Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 27. júní 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 17.30. Dagskrá: Kosning í nefndir sveitarfélagsins Kjörstjórn Fræðslunefnd Skoðunarmenn Refa og minkaeyðing Reglur um refa og minkaveiði Samningur við veiðitaka Persónuverndarstefna sveitarfélagsins Endurskoðun Aðalskipulag sveitarfélagsins Bréf Tónlistarskólans á Akureyri Jóns H. Daníelssonar, dags. Fundargerðir Stjórnar Hafnarsamands Íslands. 28.05.2018 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar.

Nes listamiðstöð 10 ára Um þessar mundir (júní 2018) eru liðin tíu ár síðan Nes listamiðstöðin tók til starfa. Á þessum tíu árum hafa hundruð listamanna allstaðar að úr heiminum dvalið á Skagaströnd um lengri eða skemmri tíma til að vinna að hugðarefnum sínum. Í hverjum mánuði hefur verið haldið opið hús í miðstöðinni þar sem sýnt er hvað listamennirnir eru að skapa hverju sinni. Oft hefur það komið íbúum Skagastrandar á óvart hvað listamennirnir koma auga á í hversdagsleikanum. Þessi mynd er dæmi um efnivið í listaverk eftir Marian Bijlenga sem við íbúarnir gengum framhjá án þess að virða viðlits. Marian dvaldi í Nesi í júlí 2008 og var því ein af fyrstu listamönnunum sem þar dvöldu. Til að halda upp á afmæli Ness verður boðið upp á margs konar uppákomur um helgina 23. og 24. júní þar sem allir eru boðnir velkomnir til að koma og njóta veitinga og lista í listamiðstöðinni og í Bjarmanesi. Senda upplýsingar um myndina

10 ára afmæli Nes listamiðstöðvar

10 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ NES LISTAMIÐSTÖÐVAR Við bjóðum þér að fagna með okkur 10 ára afmæli Nes listamiðstöðvar helgina 23. og 24. júní. Á hátíðinni verður sýning fjölmargra listamanna sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð, bæði innsetningar og gjörningur, ásamt nýjum verkum þeirra listamanna sem dvelja nú í Nes listamiðstöð. Alls er um að ræða 80 listaverk, ljósmyndir, málverk, teikningar og margt fleira. Flest listaverkin verða einnig til sölu. We invite you to celebrate 10 years of Nes Listamiðstöð at the festival weekend on Saturday 23 June and Sunday 24 June. The festival will include an alumni exhibition, as well as installation, performance and new works from current artists in residence. The alumni exhibition includes up to 80 works of photography, painting, drawings, prints and other works on paper. Artworks will be available to purchase. LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ Kl. 15:00-18:00: Nes listamiðstöð. Opnun sýningar á verkum listamanna sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð. Á sýningunni eru m.a. ný listaverk eftir Jérémy Pailler (Frakklandi) og Danielle Rante (USA) sem dvelja nú aftur í listamiðstöðinni. Kl. 15:30: Nes listamiðstöð. Hátíðin sett. Kaffi og afmælisterta í boði. Kl. 16:00-18:00: Innsetning og opin vinnustofa listamanna í Bjarmanesi (kjallara). Anna Rosa Hiort-Lorenzen (Danmörku) verður með innsetningu gerða úr hljóði, ljósum og textíl. Pam Posey (USA) býður þér að skoða teikningar og málverk. Kl. 17:00: Gjörningur með Sophie Gee (Kanada) í Frystinum í Nes listamiðstöð. Saturday 23 June 15.00-18.00 Alumni exhibition opening at Nes Listamiðstöð. The exhibition includes new artworks by Jérémy Pailler (France) and Danielle Rante (USA), Nes alumni currently in residence. 15.30 Opening speeches. Coffee and birthday cake to celebrate. 16.00–18.00 Installation and open studio at Bjarmanes (downstairs). Anna Rosa Hiort-Lorenzen (Denmark) will create an installation of sound, light and textiles. Pam Posey (USA) invites you to visit her drawing and painting lab. 17.00 Performance by Sophie Gee (Canada) in the Freezer, Nes Listamiðstöð. SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ Kl: 14:00 - 18:00 Nes listamiðstöð. Sýning á verkum listamanna sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð. Kl. 14:00-18:00: Innsetning og opið stúdíó í Bjarmanesi (kjallara). Kl. 16:00-17:00: Sýning níu stuttmynda eftir listamenn sem dvalið hafa í Nes listamiðstöð. Sýningin er í Frystinum í Nes listamiðstöð. Kl. 18:00-19:00: Sýning stuttmyndanna endurtekin í Frystinum í Nes listamiðstöð. Sunday 24 June 14.00-18.00 Alumni exhibition continues at Nes Listamiðstöð 14.00-18.00 Installation and open studio continues at Bjarmanes (downstairs). 16.00-17.00 Film screening of 9 short films by Nes alumni in the Freezer, Nes Listamiðstöð. 18.00-19.00 Film screening repeats. LIST UTANHÚSS Sjáið nýja vegglistaverkið af Spákonufelli eftir Frank Webster (USA) og nýja höggmynd “Árbakkasteinn í steinboga” eftir Nicole Shaver (USA). Fimmtudaginn 21. júní: Taktu þátt í sólstöðugöngu á Spákonufell og hlustaðu á hljóðlistaverkið “Hrafn. Gáttir. Helgisiður” eftir Melody Woodnutt og Burke Jam. Brottför frá golfskálanum kl. 22.30. Skráning á netfanginu ody.who@gmail.com. OUTSIDE ART Look outside Nes for a new mural of the mountain by Frank Webster (USA) and a new sculpture “Arch for Árbakkasteinn” by Nicole Shaver (USA). On Thursday 21 June, take a Summer Solstice walk up Spákonufell and listen to a sound art piece “Raven. Portal. Ritual” by Melody Woodnutt and Burke Jam. Departs the golf club at 22.30. Register by email ody.who@gmail.com. Sjáumst þar!

Sumaropnun bókasafns

Bókasafn Skagastrandar auglýsir breyttan opnunartíma í júní og júlí. Bókasafnið er opið klukkan 17-20 á miðvikudögum, gengið er inn að sunnanverðu. Lokað verður í ágúst. Sumarkveðja Bókavörður.

Sundlaug Skagastrandar lokuð 19.júní

Starfsfólk sundlaugar Skagastrandar er á öryggisnámskeiði í dag, þriðjudaginn 19.júní og er því sundlaugin lokuð.

Mynd vikunnar

Gönguleið um Höfðann opnuð 17. júní 2008 var formlega opnuð merkt gönguleið um Spákonufellshöfða. Á þessari mynd er Egill Örn Ingibergsson að fara að klippa á borða og opna þannig gönguleiðina. Steindór Haraldsson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri halda borðanum. Eins og sjá má mætti fjöldi manns við opnunina og gengu síðan hringinn um Höfðann. Síðan þá hefur gönuleiðin um Höfðann notið mikilla vinsælda enda býður hún upp á fallegt útsýni, og holla útiveru. Senda upplýsingar um myndina

Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 14. júní 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Kosning oddvita og varaoddvita Skýrsla kjörstjórnar um sveitarstjórnarkosningar 2018 Kosning í nefndir sveitarfélagsins Ráðning sveitarstjóra Siðareglur sveitarstjórnar Samningur um eldvarnareftirlit Samningur um Reykjasafnið Reglur um stuðning við nemendur í framhaldsnámi Breyting á gjaldskrá Fjárfestingar og framkvæmdir Bréf Sveitarstjórnar til bankastjóra Landsbankans, dags. 5. júní 2018 Tölvubréf Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, dags. 7.06.2018 Svarbréf Landsbankans, dags. 8. júní 2018 Skipulagsstofnuna, 8. júní 2018 Fundargerðir Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 7.06.2018 Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál 17.04.2018 Stjórnar SSNV, 22.05.2018 Stjórnar Norðurár bs 28.02.2018 Stjórna Sambands íslenskra sveitarfélaga, 18.05.2018 Önnur mál Sveitarstjóri

Útboð á flotbryggjum

Útboð Skagaströnd - flotbryggjur 2018 Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Verkið felst í útvegun og uppsetning á alls 80 m af steinsteyptum flotbryggjum með landgöngum, fingrum, botnfestum og tilheyrandi búnaði. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2018. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) frá og með mánudeginum 11. júní 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. júní 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

Mynd vikunnar.

Síldarbræðsla Síldarbræðsla í fullum gangi í verksmiðjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1950. Gufuketill verksmiðjunnar var kyntur með svartolíu en ketillinn var í rými lengst til hægri í húsinu til vinstri og svartur reykurinn fór út í andrúmsloftið gegnum stóra skorsteininn. Þaðan var gufan leidd í næsta rými hússins og látin knýja túrbínu til rafmagnsframleiðslu fyrir verksmiðjuna. Síðan var gufan leidd áfram neðanjarðar yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Úr síldinni var svo unnið mjöl og lýsi. Mjölinu var blásið yfir í stóru skemmuna gegnum rörið sem sést á myndinni milli veksmiðjuhússins og skemmunar. Lýsinu var aftur á móti dælt í tank sem stóð upp við Höfðann rétt norður af frystihúsi Hólaness hf. Næst okkur á myndinni eru leyfar gömlu bryggjunnar sem var rétt austan við Hólsnefið. Bryggjuna byggðu sjómenn á Skagaströnd 1922 með styrk frá Verslunarfélagi Vindhælinga. Senda upplýsingar um myndina