21.03.2013
Það var stór hópur fólks sem fyllti Rannsóknarsetur HÍ í Gamla kaupfélaginu í gærkvöldi en alls mættu um 70 manns á aldrinum 10-80 ára.
Sýndar voru þrjár myndir þar sem starfsemi og mannlíf á vestanverðum Skaga fyrr á tímum var í fyrirrúmi.
Fyrsta myndin var hluti af heimildarmynd um Austur-Húnavatnssýslu sem tekin var upp á árunum 1951-1955 en í þeim hluta var sjónum beint að byggðinni frá Laxá á Refasveit og út á Skagatá.
Í annarri myndinni var viðtal sem Ernst Berndsen tók við Benedikt Guðmundsson bónda á Saurum um 1980.
Síðasta myndin fjallaði um starfsemina í Hólanesfrystihúsinu á árunum 1985-1990 og þær breytingar sem þá urðu á aðstöðu og tækjakosti.Mátti oft sjá bros á andliti áhorfenda er þeir litu sjálfan sig og aðra að störfum í frystihúsinu fyrir aldarfjórðungi.
Það var Gleðibankinn á Skagaströnd sem stóð fyrir þessu bíókvöldi. Í Gleðibankanum eru innstæður mældar í brosum og því ljóst að þær hafa vaxið töluvert við þennan viðburð.
21.03.2013
Bæirnir undir Höfðanum
Laufás er lengst til vinstri þá Melstaður og Ægissíða lengt til hægri.
Svarta húsið sem ber yfir Melstað var einhvers konar útihús.
Í Laufási bjuggu Sigurður Guðmundsson og Margrét Björnsdóttir
með dóttur sinni Fjólu. Sigurður var smiður og var
með trésmíðaverkstæði í húsnæðinu lengst til hægri í Laufási.
Seinna byggðu svo Fjóla og Jón Kr. Jónsson þáverandi
maður hennar hús, sem enn stendur, við enda bygginganna í Laufási
til vinstri. Melstaður er nú horfin en þar bjuggu Björgvin Guðmundsson
frá Saurum og Margrét ? kona hans.
Þau voru barnlaus og eftir að þau fluttu burt var Melstaður rifinn.
Neðan við götuna stóð Ægissíða en þar bjuggu Guðni Sveinsson
og Klemensína Klemensdóttir með syni sínum Guðmundi.
Guðmundur Guðnason var mjög lengi póstur á Skagaströnd og
vinsæll og góður ljósmyndari. Þessi mynd er t.d. tekin af honum.
Eins og algengt var á þessum árum eru fjárhús og hlöður
gjarnan sambyggðar íbúðarhúsum fólks eins og glögglega
sést á Melstað.
Þessi mynd var líklega tekin einhventíma upp úr 1960.
20.03.2013
Fimmtudaginn 7. mars sl. var haldið íbúaþing á Skagaströnd þar sem það var sett að markmiði að fá fram viðhorf íbúa til nokkurra grundvallaratriða. Jafnframt var það markmið með þinginu að auka aðgengi almennings að ákvarðanatöku í samfélaginu.
Á þinginu var unnið í hópum undir stjórn starfsmanna SSNV þar sem leitað var eftir hugmyndum og tillögum fundarmanna um málefni sem varða framtíðarsýn íbúa í atvinnumálum og almennri byggðaþróun sveitarfélagsins.
Á þinginu voru lagðar fram eftirfarandi spurningar sem unnið var úr í nokkrum hópum:
· Hvað gerir Skagaströnd aðlaðandi?
· Hvernig viljum við sjá Skagaströnd eftir 10 ár?
· Hver eru helstu atvinnutækifærin?
Undir styrkri stjórn starfsmanna SSNV, sem stýrðu hópunum, voru fyrrgreindar spurningar ræddar og bæði svör og hugmyndir tekin saman til frekari úrvinnslu.
Nú liggur fyrir fyrsta samantekt á því efni sem varð til á íbúaþinginu og er aðgengilegt hér.
Áfram verður unnið með niðurstöður þingsins á vettvangi SSNV atvinnuþróunar og farið betur yfir flokkun og leitast við að samræma og einfalda niðurstöður. Að lokum er síðan gert ráð fyrir að niðurstöður verði teknar saman í skýrslu.
20.03.2013
Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 21. – 24. mars.
Fjölbreytt úrval íslenskra kvikmynda verður sýnt víðs vegar um land og í einhverjum tilfellum verða leikstjórar eða aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar og svara spurningum að þeim loknum. Alls verða sýningar á 18 stöðum, þar af tveimur í Reykjavík – Háskólabíó og Bíó Paradís.
Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga. Frekari upplýsingar og dagskrá Íslenskrar kvikmyndahelgi má nálgast á miðvikudaginn á heimasíðu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands: www.kvikmyndamidstod.is
Í tilefni af íslensku kvikmyndavikunni verða tvær myndir sýndar frítt á í Félagsheimilinu á Blönduósi!
Fimmtudaginn 21. mars munum við sýna kvikmyndina Brim kl 20:00.
Sunnudaginn 23. mars munum við sýna kvikmyndina Duggholufólkið kl 15:00 og mun leikstjóri myndarinnar, Ari Kristjáns verða viðstaddur sýninguna!
Látum þennan frábæra menningarviðburð ekki fram hjá okkur fara :)
18.03.2013
Í kvöld (mánudagskvöld) klukkan 20:00 verður þriðja og síðasta spilakvöldið hjá kvenfélaginu í bili. Sjáumst í Fellsborg :)
Kvenfélagið Eining
18.03.2013
Eggert Þór Bernharðsson prófessor mun halda fyrirlestur um ljósmyndir og fjölskyldualbúmin í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd næst komandi laugardag 23. mars klukkan 15:00.
Flestir hafa reynslu af því að fletta gömlum fjölskyldualbúmum og haft gagn og gaman af.
Í erindinu veltir Eggert Þór Bernharðsson prófessor í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands upp ýmsum spurningum sem vaknað hafa við skoðun og könnun á fjölskyldualbúmum frá tiltekinni fjölskyldu, einkum frá árunum 1930 til 1970.
Hugað verður að því hvers konar sögu sé hægt að lesa út úr myndaalbúmum af þessu tagi, hvert sé hugsanlegt gildi fjölskyldumynda, hvað kunni að einkenna þær og hvaða möguleika þær bjóði upp á sem heimildir.
Heitt verður á könnunni og eftir fyrirlesturinn mun Eggert sitja fyrir svörum um það sem brennur á fólki í sambandi við myndirnar sínar. Hver veit nema það felist fjársjóður í fjölskyldualbúminu þínu.
Við þetta tækifæri verður líka sett upp lítil ljósmyndasýning á staðnum á fjölskyldumyndum úr Ljósmyndasafninu Skagastrandar. Fólk verður beðið um að hjálpa til við að þekkja þá sem óþekktir eru á myndunum.
Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Skagaströnd
14.03.2013
Verslunarstjórahúsið byggt
Verslunarstjórahúsið í byggingu árið 1906. Þetta hús stóð vestan
við gamla kaupfélagið
og var, eins og nafnið bendir til, byggt sem íbúð fyrir
verslunarstjóra Höphnersverslunar
sem þá var á Skagaströnd. Í húsinu voru tvær íbúðir og kjallari.
Seinna var húsið í eigu Kaupfélags Skagstrendinga og enn síðar
í eigu Kaupfélags Húnvetninga.
Lengst af bjuggu í húsinu kaupfélagsstjórar og/eða aðrir
starfsmenn kaupfélagsins.
Í nokkur ár var síðan húsið leigt út á almennum markaði og
síðast bjuggu í því fjölskyldur Eðvarðs Ingvasonar og Þórs Arasonar.
Húsið var svo rifið í kringum 1980.
13.03.2013
Stórkostleg skemmtun með Siggu Klingenberg sem hefur slegið í gegn um allt land. Sigga Kling verður í Félagsheimilinu á Blönduósi. Skemmtunin hefst klukkan 19:30. Boðið verður upp á fjölbreytta osta-kynningu frá Osta- og Smjörsölunni og vínkynningu frá Ölgerðinni. Þetta er skemmtunar og fræðslukvöld sem hefur slegið í gegn um allt land! Ekki missa af Siggu Klingenberg í þetta eina sinn á Blönduósi. Bæði fyrir konur og karla!
Verð aðeins 1.900 kr.
Viltu hlægja, læra og láta þér líða vel? þá skaltu mæta á þetta kvöld.
hristu af þér slenið og skundaðu á skemmtun og fræðslukvöld í Félagsheimilinu á Blönduósi þann 15. Mars!
Við hvetjum fólk til þess að skrá sig hér á facebook eða á pot@pot.is :)
08.03.2013
Á mánudaginn 11. mars verður boðið til kynningarfundar vegna fyrirhugaðs framhaldsnáms (dreifnáms) í heimahéraði.
Fundurinn verður haldinn kl. 20:00 í tölvuveri Höfðaskóla 11. mars og eru allir íbúar hjartanlega velkomnir en foreldrar elstu nemenda grunnskólans eru sérstaklega hvattir til að mæta til að kynna sér þessa leið við byrjun framhaldsnáms.
Á fundunum mun Þorkell Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fara ítarlega yfir starfsemi deildarinnar. Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hvammstanga og nemendur þaðan kynna hvernig til hefur tekist með uppbyggingu dreifnámsins á Hvammstanga. Fulltrúar sveitarfélaga í A-Hún. munu skýra frá undirbúningi heima í héraði. Auk kynninganna verður tekið við fyrirspurnum frá fundargestum.
Með von um góða mætingu!
Undirbúningsnefnd
07.03.2013
Eftir golfmót
Hópmynd að lokinni verðlaunaafhendingu á golfmóti á
Hágerðisvelli á góðviðrisdegi um hásumar.
Myndin er tekin einhverntíma í kringum 1990 en golfklúbburinn var stofnaður 1985.
Á fyrstu árum klúbbsins voru golfmót afar algeng og fjöldi manns tók þátt í þeim.
Á myndinni eru, talið frá vinstri:Viggó Magnússon, Halldór Gunnar Ólafsson,
Ingibergur Guðmundsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir situr með dóttur sína
Elínu Ósk Ómarsdóttur, Guðmundur E. Guðmundsson,
Sigurbjörn Kristjánsson, Lilja Kristinsdóttir, Jónas Þorvaldsson,
Bjarney Valdimarsdóttir, Oliver Oliversson, Guðrún Pálsdóttir, Vilhelm Jónsson,
Adolf J. Berndsen, Gunnar Jónsson, óþekktur drengur,
óþekkt kona með barn.
Standandi hægra meginn við bílinn eru:
Adolf H. Berndsen, Fritz Hendrik Berndsen, Ragnar Jónsson, Ragnar Ingvarsson,
óþekkt kona, Þórarinn Ingvarsson og Jóhannes Sveinsson.
Krjúpandi fyrir fram þá eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Lárus Ægir Guðmundsson,
Rúnar Loftsson, Ómar Jakobsson og Vilhjálmur Skaftason.
Ef þú þekkir þá sem eru óþekktir á þessari mynd vinsamlega sendu okkur þá
athugasemd á netfangið olibenna@hi.is