02.10.2014
Þann 29 september s.l. hófst alþjóðleg Hreyfivika um allann heim. Ungmennafélag Íslands UMFÍ stóð að skipulagningu Hreyfivikunnar á Íslandi.
Zumba með Lindu Björk stóð fyrir viðburði á Skagaströnd og Sauðárkróki en það voru Zumbavinatímar á báðum stöðum og allir velkomnir með í Zumbafjörið.
Á meðfylgjandi mynd eru hressar Zumbaskvísur á Skagaströnd eftir fjörugan Zumbatíma.
30.09.2014
Sveitarstjórn Skagstrandar fjallaði um stöðu hitaveitumála á fundi sínum 12. september sl. Fyrir fundinum lá minnisblað sveitarstjóra um hitaveitumál. Í því kemur fram að um 63% húsnæðis á Skagaströnd var tengt hitaveitu í byrjun september og reiknað með að um 82% verði tengdir næsta vor. Einnig kemur fram að niðurgreiðslur á raforku til húshitunar féllu niður frá og með 1. september sl.
Þá var fjallað um kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins í ofnakaupum og hönnunarkostnaði sem giltu til 1. september sl
samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar 19. maí 2014.
Þegar ákveðið var að setja sólarlagsákvæði 1. september taldi sveitarstjórn líklegt að flestar eignir sem á annað borð ætluðu að nýta sér hitaveituna myndu verða tengdar. Í ljós kom að sumarið nýttist fremur illa til pípulagna vegna sumarleyfa og álags á pípulagnamenn. .
Í ljósi þess að hitaveitutengingar hafa gengið hægar en upphaflega var áætlað af ýmsum ástæðum samþykkti sveitarstjórn að framlengja gildistíma reglna um kostnaðarþátttöku til 1. maí 2015 en samþykkti jafnframt að ekki verði um frekari framlengingar að ræða.
Reglur um kostnaðarþátttökuna má finna hér.
29.09.2014
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi auglýsir árlega inflúensubólusetningu 2014
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi
Mánudaginn 6/10 kl: 11:30-13:00
Miðvikudaginn 8/10 kl: 13:00-15:00
Mánudaginn 13/10 kl: 14:00-15:00
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd
Þriðjudaginn 7/10 kl: 11:00-12:30
Þriðjudaginn 14/10 kl: 9:00-10:00
Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir áhættuhópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.
Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.
26.09.2014
Skíðamennska
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp
togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð
að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi
skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn
gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél.
Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest
hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél
og tengt við drifúttak vélarinnar.
Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna.
Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna
öryggismála.
1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið
norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár.
Maðurinn í úlpunni sem stendur við kaðalinn er Ásgeir Axelsson
(d. 8.6.2011) en hann átti dráttarvélina og stjórnaði henni.
Ásgeir var með spotta í hendinni sem tengdur var við ádrepara
vélarinnar til að geta drepið á og þannig stoppað kaðalinn ef
á þurfti að halda.
24.09.2014
Aðalfundur foreldrafélags Höfðaskóla
verður haldinn
miðvikudaginn 8. október 2014 kl. 20:00
í Höfðaskóla.
Dagskrá fundarins:
Skýrsla formanns
Reikningar lagðir fram
Kosning nýrrar stjórnar
Kosning í fræðsluráð og skólaráð
Önnur mál
Stjórnin
22.09.2014
Sundlaugin verður opin mán-föst kl.17-20 og laugardaga kl.13-16. Lokað á sunnudögum
Þessi opnun verður til og með 30. sept.
Sundlaugavörður
22.09.2014
Ferðamálafélag A- Hún heldur fund á Hótel Blönduós þriðjudaginn 23. sept. kl: 17:00
Nýr starfsmaður ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra, Hildur Þóra Magnúsdóttir,verður kynntur til sögunnar og mun hún einnig segja frá ferð sinni á Birdfari fuglaskoðunarsýninguna í Bretlandi.
Hildur Þóra mun líka fara yfir hvaða sjóðir eru opnir fyrir styrkumsóknir og fl.
Rætt verður um framkvæmd og þátttöku ferðaþjónustuaðila á svæðinu í haustferð Markaðsskrifstofu Norðurlands sem haldin verður í A- Hún. nú í október.
Hlökkum til að sjá þig.
Stjórn Ferðamálafélags A- Hún.
20.09.2014
Vígsla listaverksins Sólúrs
Í dag laugardaginn 20. september kl 14.00 verður listaverkið Sólúr sem reist hefur verið á torgi í miðju Skagastrandar formlega vígt.
Listaverkið er eftir hinn þjóðkunna listamann Magnús Pálsson og er tilvísun í samspil tímans og sólargangsins þar sem gömul eyktarmörk eru í heiðri höfð. Verkið samanstendur af fjórum stuðlabergsstöplum sem eru sniðnir þannig til að rauf á milli þeirra getur varpað geislum sólar niður á eyktarmörk. Geisli sólar í hásuðri fellur t.d. á „hádegi“ sem er markað í stétt í kringum verkið. Á stuðlabergsdrangana er rist stórum stöfum: „Tíminn er eins og vatnið og vatnið er djúpt og kalt“.
Listskreytingasjóður ríkisins leggur verkið til og mun afhenda það formlega en verkið verður vígt með afhjúpun á skildi með nafni verksins og listamannsins.
Magnús Pálsson hefur verið einn helsti þátttakandi í nýrri skilgreiningu á hugtakinu list í íslenskri myndlist, sem hugmyndasmiður og lærimeistari. Hugmyndaleg listsköpun hans hefur alltaf verið afar persónuleg. Hann hættir aldrei að koma á óvart með verkum sínum.
Magnús fór að láta að sér kveða í íslensku listalífi á árunum milli 1960 og 1970 eftir að hafa verið í listaskólum í Reykjavík og Austurríki og lært að búa til leikmyndir í Englandi. Á þessum árum urðu miklar breytingar í íslensku listalífi. Hann og aðrir listamenn sem þá voru að koma fram á sjónarsviðið litu öðrum augum á myndlistina en áður hafði verið gert og fóru allt aðrar leiðir. Þeir voru kallaðir nýlistamenn. Magnús Pálsson er einn af þeim listamönnum sem hefur notið meiri og meiri viðurkenningar, bæði innan lands og utan eftir því sem hann hefur lagt listinni til fleiri verk.
19.09.2014
Síldin kemur og síldin fer
7. mars 1987 frumsýndi Leikklúbbur Skagastrandar
leikritið: Síldin kemur og síldin fer í Fellsborg undir leikstjórn
Þrastar Guðbjartssonar.
26 leikarar komu fram í þessari vinsælu leiksýningunni og á
þessari mynd eru nokkrir þeirra í hlutverkum sínum.
Talið frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson,
Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir,
Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Sigrún Jónsdóttir,
Rut Jónasdóttir, Herborg Þorlásdóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Hamónikuleikarinn sem sér í hægra megin við Vigdísi er
Þórhildur Jakobsdóttir.
Leikritið var sýnt á Skagaströnd og í nágrannabyggðunum við
góðar undirtektir.
19.09.2014
Skagastrandarhöfn – snyrtiaðstaða – wc og sturtur.
Töluverð umferð smárra og stórra báta er um Skagastrandarhöfn og flestir þeirra koma til að landa afla. Skagastrandarhöfn er í samkeppni við aðrar nálægar hafnir varðandi það að sjómenn á þessum bátum velji að hafa hér aðsetur. Fiskmarkaðurinn er t.d. í harðri samkeppni við fiskmarkaðinn á Siglufirði um viðskiptabáta og því skiptir miklu máli að öll aðstaða fyrir sjómennina sé sem best. Skagastrandarhöfn fær svo auðvitað hafnar- og aflagjöld af bátunum sem styrkir rekstur hennar. Ýmsir þættir skipta máli í því hvar sjómenn kjósa að hafa aðstöðu og má þar nefna verslun, veitingar, afþreyingu og snyrtiaðstöðu.
Eitt atriði í þessu sambandi ætla ég að gera að umtalsefni en það er aðstaða sjómanna á þessum bátum varðandi það að komast á klósett og í sturtu. Hér á ég einkum við sjómennina á smærri bátunum sem oft geta skipt tugum. Á hafnarsvæðinu er engin aðstaða á þessu sviði utan þess að þeir eiga kost á að fara á wc í fyrrum verkstæðishúsi SR. Sú aðstaða er á engan hátt fullnægjandi auk þess að menn þræða þar inn á milli ýmiskonar véla, tækja o.fl. til að komast leiðar sinnar. Það að geta t.d. komist í heita og góða sturtu þegar komið er í land, hvort heldur er á nóttu eða degi, getur beinlínis ráðið því í hvaða átt stefna bátsins er sett.
Á þessu sumri ferðaðist ég sem oftar um landið og skoðaði m.a. hvernig snyrtiaðstaðan er á nokkrum höfnum. Sérstaka athygli mína vakti aðstaðan sem Djúpavogur býr þeim fjölmörgu sjómönnum sem þangað sækja en hún er til mikillar fyrirmyndar. Jafnframt er aðstaðan mikið notuð af ferðafólki enda almennt WC merki fyrir allra augum.
Ég lít svo á að það þurfi að koma upp aðstöðu á hafnarsvæðinu þar sem væri að finna a.m.k. tvö til þrjú klósett og tvær góðar sturtur sem myndu þjóna núverandi umsvifum og líklega vaxandi fjölda ferðafólks sem kæmi til Skagastrandar.
Lausnin sem ég sé í þessu væri að fá til afnota kyndiklefa Bátanausts við hlið fiskmarkaðarins en hann gæti verið heppilegur til að koma þessari aðstöðu fyrir og er nánast ekkert notaður. Auk þess er hann ágætlega staðsettur hvað svæðið snertir og gott WC merki myndi gera öllum ljóst hvað þar væri að finna.
Er þetta ekki gott verkefni fyrir hafnar- og skipulagsnefnd að takast á við í samvinnu við sveitarstjórnina og stefnt verði á að aðstaðan verði tilbúin fljótlega á nýju ári?
Lárus Ægir Guðmundsson