16.12.2016
Jólasveinarnir hafa samið við Foreldrafélag Höfðaskóla um að taka á móti pökkum og bréfum í skólanum fimmtudaginn 22. desember frá kl 18-20:00.
Sjálfir ætla þeir síðan að koma póstinum til skila á Þorláksmessu á milli 16 og 19:00.
Verð fyrir þjónustuna er eftirfarandi:
Bréf 100 kr
Pakki 500 kr
(Ath ekki er posi á staðnum)
Foreldrafélag Höfðaskóla
15.12.2016
Frá og með áramótum verður sú breyting að sveitarfélagið hættir að greiða húsaleigubætur en þess í stað verða teknar upp húsnæðisbætur sem verða í umsjá
Greiðslustofu húsnæðisbóta https://husbot.is/
Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða þá sem leigja íbúðarhúsnæði, hvort sem er í félagslega kerfinu, námsgörðum eða á hinum almenna leigumarkaði „út í bæ“.
Greiðslustofan er hluti af Vinnumálastofnun sem annast framkvæmd laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og tekur ákvarðanir um rétt til húsnæðisbóta.
Almenn afgreiðsla er í höndum Greiðslustofu húsnæðisbóta á Sauðárkróki.
Opnunartími.
Afgreiðsla er opin frá kl. 09:00 - 15:00 alla virka daga.
Skrifstofan er á Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki.
Sími: 515-4800
Netfang: husbot@vmst.is
15.12.2016
Afmælis og útgáfuhóf
Mánudaginn 19. desember klukkan 18:00 býður ungmennafélagið Fram uppá súpu og brauð í Fellsborg í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Lárus Ægir Guðmundsson mun kynna nýútkomna bók sína um
90 ára sögu Ungmennafélagsins Fram.
Eigum notalega stund saman á aðventunni
og fögnum farsælu starfi Ungmennafélagsins í 90 ár.
stjórn Ungmennafélagsins Fram
14.12.2016
Fimmtudaginn 15. desember verður Fellsbraut lokuð frá húsi nr 9 að húsi nr. 17 vegna framkvæmda við fráveitu. Lokað verður frá morgni og fram eftir degi.
Sveitarstjóri
09.12.2016
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017
Vesturbyggð (Patreksfjörður)
Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1081/2016 í Stjórnartíðindum
Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn)
Sveitarfélagið Garður
Vesturbyggð (Brjánslækur, Bíldudalur)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Langanesbyggð (Þórshöfn, Bakkafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2016.
Fiskistofa 9. desember 2016
09.12.2016
Áhöfn Húna 1
Áhöfn Húna 1 prúðbúin á góðri stund. Aftari röð frá vinstri:
Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson, Sigmundur Magnússon og
Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006).
Sitjandi frá vinstri: Gunnar Albertsson, Guðmundur Lárusson og
Hákon Magnússon. Hákon og Gunnar voru meðal eigenda Húna og
var Hákon farsæll skipstjóri en Gunnar var vélstjóri um borð.
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún kemur úr safni
Gunnars Albertssonar.
09.12.2016
mánudaginn 12. desember kl. 20.00
Heimamenn lesa úr eftirtöldum bókum:
Sara Diljá Hjálmarsdóttir Ör
Sigríður Stefánsdóttir Tvísaga
Lilja Ingólfsdóttir Hestvík
Lárus Ægir Guðmundsson Skátarnir á Skagaströnd
Ólafur R. Ingibjörnsson Útkall
Jón Ólafur Sigurjónsson Eyland
Guðmundur Ólafsson Verndarinn
Dagný M. Sigmarsdóttir Tengdadóttirin
Ástrós Elísdóttir Nóttin sem öllu breytti
Aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir.
Bjarmanes verður með kakó, kaffi og vöfflur til sölu.
08.12.2016
Hinir árlegu jólatónleikar skólans verða sem hér segir:
Á Skagaströnd í Hólaneskirkju þriðjudaginn 13.des. kl. 17
Á Húnavöllum miðvikudaginn 14.des. kl. 1530
Á Blönduósi í Blönduósskirkju fimmtudaginn 15.des. kl . 17
Allir velkomnir.
Kennsla hefst á nýju ári miðvikudaginn 4.jan. samkvæmt stundaskrá.
Skólastjóri
07.12.2016
Lokað verður fyrir vatn í útbænum á morgun fimmtudag frá kl. 8 til 11.