04.09.2014
Rauði krossinn á Skagaströnd ætlar að Ganga til góðs fimmtudagskvöldið 4. september. Vonumst við til þess að Skagstrendingar taki vel á móti söfnunarfólki okkar. Allir eru velkomnir að taka þátt í þessari göngu með okkur, nánari upplýsingar og skráning hjá Sigrúnu í síma 8972884.
Með bestu kveðju
Rauði krossinn á Skagaströnd
25.08.2014
Ég mun láta af störfum fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd um næstu mánaðarmót, ég þakka fyrir góð viðkynni og gott samstarf á síðustu þremur árum og óska ykkur velfarnaðar í framtíðinni.
Ingvar Gýgjar Sigurðarson
25.08.2014
6 vikna ZUMBA námskeið að hefjast á Skagaströnd
8. september í félagsheimilinu Fellsborg ef næg þátttaka næst
Tímarnir eru á mánudögum og miðvikudögum kl:19:00-20:00
Verð fyrir námskeiðið er 15.000 kr
Kennari: Linda Björk Ævarsdóttir alþjóðlegur Zumba kennari.
KOMDU MEÐ OKKUR !
DANSAÐU ÞIG Í FORM
Zumba er sérlega skemmtileg hreyfing sem hentar öllum aldri en þar er blandað saman dansi og fitness við sjóðheita suður-ameríska tónlist. Kenndir eru dansar eins og salsa, merengue, reggateon, cumbia og bollywood ,bhangra og fleira .
Hver tími er sannkallað partý sem bætir bæði andlega og líkamlega líðan.
ZUMBA er það vinsælasta í dag - Hörkubrennsla
Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap.
Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna og að sjálfsögðu bæði kynin.
Greiðsla námskeiðsgjalda skal lokið fyrir 5.sept 2014 Skráning á lindabj@simnet.is eða í síma: 4522945 fyrir 2.sept 2014
Dönsum af gleði og krafti á nýju ZUMBAHAUSTI !
25.08.2014
Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 5. september 2014. Seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 12.september 2014. Eftirleitir verða 19.september 2014.
Gangnaforingi er Jón Heiðar Jónsson
Réttarstjóri í fjárrétt Hrönn Árnadóttir
Réttarstjóri í hrossarétt er Rúnar Jósepsson
Farið fram Hrafndal og fram í Ármót, vestur Brandaskarð með hreppagirðingu að norðan. Spákonufellsborg að sunnanverðu að Hrafná að Fellsrétt. Undanskilin er skógræktargirðing.
Í borgina leggi eftirtaldir til menn:
Fyrri göngur Seinni göngur
Jón Heiðar Jónsson 1 1
Hallgrímur Hjaltason 3 2
Magnús Guðmannsson 1 1
Guðjón Ingimarsson 1
Jóhann Ásgeirsson 1 1
Vignir Sveinsson 1 1
Rúnar og Hrönn 2 1
Árni Halldór 1 1
Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.
Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“
Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnssýslu.
Fjallskilanefnd Skagabyggðar, Skagabúð 21.ágúst 2014
15.08.2014
Ráðstefna um auðlindir standmenningar
verður í Fellsborg Skagaströnd laugardaginn 16. ágúst 2014 kl 9.00 – 16.00.
Dagskrá ráðstefnunnar sem nefnist Rusl - RASK er:
09:15 Opnun ráðstefnunnar
Adolf H. Berndsen, oddviti Skagastrandar
09:30 “Fram með ruslið,” RASK verkefnið kynnt
Heidi Rognskog and Mona Eckhoff, listamenn og verkefnisstjórar
09:15 Menningarverkefni í litlu samfélagi
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Skagaströnd
09:45 Nes listamiðstöð
Hrafnhildur Sigurðardóttir, listamaður og stjórnarmaður í Nes listamiðstöð
0:15 Sjálfbærni í vanþakklátum heimi
Mark Swilling, prófessor við Stellenbosch háskóla
11:00 Kaffihlé
11:15 Staðblær í samfélögum og sjálfboðastarf
Laila Skaret, menningarfulltrúi í sveitarfélaginu Smøla
11:35 Innri og ytri landakort
Hilde Rognskog, listamaður
12:00 Hádegisverður
12: 45 “Stórar frásagnir vaxa upp á litlum stöðum”
Olav Juul fyrrv. bæjarstjóri í sveitarfélaginu Læsø
13:15 Draumalandið
Andi Snær Magnason, rithöfundur og aðgerðarsinni
14:30 Upplifun af samfélögum – ímynd og áhrif
Selma Dôgg Sigurjónsdóttir – Nýsköpunarmiðstöð Íslands
15:15 Samantekt og lok ráðstefnu
Ráðstefnan er öllum opin og þeir sem hafa áhuga á nýjum hugmyndum, skapandi hugsun og listrænni nálgun ættu ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara.
15.08.2014
Verkefninu "Fram með ruslið" sem unnið er á Skagaströnd, lýkur með sýningu í Sundlaug Skagastrandar sem opnar kl 17.00 föstudaginn 15. ágúst og ráðstefnu um listir og hið ónýtta efni sem verður haldin í félagsheimilinu Fellsborg 16. ágúst kl 9.00 – 16.00. Minnt er á að ráðstefnan er öllum opin og fólk hvatt til að fylgjast með umræðum og kynningum sem þar verða.
Vegna þeirrar grósku sem er í listum og listsýningum núna í ágústmánuði hefur verið gerð sýningarskrá yfir það sem hægt er að sjá og upplifa í þeim efnum á Skagaströnd:
Sundlaug Skagastrandar / Swimming Pool
Fram með ruslið / Bring Out the Thrash
Listamenn frá Íslandi, Danmörku og Noregi
Artists from Iceland, Denmark and Norway
Hólanessvæði / Hólanes Area
Goð og gróður / Gods and Flora
Myndverk úr járni eftir Erlend Finnboga Magnússon
Sculptures by Erlendur Finnbogi Magnússon
Hafnarhúsið / Harbour area
Samruni / Fusion
Ljósmyndasýning Vigdísar H. Viggósdóttur
Photos by Vigdís H. Viggósdóttir
Café Bjarmanes
Icelandic Wilderness / Náttúra Íslands
Ljósmyndasýning James Kennedy
Photos by James Kennedy
Café Bjarmanes & Árnes
A Place within a Space / Staður og stund
Innsetning: Andreas Jari Juhani Toriseva
Installation by Andreas Jari Juhani Toriseva
Hólanessvæði / Hólanes Area
Skagaströnd í nýju ljósi / Skagaströnd 2010
Myndir frá ljósmyndasamkeppni árið 2010
Photos from Skagaströnd 2010
SamkaupÚrval / Grocery Store
Síldin kom og síldin fór / The Herring Era
Ljósmyndir Guðmundar Guðnasonar af síldarvinnslu
á Skagaströnd um 1960
Photos by Guðmundur Guðnason from 1960
Hafnarsvæði / Harbour Area
Sjómenn / Fishermen
Tvær veggmyndir Guido Van Helten
Two Murals by Guido Van Helten
Hólanessvæði / Hólanes Area
Laupur / Raven‘s Nest
Skúlptúr eftir Erlend Finnboga Magnússon
Sculpture by Erlendur Finnbogi Magnússon
Nes listamiðstöð / Nes Artist Residency
Opið hús / Open House
Opið hús föstudaginn 15. ágúst, kl. 15:30-17:00 og
laugardaginn 16. ágúst, kl. 16 (japönsk teathöfn)
Open House, Friday, 15:30-17:00, and Saturday,
15.08.2014
verður haldin fimmta árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 14. - 16. ágúst 2014.
Eftir skort á rafmagni í morgun og frameftir degi er nú brostið á mikið stuð á Sauðárkróki. Rafmagnsguðirnir brostuð við okkur og við erum þess vegna hætt við að hætta við sólóistakvöldið. Tónlistarhátíðin Gæran 2014 hefst því með miklum látum á slaginu 21:00 í kvöld á skemmtistaðnum Mælifelli. Húsið opnar kl. 20:00 og það kostar 1.000kr inn. Kynnir kvöldsins verður sjónvarpskonan Hilda Jana Gísladóttir.
Það eru rúmlega 100 hæfileikaríkir tónlistarmenn sem skipa þau 24 tónlistaratriði sem koma fram á hátíðinni. Þar á meðal eru heitustu nöfn dagsins í dag ásamt stærstu nöfnum morgundagsins. Sauðárkrókur iðar af lífi þegar Tónlistarhátíðin Gæran stendur yfir og er þetta upplifun sem engin má missa af!
Dagskrá hátíðarinnar:
Fimmtudagur:
Fúsi Ben & Vordísin
Val-kirja
Joe Dubius
Bergmál
Hlynur Ben
Föstudagur:
20:00 Una Stef
20:30 Sjálfsprottin Spévísi
21:00 Klassart
21:30 Johnny and the rest
22:00 Boogie Trouble
22:30 The Bangoura Band
23:00 Myrká
23:30 Himbrim
24:00 Úlfur Úlfur
Laugardagur:
20:00 Sunny Side Road
20:30 Kiriyama family
21:00 Skúli Mennski
21:30 Beebee and the bluebirds
22:00 Kvika
22:30 Rúnar Þóris
23:00 Nykur
23:30 Reykjavíkurdætur
00:00 Dimma
00:30 Mafama
Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkustund síðar. Við minnum á að það er 18 ára aldurstakmark á hátíðina en yngri tónlistarunnendur eru velkomnir í fylgd með foreldri/forráðamanni, 12 ára og yngri fá frítt inn.
Miðasala er hafin á midi.is og í Gestastofu Sútarans á Sauðárkróki og kostar einungis 6.500kr inn á hátíðina. Hægt er að kaupa sig inn á stakt kvöld (fös&lau) á staðnum á 4.000kr.
Bestu kveðjur frá Sauðárkróki!
Laufey Kristín s. 823 8087
Sigurlaug Vordís s. 618 7601
14.08.2014
Þetta er linkurinn inn á nýju heimasíðuna og þar eru uppl. um skólasetningu og uppfærðir innkaupalistar.
http://hofdaskoli.wix.com/hofdaskoli
14.08.2014
verður í kirkjunni 22.ágúst n.k. kl. 10.00.
Nemendur fara svo með sínum umsjónakennara í heimastofu og fá þar stundaskrá o.fl.
Skóli hefst skv. stundaskrá mánudaginn 25.ágúst og Frístund sömuleiðis.
Innkaupalista getið þið nálgast á nýrri heimasíðu Höfðaskóla: http://hofdaskoli.wix.com/hofdaskoli
Kveðja
Skólastjóri
13.08.2014
Við Höfðaskóla er laus
50% staða við Frístund.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 12:00 – 16:00.
Umsækjendur þurfa að hafa gaman af að vinna með börnum, vera þolinmóðir, ákveðnir og sjálfstæðir í starfi.
Umsóknir berist á skrifstofu skólastjóra eða á netfangið hofdaskoli@skagastrond.is
fyrir miðvikudaginn 20. ágúst 2014.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
í síma 452 2800 eða gsm 8624950.
Skólastjóri