22.04.2016
Edda Pálsdóttir
Hógværð, prúðmennska og skyldurækni eru orð sem koma í hugann þegar hugsað er til Eddu Pálsdóttur, nú þegar hún hefur lagt af stað í sína síðustu ferð. Vinir hennar minnast Eddu sem trausts vinar með góða nærveru sem alltaf var til staðar fyrir þá í blíðu og stríðu, jákvæð og skemmtileg. Við andlát sitt kallaði hún fram það besta hjá ungmennunum okkar á Skagaströnd sem sýndu þá samstöðu og samhjálp, sem einkennir samfélag okkar þegar á reynir.
Edda Pálsdóttir lést 8. apríl og verður jarðsungin frá Hólaneskirkju 23. apríl klukkan 14:00
18.04.2016
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 19. apríl 2016 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
1. Fjárfestingar 2016
2. Ársreikningur 2015 (fyrri umræða)
3. Ísland ljóstengt
4. Styrktarsjóður EBÍ
5. Bréf:
a. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. mars 2016
b. Sveitarstjóra Blönduósbæjar, dags. 29. mars 2016
c. Bæjarstjóra Lohja, dags. 29. mars 2016
d. Bryndísar Valbjarnardóttur, sóknarprests, dags. 15. mars 2016
e. Þóreyjar Fjólu Aradóttur, dags. 4. apríl 2016
f. Gígju H. Óskarsdóttur, húsverði íþróttahúss, dags. 29. mars 2016
g. Rúnari og Stefáni Jósefssonum, dags. 10. mars 2016
6. Fundargerðir:
a. Tómstunda og menningarmálanefndar, 31.03.2016
b. Vinnufundur hafnar- og skipulagsnefndar, 30.11.2015
c. Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 17.03.2016
d. Stjórnar Norðurár bs., 8.05.2015
e. Stjórnar Norðurár bs., 11.09.2015
f. Stjórnar Norðurár bs., 2.10.2015
g. Stjórnar Norðurár bs., 9.10.2015
h. Stjórnar SSNV, 2.03.2016
i. Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 24.02.2016
j. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 18.03.2016
7. Önnur mál
Sveitarstjóri
15.04.2016
Signý Magnúsdóttir.
Hringrás lífsins hefst með því að við fæðumst. Síðan tekur lífið við með þeim hlutverkum sem okkur er ætlað að leika og svo, þegar við höfum leikið þau til enda, þá deyjum við. Nýlega lauk Signý Magnúsdóttir hlutverki sínu, eftir að hafa leikið það með sóma, og hvarf af leiksviði lífsins. Síðasta hlutverk hennar hafði verið að berjast við sjúkdóm sem ekki lætur laust, eftir að hafa náð tökum sínum. Hugur okkar og samúð er hjá aðstandendum Signýjar.
Signý Magnúsdóttir lést 7. apríl og verður jarðsungin frá Hólaneskirkju mánudaginn 18. apríl klukkan 14:00 .
12.04.2016
Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika
Í Hólaneskirkju, Skagaströnd
19. apríl kl. 20:00
Söngstjóri: Helga Rós Indriðadóttir
Undirleikari: Rögnvaldur Valbergsson
Einsöngvarar: Íris Olga Lúðvíksdóttir og Ólöf Ólafsdóttir
Hlökkum til að sjá ykkur!
Aðgangseyrir kr. 3.000
08.04.2016
Við leitum eftir sumarafleysingafólki í liðsheild okkar hjá Greiðslustofu
Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.
Í boði eru fjölbreytt verkefni með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.
Reynt verður að ráða í gegnum sumarátaksstörf námsmanna.
Hvetjum alla sem hafa áhuga að sækja um – öllum umsóknum verður svarað
Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Jensínu Lýðsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra - Greiðslustofu, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is fyrir 20. apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar hjá Jensínu í síma 582 4900.
08.04.2016
Heyskapur við Syðra Hól.
Á myndinni sést glöggt sú tækni sem notuð var við heyskap á sínum
tíma þegar hesturinn var enn þarfasti þjónninn í sveitum landsins.
Svona vélar, eins og sú á myndinni, gjörbreyttu heyskap til sveita sem
fram að því hafði nánast eingöngu notast við orf, ljá og hrífur.
Maðurinn á myndinni er líklega Sveinbjörn Albert Magnússon
(Atli)(d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli.
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
05.04.2016
Reiðskólinn Eðalhestar verða með sumarnámskeið á Skagaströnd, þessar vikur er í boði:
30. maí - 3. júní 2016
6. júní - 10. júní 2016
Skráning er hafin í síma 867 1180 eða á FB.
www.facebook.com/Edalhestar
Kveðja
Halla og Maggi
05.04.2016
Kvenfélagið Eining verður með þriggja kvölda
félagsvist í félagsheimilinu Fellsborg.
Spilað verður mánudagskvöldin 11., 18. og 25. apríl.
Byrjað verður að spila stundvíslega klukkan 20:00
Aðgangseyrir 1.000 kr. hvert kvöld
en ef keypt er á öll þrjú kvöldin kosta öll kvöldin 2.400 kr.
Kaffiveitingar eru innifaldar í verði.
Vinningar eru í boði fyrir hvert kvöld, hæsti karl og
hæsta kona og svo að sjálfsögðu skammarverðlaunin.
Tekin verður heildarsumma allra kvölda og sá stigahæsti fær
veglegan vinning síðasta kvöldið.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kvenfélagið Eining
01.04.2016
Hnúfubakur.
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson
og Guðmundur J. Björnsson í land á
trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í
eftirdragi.
Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki
norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur
- tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn
var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og
tekið úr honum sýni.
Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var
hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað
þar.
Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum,
að undirbúa sýnatöku.
Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn
í blárri peysu, aðrir eru óþekktir.
Til gamans má geta þess að reður hvalsins
var sendur til Reðursafns Íslands að ósk
eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa
reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum
líffærum af hinum ýmsu spendýrum.
Myndina tók Magnús B. Jónsson.
30.03.2016
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 14.apríl 2016.
Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.