09.03.2006
Listsýning barnanna á Barnabóli Skagaströnd
í Landsbanka Íslands.
Þema árlegrar listsýningar barnanna á Barnabóli í Landsbankanum er að þessu sinni helguð styttum bæjarins. Börnin á eldri deildinni byrjuðu á að skoða listaverkabók og styttuna póstdrenginn og björnin sem eru til á leikskólanum. Síðan var farið út í bæ að leita að og skoða styttur en það fundust engar styttur í bænum okkar. Aftur á móti fundu börnin fullt af alls konar minnismerkjum t.d. totem-indjánasúlu sem indjánar staðarins nota trúlega sem tilbeiðslutákn. Þau fundu minnismerki um drukknaða sjómenn og það varð uppspretta mikilla vangaveltna um lífið og tilveruna. Börnin fundu hestastein og einn drengurinn er viss um að þar sé grafinn hestur og að þetta sé hestalegsteinn, að lokum fóru þau í útbæinn og sáu Semingssteininn.
Það er því ljóst að það er fullt af listarverkum í umhverfi okkar þó rómverskar styttur finnist þar ekki. Og til að bæta úr þessu brugðu börnin yfir sig hvítu laki, settu sig í styttustellingar og síðan voru teknar myndir af þeim.
Yngri börnin stilltu sér upp sem prófílstyttur við spegill og síðan var tekinn „tvöföld mynd“ af þeim og nú er það ykkar, gestir góðir, að ráða í hvaða ungu Skagstrendingar þetta eru um leið og þið skoðið sýninguna.
Verði velkomin á styttusýningu leikskólabarna í Landsbankanum á Skagaströnd
Krakkarnir og starfsfólk leikskólans Barnabóls
27.02.2006
Laugardagskvöldið 25. febrúar sl. voru haldnir tónleikar til styrktar Dóru Sveinbjörnsdóttur í félagsheimilinu Fellsborg en Dóra hefur greinst með alvarlegan sjúkdóm. Á tónleikunum komu fram eftirtaldir tónlistamenn:
Guðmundur Jónsson
Hjörtur Guðbjartsson
Hafþór Gylfason
Þórarinn Grétarsson
Hans Birgir Högnason
Angela Basombrio
Birkir Rafn Gíslason
Jón Ólafur Sigurjónsson
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
Eygló Amelía Valdimarsdóttir
Þorvaldur Skaftason
Anna Skaftadóttir
Viggó Brynjólfsson
Hljómsveitin Spor
Kirkjukór Hólaneskirkju
Þessir tónlistamenn blönduðust á ýmsa vegu á tónleikunum og fluttu mismunandi gerð tónlistar, allt frá þungu rokki til kirkjutónlistar. Tónleikarnir tókust í alla staði vel og voru vel sóttir. Allir sem að tónleikunum komu gáfu vinnu sína og því rennur allur ágóði til málefnisins.
Tónleikarnir voru haldnir að frumkvæði tónlistarmanna á Skagaströnd en auk þess hefur Lionsklúbbur Skagastrandar staðið að söfnun fyrir sama málefni og hefur opnað söfnunarreikning nr. 0160-26-63000, kt. 700704-3270
22.02.2006
Hreppsnefnd Höfðahrepps og stjórn Rarik hafa samþykkt viljayfirlýsingu þess efnis að stefnt sé að því að leggja hitaveitu frá Reykjum til Skagastrandar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2007 ef nægjanlegt vatn finnst á svæðinu sem nú þegar hefur að hluta til verið virkjað fyrir hitaveitu Blönduóss.
Á undanförnum árum hefur verið leitað að heitu vatni í nágrenni Skagastrandar án þess að viðunandi árangur næðist. Hreppsnefndin fór því þess á leit við Rarik að lögð yrði hitaveita til Skagastrandar.
21.02.2006
Um helgina stóð Lionsklúbbur Skagastrandar fyrir Troskvöldi í Fellsborg. Fram voru bornir 10 sjávarréttir m.a. kúlaður vestfirskur steinbítur, skötustappa í fiðringi og siginn norskur þorskur.
Eldamennska og framreiðsla var öll unnin af klúbbfélögum. Yfirkokkar voru Gunnar Reynisson og Sigurbjörn Björgvinsson. Klúbburinn nýtur þess oft að innan vébanda hans eru frábærir matreiðslumenn.
Fjölmargir gestir voru mættir á Troskvöldið m.a frá Lionsklúbbi Blönduóss. Auk glæsilegs veisluborðs var boðið upp á tónlist og gamanmál. Sr. Gísli Gunnarsson frá Glaumbæ í Skagafirði flutti ræðu kvöldsins.
Þótti Troskvöldið takast mjög vel. Er ljóst að þessi viðburður er að festast í sessi í menningarlífi okkar.
Lionsklúbbur Skagastrandar var stofnaður árið 2004. Hefur klúbburinn þegar beitt sér fyrir mörgum góðum málum. Eitt af stærstu verkefnum klúbbsins í dag er að koma upp útsýnisskífu á Höfðanum.
Formaður Lionsklúbbs Skagastrandar er Guðmundur Finnbogason
13.02.2006
Nú er að hefjast námskeið í skrifstofutækni á vegum sveitarfélaga í Austur Húnavatnssýslu, Svæðisvinnumiðlunar og stéttarfélaga.
Námskeiðið er sett upp í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra og kallað:
Skrifstofubrautin
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga fyrir að bæta stöðu sína með tilliti til þess að ný skrifstofustörf eru væntanleg bæði á Skagaströnd og Blönduósi.
Kennslan fer fram í grunnskólanum á Blönduósi, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl 19.00 – 22.00.
Námið hefst 20. febrúar og stendur til 30. maí 2006.
Ákveðið hefur verið að þeir sem að námskeiðinu standa muni greiða niður kostnað og að hver þátttakandi greiði aðeins 10.000 kr. í námskeiðsgjald.
Á “skrifstofubrautinni” verður lögð áhersla á eftirtaldar námsgreinar:
Sjálfstraust og samskipti
Námstækni
Windows
Fingrasetningu og þjálfun
Ritvinnslu
Töflureikni
Tölvupóst og internet
Verslunarreikning
Bókhald
Þjónusta við viðskiptavini
Framkvæmdaáætlun
Ferilsskrá
Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Svæðisvinnumiðlun á Blönduósi í síma 455 4200 og hjá Farskólanum í síma 455 6010.
Reiknað er með að takmarkaður fjöldi nemenda komist að og eru áhugasamir því hvattir til að skrá sig hið fyrsta.
08.02.2006
Arnar landaði 372 tonnum af frystum afurðum í sl. viku á Skagaströnd, aflaverðmæti var um 115 m.kr. Þess má geta að upp úr sjó var aflinn um 630 tonn. Skipið var 30 daga í túrnum og þar af hafa farið um 23 dagar í veiðar. Afli á veiðidag var því um 27 tonn. Uppistaða aflans var þorskur. Þessi góði afli var sóttur í Barentshaf.
06.02.2006
Ágætu Skagstrendingar og nærsveitamenn
Lionsklúbbur Skagastrandar hefur opnað reikning til styrktar einum af íbúum okkar, Dóru Sveinbjörnsdóttur, sem hefur greinst með alvarlegan sjúkdóm. Baráttan við veikindi og fjarvera frá vinnu mun óhjákvæmilega hafa fjárhagslega erfiðleika í för með sér.
Lionsklúbburinn telur mikilvægt að fólk sem lendir í slíkum erfiðleikum geti nýtt alla sína orku til að ná bata og að þungar fjárhagsáhyggjur trufli ekki batahorfur.
Lionsklúbburinn hefur stofnað reikning nr. 0160-05- 63000 kt. 700704-3270 í Landsbankanum á Skagaströnd þar sem tekið er á móti frjálsum framlögum sem að renna til þessa verkefnis. Tryggt er að ekki verði hægt að rekja hvaðan framlög berast.
Með von um góðar viðtökur
Lionsklúbbur Skagastrandar
04.02.2006
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps mánudaginn 6. febrúar 2005 á skrifstofu hreppsins kl 1630.
Dagskrá:
1. Þriggja ára áætlun Höfðahrepps.
2. Snorraberg ehf
a) Rekstrarreikningur 2005
b) Uppgjör byggingakostnaðar
3. Brunavarnaáætlun slökkviliðs Skagastrandar
4. Bréf:
a) Útflutningsráðs Íslands, dags. 6. janúar 2006.
b) Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 21. desember 2005.
c) Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 26. janúar 2006
d) Varasjóðs húsnæðismála, dags. 4. janúar 2006.
e) Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, dags. 2. janúar 2006.
f) Rarik, dags. 28. desember 2005.
g) Varasjóðs húsnæðismála, dags. 30. desember 2005.
h) Lionsklúbbs Skagastrandar, dags. 28. desember 2005
5. Fundargerðir:
a) Skólanefndar, 9. janúar 2006.
b) Leikskólanefndar, 10. janúar 2006.
c) Héraðsnefndar, 15. desember 2005.
d) Aðalfundar Félagsþjónustu A-Hún, 15. desember 2005
e) Heilbrigðisnefndar Nl.vestra, 16. janúar 2006.
f) Norðurár bs. 9. janúar 2006.
g) Norðurár bs. 17. janúar 2006.
6. Önnur mál.
Sveitarstjóri
03.02.2006
Starfsmenn Trésmiðju Helga Gunnarssonar steyptu í dag plötu undir nýja Heilsugæslu sem er í byggingu við Ægisgrund. Einmuna veðurblíða hleypti mönnum kapp í kinn og hefur verið mikill gangur í útivinnu síðustu daga á miðjum þorra. Steypunni er ekið frá Sauðárkróki og er steypt í einu lagi, sökkull og plata. Myndirnar sem teknar voru í morgun við upphaf steypuvinnunar eru teknar af Árna Geir Ingvarssyni.
02.02.2006
Árlegt Þorrablót leikskólans var haldið 26. janúar s.l. Með hverju ári sem líður verða börnin vanari þorramatnum. Eða eins og við segjum gjarnan „gamla íslenska matnum“ og börnunum líkar yfirleitt vel við þennan mat og blessaður harðfiskurinn stendur upp úr og ekki spillir fyrir að hann er verkaður hér á Skagaströnd. Sem dæmi um aukanr vinsældir gamla matsins má nefna að í fyrra gerðu þau lifrarpylsu og blóðmörnum lítil skil en í ár kláraðist lifrarpylsan.
Sum börnin borða hákarl af bestu lyst og önnur borða hann ekki en flest leggja í að smakka hann. Og það er einmitt það sem við gerum á leikskólanum, við smökkum allan mat áður en við segjum til um hvort okkur líkar hann eða ekki. Því hvernig eigum við að vita að eitthvað er gott ef við þorum ekki að smakka það.
Einn drengur smakkaði hákarl en sagði að hann væri ekki góður og starfsmaður spurði hvort hann hefði smakkað hákarl áður; „ já, og mér finnst hann miklu betri hjá pabba því hann sýður hann“ og eins og allir vita er ekki sama hvernig matur er matreiddur sem hefur sitt að segja um bragðgæðin!
Nú og ein telpan var sýnilega ekki hrifin af hákarlinum en fann út að hún vildi alveg borða hann, en því miður væri hún með ofnæmi fyrir hákarli og gæti ekki borðað hann.
Á þorrablótinu var ekki bara etið, það voru sungin gömul íslensk lög, börnin gerðu þorrablótskórónur og það var dansað og skemmt sér. Börnin sem áttu að fara heim um kl. 12 fengu að vera áfram til kl. 13 sem auðséð var að þeim fannst gaman.
Á Sæbóli, yngstu barna deildinni, tóku börnin virkan þátt en borðuðu heldur minna en af Þorramatnum en eldri börnin en vonandi eigum við eftir að hafa þau í nokkur ár í viðbót til að kenna þeim að meta þennan frábæra mat.
Með kveðju frá Barnabóli
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri