16.10.2015
Zumba námskeið fyrir káta krakka hefst þriðjudaginn 20.október
í Félagsmiðstöðinni Undirheimum á Skagaströnd
14.10.2015
Aðalfundur
Aðalfundur foreldrafélags Höfðaskóla
verður haldinn
þriðjudaginn 20. október 2015
kl. 17:00 í íþróttahúsi.
Dagskrá fundarins:
* Skýrsla formanns
* Reikningar lagðir fram
* Kosning nýrrar stjórnar
* Bekkjarfulltrúar
* Bréf frá Skólafélaginu Rán
* Önnur mál
Stjórnin
12.10.2015
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 14. október 2015 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
Fjáhagsáætlun 2016
Forsendur fjárhagsáætlunar
Ákvörðun um álagningarreglur
Starfsmat
Viðaukar við samninga um sorphirðu og endurvinnslustöð
Svar til EFS
Fundur með þingmönnum Norðvesturkjördæmis
Fundur með fjárlaganefnd
Ársfundur SSNV, 16. október 2015
Kosning fulltrúa í Tómstunda- og menningarmálanefnd
Bréf:
Ámundakinnar, dags. 18. september 2015
Eignarhaldsfélag BÍ, dags. 6. október 2015
Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytis, dags. 2. september 2015
Sveitarstjóra til Atvinnuv. og nýsk. ráðun. dags. 18. september 2015
Fiskistofu, dags. 8. október 2015
Fundargerðir:
Tómstunda- og menningarmálanefndar, 13.10.2015
Stjórnar Róta bs., 8.09.2015
Stjórnar Róta bs., 17.09.2015
Stjórnar Róta bs., 23.09.2015
Stjórnar Róta bs., 6.10.2015
Stjórnar SSNV, 8.09.2015
Stjórnar SSNV, 15.09.2015
Stjórnar SSNV, 30.09.2015
Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 21.09.2015
Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 21.09.2015
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 11.09.2015
Önnur mál
Sveitarstjóri
09.10.2015
NPA: Umsóknarfrestur til 30. nóvember 2015
Norðurslóðaáætlunin (NPA) styrkir samstarfsverkefni a.m.k. þriggja aðildarlanda, löndin innan NPA eru Ísland, Grænland, Færeyjar, Noregur Svíþjóð, Finnland, Írland, Norður-Írland og Skotland.
NPA óskar núna aðeins eftir styrkumsóknum sem falla undir áherslur 3 og 4:
3. Verkefni sem hlúa að og efla orkuöryggi samfélaga á norðurslóðum, hvetja til orkusparnaðar eða notkun endurnýjanlegra orkugjafa.
4. Verkefni sem vernda, þróa og koma á framfæri menningarlegri og náttúrlegri arfleið.
Nánari upplýsingar um áherslur á þriðja umsóknarfresti er að finna hér http://www.interreg-npa.eu/fileadmin/Calls/Third_Call/Third_Call_Announcement.pdf
Hámarksstærð verkefna er 2 milljónir evra og er styrkur háður a.m.k. 40% mótframlagi umsóknaraðila en styrkur til fyrirtækis er háður a.m.k. 50% mótframlagi.
Mikilvægt er að verkefnin skili af sér afurð, vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, búsetu og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.
Á heimasíðu NPA www.interreg-npa.eu er að finna umsóknargögn og leiðbeiningar undir valtakanum ,,For Applicants“ ,, Third Calls“
Senda á umsóknina rafrænt eigi síðar en á miðnætti 30. nóvember n.k. á Kaupmannahafnartíma.
A How to Apply Seminar verður haldið í Kaupmannahöfn 20. október n.k.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengiliði NPA á Íslandi sem er Sigríður Elín Þórðardóttir, Byggðastofnun sími 455 5400 og netfang sigridur@byggdastofnun.is
Sigríður Elín Þórðardóttir
Icelandic Regional Development Institute
Ártorg 1, 550 Sauðárkrókur.
Tel +3544555400, Fax +3544555499
E-mail: sigridur@byggdastofnun.is
www.byggdastofnun.is
09.10.2015
Við Blöndu.
Veiðimenn við Blöndu áður en hún var virkjuð. Algengt var að menn keyptu sér saman eina stöng því áin þótti erfið.
Hún var alltaf kolmórauð eins og kakósúpa og mest var veitt á spún af stærstu gerð þannig að oftar en ekki var laxinn húkkaður tilviljanakennt. Menn skiptust því á um að veiða en settust bara og fylgdust með félaganum meðan þeir voru ekki sjálfir að kasta fyrir laxinn og voru tilbúnir að stökkva af stað til að aðstoða við löndunina.
Þá var líka algengt að áhugasamir gestir kæmu í heimsókn til að fylgjast með hvernig veiðin gengi.
Á þessari mynd frá 1982 eru frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) allir frá Skagaströnd og Lárus Jónsson Blönduósi (frá Bakka í Vatnsdal).
07.10.2015
Starfsmann vantar við ræstingar á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd.
Starfshlutflall er 12,5%, vinnutími getur verið samkomulag.
Nánari upplýsingar gefur Ásdís Arinbjarnardóttir yfirhjúkrunarfræðingur í síma 4554100.
06.10.2015
Vefmyndavélar á höfn eru óvirkar um stund vegna endurnýjunnar.
02.10.2015
Höfðaborg Hu 10.
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir
Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip:
"Höfðaborg Hu 10. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á
Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919.
Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti
togarinn sem Skagstrendingar eignuðust.
Skipið hét Belgaum RE 153 þegar það var keypt til Skagastrandar í
nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f.
Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu.
Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu
menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina
dekklekanum fram á gólfið.
Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar
en árangur varð ekki mikill.
Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í
maímánuði 1955.
" Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
01.10.2015
Við Höfðaskóla er laus staða skólaliða, 75% starf.
Vinnutími er frá kl. 9 til 16 virka daga.
Starfið felur í sér þrif og gæslu nemenda.
Umsóknarfrestur er til 16. október 2015.
Nánari upplýsingar veita húsvörður og skólastjóri í síma 4522800
Skólastjóri.