaginn 13. apríl kl. 18:00 í Bjarmanesi á Skagaströnd.
Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og svo hressandi erindi
Hönnu Jörgensen heilsunuddara. Hún mun fjalla um stafagöngu og ætlar að taka létta æfingu á stafina með hópnum. Komið endilega með stafi ef þið eigið.
Starfsemin Krabbameinsfélagsins beinist að forvörnum, fræðslu og stuðningi við þá sem greinast með krabbamein, fjölskyldur og vini þeirra. Styrkur þess felst hins vegar í fjölda félagsmanna og velvilja héraðsbúa við að taka þátt í fjáröflunarstarfssemi á vegum félagsins og styðja þannig við samborgara sína.
Mætið endilega til að kynnast stafagöngunni og sýnið stuðning við gott málefni í leiðinni. Boðið verður upp á súpu á fundinum.
Minnt er á minningarkort Krabbameinsfélagsins.
Allir eru velkomnir á aðalfundinn.
06.04.2011
Á laugardaginn ganga landsmenn til þjóðaratkvæðagreiðslu um staðfestingu eða synjun á svokölluðum Icesave lögum.
Á kjörseðli er spurt hvort lögin eigi að halda gildi eða falla úr gildi. Meirihluti gildra atkvæða af landinu öllu ræður úrslitum og vægi atkvæða er jafnt. Ef meirihluti svarar neitandi falla lögin úr gildi að öðrum kosti standa þau óbreytt.
Á Skagaströnd verður kjörfundur í Fellsborg. Hann hefst klukkan 10 og lýkur klukkan 21. Kosning utan kjörfundar er eftir samkomulagi við Lárus Ægir Guðmundsson, hreppstjóra „ad hoc“, fram á föstudagskvöld.
Skagstrendingar eru hvattir til að nýta sér kosningarétt sinn og taka afstöðu í þessu mikilvæga máli.
Í hnotskurn
Greidd verða atkvæði um gildi laga nr. 13/2011 sem Alþingi samþykkti 16. febrúar 2011 en forseti Íslands synjaði staðfestingar þann 20. sama mánaðar.
Lögin veita fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, heimild til að staðfesta samninga sem áritaðir voru í London 8. desember 2010, svonefnda Icesave-samninga.
Samningarnir fjalla um ábyrgð íslenska ríkisins á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til breska og hollenska ríkisins.
Endurgreiðslan er vegna kostnaðar ríkjanna tveggja af greiðslu innstæðutryggingar til viðskiptavina í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi. Ábyrgð íslenska ríkisins er vegna greiðslu eftirstöðva endurgreiðslufjárhæðarinnar, verði um eftirstöðvar að ræða, og vaxta af þeim skuldbindingum.
Markmið atkvæðagreiðslunnar er að fá fram afstöðu þjóðarinnar til umræddra laga eins og stjórnarskráin mælir fyrir um.
Já
Upplýsingar um afstöðu þeirra sem samþykkir eru Icesave lögunum er m.a. að finna á þessari vefsíðu http://www2.afram.is.
Nei
Upplýsingar um afstöðu þeirra sem ósammála eru Icesave lögunum er m.a. að finna á þessari vefsíðu http://www.advice.is.