Norðurlandsjakinn á Skagaströnd 23. ágúst

Keppni sterkustu manna landsins fer fram 23 - 25. Ágúst 2018 Fimmtudagur 23. ágúst Kl. 13 Blönduós, Drumbalyfta, Bæjartorginu við félagsheimilið Kl. 17 Skagaströnd, Kast yfir vegg, Grundarhólum við Spákonuhof Föstudagur 24. ágúst Kl. 12 Sauðárkrókur, Réttstöðulyfta, við safnhús Skagfirðinga Kl. 17 Ólafsfjörður, Víkingapressa og Mylluganga, við Tjarnarborg Laugardagur 25. ágúst Kl. 12 Mývatn, Framhald og Réttstöðuhald, við Dimmuborgir

Frá Tónlistarskóla A-Hún.

Innritun er hafin fyrir næsta skólaár Tónlistarskóla A-Hún. Umsóknum skal skila rafrænt á síðu tónlistarskólans http://www.tonhun.is undir flipanum umsóknir. Opið er fyrir umsóknir til 26. ágúst. Þeir sem gengu frá umsókn í vor þurfa ekki að sækja aftur um. Nánari upplýsingar í síma 868-4925. Skólastjóri.

BioPol tekur þátt í verkefni um umhverfisvöktun

Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að gerður hefur verið samningur við BioPol á Skagaströnd um vöktun í samræmi við samning um verndun hafrýmis Norður Atlantshafi. Þar segir: Í sumar bættist ný strönd við kerfisbundna vöktun stranda á Íslandi samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). Starfsfólk Biopol hefur tekið að sér OSPAR vöktun á ströndinni Víkur á Skagaströnd fyrir Umhverfisstofnun og fór starfsmaður Umhverfisstofnunar, þann 12. júlí sl. og aðstoðaði þau við fyrstu vöktunina. Á ströndinni var mikið rusl sem kemur frá sjávarútvegi, eins og t.d. netakúlur, olíubrúsar og fiskikassar. Einnig fannst mikið af plastbrotum í ýmsum stærðum (sjá mynd). Ströndin verður vöktuð þrisvar sinnum á ári og verða niðurstöðurnar skráðar inn í gagnagrunn hjá OSPAR. Víkur verður sjötta ströndin sem er vöktuð á Íslandi samkvæmt aðferðafræði OSPAR, en hinar eru: Surtsey, Bakkavík á Seltjarnanesi, Búðavík á Snæfellsnesi, Rauðisandur og Rekavík bak Höfn á Hornströndum (Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar: https://ust.is/atvinnulif/haf-og-vatn/voktun-stranda/).

Skólasetning Höfðaskóla

Skólasetning Höfðaskóla verður í Hólaneskirkju mánudaginn 27. ágúst n.k. og hefst kl. 10. Eftir formlega skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur. Kennsla hefst skv. stundaskrá (sund) þriðjudaginn 28. ágúst. Nánari upplýsingar á skólasetningu. Skólastjóri. .

Opið hús í Nes listamiðstöð

Opið Hús @ Nes Listamiðstöð View this email in your browser OPIÐ HÚS  //  LAU 28 júlí  //  16.30 - 18.30 Call in and see what our artists from around the globe have been creating this month!   Copyright © 2018  Nes Listamiðstöð Ehf. All rights reserved. You are receiving this email because you have subscribed to our newsletter or given us your email so we can keep in touch :) How nice!  Our mailing address is: Nes Artist Residency Fjörubraut 8 545 Skagaströnd http:\\neslist.is We hope you don’t want to leave us but if by some remote chance you do, then please click the unsubscribe link below. unsubscribe from this list   

Umsækjendur um starf sveitarstjóra

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur auglýst starf sveitarstjóra laust til umsóknar og var umsóknarfrestur til 2. júlí sl. Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Gunnólfur Lárusson Hjörleifur H. Herbertsson Ingimar Oddsson Kristín Á. Blöndal Linda B. Hávarðardóttir Ragnar Jónsson Sigurbrandur Jakobsson Þorbjörg Gísladóttir

Skrifstofa Sveitarfélagsins Skagastrandar

Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 9. – 20. júlí 2018.   Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi 23. júlí.   Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Á réttri leið Konur á Skagaströnd voru duglegar að taka þátt í átakinu "Á réttri leið - bætt heilsa, betri líðan" sem hófst þegar þessi mynd var tekin 16. febrúar 2011. Átakið hófst með að allar konurnar mættu á hafnarvigtina þar sem hópurinn var vigtaður sem heild. Niðurstaðan var að konurnar á myndinni voru fimm tonn og 360 kíló við upphaf átaksins, sem fól í sér ýmis konar líkamsrækt en jafnframt andlega uppbyggingu. Ekki liggur fyrir hve mörg kíló hurfu við átakið en þau skiptu hundruðum. Senda upplýsingar um myndina