11.03.2014
Farið er yfir litaval og góð ráð gefin um hvernig hægt er að nýta stensla og annað til þess að gera hverja mublu alveg einstaka.
Nýjir hlutir geta orðið eins og gamlir munir, fullir af sögu og karakter – og sömu aðferð er hægt að beita á eldri muni líka. Það er víst að hluturinn mun verða að dásamlegustu mublunni á heimilinu.
Á námskeiðinu gerir hver þátttakandi tvö skilti með texta og getur valið úr vinsælustu textunum frá Fonts
Skiltastærðir: 60x30cmog 40x20cm
Hver og einn fær sín eigin áhöld á meðan námskeið stendur yfir:
Málning
Efni fyrir stensla
Timbur fyrir skilti
Málningaburstar
Taktu með þér eitthvað að heiman sem þér langar að breyta.
Svo sem bakka, box, bók, ramma eða skúffu.
Þar að auki fá allir að velja sér nokkra stensla til að taka með sér heim og halda áfram að æfa sig.
Skráningar sendist á fonts@fonts.is verð 16.900-
Eina sem þú þarft að koma með er góða skapið og ímyndunaraflið
Námskeið verður haldið föstudaginn 14. Mars kl : 20:00 Félagsheimilinu Fellsborg
Sjáumst, Maggý Mýrdal
Gsm 697-5455
fonts.is
https://www.facebook.com/fontskompany
10.03.2014
Námsstyrkir
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2014 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2013-2014 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins og er áður auglýstur umsóknarfrestur framlengdur til 1. apríl 2014.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.
Aksturstyrkur vegna dreifnáms
Jafnframt er framlengdur til frestur til 1. apríl 2014 til að sækja um sérstakan stuðning vegna dreifnáms veturinn 2013-2014. Upplýsingar eru veittir á skrifstofu sveitarfélagsins.
Sveitarstjóri
07.03.2014
Viltu koma á Háskóladaginn á Akureyri?
Háskóladagurinn verður haldinn á Akureyri
miðvikudaginn 12. mars kl.11:00-13:30
Þar mæta allir háskólar landsins og kynna námsframboð sitt.
Fjölmargar ólíkar námsleiðir eru í boði!
Þekkingarsetur á Blönduósi stendur fyrir sætaferðum á Háskóladaginn
(verð á mann kr. 1000).
Nánari upplýsingar og skráning í tölvupósti á netfangið
tsb@tsb.is
eigi síðar en 10. mars.
07.03.2014
Síldarlöndun úr Húna HU-1
-
Síldarlöndun á Skagaströnd úr Húna HU-1. Þessi mynd var líklega
tekin rétt fyrir 1960 og sýnir Húna með fullfermi við löndunar-
bryggjuna á Skagaströnd.
Utan á Húna er svo nótabáturinn með síldarnótinni um borð.
Á þessum árum var síldarnótin lögð úr nótabátnum og síðan fóru
karlarnir um borð í hann og drógu hana inn í bátinn með handafli.
Hluti nótarinnar var fastur við Húna og þegar karlarnir í nótabátnum
voru búnir að draga nógu mikið af henni inn þá hafði síldin í nótinni
safnast saman í þétta torfu við hlið bátsins. Þá var háfnum, sem sést
fremst á dekkinu á Húna bakborðsmegin, sökkt í torfuna og síldin
þannig háfuð um borð.
Eftir að lestin var orðin full var háfað í stíur á dekkinu og gjarnan
voru síldarbátar á þessum árum með "merar" á lunningunum.
Það voru trégrindur sem settar voru ofan á lunningarnar til að
hægt væri að koma meiri síld um borð.
Eftir í land var komið og síldin var nógu góð til að salta hana tók
við mikill þrældómur hjá sjómönnunum við að landa henni.
Við það verk voru notaðir handháfar og mokað með þeim í
velti - tunnu eins og sést á myndinni. Tunnan var svo hífð í land
og sturtað úr henni í handvagn eins og er á bryggjunni.
Vagninum var síðan ekið með handafli að síldakössunum þar
sem síldarstúlkurnar biðu óþolinmóðar eftir síldinni.
Trégöngubrautin sem sést ofan á síldinni var lögð ofan á síldina
og milligerðin í stíunum til að síldin merðist síður þegar gengið
var um skipið.
Húni HU-1 var smíðaður í Austur Þýskalandi 1957 og var 75 brl.
og kom nýr til Skagastrandar í október það ár.
Hann var síðan seldur frá Skagaströnd 1965 og fórst 2. mars
1976 með átta manna áhöfn en hét þá Hafrún ÁR.
(Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
06.03.2014
Uppskeruhátíð tónlistardaga kórs Hólaneskirkju
í máli og tónum
í Hólaneskirkju sunnudaginn 9. mars 2014, kl. 14.00
Um helgina tekur kórinn þátt í raddþjálfunarnámskeiði undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur organista og Önnu Sigríðar Helgadóttur messó sópran. Vissulega verður Hugrún okkar Sif einnig virkur leiðbeinandi á námskeiðinu.
Nýja sálmabókin Sálmar 2013 skipar stóran sess á tónlistardögum kórsins. Aðalheiður er ein þeirra sem séð hafa um að útbúa bókina. Hún starfar sem píanóleikar, organisti, útsetjari, kennari og tölvusetur nótnabækur ásamt því að syngja með ýmsum kórum.
Anna Sigga eins og hún er jafnan kölluð syngur með fjölda kóra og tekur þátt í margskonar tólistarflutningi og hefur starfað sem kórstjóri.
Það verður yndislegt að njóta uppskeru helgarinnar hjá kórnum okkar. Við eigum í vændum tónlistarhátíð með fjölbreyttri tónlist og helgiathöfn.
Minningarsjóður um hjónin frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið.
28.02.2014
Boðað er til kynningarfundar um niðurstöður á eftirfarandi rannsóknaverkefnum sem voru unnin á árinu 2013:
Þarfagreining á námsframboði á Norðurlandi vestra
Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig á Norðurlandi vestra
Kynningarfundirnir eru öllum opnir og verða haldnir á eftirfarandi dögum:
Miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00 í húsnæði Rannsóknaseturs HÍ á Skagaströnd
Fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi
Fulltrúar Farskólans verða á fundinum til að kynna nám og námskeið og svara fyrirspurnum í tengslum við niðurstöður þarfagreininganna.
Rannsóknirnar eru liður í eflingu menntunar og atvinnulífs á svæðinu og því er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Gert er ráð fyrir að kynningin taki u.þ.b. 45 mín. og síðan verða umræður á eftir.
Heitt á könnunni – allir velkomnir!
28.02.2014
Ný aðalnámskrá grunnskóla nýjar áherslur
Í starfi skólanna í vetur hefur miklum tíma verið varið til að skoða hvað verið er að gera og hvað gera þarf frekar til að vinna í anda nýrrar aðalnámskrár og efla áherslur grunnþáttanna sex í skólastarfinu. Grunnþættirnir sex eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Ný aðalnámskrá og grunnþættirnir sex eiga að vera okkur leiðarvísir og fyrirmynd um áherslur, vinnulag og framsetningu í skólastarfinu.
Einn grunnþáttanna, Lýðræði og mannréttindi, var til umfjöllunar á fræðslufundi 27. febrúar s.l.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum- Save the Children á Íslandi, Kom til okkar til að fræða okkur um helstu áherslur og verkefni til að efla áherslur lýðræðis og mannréttindi í skólum sýslnanna.
Á námskeiðinu var unnið með eftirfarandi verkþætti:
Af hverju að kenna um mannréttindi og lýðræði í grunnskóla? -alþjóðlegir samningar, lög, aðalnámskrá og samfélagslegir þættir.
Grunnþættir menntunar, hvernig þeir samþættast og eiga að vera samofnir öllu skólastarfi.
Grunnþátturinn mannréttindi og lýðræði.
Mannréttindi barna og réttur barna til að taka þátt og hafa áhrif.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna- mannréttindasamningur sem á við um öll börn.
Hvernig geta skólar innleitt grunnþáttinn mannréttindi og lýðræði í daglegt skólastarf, námsgreinar, með námshópum og í samvinnu við grenndarsamfélagið?
Þátttakendur voru níutíu og þrír og létu mjög vel af fræðsludeginum.
„Það eru gömul sannindi og ný að engin raunveruleg þróun verður í skólastarfinema fyrir tilstuðlan kennara og skólastjórnenda. Lengi má lagfæra menntastefnu, skipulag, námsgögn og skólabyggingar en ef breytingum er ekki fylgt eftir í skólunum skila þær ekki árangri. Innleiðing nýrrar hugsunar í skólastarfi byggist á góðri samvinnu menntayfirvalda við þá sem bera hitann og þungann af skólastarfinu.“
Katrín Jakobsdóttir fyrrum ráðherra mennta-og menningarmála
Myndir: Þátttakendur og leiðbeinandi.
27.02.2014
Ræktunarátak í Spákonufelli
Á þessari mynd, sem Guðrún Guðbjörnsdóttir tók, er Sigfús
Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd að gera fólki grein fyrir
skipulagi áburðar- og frædreifingar í Spákonufelli af verönd
skíðaskálans áður en verkið er hafið.
Eins og sjá má mætti fjöldi fólks til að taka þátt í þessu
ræktunarátaki þar sem grasfræi og áburði var dreift á melinn
norðan og ofan við skíðaskálann.
Fullorðna fólkið sem þekkja má á myndinni, sem var tekin
snemma á níunda áratugnum, er talið frá vinstri:
Jökulrós Grímsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Sigfús Jónsson
(snýr baki í myndavélina), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007),
Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991) (í rauðum stakk),
Gylfi Sigurðsson, Jón Ingi Ingvarsson (með húfu),
Ólafur Bernódusson og síðan grillir í Svein Ingólfsson og
Lárus Ægi Guðmundsson.
Sigfús stjórnaði dreifingunni eins og herforingi. Skipaði fólki í
raðir og skammaðist ef einhver fór svo fram úr öðrum við
dreifinguna.
Því miður varð árangur dreifingarinnar fremur lítill en seinna var
plantað Alaska lúpínu í melinn og hefur hún rækilega fest rætur
og gjörbreytt ásýnd Spákonufellsins með sínum bláu blómum á sumrin.
27.02.2014
Dagana 3.,4. og 5.mars verður vetrarfrí í tónlistarskólanum.
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 6.mars samkvæmt stundarskrá.
Kennarar
21.02.2014
Á ferðalagi.
Þetta fólk var saman á ferðalagi í rútu þegar áð var og
myndin tekin. Líklega var myndin tekin í Giljareitum á
Öxnadalsheiði og einnig er líklegt að hér sé um að ræða ferðalag
kirkjukórsins á Skagaströnd en Páll Jónsson var organisti í
Hólaneskirkju í einhver ár og margt af fólkinu á myndinni voru
kórfélagar.
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri:
fremst: óþekktur bílstjóri, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri,
Guðmundur Guðnason (d. 12.11.1988) Ægissíðu,
séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996),
Páll Jónsson (d. 19. 7.1979) Breiðabliki, óþekkt barn,
Sigríður Guðnadóttir (d. 4.3.1964).
Miðröð: Björn Haraldsson (d. 21.9.1988) Iðavöllum, Vilborg Jónsdóttir
(d. ?) Bergi, Guðfinna Pálsdóttir Breiðabliki,
Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri, tvær óþekktar konur,
Edda Pálsdóttir Breiðabliki, Ingibjörg Sæmundsdóttir en lengst til
hægri er Hörður Ragnarsson (Dengsi).
Aftasta röð: Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) Röðulfelli,
Sigríður Helgadóttir Skálholti, Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982)
Iðavöllum, tveir óþekktir og Axel Helgason (d. ?) Læk.
Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.