06.04.2017
Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Trappa ehf undirrituðu 2ja ára samning þann 30. mars sl. og bættust sveitarfélögin í A-Hún þar með í stóran hóp sveitarfélaga sem nýta sér talþjálfun í gegnum netið. Samningurinn lýtur að talmeinaþjónustu í skólum og leikskólum sveitarfélaganna og munu fyrstu börnin byrja fljótlega í talþjálfun. Greiningar verða ennþá í höndum Ingibjargar Huldar Þórðardóttur, talmeinafræðings A-Hún. Hér sjást Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu og Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Tröppu við undirritun samningsins í húsakynnum Tröppu í Aðalstræti, Reykjavík.
03.04.2017
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2016-2017 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 25. apríl 2017.
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.
Sveitarstjóri
03.04.2017
Sjoppan á Karlsskála
Myndin er af fyrstu sjoppunni á Skagaströnd en hún var rekin í
græna timburhúsinu sem stendur vinstra megin við við Karlsskála.
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á Karlsskála var umboðsmaður fyrir
olíufélagið BP á Íslandi og rak hann sjoppuna með Helgu dóttur sinni.
Bensíndæla frá BP var fyrir utan sjoppuna eins og sést á myndinni.
Ein af nýungunum sem sjoppan var með á sínum tíma var að fara að
selja ís, pinnaís og ís í pökkum, upp úr frystikistu í sjoppunni.
Lengst af var ekki fastur opnunartími í sjoppunni heldur þurfti að fara og
banka á dyrnar á Karlsskála og biðja um afgreiðslu.
Sjoppan var rekin í allmörg ár á árunum um og eftir 1960.
Konurnar og börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir þau
vinsamlega sendu þá Ljósmyndasafninu athugasemd.
Senda upplýsingar um myndinaSkráning
28.03.2017
Árshátíð Höfðaskóla verður haldin í Fellsborg
föstudaginn 31. mars 2017 og hefst kl. 19:30.
Húsið opnar kl. 19:00
Dagskrá: - Skemmtiatriði frá öllum bekkjum
- Diskótek
1. – 6. bekkur - til kl. 22:30
7. – 10. bekkur - til kl. 23:30
Aðgangseyrir: 1500 kr.
Grunnskólanemar og yngri : aðgangur ókeypis
Allir hjartanlega velkomnir
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla
24.03.2017
Golfarar 1991
Golfarar sem tóku þátt í golfmóti á Hágerðisvelli 1991 raða sér upp við
nýreistan golfskálann á vellinum.
Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Dagný Sigmarsdóttir,
Adolf H. Berndsen, Soffía Pétursdóttir, óþekktur, Hjördís Sigurðardóttir,
Kristín Mogesen, (krýpur), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir,
Fanney Zophaníasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur,
Jón Sigurðsson, Árni Jónsson (með svarta húfu) , óþekktur,
Guðmundur Kristinsson, þrír óþekktir og Vilhelm Jónsson.
Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
22.03.2017
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að auglýsa Fellsborg og Tjaldstæðið Höfðahólum til leigu auk Bjarmaness sem áður hefur verið auglýst. Mögulegt er að óska eftir leigu á öllum þessum einingum, tveimur saman eða hverri fyrir sig. Sveitarstjórn mun meta umsóknir með tilliti til þess hvaða nýir möguleikar kunni að liggja í samningum um einstakar einingar eða allar saman.
Kaffi-og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004,og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.
Félagsheimilið Fellsborg var byggt árið 1965. Í húsinu eru 2 misstórir salir, sem nýttir hafa verið til skemmtanahalds, leiksýninga, ættarmóta, fatamarkaða og fl. Bókasafn Sveitarfélagsins er á neðri hæð sem og félagsstarf eldri borgara. Kvenfélagið Eining og UMF Fram hafa þar einnig aðstöðu. Við húsið er íþróttavöllur staðarins og einnig ágæt aðstaða fyrir tjöld og tjaldvagna sem hefur einkum verið nýtt í tengslum við ættarmót sem haldin eru í húsinu.
Tjaldsvæðið í Höfðahólum er á skjólsælum og rólegum stað efst í byggðinni og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg.
Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn í spennandi náttúrlegu umhverfi. Í þjónustuhúsinu eru sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til uppþvotta.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar
fyrir 20. apríl 2017 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um rekstur hverrar einingar eða allra saman. Áður auglýstur umsóknarfestur um Bjarmanes er framlengdur til 20. apríl.
Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is
Fyrir hönd sveitarstjórnar,
Í mars 2017.
Sveitarstjóri
17.03.2017
Kvenfélagið Eining
27. febrúar 1927 var kvenfélagið Eining á Skagaströnd stofnað.
Félagið er því 90 ára um þessar mundir. Á þessum 90 árum hefur félagið
staðið fyrir fjölmörgum framfaramálum í okkar samfélagi eins og lesa má
um í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar:
" Kvenfélagið Eining Skagaströnd 1927 - 2013".
Á myndinni eru konur í félaginu að loknum aðalfundi. Ekki er vitað
hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1970.
Sitjandi frá vinstri: Helga Berndsen, Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974),
Guðrún Helgadóttir (d. 15.4.1987), Karla Helgadóttir (d.25.9.1986),
Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978), Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002),
Halldóra Pétursdóttir (d.23.12.1987), Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010)
og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003).
Standandi frá vinstri:
Elísabet Bjarnason (d.10.1.2009), Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981),
Birna Blöndal, Elísabet Árnadóttir, María Konráðsdóttir (d.9.8.2003),
Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015),
Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir
14.03.2017
Félagsmiðstöðin Undirheimar sendi fulltrúa 3 fulltrúa á Stíl sem er hönnunarkeppni Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi). Þær Dagný Dís Bessadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir lentu í 3. sæti í keppninni og fengu að auki verðlaun fyrir bestu förðunina.
Einnig má geta þess að Laufey Lind Ingibergsdóttir, Snæfríður DÖgg Guðmundsdóttir og Ólafur Halldórsson tóku þátt í Norðurorgi sem er undankeppni fyrir stóru söngvakeppni Samfés og voru ein af fimm atriðum sem komust áfram. Aðalkeppnin fer fram þann 25.mars.
13.03.2017
Móttaka og símavarsla
Heilbrigðisstofnun Norðurlands óskar eftir almennum starfsmanni á heilsugæsluna á Skagaströnd.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, tímabókun, afgreiðsla og uppgjör
- Símsvörun
- Skjalafrágangur
- Afgreiðsla lyfja frá Lyfju
- Ræsting á húsnæði heilsugæslunnar
- Önnur tilfallandi störf
Hæfnikröfur
- Æskilegt að hafa reynslu af afgreiðslustörfum og dagsöluuppgjörum
- Reynsla og góð undirstaða í almennri tölvuvinnslu er æskileg
- Almenn enskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott viðmót, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannþjónustu hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Starfshlutfall er 70 - 80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2017
Nánari upplýsingar veitir
Ásdís H Arinbjörnsdóttir - asdis.arinbjarnardottir@hsn.is - 455 4100
HSN Blönduós Heilsugæsla Skagaströnd
Flúðabakka 2
540 Blönduós
12.03.2017
Starfsfólk í sumarafleysingu
Við leitum eftir sumarafleysingafólki í liðsheild okkar hjá Greiðslustofu
Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.
Í boði eru fjölbreytt verkefni með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.
Hvetjum alla sem hafa áhuga að sækja um – öllum umsóknum verður svarað
Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Jensínu Lýðsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra - Greiðslustofu, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is fyrir 30. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar hjá Jensínu í síma 515 4800.