23.12.2015
Eins og undanfarin ár verður skötuveisla í dag Þorláksmessu og hefst kl. 11:30 -13:30.
Fisk-seafood og áhafnir togaranna
21.12.2015
Opnunartími Bókasafns Skagastrandar yfir jól og áramót
Þorláksmessa LOKAÐ
Mánudagur 28. Desember 2015 Opið klukkan 16-19
Miðvikudagur 30. Desember 2015 Opið klukkan 15-17
Við óskum ykkur öllum gleðilegra bókajóla, árs og friðar og hlökkum til að sjá ykkur öll á komandi ári.
Bókaverðir
21.12.2015
Jólasveinapóstur
Jólasveinarnir hafa samið við Foreldrafélag Höfðaskóla um að taka á móti pökkum og bréfum í skólanum þriðjudaginn 22. desember frá kl 18-20:00.
Sjálfir ætla þeir síðan að koma póstinum til skila á Þorláksmessu á milli 16 og 19:00.
Verð fyrir þjónustuna er eftirfarandi:
Bréf 80 kr
Pakki 500 kr
(Ath ekki er posi á staðnum)
Jólasveinarnir ætla að láta ágóðan renna til tækjakaupa í Höfðaskóla
Foreldrafélag Höfðaskóla
18.12.2015
Gleðileg jól.
"Þegar lægst er á lofti sólin, loksins koma jólin........"
Myndin var tekin þegar Gluggagægir kom í heimsókn á
leikskólann Barnaból á litlu jólum 1991.
Litlu jólin eru mikill hátíðisdagur barnanna því þá koma
jólasveinar í heimsókn og allir dansa með þeim kringum skreytt
jólatré og þiggja eitthvert góðgæti úr pokanum hjá sveinka.
Ljósmyndasafnið óskar öllum gleðilegra jóla og friðar og farsældar
á komandi tímum.
Um leið þakkar safnið öllum þeim sem sýnt hafa því áhuga og
velvilja, til dæmis með að senda inn ábendingar og leiðréttingar
vegna mynda safnsins.
Einnig þökkum við þeim sem hafa laumað að okkur myndum úr
einkasafni sínu. Þannig myndum er öllum skilað aftur til eigenda
eftir að hafa verið settar út á netið svo aðrir geti notið þeirra.
Jól
Jól, kertaljós í bláum fjarska, bak við ár, æskuminning um fegurð.
Stíg ég hreinn upp úr bala á eldhúsgólfinu, signdur af þreyttri móður, færður í nýja skyrtu.
Jól, fagnaðartár fátæks barns -
(Höf.:Jón úr Vör)
(Höf.:Jón úr Vör)
16.12.2015
Vegna jóla og áramóta verður ekki opið í blóðprufur miðvikudagana 23/12 og 30/12 2015.
Bendum fólki á að opið er mánudaga og þriðjudaga eins og venjulega milli kl 08:OO og 09:00.
Ásdís H. Arinbjarnardóttir
Yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu
Staðarumsjón Blönduósi
The Health Care Institution of North Iceland
16.12.2015
Sveitarstjórn Skagstrandar afgreiddi fjárhagsáætlun 2016-2019 á fundi sínum 14. desember sl.
Fjárhagsáætlun ársins 2016 er afgreidd með jákvæðri niðurstöðu, bæði í A og B hluta samstæðu.
Í rekstraryfirliti áætlunar 2016 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 560.793 þús., þar af eru skatttekjur 391.744 þús. og rekstrartekjur 170.435 þús. Rekstrargjöld eru áætluð 565.854 þús. þar af kostnaður vegna launa áætlaður 241.827 þús. Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 9.181 þús. Í sjóðstreymi áætlunar er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri samstæðu verði jákvætt um 59.438 þús. Samanlagðar fjárfestingahreyfingar eru áætlaðar 52.950 þús. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er áætlað að handbært fé lækki um 3.512 þús. og handbært fé verði í árslok 595.931 þús. Í áætlun áranna 2017-2019 er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðu öll árin.
15.12.2015
Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf fagnar 25 ára afmæli sínu á árinu 2015. Af því tilefni lét fyrirtækið útbúa margnota burðarpoka með ýmsum áletrunum sem rekja má til ummæla viðskiptavina og starfsmanna fyrirtækisins.
Pokanum verður dreift á öll heimili í Austur Húnavatnssýslu sem hefur verið starfssvæði fyrirtækisins í 25 ár. Með gjöfinni vill Sorphreinsun VH. minna á hvetja til endurnýtingar og minnkunar á einnota burðarpokum úr plasti.
Vilhelm afhenti Magnúsi sveitarstjóra fyrsta pokann með þeim ummælum að fyrirtæki hans hafi tekið fyrsta sorppokann á Skagaströnd fyrir 25 árum og því vilji hann hefja afhendingu burðarpokanna hjá sveitarfélaginu
12.12.2015
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 14. desember 2015 kl 1700 í kaffi Bjarmanesi.
Dagskrá:
Fjáhagsáætlun 2016 - 2019 (seinni umræða)
Álagningarreglur fasteignagjalda 2016
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi
Bréf:
Fundarboð á aðalfund Róta bs.
Flokkun Eyjafjörður ehf, dags. 6. nóvember 2015
Rauða krossins á Skagaströnd dags. 1. desember 2015
Innanríkisráðuneytisins. dags. 30. nóvember 2015
Stjórnar Snorrasjóðs, dags 30. október 2015
Innanríkisráðuneytis, dags. 23. nóvember 2015
Húnaþings vestra, dags. 24. júní 2015
Fundargerðir:
Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún 27.07.2015
Fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu 2016
Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 23.11.2015
Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla 2016
Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál, 30.11.2015
Fjárhagsáætlun byggðasamlagsins 2016
Stjórnar Róta bs., 30.11.2015
23. ársþings SSNV, 16.10.2105
Samþykktir og þingsköp SSNV
Ályktanir 23. ársþings
Áskorun allra landshlutasamtaka á ráðherra og þinmenn
Hafnasambands Íslands, 16.10.2016
Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 5.11.2015
Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 26.11.2015
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 30.10.2015
Önnur mál
Sveitarstjóri
11.12.2015
Hinir árlegu jólatónleikar skólans verða sem hér segir:
Á Skagaströnd í Hólaneskirkju þriðjudaginn 15.des. kl. 17
Á Húnavöllum miðvikudaginn 16.des. kl. 1530
Á Blönduósi í Blönduósskirkju fimmtudaginn 17.des. kl . 17
Allir velkomnir.
Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 5.jan. samkvæmt stundaskrá.
Skólastjóri
11.12.2015
Göngum við í kringum....
Litlu jól í skólanum eru alltaf tilhlökkunarefni nemenda
og starfsfólks. Þann dag mæta nemendur og kennarar í betri
fötunum í skólann og eiga saman skemmtilega og notalega stund
fyrir jólafríið.
Þessi mynd var tekin á litlu jólunum í Höfðaskóla 1983. Íþróttahúsið var
ekki komið svo þá var gengið syngjandi kringum jólatré á sal í þá nýrri
viðbyggingu við skólann.
Frá hægri: Elísabet Hallbjörnsdóttir, Jóney Gylfadóttir, óþekkt,
Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, óþekktur, Guðmundur Oddsson,
Jóhann Ásgeirsson, Jón Indriðason, óþekktur, Magnús B. Jónsson kennari,
Ingvi Sveinn Eðvarðsson, Kristjana Jónsdóttir, óþekkt,
Sigríður Ásgeirsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir,
óþekktar stúlkur en lengst til vinstri er Þorbjörg Eðvarðsdóttir.