08.04.2013
Að undanförnu hefur staðið yfir 20 tíma tölvunámskeið fyrir
heldri borgara á Skagaströnd og í Skagabyggð.
Námskeiðið var haldið í tengslum við félagsstarfið
í Fellsborg á máunudögum og fimmtudögum til að fólkið
þyrfti ekki að koma sér ferð á námskeiðið.
15 manns skráðu sig í byrjun en 10 manns luku því og eiga
þau að geta bjargað sér á netinu og í ritvinnslu nú að því loknu. Námskeiðinu lauk síðasta fimmtudag, 4. apríl , og þá komu
Bryndís K. Þráinsdóttir og Jóhann Ingólfsson frá Farskólanum
og afhentu fólkinu skýrteini sín til staðfestingar á náminu.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ólafur Bernódusson en hann er
í hlutastarfi hjá Farskólanum.
Á myndinni er hluti hópsins með leiðbeinandanum.
Auk þeirra sem eru á myndinni luku Valgeir Karlsson,
Matthías Auðarson, Jón Ólafur Ívarsson og
Guðrún Guðbjörnsdóttir námskeiðinu.
08.04.2013
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 13. apríl, kl. 17. Kórinn, sem skipaður er um 80 manns, er undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur en hún hefur stjórnað honum frá upphafi. Þorgerður hlaut nýlega heiðursverðlaun við afhendingu hinna árlegu íslensku tónlistarverðlauna.
Á efnisskrá kórsins eru íslensk og erlend tónverk og eru verkin mjög fjölbreytt að gerð og uppbyggingu og gefa kórnum tækifæri til margvíslegrar túlkunar.
Enginn aðgangseyrir er tekinn af tónleikagestum og eru allir velkomnir til að hlusta á þennan frábæra kór sem getið hefur sér gott orð, bæði hér á landi og erlendis, enda eftirsóttur á tónleikahátíðir víða um heim.
04.04.2013
Til reynslu ætlum við að bjóða upp á breyttan opnunartíma í íþróttahúsinu frá 9. apríl til 10. maí.
Húsið opnar kl. 6:00 þriðjudaga og föstudaga.
Fyrirhugað er að vera með þrek-og þoltíma fyrir konur
og karla í salnum þessu sömu morgna sem
Halla Karen verður með.
Venjulegur opnunartími verður aðra daga.
Húsvörður
04.04.2013
Milli kl.10:00 og 12:00 föstudaginn 5.apríl gætu orðið truflanir á vatni
í Mýrinni.
Bæjarverkstjóri
04.04.2013
Útbæingar
Þessir krakkar voru öll alin upp í útbænum - undir Höfðanum.
Frá vinstri: Finnur Kristinsson úr Héðinshöfða,
Unnur Gunnarsdóttir, sem átti heima á neðri hæðinni í Stórholti er í vagninum,
Ólafur Bernódusson sem átti heima á efri hæðinni í Stórholti
og Eygló Gunnarsdóttir systir Unnar.
Myndin var tekin um 1960 á blettinum framan við Stórholt. Kárastaðir,
sem nú eru horfnir og Höfðabrekka í baksýn.
Stórholt er Bankastræti 3,
Kárastaðir voru Bankastræti 5, en Höfðabrekka er Bankastræti 10.
27.03.2013
Á Lanz Alldog dráttarvél
Bernódus Ólafsson situr við stýrið á Lanz Alldog dráttarvél sem hann átti.
Í farþegasætinu situr Steingrímur Jónsson í Höfðakoti, á pallinum stendur
Björg Ólafsdóttir systir Bernódusar.
Jóhanna Sigurjónsdóttir fylgist íbyggin með.
Lanz Alldog dráttarvélar þóttu mjög undarlegar á sinni tíð með stóran sturtupall
framan við ökumanninn.
Myndin var tekin einhverntíma seint á sjöunda áratugnum.
21.03.2013
Það var stór hópur fólks sem fyllti Rannsóknarsetur HÍ í Gamla kaupfélaginu í gærkvöldi en alls mættu um 70 manns á aldrinum 10-80 ára.
Sýndar voru þrjár myndir þar sem starfsemi og mannlíf á vestanverðum Skaga fyrr á tímum var í fyrirrúmi.
Fyrsta myndin var hluti af heimildarmynd um Austur-Húnavatnssýslu sem tekin var upp á árunum 1951-1955 en í þeim hluta var sjónum beint að byggðinni frá Laxá á Refasveit og út á Skagatá.
Í annarri myndinni var viðtal sem Ernst Berndsen tók við Benedikt Guðmundsson bónda á Saurum um 1980.
Síðasta myndin fjallaði um starfsemina í Hólanesfrystihúsinu á árunum 1985-1990 og þær breytingar sem þá urðu á aðstöðu og tækjakosti.Mátti oft sjá bros á andliti áhorfenda er þeir litu sjálfan sig og aðra að störfum í frystihúsinu fyrir aldarfjórðungi.
Það var Gleðibankinn á Skagaströnd sem stóð fyrir þessu bíókvöldi. Í Gleðibankanum eru innstæður mældar í brosum og því ljóst að þær hafa vaxið töluvert við þennan viðburð.
21.03.2013
Bæirnir undir Höfðanum
Laufás er lengst til vinstri þá Melstaður og Ægissíða lengt til hægri.
Svarta húsið sem ber yfir Melstað var einhvers konar útihús.
Í Laufási bjuggu Sigurður Guðmundsson og Margrét Björnsdóttir
með dóttur sinni Fjólu. Sigurður var smiður og var
með trésmíðaverkstæði í húsnæðinu lengst til hægri í Laufási.
Seinna byggðu svo Fjóla og Jón Kr. Jónsson þáverandi
maður hennar hús, sem enn stendur, við enda bygginganna í Laufási
til vinstri. Melstaður er nú horfin en þar bjuggu Björgvin Guðmundsson
frá Saurum og Margrét ? kona hans.
Þau voru barnlaus og eftir að þau fluttu burt var Melstaður rifinn.
Neðan við götuna stóð Ægissíða en þar bjuggu Guðni Sveinsson
og Klemensína Klemensdóttir með syni sínum Guðmundi.
Guðmundur Guðnason var mjög lengi póstur á Skagaströnd og
vinsæll og góður ljósmyndari. Þessi mynd er t.d. tekin af honum.
Eins og algengt var á þessum árum eru fjárhús og hlöður
gjarnan sambyggðar íbúðarhúsum fólks eins og glögglega
sést á Melstað.
Þessi mynd var líklega tekin einhventíma upp úr 1960.
20.03.2013
Fimmtudaginn 7. mars sl. var haldið íbúaþing á Skagaströnd þar sem það var sett að markmiði að fá fram viðhorf íbúa til nokkurra grundvallaratriða. Jafnframt var það markmið með þinginu að auka aðgengi almennings að ákvarðanatöku í samfélaginu.
Á þinginu var unnið í hópum undir stjórn starfsmanna SSNV þar sem leitað var eftir hugmyndum og tillögum fundarmanna um málefni sem varða framtíðarsýn íbúa í atvinnumálum og almennri byggðaþróun sveitarfélagsins.
Á þinginu voru lagðar fram eftirfarandi spurningar sem unnið var úr í nokkrum hópum:
· Hvað gerir Skagaströnd aðlaðandi?
· Hvernig viljum við sjá Skagaströnd eftir 10 ár?
· Hver eru helstu atvinnutækifærin?
Undir styrkri stjórn starfsmanna SSNV, sem stýrðu hópunum, voru fyrrgreindar spurningar ræddar og bæði svör og hugmyndir tekin saman til frekari úrvinnslu.
Nú liggur fyrir fyrsta samantekt á því efni sem varð til á íbúaþinginu og er aðgengilegt hér.
Áfram verður unnið með niðurstöður þingsins á vettvangi SSNV atvinnuþróunar og farið betur yfir flokkun og leitast við að samræma og einfalda niðurstöður. Að lokum er síðan gert ráð fyrir að niðurstöður verði teknar saman í skýrslu.
20.03.2013
Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 21. – 24. mars.
Fjölbreytt úrval íslenskra kvikmynda verður sýnt víðs vegar um land og í einhverjum tilfellum verða leikstjórar eða aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar og svara spurningum að þeim loknum. Alls verða sýningar á 18 stöðum, þar af tveimur í Reykjavík – Háskólabíó og Bíó Paradís.
Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga. Frekari upplýsingar og dagskrá Íslenskrar kvikmyndahelgi má nálgast á miðvikudaginn á heimasíðu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands: www.kvikmyndamidstod.is
Í tilefni af íslensku kvikmyndavikunni verða tvær myndir sýndar frítt á í Félagsheimilinu á Blönduósi!
Fimmtudaginn 21. mars munum við sýna kvikmyndina Brim kl 20:00.
Sunnudaginn 23. mars munum við sýna kvikmyndina Duggholufólkið kl 15:00 og mun leikstjóri myndarinnar, Ari Kristjáns verða viðstaddur sýninguna!
Látum þennan frábæra menningarviðburð ekki fram hjá okkur fara :)