16.05.2014
Fjölskyldan á Jaðri
.
Hjónin Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999)
og Elísabet Frímannsdóttir (Beta) (d. 1.9.1990)
með börnin sín fyrir utan heimili þeirra að Jaðri (Neðra Jaðri). Börnin eru frá vinstri: Kristín Björnsdóttir (Dídí), Guðmundur Jón Björnsson, Hallbjörn Björnsson og Sigurður Björnsson.
15.05.2014
Innritun fyrri tónlistarskólann á Skagaströnd fer fram í dag fimmtudaginn 15. maí kl.16-18. Viljið þið vera svo væn að deila þessu svo þetta berist sem víðast. Þeir foreldrar sem innrituðu börnin sín í foreldraviðtölum þurfa ekki að gera það aftur.
Tónlistarskóli A-Hún.
15.05.2014
Vík ehf útgerð hefur endurnýjað fiskiskipið Öldu HU 112 með kaupum á Kristni II SH 712 sem er 13 m langur og 14,92 tonna yfirbyggður plastbátur. Kristinn II er smíðaður hjá Trefjum ehf 2006 og í alla staði mjög vel útbúinn.
Báturinn kom til heimahafnar á Skagaströnd í gær en hann er reyndar ekki ókunnugur í höfninni því hann hefur verið gerður út frá Skagaströnd hluta úr árinu undanfarin ár. Báturinn mun hljóta nafnið Alda og verður með skráningarnúmerið HU 112. Skipstjóri á bátnum verður Jóhann Sigurjónsson.
11.05.2014
Nýtt framboð Ð-listinn, fékk samþykktan framboðslista tíu frambjóðenda laugardaginn 10. maí, til sveitarstjórnarkosninganna 31. maí 2014. Einkennisorð listans og heiti hans er Við öll.
Í fréttatilkynningu frá Ð-listanum segir að um sé að ræða hóp fólks sem vill tryggja öllum íbúum Skagastrandar raunverulegan valkost á því að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að ganga til kosninga í vor.
„Ljóst má vera að framtíð bæjarins er í höndum bæjarbúa allra og því er áhersla framboðsins að samfélagið skuli byggja á algeru gagnsæi stjórnsýslunnar, góðu siðferði og stóraukinni þátttöku íbúa Skagastrandar í stjórnsýslu sveitafélagsins,“ segir í tilkynningunni.
Framboðslisti Ð-listans er skipaður eftirtöldum einstaklingum:
1. Steindór Haraldsson, framleiðslustjóri
2. Inga Rós Sævarsdóttir, fulltrúi
3. Kristín Björk Leifsdóttir, háskólanemi
4. Guðlaug Grétarsdóttir, leikskólakennari
5. Eygló Amelía Valdimarsdóttir, snyrtifræðingur
6. Súsanna Þórhallsdóttir, húsmóðir
7. Kristín Birna Guðmundsdóttir, fulltrúi.
8. Þröstur Líndal, bóndi
9. Sigríður Þórunn Gestsdóttir, húsmóðir.
10. Hallbjörn Björnsson, rafvirkjameistari
11.05.2014
Fundur sem boðaður hefur verið verður í sveitarstjórn Skagastrandar kl 8.00 mánudaginn 12. maí verður á skrifstofu sveitarfélagsins kl 1100.
10.05.2014
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
mánudaginn 12. maí 2014 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
Ársreikningur
Endurskoðunarbréf
Ársreikningur 2013 seinni umræða
Þjónustusamningur sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks
Fræðslumál:
Kennslukvóti í grunnskóla
Ráðning skólastjóra
Skýrsla um ytra mat á Höfðaskóla
Bréf
Tækifæris hf., dags. 29. apríl 2014
Rögnvaldar Ottóssonar, dags. 23. apríl 2014
Stjórnar SSNV, dags. 10. apríl 2014
Oddnýjar M. Gunnarsdóttur, dags. 15. apríl 2014
Katrínar Maríu Andrésdóttur, dags. 29. apríl 2014
Fundargerðir:
Stjórnar Félags og skólaþjónustu A-Hún, 22.04.2014
Önnur mál
Sveitarstjóri
09.05.2014
Dægurlagamessa í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudagskvöldið 11. maí kl. 20:30. Flutt verða falleg og þekkt dægurlög eftir Guðmund Jónsson, Bubba Morthens, Geirmund Valtýsson, Magnús Kjartansson og fleiri.
Kór Hólaneskirkju syngur við undirleik hljómsveitar kirkjunnar. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir organisti fer fyrir hljómsveitinni en auk hennar er hún skipuð Skarphéðni H. Einarssyni, Benedikt Blöndal og Valgerði Guðnýju Ingvarsdóttur.
Aðrir liðir messunnar eru meðal annars bæn, ritningarlestur og hugleiðing sem er í höndum séra Bryndísar Valbjarnardóttur.
Verið hjartanlega velkomin að eiga ljúfa kvöldstund í Hólaneskirkju.
09.05.2014
Aðalsafnaðarfundur Hólaneskirkju verður haldinn á kirkjuloftinu mánudaginn 12. maí 2014 kl. 18:00
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Allir velkomnir til að ræða málefni kirkju og kirkjugarðs.
Sóknarnefndin
09.05.2014
Pétur Ólafsson og fjölskylda
Þessi mynd var tekin 1905 af Pétri Ólafssyni og
fjölskyldu hans. Pétur var sonur Ólafs Jónssonar
sem var veitingamaður í Viðvík á árunum 1868 - 1883
þegar hann flutti með fjölskyldu sína til Akureyrar.
Pétur Ólafsson fæddist 1.maí 1870 og dó
11.maí 1949 og var því unglingur þegar fjölskyldan
flutti til Akureyrar. Pétur var við nám og verslunarstörf á
Eskifirði en flutti til Kaupmannahafnar og var þar 1890 - 92
og lauk þar námi í verslunarfræðum ásamt því að stunda
frönskunám hjá Jóni Sveinssyni - Nonna, enskunám og nám í
Íslensku hjá Bjarna frá Vogi.
Eftir að hafa unnið við verslun í Flatey og í Kaupmannahöfn settist hann
að á Patreksfirði og varð þar yfirmaður yfir öflugu verslunar - og
útgerðarfyrirtæki - IHF. Pétur var forstjóri Síldareinkasölunar, sat í stjórn
Eimskipafélagsins sem formaður um tíma, starfaði fyrir ríkisstjórnina við
gerð viðskiptasamninga erlendis og við markaðsleit víða um heim.
Hann var norskur konsúll og einnig barsilískur konsúll á Íslandi, stundaði
hvalveiðar í fimm ár með tveimur bátum frá Tálknafirði, rak selveiðiskip
og togara. Þá var Pétur frumkvöðull í ljósmyndun og kvikmyndagerð.
Kona Péturs, sem er með honum á myndinni, var Marie Kristine Arnesen.
Saman eignuðust þau sex börn auk tveggja uppeldisbarna.
(Heimild: http://www.borgarskjalasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-4242/6667_read-1552/start-p/6630_view-2789/)
09.05.2014
Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði heldur söngskemmtun í Hólaneskirkju á Skagaströnd, sunnudaginn 11. maí og hefst skemmtunin kl. 15:00. Fjölbreytt söngskrá verður en söngstjóri og undirleikari er Jóhanna Marín Óskarsdóttir, um einsöng sér Þorbergur Skagfjörð Jósefsson og Hermann Jónsson leikur á harmonikku.
Aðgangur ókeypis.