Nýir Skagstrendingar komnir til listsköpunar

Nýr mánuður á Skagströnd færir til bæjarins nýja listamenn. Hjá Nesi listamiðstöð eru nú komnir ágætir listamenn til dvalar í júlí. Þeir eru: Maja Lucas, rithöfundur frá Danmörku Per Johansen, frá Danmörku Peter Möller, myndlistamaður frá Þýskalandi Jared Betts, málari frá Kanada Julia Sossinska, málari frá Þýskalandi Johannes Mahle, frá Þýskalandi Sharon Beth Dowell, málari frá Bandaríkjunum Unnur Knudsen, textíllistaðamaður Catelin Mathers-Suter, málari frá Bandaríkjunum Tekið er fagnandi á móti þessum nýju Skagstrendingum og þær óskir fylgja að þeim muni gagnast dvölin vel, en njóti hennar framar öllu.

Vefmyndavélar settar upp á Skagaströnd

Settar hafa verið upp tvær vefmyndavélar á höfninni á Skagaströnd. Hægt er að komast inn á myndavélarnar á vinstra megin á forsíðu skagastrond.is. Önnur myndavélin sýnir vestan hluta hafnarinnar, þ.e. viðlegu- og löndunarkantana Miðgarð og Ásgarð.  Frá hinni myndavélinni er útsýni yfir svokallaðan Skúffugarð, þ.e. austurhluta hafnarinnar. Í baksýn er svo hluti bæjarins og Árbakkafjall. Hægt er að opna vefmyndavélarnar í flestum vöfrum. Í fyrsta sinn sem farið er inn á þær þarf að samþykkja uppsetningu á ActiveX hugbúnaði sem er nauðsynlegur svo tölvan geti átt samskipti við myndavélarnar. Þetta þarf þó ekki að gera nema þegar farið er í fyrsta skipti inn á viðkomandi vefmyndavél. Aðgangsstýring er að vélunum, notendanafnið, user, er orðið „gestur“. Lykilorðið, password, er líka „gestur“ Með því að haka í auðan reit mun tölvan framvegis mun þessa skráningu og ekki er því þörf á að endurtaka hana.      Án efa munu sjómenn og útgerðarmenn nota vefmyndavélarnar mikið. gera má þó ráð fyrir að ferðamenn vilji geta farið inn á vefmyndavélarnar, þó ekki sé til annars en að láta sannfærast um að á Skagaströnd er alltaf sól og örlítill andvari. Þetta má nákvæmlega sjá á meðfylgjandi mynd úr vefmyndavélinni, en hún er frá því 2. júlí 2010, kl. 13:40.

Hjaltalín í Bjarmanesi 7. júlí

Hjaltalín tónleikar verða í kaffihúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd miðvikudaginn 7. júlí kl. 20. Lára Rúnarsdóttir hitar upp.

Skagstrendingar í verðlaunasætum

Um síðustu helgi var haldið á Varmárvelli í Mosfellsbæ hið árlega frjálsiþróttamót Gogga Galvaska. Mót þetta er eitt fjölmennasta frjálsíþróttamót landsins, fyrir 14 ára og yngri og var það nú haldið í 21. sinn.  Til leiks mættu m.a. 11 frískir og kraftmiklir krakkar frá Skagaströnd. Þrír  af þeim urðu á meðal þeirra efstu.  Auðunn Árni Þrastarson varð í 2.sæti í 600 m. hlaupi í flokki 9-10 ára,  Valgerður Guðný Ingvarsdóttir varð í 2.sæti í boltakast og í 3.sæti í langstökkki í flokki  9-10 ára.  Róbert Björn Ingvarsson varð í 3.sæti í 800 m.hlaupi í flokki 13-14 ára. Auk íþróttakeppninnar var margt í boði, þar á meðal skrúðganga, gróðursetning og sundlaugarpartí.  Goggi galvaski, hefur haft það að leiðarljósi frá upphafi að gestir skemmti sér vel í leik og keppni og það brást ekki í ár. Meðfylgjandi myndir eru af keppendunum frá Skagaströnd.

Íbúar fagna, Suðurvegurinn malbikaður

Íbúar við Suðurveg eru afar kátir þessa dagana enda er vaskur malbikunarflokkur að störfum í götunni. Ryk, sandur og möl heyrir nú til tíðinda á öllu svæðinu sem oft er nefnd Mýrin. Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag við „teppalagninguna“ og má sjá hversu gríðarleg viðbrigðin eru. Svart malbikið leggst slétt og fellt um götuna, hvergi sést nokkur arða. Íbúarnir halda sig innan dyra þangað til verkinu er lokið. Má ekki búast við að haldið verði upp á umskiptin með hressilegu götupartíi?

Skilafrestur í ljósmyndakeppninni er í dag

Þegar runninn er upp síðasti dagur ljósmyndasamkeppni Skagastrandar hafa borist nákvæmlega 154 ljósmyndir.  Eftir að lauslega skoðun á innsendum myndum má segja að flestar sýni Skagaströnd í nýju ljósi eins og áskilið er í keppnisreglum. Allar eru þær mjög áhugverðar og sumar jafnvle einstaklega skemmtilega teknar. Dómnefndin mun áreiðanlega eiga í miklu erfiðleikum með að velja myndir sem sýndar verða á Hnappstaðatúni í sumar. Í raun er það ekki fjöldi myndanna sem vekur athygli heldur hversu breiður sá hópur er sem sendir inn myndir. Borist hafa myndir frá konum og körlum, ungm sem öldnum og jafnvel börnum, sumir eru vanir ljósmyndarar aðrir eru skemmra ég veg komnir með myndavélina sína.  Margir hafa tekið myndir sérsaklega fyrir keppnina, stillt upp fyrirsætum og smellt af einstaklega fallegum myndum. Aðrir hafa látið stundina ráða, tekið myndir sínar þegar augnablikið kallaði og þær myndir eru ekki síðri. Minnt er á að skilafrestur í keppnina rennur út núna á miðnætti, fimmtudaginn 1. júlí. Senda skal inn myndir á netfangið radgjafi@skagastrond.is eða skila á skrifstofu sveitarfélagsins Skagastrandar á minnislykli eða tölvudiski. Meðfylgjandi mynd er ekki í ljósmyndasamkeppninni.

Gæsluvöllur fyrir 2. til 6 ára opinn í júlí

Gæsluvöllur verður starfræktur á leikvelli Barnabóls 5. til 30. júlí 2010.Hann verður opinn virka daga kl 13 - 16.  Börn á aldrinum tveggja til sex ára geta sótt völlinn gegn 300 kr greiðslu fyrir hvert skipti.  Í leikskólanum verður opin salernisaðstaða fyrir börnin en að öðru leyti verður fyrst og fremst um gæslu utandyra að ræða.  Æskilegt er að börnin taki með sér nesti og sérstaklega bent á að öll leikföng sem þau kunna að taka með sér eru á eigin ábyrgð. Þrátt fyrir áætlaðan opnunartíma er allur réttur áskilinn til að fella þetta tilboð niður verði aðsókn að gæsluvellinum lítil eða engin. Sveitarstjóri

Golfkennsla á sunnudaginn

Golfklúbbur Skagastrandar býður upp á golfkennslu sunnudaginn 4. júlí. Kennari er  Heiðar Davíð Bragason, fyrrverandi Íslandsmeistari og atvinnumaður í golfi. Kennslan verður samkvæmt eftirfarandi tímatöflu: Kl. 12.00-13.30 - 8-10 ára, ókeypis Kl. 14.00-15.30 - 11-13 ára, ókeypis Kl. 16.00-17.30 - 14-16 ára, ókeypis Frá kl. 18 eru í boði 30 mínútna einkatíma fyrir 17 ára og eldri. Verðið er 2.500 kr. Skráning í alla aldursflokka í síma 892 5089 (Adolf) og 861 5089 (Dagný)  í síðasta lagi á föstudagskvöld.

Framtíðin skemmtir sér

Framtíðin gekk undir leiðsögn um götur Skagstrandar, söng og skemmti sér eins og hennar er vandi. Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessum fríða og skemmtilega hóp er hann staldraði eitt augnablik við á Túnbraut 1-3. Þetta voru auðvitað börnin í Leikskólanum Barnabóli ásamt fóstrum sínum. Þau höfðu málað sig og klæðst furðubúningum enda dagurinn bjartur og fallegur rétt eins og allir aðrir dagar á Skagaströnd.

Síðasti skiladagur ljósmynda er á morgun

Nú þegar hafa nákvæmlega 99 myndir borist í ljósmyndasamkeppni Sveitarfélagsins Skagastrandar en leitað er eftir myndum sem birtar verða í stóru formati á Hnappstaðatúni í miðbænum. Allt eru þetta myndir sem uppfylla skilyrðið sem gefið var í upphafi og fjallar um að sýna „Skagaströnd í nýju ljósi“. Margar myndanna sem borist hafa eru afar skemmtilega teknar. Fjölmargir hafa lagt sig í líma við að finna áhugaverða hliðar á bænum og umnverfi hans. til eru þeir sem hafa beinlínis lagt land undir fót, tekið myndir sérstaklega fyrir samkeppnina. Aðrir hafa leitað í myndasöfnum sínum og valið skárstu myndirnar.  Mörgum er Spákonufellið hugstætt, aðrir líta á veðrabrigðin og svo hafa borist myndir af sólarlagi við Húnaflóa. Ekki eru allir þátttakendur búsettir á Skagaströnd. Fréttir af samkeppninni hafa flogið víða. Síðast í morgun bárust til dæmis myndir frá Íslendingi búsettum í Danmörku. Minnt er á að skilafrestur mynda er fyrir miðnætti miðvikudaginn 1. júlí. Senda ber myndirnar á netfangið radgjafi@skagastrond.is. Einnig má koma með myndir brenndar á disk eða á minnislykli og skila á skrifstofu sveitarfélagsins.