Álagning fasteignagjalda 2016

Álagning fasteignagjalda á Skagaströnd 2016 Ágætu fasteignaeigendur á Skagaströnd. Álagning fasteignagjalda hefur nú farið fram. Álagningarreglur fasteignagjalda 2016 eru meðfylgjandi bréfi þessu og jafnframt aðgengilegar á heimasíðunni www.skagastrond.is – undir „gjaldskrár“. Greiðslur fasteignagjalda: Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram. Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí). Álagningaseðlar: Eins og undanfarin tvö ár munum við ekki senda út álagningarseðla nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is undir reitnum „mínar síður“ birtist þessi skjámynd: Innskráning er með kennitölu viðkomandi og veflykli ríkisskattstjóra. Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska. Skagaströnd 28. janúar 2016 Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Vísir Hu 10 í hafís Vísir Hu 10 fastur í hafís framan við höfnina á Skagaströnd. Myndin er tekin hafísárið 1965. Karlarnir eru komnir út á ísinn og eru að spá í framhaldið. Vísir gerði út á þorskanet þetta vor og aflaði oft vel - ef fært var á sjó vegna hafíssins. Varlega varð að fara innan um ísinn og reyna að nýta þær lænur sem hægt var til að komast leiðar sinnar. Um borð voru bræðurnir Jón Stefánsson (d.3.8.1991) og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigurður Árnason (d.26.3.2013) sem var skipstjóri. Myndina tók Þórður Jónsson (d. 25.12.2010), sem þá var fréttaritari Morgunblaðsins, og birtist myndin, ásamt fleirum, í Morgunblaðinu nokkrum dögum seinna.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir.

Dagana 8/2-10/2 2016 verður krabbameinsleit á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi. Konur sem fengið hafa bréf frá leitarstöðinni eru hvattar til að panta tíma í síma 455-4100 milli kl 09:00-15:00 í síðasta lagi miðvikudaginn 3/2 2016. Ásdís H. Arinbjarnardóttir Yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu Staðarumsjón Blönduósi The Health Care Institution of North Iceland

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 26. janúar 2016 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: 1. Endurskoðun samnings við Hjallastefnu 2. Þjónustusamningur um málefni fatlaðs fólks 3. Gjaldskrár sveitarfélagsins 4. Sala íbúða 5. Bréf: a. Lohja, dags. 11. desember 2015 b. Ámundakinnar, dags. 13. janúar 2016 6. Fundargerðir: a. Fræðslunefndar, 20.01.2016 b. Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún18.01.2016 c. Stjórnar SSNV, 12.01.2016 d. Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 29.12.2015 e. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 14.12.2015 f. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 18.01.2016 g. Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 15.01.2016 h. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 30.11.2015 i. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 11.12.2015 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Verslunin Borg Verslunin Borg , sem var í húsinu á myndinni, var ekta krambúð þar sem hægt var að fá keypt nánast hvað sem var til heimilisins. Verslunina áttu og ráku hjónin Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Hjónin bjuggu í húsinu - í austurenda þess - en verslunin var í meginhluta hússins. Kjallari var undir því og var hann nýttur fyrir hluta af lager verslunarinnar. Hinum megin við götuna var líka lagerhúsnæði, sem þau hjón áttu, en það hús stendur enn. Eftir að Sigurður lést var húsið selt rafmagnsfyrirtækinu Neistanum sem þá var í eigu þeirra Jóns Inga Ingvarssonar og Hallbjörns Björnssonar. Ráku þeir félagar saman rafverkstæði í húsinu í allmörg ár. Hallbjörn keypti síðan hlut Jóns Inga, þegar hann fór að starfa á öðrum vettvangi. Hallbjörn byggði stórt húsnæði yfir starfsemi sína ekki langt frá þessu húsi og þar hefur hann rekið Neistann til þessa dags (janúar 2016). Húsið á myndinni var svo rifið allnokkrum árum eftir að Neistinn hafði flutt í sitt nýja húsnæði.

Mynd vikunnar

Systkini. Myndin er tekin af systkinum í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar 5. desember 1984. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Fyrir framan þá situr systir þeirra, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Litla stúlkan til hægri er Erla María Lárusdóttir sem er langömmubarn Láru. Myndin var tekin heima á Kárastöðum (Bankastræti 5), sem nú eru horfnir, en þar bjuggju þeir Kári og Sigurbjörn saman ásamt ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur.

Mynd vikunnar

Snjótittlingar Þessi mynd á að minna okkur á gefa smáfuglunum þegar hart er á jörð. Það getur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þessum varkáru fuglum tína í sig korn eða brauðmola rétt fyrir utan gluggann. Kattaeigendur eru líka beðnir að huga að því að halda þeim fjarri fuglunum því veiðieðli kattanna er ekki auðvelt að temja. Myndina tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi í Ljósmyndakeppni sveitarfélagsins árið 2010.

Gleðilegt nýtt ár.

Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleði og farsældar á komandi ári um leið og það þakkar fyrir árið 2015 sem nú er að kveðja.

Jólatrésskemmtun - Anna jóladag kl 15

Jólatréskemmtun Árleg jólatréskemmtun Lionsklúbbs Skagastrandar verður haldin í Fellsborg laugardaginn 26. desember (annan í jólum). Skemmtunin hefst kl. 15:00. Fjölskyldur eru hvattar til að fjölmenna og eiga notalega stund með börnunum. Enginn aðgangseyrir. Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar