Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 23. júní 2010 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.   Dagskrá: 1.        Kjör oddvita og varaoddvita 2.        Kosning í nefndir og ráð: a)      Fræðslunefnd b)     Skipulags- og byggingarnefnd c)      Tómstunda- og menningarmálanefnd d)     Hafnarnefnd e)      Kjörstjórn f)       Skoðunarmenn reikninga g)      Ársþing SSNV h)     Fulltrúi á landsþing i)       Í fulltrúaráð BÍ j)       Stjórn byggðasamlags um Félags- og skólaþjónustu A-Hún k)     Stjórn byggðasamlags um Tónlistarskóla A-Hún l)       Stjórn byggðasamlags um menningar og atvinnumál   3.        Lóðasamningur um Fellsmela 1 4.        Ársreikningur Ámundakinnar 5.        Bréf: a)      Sveitarfélagsins Skagafjarðar, dags. 2. júní 2010 b)     Vina Kvennaskólans, dags. 10. júní 2010 c)      Byggðasamlags um menningu og atvinnumál, dags. 14. júní 2010 d)     Stjórnar Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna, dags. 17. maí 2010   6.        Fundargerðir: a)         Tómstunda- og menningarmálanefndar 15. júní 2010 b)        Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 8. júní 2010 c)         Stjórnar Norðurár bs. 14. apríl 2010 d)        Stjórnar Norðurár bs. 6. maí 2010 e)         Stjórnar Norðurár bs. 18. maí 2010 f)          Stjórnar Norðurár bs. 10. júní 2010 g)         Heilbrigðisnefndar Nl.vestra, 11. júní 2010   7.        Opnun ljósmyndavefs Skagastrandar   8.        Önnur mál                                                 Sveitarstjóri

Malbikun - bílastæði

  Í lok júnímánaðar verður malbikunarflokkur að störfum á Skagaströnd þar sem lagt verður bundið slitlag á nokkrar götur.   Á þeim tíma verður mögulegt að fá malbik til að leggja á bílastæði við heimahús. Til að fá það gert verða húseigendur að ganga frá jarðvegsskiptum og jöfnuðu yfirborði.   Þar sem almennt er ekki hægt að koma útlagningavélum að í þröngum bílastæðum er kostnaður við malbikun þeirra nokkuð meiri en á götur og fer fermetraverð eftir stærð plansins. Reikna má með að verð á hvern fermetra sé á bilinu 5-7.000 kr.   Þeim sem hafa áhuga á að fá malbikað bílastæði er bent á að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins.     Skagaströnd 16. júní 2010     Sveitarstjóri  

Áratugum eftir fermingu hittast þau á ný

Hér áður fyrr markaði fermingin stórt spor í þroska flestra einstaklinga og ef til vill er það svo enn. Og eftir því sem fólk verður eldra er sífellt áhugaverðara að kynnast á ný því fólki sem átti samleið í skóla og fermdist saman.      Fyrir skömmu hittust þau sem fæddust árið 1961 og fermdust í Hólaneskirkju á Skagaströnd fyrir 35 árum. Á efri myndinni, í neðri röð frá vinstri: Ástmar Kári Ásmarsson, Guðrún B. Berndsen, Þórey Jónsdóttir, Páll Jónsson og Ásdís Þórbjarnardóttir. Í efri röð frá vinstri eru: Hafþór Smári Gylfason, Magnús Bergmann Guðmarsson, Jósef H. Sigurðsson, G. Valdimar Valdimarsson, Hjálmfríður Bjarnadóttir og Lilja Kristinsdóttir. Á myndina vantar Egil Bjarka Gunnarsson og Þórdísi Elvu Guðmundsdóttur. Á neðri myndinni eru 50 ára fermingarsystkini. Saman fermdust 9 börn og hittust sex þeirra á Skagaströnd á sjómannadaginn. Við messu í Hólaneskirkju þann dag afhenti hópurinn minningargjöf um Stefán H. Ingólfsson sem var eitt fermingarbarnanna. Gjöfin er ræðustandur unnin af Erlendi Magnússyni listamanni sem nú býr á Blönduósi.  Á myndinni eru frá vinstri eru fermingrbörnin: Dagný Hannesdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.

Spákonuarfur tekur yfir Tunnuna

Menningarfélagið Spákonuarfur hefur fengið afhentan gamla samkomuhúsbraggan fyrir starfsemi sína. Bragginn sem í daglegu tali hefur verið kallaður Tunnan hefur um árabil hýst áhaldahús bæjarins. Ætlunin er að félagið flytji starfsemi sína þangað og þar verði Þórdísarstofa, spástofa og söluaðstaða. Bragginn eða Tunnan er eins og nafnið og útlitið bendir til herbraggi byggður með hefðbundnu sniði slíkra bragga. Hann er 22,1 m x 6,4 m eða 141,4 fm byggður á steyptri undirstöðu upphaflega með trégólfi og litlu leiksviði í öðrum enda en anddyri og klefa fyrir kvikmyndasýningarvélar í hinum endanum. Í áratugi var húsið miðstöð félagslífs á Skagaströnd. Þar voru lengi kvikmyndasýningar, haldnir voru margvíslegir fundir og samkomur og þar fóru fram skemmtanir eins og þorrablót, afmælisveislur og svo framvegis. Að utan hefur Bragginn nú verið gerður upp í upprunalegri mynd enda eins og áður sagði ætlunin að endurvekja menningarhlutverk hans. Hann stendur á þeim reit sem sveitarfélagið hefur markað undir menningar- og safnastarfsemi. Á síðasta ári voru þak og veggir einangraðir og ytra byrði hússins endurnýjað að undarskildum vesturstandi, en þar er inngangurinn í húsið. Samkomulag er um það milli sveitarfélagsins og Spákonuarfs að leitast verði við að virða í grundvallaratriðum form og útlit innanhússklæðninga í húsinu að svo mikluu leyti sem það er gerlegt vegna fyrirhugaðrar stafsemi. Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, afhenti Menningarfélaginu Spákonuarfi húsið föstudaginn 22. júní og fyrir hönd félagsins tóku við því þau Sigrún Lárusdóttir, Dagný M. Sigmarsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.

Norðurá bs. hefur samið um gerð urðunarhólfs

Norðurá bs. hefur gert samning við verktakafyrirtækið Héraðsverk ehf, Egilsstöðum um gerð urðunarhólfs við Sölvabakka á Refasveit. Samningurinn er gerður á forsendum tilboðs í verkið og er samningsupphæð 198,6 milljónir króna. Verkið er fólgið í tilflutningi 390 þús. m3 efnis úr urðunarhólfi, gerðar hriplags og lagningu þéttidúks í hliðar hólfsins og byggingu hreinsimannvirkis. Einnig eru í verkinu girðingar, lagning aðkomuvegar og gerð þjónustuplans við urðunarstaðinn. Verkáætlun gerir ráð fyrir að flutningi efnis ljúki í seinni hluta september og gerð söfnunar- og hreinsikerfis fyrir sigvatns verði lokið í seinnihluta október. Verklok eru 1. nóvember 2010. Með opnun urðunarstaðar að Sölvabakka verður urðunarstöðunum að Neðri Harrastöðum á Skagaströnd, Draugagili við Blönduós og Skarðsmóum við Sauðárkrók lokað. Samningur við Flokkun Eyjafjörður um urðun alls óflokkaðs sorps á Eyjafjarðarsvæðinu að Sölvabakka tekur gildi 1. janúar 2011. Urðunarstaðnum á Glerárdal verður því jafnframt lokað á næsta ári. Stjórn Norðurár bs.

Vel heppnaður sjómannadagur á Skagaströnd

Sjómannadagurinn var að venju haldinn hátíðlegur síðasta laugardag. Komu þá flestir bæjarbúar saman og skemmtu sér í blíðskaparveðri. Góða veðrið er raunar fastur liður á dagskrá hátíðarhaldara sem er Björgunarsveitin Strönd. Farið var í hefðbundnar þjóðlegar íþróttir, meðal annars í sjóboðssund. Í því voru keppendur fullklæddir, komu samt kuldalegir upp úr sjónum enda ekkert samræmi í hita í lofti og legi. Svo skemmtu kraftalegir menn hinum með því að togast á um reipi. Efnt var til nýstárlegs hindrunarhlaups eftir brettum sem flutu í sjónum. Vakti mesta kátínu þegar keppendur duttu í sjóinn eftir að hafa reynt sig við hindranirnar. Tveir sjómenn voru heiðraðir og þeir eru Lýður Hallbertsson og Sveinn Garðarsson. Steindór R. Haraldsson var kynnir og fórst honum starfið vel úr hendi eins og við var að búast. Hann hafði til dæmis þá skoðun að baráttan um bandspottann nefndist reiptog en alls ekki reipitop og raunar bannfærði síðarnefndu orðmyndina úr skagstrendsku máli. Og svo hittust vinir og kunningjar, skeggræddu um lífsins gang, kreppuna fyrir sunnan, gleðina á Skagaströnd og ekki síst framtíð lands og lýðs í skugga náttúruhamfara, jafnvel þeirra sem mennirnir hafa skapað. 

Aflaverðmæti Arnars meira en allt síðasta ár

Arnar HU-1 landaði metafla í Reykjavík eftir 34 daga karfaveiðar á Reykjaneshryggnum. Aflinn var um 1300 tonn af úthafskarfa og verðmætið reyndist vera um 334 milljónir króna . Aldrei fyrr hefur Arnar komið með jafnverðmætan afla að landi og er þetta örugglega mesta eða eitt mesta aflaverðmæti íslensks frystitogara fyrr og síðar.   Frá áramótum er aflaverðmætið Arnars komið yfir 1050 milljónir króna. Tveir túrar standa þar uppúr, á Reykjaneshrygginn og í Barentshafið. Samalagt er verðmætið úr þessum ferðum rúmlega hálfur milljarður króna. Til samanburðar má geta þess að Arnar fiskaði fyrir um 1550 milljónir á árinu 2009 Áhöfnin á Arnari er 27 manns og skipstjórar eru Guðjón Guðjónsson og Árni Ólafur Sigurðsson. 

Fyrirlestur um ferð Bandaríkjamanns í A-Hún 1873

Karl Aspelund flytur opinn fyrirlestur á vegum Fræðaseturs HÍ á Norðurlandi vestra í Café Bjarmanesi sunnudaginn 13. júní kl. 14. Þar les Karl úr nýfundinni ferðabók Bandaríkjamannsins S.S. Howland frá 1873 og sýnir myndir. Séstaklega verður greint frá kynnum Howlands af fólkinu á Hnausum, Stóruborg og í Bólstaðarhlíð og gefin uppskrift af skyri sem hann fékk í Víðidalstungu. Karl mun sýna fjölmargar myndir, lesa upp úr ferðalýsingunum. Karl er nemi til doktorsgráðu í mannfræði við Boston University í Bandaríkjunum og hefur síðastliðin þrjú ár unnið að rannsókn um eðli og stöðu þjóðlegs klæðnaðar íslenskra kvenna í dag. Hann hefur kennt fatahönnun og skyldar greinar við University of Rhode Island síðan 1996 en tók nýlega við fullri kennslustöðu í hönnun og búningasögu.  Áður kenndi hann við Fataiðndeild Iðnskólans í Reykjavík og stjórnaði Iðnhönnunardeildinni þar jafnhliða því að hanna leikmyndir og búninga fyrir leikhús og kvikmyndir á Íslandi í rúman áratug. Karl er höfundur tveggja bóka: *The Design Process*, sem er notuð til kennslu í á fimmta tug háskóla í Bandaríkjunum og *Fashioning Society*, sögulegt yfirlit um stöðu hátískuhönnunar í nútímaþjóðfélagi vesturlanda.  Karl dvelur um þessar mundir sem gestafræðimaður hjá Textílsetrinu á Blönduósi.

Ljósmyndasamkeppni

Sveitarfélagið Skagaströnd mun í sumar standa fyrir ljósmyndasýningu á Hnappstaðatúni í miðbæ Skagastrandar. Sýningin er í samstarfi við Menningarráð Norðurlands vestra.  Tilgangurinn með er að lífga upp á miðbæ Skagastrandar og jafnframt að vekja athygli ferðamanna á einstökum stöðum sem og náttúruminjum í sveitarfélaginu. Til að afla mynda í sýninguna er því efnt til ljósmyndasamkeppni undir kjörorðinu: „Skagaströnd í nýju ljósi“ Leitað er eftir um tuttugu ljósmyndum til að nota í sýninguna sem verða stækkaðar upp í 200 x 120 cm og prentaðar á segldúk. Myndir skulu teknar innan Sveitarfélagsins Skagastrandar, utan eða innan bæjar. Sjónarhornið er byggðin, mannlífið eða náttúran. Leitað er eftir fallegum myndum eða sérkennilegum og áhugaverðum myndefnum eða sjónarhornum. Ekki er þó um hefðbundna ljósmyndasamkeppi að ræða enda engin verðlaun veitt önnur en þau að fá mynd sína birta í stóru formati og að ljósmyndarinn fær að eiga myndina að sýningu lokinni. Í dómnefndinni eiga þessir sæti: Jón Sigurðsson, umboðsmaður TM og ljósmyndari, Skarphéðinn H. Einarsson, skólastjóri, og Snorri Gunnarsson, ljósmyndari. Henni til aðstoðar er Sigurður Sigurðarson, starfsmaður Sveitarfélagsins Skagastrandar. Reglur samkeppninnar eru þessar: Einungis myndir eftir áhugaljósmyndara verða birtar á ljósmyndasýningunni „Skagaströnd í nýju ljósi“ sem haldin verður á Hnappstaðatúni sumarið 2010. Þátttaka er öllum heimili, Íslendingum sem og öðrum. Myndefnið skal vera frá Skagaströnd, utan eða innan þéttbýlisins, og vera af byggð, mannlífi eða náttúru. Því ber að vera áhugavert eða sérkennilegt af einhverju tagi.  Myndirnar mega vera í lit eða svarthvítar, en skilyrði að þær séu í góðri upplausn og á jpg formi. Leyfilegt er að skanna inn framkallaðar myndir eða filmur og senda í keppnina. Engin verðlaun verða veitt fyrir þær myndir sem valdar eru, en viðkomandi ljósmyndari fær stækkaða mynd sína til eignar að sýningu lokinni. Skilafrestur á myndum er til og með 1. júlí 2010.  Hver þátttakandi má senda inn allt að 10 myndir sem hann hefur tekið sjálfur. Aldur myndanna skiptir engu máli.  Myndum skal skila í tölvupósti á radgjafi@skagastrond.is eða á diski eða minnislykli ásamt grunnupplýsingum um ljósmyndarann á skrifstofu sveitarfélagsins.  Ljósmyndir eru valdar eftir tillögum dómnefndar og leitast við að hafa sem breiðast úrval myndefnis og ljósmyndara. Myndir á sýningunni verða með myndatexta sem unninn er í samráði við eiganda og nafn hans verður einnig prentað á myndina.

Eru listamennirnir ígildi 10.000 ferðamanna?

Þriðja starfsár Ness listamiðstöðvar á Skagaströnd er nú hafið. Það var hinn 1. júní 2008 að fyrstu listamennirnir komu til bæjarins og þeim hefur fjölgað mikið síðan en rétt um 200 manns hafa frá notið dvalarinnar. Hver listamaður dvelur að minnsta kosti einn mánuð, sinnir sinni list á þann hátt sem hann vill. Margir ferðast um, vinsælast er að fara vítt um Húnavatnssýslur og Skagafjörð og jafnvel víðar. Æ algengara er að listamenn dvelji lengur en í einn mánuð, dæmi er um listamann sem kom í febrúar í vetur og fór í lok maí. Fyrir samfélagið á Skagaströnd eru listamennirnir afar mikilvægir og með rökum má halda því fram að þeir fjölgi íbúum staðarins um 20% miðað við hvert ár. Hægt er að ganga lengra og fullyrða að slíkir ferðamenn séu að minnsta kosti ígildi um 10.000 ferðamanna á ári, miðað við að hver útlendur ferðamaður gistir að meðaltali í 1,8 nætur á Norðurlandi. Enn eru nýjir listamenn boðnir velkomnir til mánaðardvalar á Skagaströnd. Þeir eru: Angela Chong, Singapore Christie Blizard, Bandaríkjunum Eszter Burghardt, Kanada Frances Valesco, Bandaríkjunum Jared Betts, Kanada Kasia Rose Tons, Ástralíu Marla Sweeney, Bandaríkjunum Melody Woodnutt, Ástralíu Valerie Ng, Singapore Ótrúlega margir listamenn hafa komið frá fjarlægum löndum. Í þessum mánuði vill til dæmis svo sérkennilega til að tveir eru frá Singapore og tveir frá Ástralíu.  Þess má geta að Nes listamiðstöð er opin til skoðunar daglega frá kl. 15 til 17.