21.08.2006
Byggingu heilsugæslu á Skagaströnd er lokið og fór lokaúttekt fram föstudaginn 11. ágúst 2006.
Byggingin stendur austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. Húsið er 267 m² timburhús, byggt á steyptri grunnplötu með sökkulbitum. Kemur þessi aðstaða í stað þeirrar sem heilsugæslan hefur haft til afnota á Skagaströnd og mun hýsa skrifstofu læknis og hjúkrunarfræðings ásamt tilheyrandi aðgerða- og rannsóknarstofu, sjúkraþjálfun, auk móttöku og biðstofu.
Á verkefniskynningu FSR er fjallað nánar um verkefnið.
(Frétt á www.fsr.is )
03.08.2006
Opna KB banka mótið/minningarmót um Karl Berndsen verður laugardaginn 19. ágúst.
Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar í karla og kvennaflokki.
Skráning á www.golf.is og í síma 8925089.
Golfklúbbur Skagastrandar(GSK)
02.08.2006
Undirbúningur fyrir fjölskylduhátíðina “Kántrýdagar á Skagaströnd” er vel á veg komin. Stefnt er að því að skapa notalega og skemmtilega fjölskyldustemningu sem hefst á föstudagskvöldi með því að gestum og gangandi verður boðið í sjávarréttasúpu í tjaldi á hátíðarsvæðinu. Súpan verður að hætti Steindórs meistarkokks sem er sérfræðingur í sjávarréttum og heimsmeistari í pizzubakstri. Laugardaginn 19. ágúst verður ýmislegt til skemmtunar svo sem dagskrá fyrir yngri kynslóðina um sem hefst kl 11 með dorgveiðikeppni. Um miðjan daginn verður fjölskylduskemmtun á palli þar sem boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði undir stjórn hinnar landskunnu Helgu Brögu. Á laugardagskvöldi verður síðan dagskrá á palli þar sem ýmsir góðir skemmtikraftar munu koma fram. Bæði á föstudags og laugardagskvöldi verða dansleikir og kántrýstemming í Kántrýbæ. Ekki liggur fyrir hvort hin góðkunna gospelmessa verður á sunnudeginum en það mun skýrast á næstu dögum.
Leiktæki fyrir börn verða á hátíðarsvæðinu og verða sett upp á föstudag kl 18 og eftir hádegi á laugardag og fram eftir kvöldi.
Unnið er að útgáfu dagskrár hátíðarinnar og verður hún send í hús í héraðinu á næstu dögum og birt með ýmsum hætti.
28.07.2006
Það var mikið um að vera í kofahverfinu hjá krökkunum á Skagaströnd þegar þau fengu málningu til að mála nýju húsin sín. Krakkarnir hafa í sumar verið á námskeiði á vegum ungmennafélagsins og Höfðahrepps þar sem settir voru upp skólagarðar, unnið við kofasmíði og farið í íþróttir og leiki. Í skólagörðunum sem eru rétt við kofana hafa verið settar niður matjurtir og kennd umhriða matjurtagarða. Um daginn var farið í vettvangsferð upp í Hrafndal þar sem m.a. var haldinn fleytikeppni á ánni og keppt í hver ætti hraðskreiðustu fleytuna. Krakkarnir mættu með alls kyns leikföng sem hægt var að láta fljóta og nýttu sér strauminn til að koma þeim í mark. Umsjónarmenn með námskeiðinu eru Birna Sveinsdóttir og Elva Þórisdóttir. Námskeiðið hefur verið tvo tíma á dag þrjá daga í viku fyrir börn á aldrinum 6-13 ára.
(Ljósm. Herdís J.)
18.07.2006
Nú ætlar Hljómsveitin Janus að ríða í hlað og koma í Kántrýbæ á Föstudagskvöldið 21. júlí og leika nokkur létt lög og rifja upp gömlu taktana. - Síðast þegar Hljómsveitin lék í Kántrýbæ var alveg kjaftfullt hús af fólki á öllum aldri og ætlaði allt um koll að keyra og það verður það vafalaust einnig,á Föstudaginn kemur.
Við drengirnir í hljómsveitinni Janus erum núna þessir: Gummi Jóns aðalsprautan,Hjörtur Guðbjarts,Fannar Viggós,Þórarinn Grétars,Þorvaldur Skafta og Kristján Blöndal,
en fyrir svo sem tuttugu árum þá spiluðum við á nokkrum dansleikjum á Skagaströnd og tókst það ágætlega því Gummi lét okkur æfa svolítið og myndaðist þá þessi skemmtilega kemestría svokallaða þegar menn ná almennt vel saman í samspili jafnt tóna sem og í húmor og samræðum.
Því er gaman að að tala um það að nú erum við að koma saman aftur eftir langan tíma fyrst á Kántrýhátíðinni 2001 á útisviðinu sem var feykilega gaman og svo næst í Kántrýbæ í Okt.2004 og svo núna síðast í Kántrý í Nóv.2005.
Það er tilvalið fyrir ferðamenn að skjótast á Skagaströnd og tjalda á frábæru tjaldstæði og mæta svo í Kántrýbæ á Föstudagskvöldið.
Það eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Bestu þakkir.
Kristján Blöndal.
05.07.2006
Laugardaginn 1.júlí 2006 hélt Landsbankinn veislu vegna 120 ára afmælis bankans.
Haldið var upp á afmælið í útibúum bankans um allt land. Fjöldi fólks tók þátt í gleðinni með okkur á Skagaströnd í góðu veðri. Hugrún og Jón Ólafur spiluðu fyrir okkur og Eygló söng.
Farið var í leiki, sem Calle sá um og Adolf Hjörvar stjórnaði minigolf-móti. Laufey Inga og Silfá máluðu krakkana. Gunnar og Ómar Ingi grilluðu pylsur og inni í banka var boðið upp á afmælistertu og kaffi. Við þökkum öllum sem komu og nutu dagsins með okkur.
Starfsfólk
Landsbanka Íslands hf
Skagaströnd
28.06.2006
Fréttatilkynning
Meginstarfsemi Fæðingarorlofssjóðs flutt til Hvammstanga
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að meginstarfsemi Fæðingarorlofssjóðs verði staðsett á Hvammstanga. Frá 1. janúar 2007 flyst starfsemi sjóðsins til Vinnumálastofnunar og hefur ráðherra við þessa ákvörðun falið forstjóra Vinnumálastofnunar og starfsmönnum hans að undirbúa flutninginn.
Gert er ráð fyrir að um 10 stöðugildi verði við starfsemi sjóðsins á Hvammstanga. Á fjárlögum fyrir árið 2006 er gert ráð fyrir 7 milljörðum króna til greiðslu fæðingarorlofs og eru viðskiptavinir sjóðsins á milli sjö og átta þúsund á ári hverju.
Umsýsla atvinnuleysistrygginga flutt til Skagastrandar
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að umsýsla atvinnuleysistrygginga fari fram og verði staðsett á Skagaströnd. Með gildistöku nýrra laga þann 1. júlí næstkomandi um atvinnuleysistryggingar mun Vinnumálastofnun annast alla stjórnsýslu og umsýslu atvinnuleysistrygginga samkvæmt sérstökum samningi við stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Með þessum breytingum er ætlunin að tryggja enn betur hagræði, samræmi og faglegri vinnubrögð við ákvörðun um rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins og umsýsla fari fram á einum stað fyrir landið allt í stað margra áður.
Gert er ráð fyrir að um 6–8 stöðugildi verði við starfsemi í reiknistofu atvinnuleysistrygginga.
Heimild: Fréttavefur Félagsmálaráðuneytis
25.06.2006
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps miðvikudaginn 28. júní 2006 á skrifstofu hreppsins kl 1600.
Dagskrá:
1. Kosning oddvita og varaoddvita
2. Tillaga um ráðningu sveitarstjóra
3. Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp hreppsnefndar
4. Kosning í nefndir, ráð og stjórnir
5. Önnur mál
Sveitarstjóri
20.06.2006
Í morgun, 20 júní hófst frístundastarf á vegum UMF Fram og Höfðahrepps. Námseiðið mun standa í 8 vikur eða fram til 17. ágúst og verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl: 10:00 - 12:00. Starfið er opið fyrir börn fædd á árunum 1993 - 2000. Það verða meðal annars gróðursettar matjutir, smíðaðir kofar, farið í íþróttir og leiki ásamt ýmis konar vettvangsferðum. Starfsemin mun fara fram á íþróttavellinum og sunnan hans.
Fyrstu vikuna er mest hugað að undirbúningi á matjurtagörðum og gróðursetningu svo að stígvél og hlífðarfatnaður kemur sér vel.
P.S. Ágætu foreldrar, ömmur, afar, frænkur, frændur og aðrir bæjarbúar Börnin hafa mjög gaman af því að hafa fullorðna með í leik og starfi. Því þætti okkur vænt um að þið gæfuð ykkur tíma til að koma og starfa með okkur og börnunum stund og stund eða dag og dag. Sérstaklega væri gaman að fá fólk með "græna fingur" núna fyrstu dagana, börnunum til aðstoðar.
20.06.2006
Í gær var kynnt á Evrópska efnahagssvæðinu forval vegna framkvæmda við áframhaldandi uppbyggingu á GSM farsímakerfinu á hringveginum og fimm fjallvegum. Eru þessir vegarkaflar samanlagt um 500 km.
Meðal kafla þar sem sambandið verður bætt má nefna Norðurárdalur, Öxnadalsheiði, Möðrudalsöræfi, Jökuldalur, Skriðdalur og Breiðdalur, Hvalnesskriður, Öræfi og Sólheimasandur. Auk þessara kafla á hringveginum verður GSM-samband bætt á fimm fjallvegum: Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þverárfjalli, Fjarðarheiði og Fagradal. Þessir fjallvegir eru meðal annars valdir út frá slysatíðni og meðalumferð á sólarhring.
Auk þessara svæða sem þarna eru nefnd eru í útboðinu nokkur svæðum í Húnaþingi sem eru sambandslaus eins og t.d. við Bólastaðarhlíð, kaflinn frá Hólabaki að Stóru Giljá svo og dauðir kaflar Húnaþingi vestra.
2,5 milljörðum króna, sem er hluti af söluandvirði Símans, verður varið til að hrinda fjarskiptaáætluninni í framkvæmd og er GSM-útboðið fyrsta verkefnið sem fjarskiptasjóður ýtir úr vör. Fjarskiptaáætlunin gerir ráð fyrir að GSM-farsímanetið verði þétt þar sem það gegni mikilvægu hlutverki sem öryggistæki fyrir almenning, ekki síst á fáförnum köflum á þjóðvegum landsins. Í næsta áfanga verður hugað að því að bæta sambandið víðar á stofnvegum landsins og við helstu ferðamannastaði.
Forvalið verður auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og þeir sem áhuga hafa á þátttöku skulu skila tilkynningu sinni til Ríkiskaupa. Þar sem gera verður ráð fyrir rúmum tíma fyrir allt útboðsferlið er áætlað að verksamningur verði undirritaður í byrjun næsta árs. Meðfylgjandi kort (pdf) sýnir svæðin þar sem boðin verða út. Heimild: www.stjr.is
Frétt af www.huni.is