Skötuveisla á Skagaströnd

Hin árlega skötuveisla var haldin í Fellsborg í hádeginu á Þorláksdag. Að vanda var fjölmenni og biðröð eftir að komast í hinar kæstu krásir. Togarsjómenn af Arnari og Örvari stóðu eins og fyrr glaðbeittir, matreiddu og báru fram kæsta skötu, kartöflur og rúgbrauð. Á eftir var öllum boðið upp á kaffi og konfekt. Skötuveislan var sem fyrr öllum opin og í boði sjómanna og útgerðar. Hún hefur skapað sterka og skemmtilega hefð sem fæstir vildu vera án. Skatan er auðvitað mjög sérstakur réttur og ekki fyrir alla en þeim hefur þó fjölgað jafnt og þétt sem gera hana að rétti dagsins á Þorláksmessu.

Skagastrandarbíó auglýsir!!

Fjölskyldumyndin Draumalandið Íslenskt tal verður sýnd mánudaginn 26. desember Annan í jólum kl 14:00. Miðaverð kr. 500. Töfrandi staðir, latir álfar, lævísar nornir, óþekk tröll... en hvar er álfadrottningin Títanía? ÞORÐU AÐ LÁTA ÞIG DREYMA! Þjóðsögur í hertogadæminu Óniríu segja að einu sinni á ári, á Jónsmessunótt, geti mannfólkið farið inn í heim álfa og trölla þar sem draumarnir rætast ef þú trúir á óskir og töfra. Helena, dóttir hertogans Þeseifs, er tortryggin efasemdarmanneskja sem er mótfallin draumórum föður síns. Það er ekki fyrr en líf hans er að veði að hún ákveður að halda af stað í leit að álfadrottningunni Títaníu. Í för með henni, slást hinn slóttugi Demetríus sem vill giftast Helenu til að erfa auðæfi föður hennar, klaufski ævintýramaðurinn Lísander, Brokki lukkutröll, Óberon álfakóngur og margir fleiri sem þau hitta á leiðinni. Í Draumalandi þarf Helena að sigrast á tortryggni sinni til þess að þau komist af, í þessum heimi ótrúlegra ævintýra. Þau hitta ógleymanlegar persónur, álfa, tröll og kynjaverur og lenda í háska þar sem reynir á, hvort verður yfirsterkara, trúin eða tortryggnin.

Jólin koma....

Jólaundirbúningurinn hefur verið allsráðandi síðustu daga og hafa margir lagt sitt af mörkum til að skreyta og fegra. Í dag 22. desember tók náttúran fullan þátt í jólaundirbúningum þegar Arnar HU 1 sigldi ljósum skreyttur inn í Skagastrandarhöfn úr síðastu veiðiferð ársins. Sérstakt samspil veðurkyrrðar og skammdegisbirtu skapaði fallega stemmingu ljóss og friðar. Höfðahreppur óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Fimm umsækjendur um Skagastrandarprestakall

Fimm umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Skagastrandarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi sem auglýst var laust til umsóknar nýlega. Umsóknarfrestur rann út þann 8. desember sl. Umsækjendur eru: Arndís Ósk Hauksdóttir, guðfræðingur Einar Sigurbergur Arason guðfræðingur Séra Fjölnir Ásbjörnsson Ingólfur Hartvigsson guðfræðingur Þóra Ragnheiður Björnsdóttir, guðfræðingur Dóms - og kirkjumálaráðherra skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipa fimm fulltrúar úr prestakallinu, auk vígslubiskups Hólabiskupsdæmis.

Pistill frá formanni U.M.F. Fram

Ágætu foreldrar Ég vil fyrir hönd félagsins byrja á að þakka ykkur fyrir samstarfið það sem af er vetri. Nú er vetrarstarfið senn hálfnað, tíminn líður hratt. Síðustu æfingatímar fyrir jól verða fimmtudaginn 15. desember. Þann dag eru foreldrar hvattir til að koma og fylgjast með. Þá verður einnig hægt að ganga frá skráningu vorannar. Fyrstu æfingartímar á nýju ári verða miðvikudaginn 4. janúar. Sama fyrirkomulag verður haft á innheimtu æfingagjalda eftir áramót eins og nú fyrir áramót. Æfingagjöldin, 5000 kr, eru aðgöngumiði að öllum æfingunum þ.e. ekki þarf að greiða sér fyrir fótbolta og sér fyrir íþróttaskóla. Veittur verður 1000 kr systkinaafsláttur fyrir systkini nr. 2 og 3 frá sama heimili. Þeir sem eru duglegastir að mæta á æfingarnar milli kl. 16 og 18 fá sérstök verðlaun á síðustu æfingu vetrarins inni í vor. Stjórn U.M.F Fram hefur ákveðið að niðurgreiða árskort til skíðaiðkunar í Tindastóli um 2.000 kr fyrir börn á grunnskólaaldri. Fullt verð er 6.500 kr en verður því 4.500 kr fyrir börn í Höfðaskóla. Fólk getur vitjað endurgreiðslu hjá gjaldkera félagsins Guðrúnu Elsu gegn framvísun kvittunar fyrir greiðslu árskortsins. Stefnt er að því að bjóða upp á ferðir upp í Tindastól á föstudögum eftir að kennslu er lokið. Skíðakennsla verður á þessum tíma í Tindastóli fyrir börn á grunnskólaaldri frá Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Ef mikill áhugi verður getur verið að félagið verði að leita til foreldra til að aðstoða við að keyra börnunum í fjallið. Eftir áramót munu Jósef Ægir og Helena Bjarndís koma að þjálfun unglinga í 8. til 10. bekk og jafnvel eldri ef áhugi verður fyrir hendi. Þessar æfingar verða á þriðjudagskvöldum milli 20 og 21 í íþróttahúsinu. Jósef verður með strákaæfingu aðra vikuna og Helena með stelpur hina vikuna. Þessar æfingar eru þrekæfingar og miðast við að kenna unglingunum að æfa sig sjálf án þjálfara. Hér á eftir kemur einskonar viðburðadagatal Fram til vors: · Badmintonæfingaferð til Siglufjarðar 13. til 14. jan fyrir börn fædd 1994 og eldri · Gríslingamót, byrjendamót í badminton, 22. jan fyrir börn fædd 1995 og 1996. Haldið á Akranesi · Frjálsar Stórmót ÍR 28. til 29. jan. Í Reykjavík fyrir 8-16 ára · Frjálsar MÍ 15 til 22 ára 4. til 5. febrúar í Reykjavík · Frjálsar MÍ 12 til 14 ára 25. til 26. febrúar í Reykjavík · Goðamót í knattspyrnu á Akureyri 24. til 26. febrúar, 4. og 5. flokkur stúlkna fæddar 1992, 1993, 1994, 1995 og ?1996? · Íslandsmót unglinga í badminton á Akranesi 3. til 4. mars · Goðamót í knattspyrnu á Akureyri 10. til 12. mars, 5. flokkur drengja fæddir 1995, 1994 og ?1993? · Goðamót í knattspyrnu á Akureyri 24. til 26. mars, 6. flokkur drengja fæddir 1996, 1997 og ?1998? · Andrésar andar leikarnir á skíðum á Akureyri 20. til 23. apríl · Til viðbótar þessu verða væntanlega einhver íþróttamót á félagssvæði USAH. Dagsetning þeirra liggur ekki enn fyrir. Í lokin vil ég hvetja ykkur foreldra og forráðamenn til þess að taka virkan þátt í starfi félagsins og endilega komið með ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara eða ef eitthvað er sem ykkur finnst vel vera gert. Kveðja Halldór G. Ólafsson form U.M.F Fram. Aðrir í stjórn FRAM eru: Guðrún Elsa Helgadóttir Róbert Freyr Gunnarsson (Aðalheiður Sif Árnadóttir) Og í varastjórn: Sigríður Ásgeirsdóttir Tryggvi Hlynsson

Ný heilsugæslustöð rís á Skagaströnd

Fréttatilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. Húsið verður 267 m² timburhús, byggt á steyptri grunnplötu með sökkulbitum. Byggingin hýsir skrifstofu læknis og hjúkrunarfræðings ásamt tilheyrandi aðgerða- og rannsóknarstofu, en þar er einnig gert ráð fyrir sjúkraþjálfun, auk móttöku og biðstofu. Samkvæmt verksamningi á húsið að rísa fyrir 1. ágúst á næsta ári, en hönnun þess lauk í september sl. Í ársbyrjun 2005 var ákveðið að stefna að því að reisa á Skagaströnd svipað hús og byggt hefur verið fyrir heilsugæslustöðina á Reyðarfirði. Frumhönnun þess, stærð og staðsetning var ákveðin á fyrri hluta ársins í samráði við heimamenn og stjórnendur stöðvarinnar. Bjóða þurfti verkið út tvívegis þar sem ekki fékkst viðunandi tilboð í fyrra útboðinu. Tilboð í seinna útboðinu voru opnuð 1. nóvember sl. og bárust þá fjögur tilboð í verkið sem voru 11 til 24 % yfir kostnaðaráætlun hönnuða. Ákveðið var að taka tilboði lægst bjóðanda, Trésmiðju Helga Gunnarssonar ehf á Skagaströnd. Heilsugæslustöðin á Skagaströnd er nú í tveggja hæða húsi, sem tekið var í notkun 1967. Var upphaflega íbúð læknis á efri hæð og móttaka sjúklinga á neðri hæð. Nokkur undanfarin ár hefur heilsugæslustöð verið rekin á efri hæð hússins en á neðri hæðinni er apótek og aðstaða fyrir tannlækni. Nokkuð þótti vanta á að húsnæðið stæðist kröfur sem nú eru gerðar til heilsugæslustöðva meðal annars uppfyllti húsið ekki kröfur sem gerðar eru um aðgengi hreyfihamlaðra og því var ákveðið að reisa nýtt hús. Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi sér um rekstur heilsugæslunnar á Skagaströnd. Eftir að verksamningar voru undirritaðir og ráðherra tekið fyrstu skóflustunguna var boðið upp á kaffiveitingar í Viðvík á Skagaströnd.

Skagastrandarhöfn með hæstu löndunarhöfnum smábáta

Á dögunum sat Adolf H. Berndsen varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi. Þar lagði hann m.a. fram fyrirspurn til sjávarútvegsráðherra um þróun smábátaafla á Íslandi s.l. 5 ár. Fyrirspurnin snérist annarsvegar um veiðar eftir veiðarfærum og hinsvegar um þróun landaðs afla eftir löndunarhöfnum. Í svari ráðherra kom m.a. fram að nálægt 85% af heildarafla smábáta var veiddur á línu á síðasta kvótaári. Það er mikil aukning frá árinu áður en þá var hlutur línuveiða 71% og kvótaárið 2001/2002 var hann um 61%. Skagaströnd var á síðasta kvótaári (2004/2005), fimmta löndunarhæsta höfn smábáta og var þar landað 3.688 tonnum. Kvótaárið 2003/2004 var landað þar 2103 tonnum. Á Hvammstanga var landað á síðasta kvótaári 310 tonnum en til samanburðar var landaður afli þar 801 tonn, árið á undan. Engum afla smábáta var landað á Blönduósi. Siglufjörður er í fjórða sæti yfir stærstu löndunarhafnir smábáta með 3.829 tonn sem er rúmlega þreföldun frá árinu á undan. Stærsta löndunarhöfn landsins er Bolungarvík en þar var landað á síðasta kvótaári 5.371 tonni sem er 20% samdráttur frá árinu á undan.

Aðventukaffi í Landsbankanum

Fimmtudaginn 1. des. bauð Landsbanki Íslands Skagaströnd bæjarbúum í aðventukaffi. Það var boðið uppá heitt kakó og nýbakaðar smákökur auk þess var heitt á kaffikönnunni eins og vanalega. Krakkarnir úr leikskólanum Barnabóli komu og sungu jólalög af hjartans lyst og um páfagauk sem vildi bara kóka kóla og ís. Frá kl. 14.00 lék svo Elías Björn Árnason jólalög á hljómborð á meðan kakóið og smákökurnar runnu ljúflega niður við þýða óma tónlistarinnar. Almenn ánægja var með daginn, jafnt hjá gestum og starfsfólki.

Frá Námsstofunni á Skagaströnd

Nú eru hafin próf í Námsstofunni á Skagaströnd. 17 einstaklingar taka 43 próf við 4 skóla. Fyrstu prófin voru 22. nóvember og þau síðustu 16. desember. Hér á eftir er stutt yfirlit yfir starfsemi í Námsstofunni á Skagaströnd árið 2005. Fjarnámsnemendur Nú eru 24 nemendur í fjarnámi sem hafa notað Námsstofuna á árinu 2005. Auk þess eru 6 með samning án þess að nota Námsstofuna ennþá. Í mars tók einn fjarnámsnemandi próf í Námsstofunni, 14 tóku 27 próf frá 4 skólum í maí og einn tók próf í ágúst. Fjarfundabúnaður Samtals 10 einstaklingar hafa nýtt sér búnaðinn til að sitja kennslustundir. Nú á haustönn voru 4 einstaklingar að nota búnaðinn 4 daga aðra vikuna og 2 daga hina vikuna. Fjarfundabúnaðurinn hefur einnig verið notaður til kynningar á námi frá Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík. Enginn mætti á þessar kynningar. Kjölur var með kynningu í maí þar sem 5 mættu og sjúkraliðar voru með kynningu á kjarasamningi í júlí þar sem 10 mættu. Fyrsta desember var sviðsstjóri hjúkrunar á Landspítala Háskólasjúkrahúss með vikulegan fræðslufund frá 6. hæð á Landakotsspítala um hjúkrun aldraðra. Einn mætti á þann fund hér á Skagaströnd. Annan desember var fundur fyrir náms- og starfsráðgjafa vegna Europass í námsstofunni. Einn sat þann fund. Háskólanemar í verkefnavinnu Fjórir háskólanemar unnu í námsstofunni á árinu í lokaverkefnum sínum. Þar af tveir við erlenda háskóla. Annað í Námsstofunni Í viðverubók Námsstofunnar höfa 59 einstaklingar kvittað fyrir notkun í lok október. Þetta eru þeir sem getið er hér að ofan auk nemenda frá Blönduósi, Húsavík og Reykjavík sem koma hingað og vinna verkefni með nemendum héðan. Auk þess eru nokkrir sem ekki hafa kvittað fyrir sig. Í febrúar var gerð tilraun með Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Helgi kom með 1-2 með sér eftir morgunkaffi og fengu þeir leiðsögn um internetið, póstforrit og Exel. Jón í Toppnet kom einnig nokkrum sinnum. Einn nemandi notaði Námsstofuna í nokkra daga til að lesa undir próf sem hann þurfti að endurtaka í júní. Auk þess kemur fyrir að framhalds-og háskólanemar nota heimsóknir á “Hótel Mömmu” um helgar til að læra í Námsstofunni. Í viku símenntunar var eitt kvöldið námskeið á vegum Farskólans sem tveir tóku þátt í auk kennarans Ólafs Bernódussonar. Annað tveggja kvölda námskeið sem auglýst var féll niður vegna þess að enginn skráði sig. Námsstofan hefur nokkrum sinnum verið notuð til að halda fundi með stjórn Umf. Fram og stjórn Félagsmiðstöðvarinnar Undirheima. Nú fer bráðlega nýtt ár í hönd með nýjum tækifærum fyrir þá sem vilja nota sér þessa aðstöðu hér á Skagaströnd. Þeir sem hyggja á nám á vorönn geta haft samband við umsjónarmann og fengið þá aðstoð sem hann getur veitt. Desember 2005 Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd Hjálmur Sigurðsson S: 8440985

Landaður afli í gegnum fiskmarkaðinn yfir 4000 tonn

Sala hjá fiskmarkaði Örva ehf. á Skagaströnd fór yfir 4000 tonn í gær. Fiskmarkaðurinn hefur vaxið verulega á síðustu árum en á árinu 2004 fóru um 3000 tonn í gegnum markaðinn en sala ársins 2003 var um 1900 tonn. Hefur því salan rúmlega tvöfaldast á 2 árum. Hluti þessa afla er landað í Sauðárkrókshöfn. Fiskmarkaður Örva þjónustar fjölmarga báta, skip og togara sem koma inn til löndunar í Skagastrandarhöfn þar sem eigendur bátanna taka fiskinn til sín til eigin vinnslu eða sölu. Flestir bátar eru á línuveiðum um þessar mundir og eru aflabrögð mjög góð og oftast 200-300 kg. á bala. Í tilefni þessara tímamóta var viðskiptavinum boðið í kaffi og meðlæti en á meðfylgjandi mynd má sjá bræðurna Lárus Ægi og Ingiberg Guðmundssyni forssvarsmenn Örva ehf.