19.08.2010
Námskeið um húmor og gleði í stjórnun var haldið 18. ágúst að Húnavöllum. Námskeiðið hafði það meginmarkmið, eins og öll námskeið Fræðsluskrifstofunnar, að gera starfsfólk skólanna hæfara til að gera nemendur góða og fróða. Að hafa tök á að nota húmor og gleði í skólastarfi getur hjálpað til að ná því háleita markmiði. Sjötíu og sex kennarar grunnskólanna í Húnavatnsþingi sóttu námskeiðið.
Kennari á námskeiðinu var Edda Björgvinsdóttir, listamaður sem segir: "Húmor í lífinu er á allan hátt uppbyggilegur og nærandi. Húmor er heilsubót og með húmor er hægt að auðvelda hvers kyns mannleg samskipti, leysa hin fjölbreyttustu vandamál og minnka streitu. Fjöldi rannsókna sýnir að það er mælanlegur ávinningur af því þegar stjórnendur nota húmor markvisst og meðvitað.
Húmor eykur gleði á vinnustað, bætir líðan fólks, eykur starfsánægju og sköpunarkraft“.
Þátttakendur skemmtu sér vel, eins og myndirnar sýna og lærðu mikið og eru væntanlega betur í stakk búnir að hefja krefjandi starf með gleði.
Guðjón E. Ólafsson, fræðslustjóri
16.08.2010
Opnunartími sundlaugar breytist og verður frá kl 13.00 til kl 20.00 dagana 17. - 20. ágúst en frá 23. ágúst þrengist hann enn vegna sundkennslu skólabarna.
Sveitarstjóri
16.08.2010
Kántrýdögum á Skagaströnd lauk á sama máta og þeir byrjuðu, með mikilli gleði og ánægju. Fjöldi aðkomufólks heimsótti bæinn, sem skreyttur var á margvísleg lund og stuðlaði ásamt heimamönnum að frábærri skemmtun sem var öllum til sóma.
Veðrið var stórkostlegt um helgina, koppalogn, gekk á með sólarglennum og hlýjum rigningarskúrum í 15 til 20 gráðu hita. Á laugardagskvöldið mældist t.d. hitinn um miðnætti 17 gráður.
Kántrýdagar hófust með fallbyssuskoti klukkan 18 á föstudeginum. Yngsti aldurshópurinn, sem kallar sig, Smábæinga, buðu á Kofavöllum upp á opið hús, en þeir hafa verið að byggja kofa í sumar af öllum stærðum og gerðum. Gestir fengu kökur og drykki og svo skemmti brúðubíllinn. Ekki þótti börnunum lakara þegar flugvélin kom og bjó til Freyjukaramelluregn.
Á föstudagskvöldið var mikill fögnuðu og læti í hátíðartjaldinu þegar hljósmveitirnar Janus og The 59’ers þöndu raddbönd og hljóðfæri. Síðar um kvöldið gerðu Skagstrendingar og gestir þeirra slíkt hið sama við varðeldinn og var atburðurinn nefndur „hólasöngur“ vegna staðsetningarinnar.
Á laugadagsmorgni var farið í Þórdísargöngu á vegum Menningarfélagsins Spákonuarfs og gengið á Spákonufell. Þórdís bjó að Spákonufelli fyrir rúmlega eitt þúsund árum og eru margar sögur af henni og fjölkyngi hennar en ekki er vitað hvort hún tók þátt í göngunni.
Börnin fóru í dorgveiðikeppni, á töfrabragðanámskeið og loks var barna- og fjölskylduskemmtun í hátíðartjaldinu þar sem hæfileikaríkir krakkar nutu tilverunnar og hrifu áhorfendur með göldrum sínum og tónlist í söngvakeppni barna - Kántrýhvolpunum.
Um kvöldið var aftur dagskrá í hátíðartjaldi þar sem fram komu Valdi Skafta og Rún, Elli Gunni, karlakórinn Bryggjupollar, blúshljómsveitin Spottarnir, Lára Rúnarsdóttir og Bjartmar og Bergrisarnir.
Fastur liður á Kántrýdögum er messa í hátíðartjaldinu. Sóknarpresturinn, Úrsula Árnadóttir, þjónaði. Af mikilli innlifun söng kirkjukórinn gospelsöngva undir stjórn Óskars Einarssonar og var það mál mann að aldrei hafi kórinn hljómað jafn vel. Í gospelmessunni voru systurnar Guðrún og Hjördís Sigurðardætur heiðraðar fyrir áralangt starf í kirkjukór Hólaneskirkju en þær hafa starfað þar með litlum hléum frá stofnun kórsins 1953.
Á laugardagskvöldi hélt Viggó B. útgáfutónleika Fellsborg vegna nýútkomins hljómdisks og gömlu dansarnir dunuðuð við harmonikuspil.
Böll í Kántrýbæ eru fastur liður á Kántrýdögum. Á fimmtudagskvöldið hitaði hljómsveit heimamanna upp en sú nefnist Suðmenn. Hljómsveitin Janus steig síðan á stokk á föstudagskvöldið og loks Bjartmar og Bergrisarnir á laugardagskvöldið.
Tónleikar voru í kaffihúsinu Bjarmanesi. Ragnheiður Gröndal lék þar með hljómsveit sinni á föstudagskvöldið og síðar um kvöldið léku Langi Seli og Skuggarnir. Á laugardeginum söng og spilaði hljómsveitin Spottarnir lög eftir sænska vísnaskáldið Kornelíus Vreesvjiik. Og um kvöldið sungu Cohen systur lög Leonard Cohens. Ekki má gleyma kaffihlaðborðinu sem boðið var upp á í Bjarmanesi eftir messu á sunnudeginum.
Einna mesta athygli vöktu spákonurnar sem upplýstu gesti og gangandi um framtíðina. Þær spáðu í forláta spátjaldi við hátíðarsvæðið og einnig í gamla húsinu Árnesi. Fjöldi fólks leitaði til spákvennana og ekki er annað vitað en að allir hafi unað við sínar spár.
Kántrýdagar fóru afar vel fram og varð ekkert til að trufla afar góða skemmtun. Skagstrendingar þakka gestum fyrir komuna og vonast til að sjá þá aftur að ári.
16.08.2010
Tónleikar tileinkaðir skagfirsku dægurlagasöngkonunni Erlu Þorsteinsdóttur verða haldnir í Kántrýbæ miiðvikudagskvöldið 18. ágúst, kl. 21. Nefnast þeir Stúlkan með Lævirkjaröddina.
Flytjendur eru Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm söngur og þverflauta, Yngvi Rafn Garðarsson Holm, gítarar, Tómas Jónsson, hljómborð, Sigurður Ingi Einarsson, trommur, og Valgeir Einarsson bassi.
Listamennirnir munu flytja sömu dagskrá víðar, t.d. á eftirfarandi stöðum; Græna hattinum á Akureyri fimmtudagskvöldið 19 ágúst, Hótel Mælifell á Sauðárkróki föstudagskvöldið 20 ágúst, menningarnótt í Reykjavík stóra sviðinu við Óðinstorgi kl 18, bæjarhátíðin Í túninu heima, hátíðarsviðið kl 21 laugardag 28 ágúst ásamt Baggalút og Ingó og Hafdísi Huld, Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ föstudag 3 september, Café Rósenberg sunudag 5 september og Reykjadal í Mosfellsbæ fimmtudag 9 sptember.
Allir tónleikarnir hefjast kl 21.00 miðinn kostar 1500 kr
12.08.2010
Árnes elsta húsið á Skagaströnd verðu opið til sýnis milli kl. 15 til 18 um Kántrýdaga, þ.e. laugardag og sunnudag.
Árnes er stórmerkilegt hús, 100 ára gamalt, ogþað er eins og gengið sé inn í fortíðina þegar komið er inn í húsið.
En Spákonurnar munu þar rýna í framtíðina og þær hafa fengið til liðs við sig þrjár spákonur sem verða í Árnesi á föstudagskvöldið frá kl. 18 - 21:30 og á laugardagskvöldið frá kl. 19 - 22. Þær kíkja í bolla og Tarot.
Í spátjaldinu við hátíðarsvæðið er er líka hægt að fá lófalestur á laugardagskvöldið frá kl. 20 - 22.
Spákonurnar spá því að hátíðin fari vel fram og margir gestir sæki Skagaströnd heim. Í huga þeirra er ekki nokkur vafi á að veðrið verður mjög gott og allir skemmti sér vel.
12.08.2010
Gönguferð á Spákonufell og kaffihlaðborðið á eftir er án efa einn af skemmtilegustu dagskrárliðum Kántrýdaga. Svo ótalmargt stuðlar að góðri ferð, til dæmis einstaklega fallegt fjall, afbragðsgóður fararstjóri, áhugaverðar sögur um fjallið og umhverfi þess, útsýnið, blár himinn, sólin, blíðan og fleira og fleira.
Spáð er hátt í 20 gráðu hita á laugardaginn ... Hér er átt við spá Veðurstofu Íslands en skagstrensku spákonurnar spá sólskini til viðbótar.
Það er Menningarfélagið Spákonuarfur sem verður með sína vinsælu Þórdísargöngu á laugardagsmorgun klukkan 10:00.
Fararstjóri verður Óli Benna leiðir fólk upp á Spákonufell og segir sögur af Þórdísi og leitar eflaust að gullinu hennar í leiðinni.
Eftir gönguferðina er öllum boðið uppá kaffihlaðborð að hætti Spákonuarfs. Verð á göngu er kr. 2.500 og er kaffihlaðborðið innifalið, en frítt er fyrir 14 ára og yngri.
12.08.2010
Lára Rúnarsdóttir skemmtir í hátíðartjaldi á laugardagskvöldið á Kántrýdögum . Hún hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn. Hér er nærmynd af Láru:
Það vantar ekki jákvæðnina í hina ungu söngkonu Láru Rúnarsdóttur sem væri til í að hitta Tom Waits og myndi gera óskaplötu með Dave Grohl, Nick Cave og Beck. Hún tók sér tíma frá annasömum degi og svaraði laufléttum spurningum Miðjunnar um lífið og tilveruna.
Nafn: Lára Rúnarsdóttir
Aldur:27 ára
Fjölskylda: Unnustinn minn Arnar Þór og dóttir okkar Embla Guðríður
Starf: Rekstrarsjóri, tónlistarmaður og húsmóðir
Ítarleg starfslýsing, hvernig er hefbundinn vinnudagur hjá þér?
Vakna, keyri, kaffi, email, pantanir, bý til checklista, dagdraumar, fundur, matur, kaffi, skoða checklistann, dagdraumar, merki við fullkláruð verkefni, keyri, sæki Emblu, pússla, dansa, elda, svæfi, horfi á frábæra dagskrá Rúv, les í bókum, kyssi manninn minn og fer að sofa.
Hvað langaði þig að verða þegar þú varst lítil? Leikkona og rithöfundur. Þessir draumar eru ennþá á dagskránni.
Hvað er listamannalíf? Lifir þú því? Listamannalíf eru forréttindi sem ég nýt því miður ekki.
Að þínu mati hvert er:
A) Besta bókmenntaverk sögunnar? Sunnan við mærin, vestur af sól eftir Haruki Murakami breytti lífi mínu.
b) Besta leikrit sögunnar? Romeó og Júlía – vildi óska að við töluðum svona fallegt mál.
c) Besta plata sögunnar? Closing time með Tom Waits
Uppáhalds tónlistarmaður/menn? Uppáhaldið mitt núna eru stelpur í tónlist… Goldfrapp, Bat for lashes, Florence and the Machine, Lilly allen og Regina Spektor. Áfram Stelpur!!!
Ef þú hefðir allann þann tíma og allann þann pening hvernig plötu myndiru gera? Frábæra plötu með Dave Grohl, Nick Cave og Beck!
Þegar þú ert að vinna í tónlist sækiru þér innblástur til annarra tónlistarmanna eða forðastu að hlusta á tónlista annarra til að “smitast“ ekki? Ég gæti aldrei hætt að hlusta á tónlist og öll tónlist er mér innblástur, líka sú sem mér finnst leiðinleg.
Er einhver tónlist sem þú fílar í laumi? Ég skammast mín ekki fyrir að hlusta á eitthvað. Ég þoli ekki snobb í tónlistarbransanum, algjörlega glatað að þora ekki að viðurkenna að maður fíli eitthvað.
Hver er stendur upp úr í tónlist á Íslandi? Það er svo ótrúlega mikil orka og sköpun á íslandi í dag. Get t.d. nefnt Sudden Weather Change, Cliff Clavin, Útúrdúr, Sykur og Retro Stefson.
Hvernig finnst þér staða menningarlífs á Íslandi vera í dag? Ég held að kreppan hafi haft jákvæð áhrif á sköpunina. Það mætti bara gera meira fyrir hana, t.d. í fjölmiðlum. Minna af íþróttum meira af menningu og listum.
Hvaða plötu ertu að hlusta á? Ingrid Olava – the Guest
- hvernig líkar þér? Ágætlega, tregamikið og lostafullt
Hvaða persónu lifandi/látna raunverulega/skáldaða mynduru vilja hitta? Tom Waits
Hver var uppáhalds platan þín sem barn? Ég hlustaði mikið á Rokklingana
Ólstu upp á tónlistheimili? já það var mikið sungið, spilað og dansað.
Var einhver sem fékk þig til að syngja? Syngjum um lífið og lofum það líka. Ætli það hafi ekki bara verið þannig. Annars var það Kiddi Hjálmur sem uppgötvaði mig.
Hvað fær þig til að syngja? Ástin, dauðinn, sorgin, sturtan, áfengi og partý
Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið? Ekki reyna að láta alla elska þig
Hvaða ráð myndir þú veita þeim sem vilja byrja að semja tónlist og syngja? Aldrei að hugsa um hvað öðrum finnst… Bara að hafa gaman!
Í hverju ertu að vinna núna? Öðlast hamingju sem ekki fellst í afrekum eða peningum
Eitthvað að lokum? Við lifum bara einu sinni, hættið þessu væli!
11.08.2010
Spákonuarfur efnir til Þórdísargöngu á Spákonufell laugardaginn 14. ágúst kl. 10:00. Gangan er tileinkuð Þórdísi spákonu.
Lagt verður af stað frá golfvellinum á Skagaströnd. Að lokinni göngu verður boðið upp á veitingar sem eru innifaldar í verði.
Fararstjóri í göngunni er Ólafur Bernódusson. Á leiðinni mun hann fræða þátttakendur um Þórdísi spákonu og vísa á staði sem tengjast sögu hennar og afrekum.
Þátttökugjald er 2.500 kr. Frítt fyrir 14 ára og yngri. Upplýsingar í síma 861-5089
11.08.2010
Tuttugu myndir eftir fjórtán ljósmyndara hafa nú verið settar upp á Hnappstaðatúni í miðbæ Skagastrandar. Þær eru niðurstaða dómnefndar ljósmyndasamkeppninnar sem Sveitarfélagið Skagaströnd efndi til í júní undir kjörorðinu „Skagaströnd í nýju ljósi“.
Sýningin var formlega opnuð í dag og við það tækifæri flutti oddviti sveitarstjórnar, Adolf H. Berndsen, tölu og kynnti úrslitin. Hann og Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, afhentu síðan vinningshöfunum viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.
Þeir ljósmyndarar sem hlutskarpastir urðu eru eftirtaldir:
Arnar Ólafur Viggósson
Árni Geir Ingvarsson, 2 myndir
Ásdís Árnadóttir
Guðbjörg Viggósdóttir
Guðlaug Grétarsdóttir
Helena Mara
Herdís Þ. Jakobsdóttir
Hjalti Reynisson
Ólafur Bernódusson, 3 myndir
Saga Lind Víðisdóttir, 2 myndir
Signý Ósk Richter
Sigurbjörg B. Berndsen
Silfá Sjöfn Árnadóttir, 2 myndir
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, 2 myndir
Allar myndirnar í ljósmyndasamkeppninni má sjá á vef Ljósmyndasfns Skagastrandar. Slóðina er að finna hér.
Í dómnefnd keppninnar voru valdir þrír valinkunnir menn sem ekki búa á Skagaströnd. Þeir eru Jón Sigurðsson, umboðsmaður TM og ljósmyndari, Skarphéðinn H. Einarsson, skólastjóri, og Snorri Gunnarsson, ljósmyndari.
Dómnefndin fékk ekki að vita nöfn ljósmyndaranna fyrr en úrslit lágu fyrir. Í ljósi þess vekur athygli að hjónin Árni Geir Ingvarsson og Herdís Þ. Jakobsdóttir eiga þrjár myndir á sýningunni og ekki nóg með það, tvær dætur þeirra eiga líka myndir, Ásdís á eina og Silfá Sjöfn á tvær. Önnur skrýtin tilviljun er sú að hjónin Hjalti Reynisson og Guðlaug Grétarsdóttir eiga hvor sína myndina í úrslitum.
11.08.2010
Ljósmyndasýningin „Skagaströnd í nýju ljósi“ verður formlega opnuð í miðbæ Skagastrandar í dag kl. 13. Sýndar eru tuttugu myndir eftir þrettán ljósmyndara. Myndirnar valdi dómnefnd sem skipuð var vegna ljósmyndasamkeppni sem Sveitarfélagið Skagaströnd stóð fyrir í júní.
Mikil þáttaka var í keppninni og sendu tuttugu og fjórir ljósmyndarar 154 myndir í keppnina. Af þeim voru 20 myndir valdar fyrir sýninguna.
Tilgangurinn með ljósmyndasýningunni er að lífga upp á miðbæ Skagastrandar og jafnframt að vekja athygli ferðamanna á einstökum stöðum sem í sveitarfélaginu.
Myndirnar tuttugu hafa nú verið prentaðar á álplötur. Og festar á ramma sem Trésmiðja Helga Gunnarssonar á Skagaströnd sá um að útbúa.
Sýningin mun standa fram undir miðjan september.