17.05.2018
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar föstudaginn 18. maí 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 18.15.
Dagskrá:
Kjörskrá vegna sveitarstjórnakosninga 26. maí 2018
Samningur um slátt á opnum svæðum
Samningur um skólamötuneyti
Samningur um Reykjasafnið
Tilkynning um fulltrúafjölda á Landsþing Sambandsins.
Framkvæmdir 2018 – yfirlit um stöðu.
Bréf
Vegagerðar vegna smábátahafnar, dags. 9. apríl 2018
Vegna minnisvarða, dags. 12. apríl 2018
Guðlaugar Grétarsdóttur, 5. mars 2018
Örvars ehf, dags. 15. maí 2018
Skipulagsstofnunar dags. 3. maí 2018
Svarbréf til Skipulagssstofnunar, dags. 15. maí 2018
Fundargerðir
Sameiningarnefndar sveitarfélaga í A-Hún, 27.04.2018
Stjórnar Hafnasambands Íslands, 19.03.2018
Stjórnar Hafnasambands Íslands, 23.04.2018
Stjórna Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27.04.2018
Önnur mál
Sveitarstjóri
14.05.2018
Kjörskrá
vegna sveitarstjórnakosninga þann 26. maí 2018
liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 15. maí til kjördags.
Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu
lögheimili í sveitarfélaginu
samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 5. maí 2018.
Sveitarstjóri
11.05.2018
RIPPLING WATER
You are invited to the opening of the exhibition RIPPLING WATER by Pernelle Maegaard and Nina Maria Kleivan (our May Nes short stay residents) on:
Saturday the 12th of May 17:00 - 18:00 at
Salthús guesthouse, Einbúastígur 3, Skagaströnd.
RIPPLING WATER is an art project about healing the world by the use of water. All healings are being recorded by photos and short texts. The healing can be used everywhere, where changes are needed. The project aims at the world as an inclusive gesture. We don’t conceive it as a mysterious ritual, this is to say that everybody has the power to heal.
If you want a part in healing the world, just perform the ritual. Take a photo of it, and describe what you have healed. Send the material to us, and you will be included, as the exhibition continues out into the world.
Mail to: nina@kleivan.dk and Pernelle@maegaard.dk
11.05.2018
Skólaslit og afhending prófskírteina fer fram í Blönduósskirkju fimmtudaginn 17. maí n.k. kl: 1800.
Innritun er hafin og stendur til 15. júní. Sótt er um inn á tonhun.is/umsóknir
Allir velkomnir.
Skólastjóri
11.05.2018
Flutningabíll
Þennan bíl gerði Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972),
sem er á myndinni, út í vöru - og fólksflutningum milli
Skagastrandar og Reykjavíkur í mörg ár.
Í stóru húsi bílsins var hægt að taka 4-5 farþega og oftar en ekki var
uppselt í þessi sæti. Ferðin til Reykjavíkur tók 8 - 10 tíma með hádegisstoppi
í Fornahvammi þar sem starfrækt var hótel og matsala. Númi átti heima á
Hólabraut 1 og byggði húsið sem þar stendur.
Vöruflutningarekstur hans skýrir hvers vegna bílskúrinn við húsið er svo stór
og með mikla lofthæð því hann gat bakkað bílnum á myndinni inn í skúrinn
meðan hann var að afferma hann.
Einnig voru þar geymdir pakkar og annað sem fólk var að senda með honum
í næstu ferð suður.
Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason, líklega árið 1969.
Senda upplýsingar um myndina
11.05.2018
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 23/5 2018. Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
08.05.2018
Fulltrúar tveggja framboðslista skiluðu gildu framboði til sveitarstjórnarkosninga á Skagaströnd áður en frestur til þess rann út laugardaginn 5. maí 2018.
Heiti lista: Við öll Listabókstafur: Ð
Nafn frambjóðanda
Heimilisfang
Starfsheiti
Guðmundur Egill Erlendsson
Grund
lögfræðingur
Kristín Björk Leifsdóttir
Sunnuvegur 8
viðskiptafræðingur
Inga Rós Sævarsdóttir
Ránarbraut 14
fulltrúi
Þorgerður Þóra Hlynsdóttir
Bankastræti 14
tómst.og félagsm.fr.
Guðlaug Grétarsdóttir
Lækjarbakka
leikskólakennari
Þröstur Líndal
Hólabraut 26
bóndi
Kristín Birna Guðmundsdóttir
Fellsbraut 5
fulltrúi
Eygló Gunnarsdóttir
Bogabraut 20
fulltrúi
Súsanna Þórhallsdóttir
Fellsbraut 7
húsmóðir
Hallbjörn Björnsson
Hólabraut 17
rafvirkjameistari
Heiti lista: Skagastrandarlistinn Listabókstafur: H
Nafn frambjóðanda
Heimilisfang
Starfsheiti
Halldór Gunnar Ólafsson
Hólabraut 23
framkvæmdastjóri
Péturína Laufey Jakobsdóttir
Hólabraut 9
skrifstofustjóri
Róbert Kristjánsson
Skagavegi 15
verslunarstjóri
Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir
Ránarbraut 5
sálfræðinemi
Jón Ólafur Sigurjónsson
Bogabraut 14
skrifstofumaður
Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir
Hólabraut 15
hársnyrtir
Ástrós Elísdóttir
Hólabraut 12
leikhúsfræðingur
Gunnar Sveinn Halldórsson
Suðurvegi 1
matreiðslumaður
Guðrún Soffía Pétursdóttir
Suðurvegi 9
umsj. m. eldri borgara
Adolf Hjörvar Berndsen
Höfða
framkvæmdastjóri
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar
07.05.2018
Við höfum stofnað hóp á facebook sem heitir Fegrum bæinn okkar.
Markmið hópsins er að huga að gróðri og umhverfi á fyrirfram ákveðnum svæðum í bænum. Þeir sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóg endilega gangið til liðs við hópinn.
Þeir sem ekki eru á facebook en vilja taka þátt er velkomið að setja sig í samband við einhverja okkar.
Vinnum saman að því að gera Skagaströnd með snyrtilegri stöðum á landinu og breytum um leið hugarfari allra til umhverfisins.
Kveðja,
Birna gsm: 896-6105
Björk gsm: 862-6997
Dísa gsm: 895-5472
07.05.2018
Í síðustu kosningum til sveitarstjórnar kom fram nýtt framboð sem hafði einkunnarorðin og heitið, Við öll.
Markmið þess framboðs voru að ná algeru gagnsæi í stjórnsýslunni, efla siðferðið og auka þátttöku íbúa í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Þau markmið eru enn markmið framboðsins enda eiga þau aldrei að detta úr tísku og er enn mikilvægara í dag að þau náist en nokkru sinni áður.
Við öll erum ábyrg fyrir samfélaginu okkar og framtíð þess.
Framboðslisti Ð-listans er skipaður eftirtöldum einstaklingum:
1. Guðmundur Egill Erlendsson, lögfræðingur.
2. Kristín Björk Leifsdóttir, viðskiptafræðingur.
3. Inga Rós Sævarsdóttir, fulltrúi.
4. Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, tómstunda og félagsmálafræðingur 5. Guðlaug Grétarsdóttir, leikskólakennari.
6. Þröstur Líndal, bóndi.
7. Kristín Birna Guðmundsdóttir, fulltrúi.
8. Eygló Gunnarsdóttir, fulltrúi.
9. Súsanna Þórhallsdóttir, húsmóðir.
10. Hallbjörn Björnsson, rafvirkjameistari.
04.05.2018
Orkudagar 2000
Orkudagar voru haldnir í Fellsborg haustið 2000.
Þar voru kynntar ýmsar vörur og lausnir í sambandi við orku og
orkunotkun. Eitt af fyrirtækjunum sem sýndi vörur sínar á orkudögum
var vefnaðarfyrirtækið Árblik á Skagaströnd, sem var rekið í gamla
frystihúsi Hólaness við Einbúastíg frá 1999 - 2007.
Þeir sýndu meðal annars værðarvoðir sínar og þar var þessi vísa.
Ekki er vitað hver er höfundurinn en gaman væri ef hann gæfi sig
fram við Ljósmyndasafnið.
Senda upplýsingar um myndina